Uppbygging rannsóknarinnviða á Íslandi til framtíðar
Ein af lykilstoðum framúrskarandi árangurs í vísindum og nýsköpun er gott aðgengi að rannsóknarinnviðum. Rannsóknarinnviðir eru aðstaða, aðföng og þjónusta sem vísindamenn nýta við rannsóknir og til að stuðla að nýsköpun á fagsviðum sínum. Til rannsóknarinnviða teljast: sérhæfður tækjabúnaður (eða tækjasamstæður), skjala- og gagnasöfn, rafrænir innviðir (s.s. háhraðatengingar), samskiptanet og önnur tæki sem geta talist ómissandi og nauðsynleg til að ná árangri í rannsóknum og nýsköpun. Markmið skýrslunnar er að gera grein fyrir fjármögnun rannsóknarinnviða hér á landi og leggja fram tillögur að umbótum með það fyrir augum að efla uppbyggingu rannsóknarinnviða innanlands og alþjóðlegt samstarf um þá.