Valkostagreining AFL arkitekta vegna Laugardalsvallar
AFL arkitektar unnu valkostagreiningu vegna uppbyggingar Laugardalsvallar fyrir Þjóðarleikvang ehf. á árinu 2020. Í skýrslu AFL arkitekta er farið yfir mismunandi kosti við uppbyggingu vallarins. Valkostirnir eru allt frá því að vera lágmarks endurbætur á núverandi aðstöðu til þess að vera mannvirki sem reist er frá grunni með yfirbyggðu og yfirdraganlegu þaki fyrir 17.500 áhorfendur.