Óháð úttekt vegna netöryggis almennings
Innanríkisráðuneytið hefur ákveðið að láta gera óháða úttekt á netöryggi almennings vegna þess alvarlega öryggisbrests sem átti sér stað vegna tölvuinnbrots hjá Vodafone um síðustu helgi.
Tilgangur úttektarinnar er að greina heildstætt stöðu netöryggis á Íslandi, ábyrgð fjarskiptafyrirtækja, eftirlit opinberra stofnana, gæði lagarammans og réttarstöðu neytenda. Niðurstöður úttektarinnar skulu liggja fyrir í lok janúar.