Hoppa yfir valmynd
28. júní 2013 Matvælaráðuneytið

Fjárfestingarvaktin, starfshópur um stefnu stjórnvalda varðandi erlenda fjárfestingu skilar tillögum til iðnaðar- og viðskiptaráðherra

Þórður Hilmarsson, Geir A Gunnlaugsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir
Þórður Hilmarsson, Geir A Gunnlaugsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir

Fjárfestingarvaktin, starfshópur sem skipaður var af iðnaðarráðherra í febrúar 2012 skilaði í dag tillögum til Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra um úrbætur á samkeppnishæfni Íslands varðandi beina erlenda fjárfestingu og eflingu markaðs- og kynningarstarfs.

Tillögur hópsins lúta að úrbótum tengdum almennum takmörkunum á erlendri fjárfestingu hér á landi, endurskoðun ívilnanalöggjafarinnar, breytingum og nánari úttekt á skattalöggjöf í tengslum við erlenda fjárfestingu, úrbætur í skipulagsmálum tengdum uppbyggingu iðnaðarsvæða auk tillagna um auðveldara aðgengi erlendra sérhæfðra starfsmanna til tímabundinnar dvalar hér á landi. Þá er einnig gerð tillaga um eflingu kynningar- og markaðsstarfs til næstu 5 ára til að laða að beina erlenda fjárfestingu í samræmi við stefnu Alþingis og stjórnvalda.

Fjárfestingarvaktin var skipuð 13 einstaklingum sem komu frá Alþýðusambandi Íslands, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Íslandsstofu, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins,  Seðlabanka Íslands og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Formaður var Geir A Gunnlaugsson.
 
Tillögur nefndarinnar

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta