Nýjar skýrslur frá Eurydice um líkamsrækt í skólum og fjárveitingar til menntamála
Eurydice, gagnamiðstöð ESB í menntamálum, hefur nýlega birt tvær nýjar skýrslur. Sú fyrri fjallar um líkamsrækt í skólum í 30 ríkjum í Evrópu. Á síðustu árum hefur vitund manna í álfunni aukist mjög um mikilvægi líkamsræktar barna og ungmenna og í skýrslunni er gerð úttekt á stöðu mála.
- Skýrslan á vef Eurydice
Eins og nafnið bendir til fjallar skýrslan Funding of Education in Europe 2000-2012: The Impact of the Economic Crisis, um fjárveitingar til menntamála og nær til 31 ríkis í Evrópu, þ.á m. til Íslands.
- Skýrslan á vef Eurydice