Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Endurnýjanlegt eldsneyti grunnforsenda orkuskipta í millilandaflugi

Nýting sjálfbærs þotueldsneytis (Sustainable aviation fuel (SAF)) á flugvélar er grunnforsenda þess að íslenskir flugrekstraraðilar nái að uppfylla alþjóðlegar skyldur sínar varðandi samdrátt í losun frá millilandaflugi. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að skoða og leggja fram tillögur að því hvaða leiðir séu færar til að hraða orkuskiptum í flugi, með notkun endurnýjanlegs eldsneytis fyrir millilandaflug. Starfshópurinn sem var skipaður í febrúar 2023, hefur skilað ráðherra skýrslu sinni. 

Í skýrslu hópsins kemur fram að orkuskipti í millilandaflugi verði ekki án innleiðingar endurnýjanlegs eldsneytis og að íblöndun á sjálfbæru þotueldsneyti (SAF) geti átt sér stað með innfluttu eldsneyti, eldsneyti sem framleitt væri hérlendis eða hvoru tveggja. Til skemmri tíma sé gert ráð fyrir íblöndun SAF í hefðbundið þotueldsneyti, en eftir árið 2035 sé gert ráð fyrir að ný tækni fari að taka við af hefðbundnum þotuhreyflum og er þá einkum horft til vetnis í því sambandi. Alþjóðlegt regluverk nær utan um millilandaflugið og eru það einna helst tvær Evrópugerðir sem ætlað er að skapa hvata til orkuskipta í flugi. Það er að segja, gerð um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) sem setur verðmiða á losun, og nýleg ReFuel-gerð, sem setur kröfu um íblöndunarhlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í þotueldsneytið.

Hópinn skipuðu:

  • Guðrún Hafsteinsdóttir alþingismaður og núverandi dómsmálaráðherra, sem var formaður hópsins.
  • Alexandra Kjærnested Arnarsdóttir, EES-sérfræðingur, tilnefnd af utanríkisráðuneytinu
  • Erla Sigríður Gestsdóttir, teymisstjóri orkumála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
  • Jón Ásgeir H. Þorvaldsson, verkefnisstjóri í orkuskiptum hjá Orkustofnun
  • Ingvi Már Pálsson, tilnefndur af menningar- og viðskiptaráðuneytinu
  • Orri Páll Jóhannsson, alþingismaður, tilnefndur af forsætisráðuneytinu
  • Valgerður B. Eggertsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af innviðaráðuneytinu

Starfshópnum var við vinnu sína gert að taka mið af stefnu stjórnvalda, sem og aðgerðaáætlunum um orkuskipti og í loftslagsmálum.

Í tillögum sínum leggur hópurinn m.a. til að:

  • Skapaðar verði forsendur til að tryggt sé aðgengi að sjálfbæru þotueldsneyti (SAF) hérlendis.
  • Gerð verði krafa um lágmarkshlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa (ReFuel) í þotueldsneyti sem selt er til millilandaflugs.
  • Greind verði efnahags-, umhverfis- og samfélagsleg áhrif þess að setja orkuskiptagjald á hvern flugfarþega (bæði í innanlands- og millilandaflugi) sem renni í sjóð sem geti niðurgreitt umframkostnað á endurnýjanlegum orkugjöfum.
  • Tryggt verði að sjónarmið um samdrátt í losun og notkun á SAF komi inn í stefnumótun um ferðaþjónustu og vinnu við gerð aðgerðaáætlunar ferðamálastefnu til 2030.
  • Tryggt verði aðgengi að styrkjum til aðila sem hyggja á SAF framleiðslu hérlendis, t.d. í gegnum núverandi styrkjaumhverfi s.s. Loftslagssjóð/Orkusjóð.
  • Tryggt verði aðgengi að orku til framleiðslu SAF og flutning á henni til framleiðslustaðar
  • Skýr rammi verði settur utan um vindorkuvinnslu sem fyrst til að auka framboð á raforku.

Þá bendir starfshópurinn á að verði rafeldsneyti framleitt hér á landi þurfi til þess töluverða orku, auk kolefnis, fjármagns, sem og samkeppnishæfni við aðra kaupendur raforku. Þannig þurfi 172 MW af uppsettu vatnsafli eða 268 MW af uppsettu vindafli, eigi að framleiða eldsneyti sem uppfylli lágmarksíblöndunarskyldu rafeldsneytis í millilandaflugi árið 2040.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Fram undan eru spennandi tímar í orkuskiptum þar sem græn orka mun knýja þotuhreyflana í háloftunum, að einhverju leyti til að byrja með. Orkuskiptin í flugi verða tekin í skrefum líkt og á öðrum sviðum. Fyrsta lykilskrefið er framleiðsla og nýting sjálfbærs þotueldsneytis á hefðbundinn flugflota hér á landi sem og annars staðar í heiminum. Ísland hefur alla burði til að stíga fram og leggja sitt af mörkunum í loftslagsmálunum.“

Flugorka framtíðarinnar – Skýrsla starfshóps um orkuskipti í flugi

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta