Samgöngur og fatlað fólk
Í skýrslu starfshóps á vegum innviðaráðuneytisins um stöðu fatlaðs fólks í samgöngum eru kynntar niðurstöður um stöðu aðgengismála í ólíkum ferðamátum og lögð fram forgangsröðuð aðgerðaáætlun. Niðurstöður hópsins verða lagðar til grundvallar áherslum og aðgerðum í stefnumörkun samgönguáætlunar.
Niðurstöður starfshópsins:
- Innanlandsflug: Á innanlandsflugvöllum eru engin tæki til að flytja fatlaða farþega um borð í flugvélar. Farþegar sem nota hjólastól eru bornir um borð en sú aðferð er áhættusöm bæði fyrir farþega og starfsfólk.
- Ferjusiglingar: Herjólfur sem siglir á milli lands og Vestmannaeyja er aðgengilegur fötluðu fólki en bæta mætti miðlun upplýsinga til fatlaðra farþega. Aðrar ferjur eru eldri og ekki að öllu leyti hannaðar með aðgengi fatlaðs fólks í huga. Landgangar ferja eru þröngir og brattir, og eru því ekki aðgengilegir öllum.
- Almenningssamgöngur á landi – höfuðborgarsvæði: Vagnar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir aðgengilegir. Aðgengi á biðstöðvum er ekki alltaf hannað með fatlað fólk í huga en víða er unnið að endurbótum. Þá er aðkoma fatlaðs fólks að biðstöðvum víða ábótavant.
- Almenningssamgöngur á landi – dreifbýli: Vagnar í akstri í dreifbýli eru almennt ekki aðgengilegir fötluðu fólki en nýjustu vagnar eru þó með sérhönnuðum lyftum fyrir fólk með hreyfihömlun. Biðstöðvar fyrir farþega eru langflestum tilfellum óaðgengilegar fyrir fatlað fólk.
- Hleðslustöðvar raf- og tvinnbíla: Hleðslustöðvar fyrir bíla eru oft og tíðum óaðgengilegar fyrir þá sem nota hjólastól eða búa við aðra fötlun. Algengt er að búnaðurinn sé í rangri hæð og að stólpar/kantar hindri aðkomu hjólastóls. Þá þarf að huga að nægu rými fyrir hjólastól við bíl sem þarf að hlaða.
- Akstursþjónusta fatlaðra: Hvert sveitarfélag rekur þjónustuna á sínum forsendum með hliðsjón af lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og leiðbeiningum stjórnarráðsins. Samræmt aðgengi að þjónustunni, óháð staðsetningu þess fatlaða er ekki í boði í dag þar sem framboð er háð samkomulagi á milli einstakra sveitarfélaga. Þá er þjónustustig mismunandi eftir sveitarfélögum, m.a. hvað varðar þjónustutíma innan vikunnar.
Aðgerðaráætlun tilgreinir eftirtalin forgangsverkefni:
- Gerð leiðbeininga um hönnun og uppsetningu hleðslustöðva með hliðsjón af fullu aðgengi. Allar fyrirgreiðslur, svo sem styrkir og leyfisveitingar frá hendi hins opinbera verði skilyrtar því að fylgja leiðbeiningunum.
- Skilyrði um aðgengi fyrir alla verði innleitt í útboðum vegna samgangna til og frá Leifsstöð.
- Kaup á tækjabúnaði vegna aðgengis að flugi á innanlandsflugvöllum (um 65 millj. kr.-).
- Hönnun og uppsetning tveggja biðstöðva á dreifbýlisleiðum (30 millj. kr.-).