Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland nýtir áfram sveigjanleikaákvæði ETS

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að Ísland muni áfram nýta ETS-sveigjanleikaákvæði skv. 6 gr. reglugerðar (ESB) um samfélagslosun fyrir árin 2026-2030. Ákvörðunin er byggð á tillögu stýrihóps skipuðum starfsfólki úr umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og frá Umhverfis- og orkustofnun. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að gera tillögur til ráðherra um nýtingu sveigjanleikaákvæða sem varða möguleg kaup eða sölu á losunarheimildum fyrir hvert ár skuldbindingatímabilsins.

Skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum gagnvart ESB á tímabilinu 2021–2030 byggjast á þátttöku í þremur meginkerfum; samfélagslosun (e. Effort sharing regulation – ESR), landnotkun og skógrækt (Land use, land use change and forestry – LULUCF) og viðskiptakerfi með losunarheimildir (Emission trading system – ETS). Uppgjör á loftslagsskuldbindingunum Íslands vegna samfélagslosunar fer fram árið 2027 fyrir fyrri hluta tímabilsins (2021–2025) og árið 2032 fyrir seinni hluta tímabilsins (2026–2030).

Öll ríki sem taka þátt í ETS-kerfinu fá ákveðinn fjölda  losunarheimilda sem þau geta selt  á uppboðsmarkaði  innan Evrópska efnahagssvæðisins. ETS-sveigjanleikaákvæðið veitir ákveðnum aðildarríkjum ESB, ásamt Íslandi og Noregi, sérstaka sveigjanleikaheimild til að nýta þær heimildir til að auðvelda ríkjunum að ná settum samdrætti í losun. Samkvæmt ákvæðinu hefur Ísland heimild til þess að nýta  árlega allt að 4% af umræddum úthlutuðum losunarheimildum úr ETS-viðskiptakerfinu (miðað við losun árið 2005) til að gera upp skuldbindingar í samfélagslosun. Þær losunarheimildirnar sem þannig eru fluttar á milli kerfa yrðu annars boðnar upp á uppboðsvettvangi ESB fyrir ETS.

Í tillögum stýrihópsins var horft til stöðu Íslands gagnvart skuldbindingum landsins í loftslagsmálum. Jafnframt var horft til þess hvaða áhrif nýting sveigjanleikans hefði í för með sér og borið saman við stöðu Íslands ef hann yrði ekki nýttur. Sú tilfærsla á milli kerfa sem felst í sveigjanleikaákvæðinu hefur þannig ekki áhrif á heildarsamdrátt í losun á EES- svæðinu, heldur eingöngu innan hvors kerfis hún eigi sér stað.

Hópurinn bendir í tillögum sínum ennfremur á að nýting ETS-sveigjanleikans geti haft bein áhrif á fjármál ríkisins vegna tapaðra tekna af uppboðum losunarheimilda, en að sama skapi geti Ísland lent í þeirri stöðu að ef að losun verði umfram skuldbindingar verði sveigjanleikaákvæðið ekki nýtt, geti það kallað á kaup á fleiri losunarheimildum úr ESR-kerfinu. Slíku fylgir umtalsverð óvissa, þar sem hvorki liggur fyrir mögulegt framboð né verð á slíkum losunarheimildum.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ákvörðunin um áframhaldandi nýtingu sveigjanleikaákvæðisins byggir á faglegu mati sérfræðinga úr tveimur ráðuneytum og undirstofnun. Þetta snýst um að lágmarka fjárhagsáhættu ríkisins vegna losunar og draga úr óvissu í samræmi við ábyrga fjármálastefnu nýrrar ríkisstjórnar.”

Ákvörðun um nýtingu sveigjanleikaákvæðisins er hægt að endurskoða fyrir lok árs 2027, áður en  seinni hluti tímabilsins (2028-2030) tekur við. Á þeim tíma mun uppgjör á samfélagslosun fyrir tímabilið 2021–2025 liggja fyrir, ásamt nýrri gögnum um stöðu Íslands gagnvart skuldbindingum fyrir fyrri hluta tímabilsins og nákvæmari framreikningum fyrir seinni hluta tímabilsins, 2028–2030.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta