Skýrsla um tónlistarhátíðir
Úttekt á íslenskum tónlistarhátíðum og möguleikum þeirra til frekari þróunar.
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, ÚTÓN og Ferðamálastofa stóðu að gerð úttektar á íslenskum tónlistarhátíðum og möguleikum þeirra til frekari þróunar og hafa niðurstöður verið gefnar út í skúrslunni „Tónlistarhátíðir á Íslandi – Greining og yfirlit“.
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að flestar tónlistarhátíðir hafa áhuga á einhvers konar samstarfi, t.d. um sameiginlegt kynningarátak og vettvang til að skiptast á reynslu o.fl. Þá kemur fram að margar hátíðir þurfa að bæta vefsíður sínar. Þá vantar vefsíður á ensku í nokkrum tilvikum. Höfundur skýrslunnar, Tómas Young, verkefnisstjóri hjá ÚTÓN, telur að aukið samstarf og meiri fagmennska í kynningarmálum geti haft mjög jákvæð áhrif á þróun og vöxt tónlistarhátíða hér á landi.
- Sjá nánar á vef ÚTÓN: