Kröfulýsing fyrir hjúkrunarrými og dvalarrými - Útgáfa III
Velferðarráðuneytið birtir hér með endurskoðaða kröfulýsingu velferðarráðuneytisins fyrir hjúkrunar- og dvalarrými og tekur hún gildi 1. janúar 2017. Þetta er þriðja útgáfa kröfulýsingar ráðuneytisins um öldrunarþjónustu frá því að slík kröfulýsing tók fyrst gildi í desember 2011.
Í annarri útgáfu kröfulýsingar fyrir öldrunarþjónustu sem tók gildi í janúar 2013 var verið að færa kröfurnar til samræmis við ýmsar breytingar sem gerðar höfðu verið á lögum og reglugerðum.
Í þeim kröfum sem hér eru birtar og fela í sér endurskoðun á kröfulýsingu II hefur heiti skjalsins verið breytt í Kröfulýsing fyrir hjúkrunarrými og dvalarrými. Kröfurnar lúta að þeirri þjónustu sem veitt er dvalar- og hjúkrunarheimilum.