Fjármálareglur - Umræðuskýrsla
Skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra um fjármálareglur. Megintilgangur fjármálareglna er að styrkja umgjörð opinberra fjármála, m.a. með því að stuðla að stöðugleika og lágu, sjálfbæru skuldahlutfalli. Í skýrslunni er farið yfir kosti og galla ýmissa tölulegra fjármálareglna. Henni er ætlað að styðja við umræður og ákvarðanir um framtíð fjármálareglna á Íslandi.