Skýrsla um fjármögnunarumhverfi frumkvöðla og sprotafyrirtækja
Á grundvelli aðgerðaráætlunar í þágu frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja, Frumkvæði og framfarir, sem Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra kynnti í desember 2015 hefur verið ráðist í ítarlega kortlagningu á fjármögnunarumhverfi nýsköpunar og sprotafyrirtækja. Markmiðið er að draga saman upplýsingar um fjármögnunarkosti frumkvöðla og sprotafyrirtækja, allt frá fyrstu stigum viðskiptahugmyndar til vaxtar, skilgreina þarfir á úrbótum í fjármögnunarumhverfinu og fjölga fjármögnunarúrræðum sem frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum standa til boða.
Í samantekt skýrslunnar sem unnin er af KPMG eru reifaðar hugmyndir um stofnun vettvangs með óskráð bréf í fyrirtækjum í samstarfi við OMX Nasdaq og fleiri aðila. Regluverk hópfjármögnunar (e. crowd funding) endurskoðað, og ráðist verði í sérstakt kynningarátak um kosti þess að fjárfesta í sprotafyrirtækjum. Að auki eru viðraðar hugmyndir um stofnun samtaka englafjárfesta og endurskoðun á hlutverki Nýsköpunarsjóðs atvinnulífisins.