Lokaskýrsla Evrópumiðstöðvar um menntun fyrir alla á íslensku
Markmið úttektarinnar var að styðja við ákvarðanatöku um innleiðingu og framkvæmd stefnunnar um menntun án aðgreiningar með sannreyndri þekkingu, stuðla að víðtæku sjálfsmati innan menntakerfisins auk þess að styðja við langtímaþróun menntastefnu á Íslandi. Áhersla var lögð á að kanna hve árangursrík innleiðing menntastefnu um skóla án aðgreiningar hefur verið í skólakerfinu á Íslandi, á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, meðal annars í samanburði við önnur lönd. Þá var rýnt í fjármögnun vegna skóla án aðgreiningar á vegum ríkis og sveitarfélaga.
Menntun fyrir alla á Íslandi - úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi