Skýrsla ECRI um Ísland
Evrópunefndin gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi hefur gefið út skýrslu um Ísland. Skýrslan er unnin á grundvelli greiningar á gögnum, heimsóknar til landsins sem um ræðir og trúnaðarsamræðna við viðkomandi stjórnvöld.
- Skýrsla ECRI um Ísland (fjórða eftirlitslota)
Evrópunefndin gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi (European Commission against Racism and Intolerance - ECRI) var stofnuð af Evrópuráðinu. Um er að ræða sjálfstæðan eftirlitsaðila á sviði mannréttinda sem sérhæfir sig í málum er varða kynþáttafordóma og umburðarleysi.