Áfram verði unnið að uppbyggingu hjá Íslandspósti
Björn Jósef Arnviðarson, formaður stjórnar Íslandspósts, og Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri fyrirtækisins, greindu frá starfsemi og fjárhag fyrirtækisins á síðasta ári. Fram kom í máli þeirra að þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu að undanförnu hefði tekist að með aðhaldi, hagræðingu og eftirliti í fyrirtækinu að halda rekstrinum réttu megin við strikið. Hagnaður hefði þó verið minni en áætlað hefði verið eða 79 milljónir króna en hann var um 230 milljónir króna árið 2007. Einnig kom fram að áfram hefði verið unnið að endurbótum á starfsstöðvum og byggingu nýrra og rennt hefði verið fleiri stoðum undir reksturinn með því að taka upp nýja þætti í þjónustu.
Undir lok ræðu sinnar sagði samgönguráðherra: ,,Stjórn Íslandspósts leggur mikla áherslu á að halda sínu striki varðandi uppbygginguna og telur að hún auki verðmæti fyrirtækisins, bæti afkomumöguleikana og verði viðskiptavinum, starfsmönnum og eiganda til hagsbóta. Rökin eru ótvíræð því það er nauðsynlegt að halda uppbyggingunni áfram enda skapar endurnýjun og nýbygging pósthúsa atvinnu og ekki veitir af um þessar mundir.“
Frá aðalfundi Íslandspósts í dag. Björn Jósef Arnviðarson, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar. Á fremsta bekk má meðal annarra sjá Kristján L. Möller samgönguráðherra og aðra fulltrúa ráðuneytisins, Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og Unni Gunnarsdóttur skrifstofustjóra. Fjær sjást stjórnarmennirnir Guðmundur Oddsson og Helga Vala Helgadóttir. |