Landsaðgerðaáætlun (NREAP) um aukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa - Framvinduskýrsla 2017
Landsgerðaráætlun (NREAP) er liður í innleiðingu tilskipunar 2009/28/EC um aukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa. Sett eru mismunandi bindandi landsmarkmið sem Evrópuríki þurfa að ná fyrir árið 2020. Auk þess er undirmarkmið um 10% hlut endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum fyrir árið 2020. Framvinduskýrsla (progress report) er birt á tveggja ára fresti og er hana að finna hér. Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum hefur aukist ár frá ári, og er nú um 7% og er áfram stefnt á að ná takmarkinu fyrir árið 2020. Jákvæðar vísbendingar eru um orkuskipti í samgöngum þar sem Ísland er með næst hæsta hlutfall í Evrópu (og heiminum) í nýskráningum vistvænna ökutækja eins og sjá má á vefsíðu EAFO.