Flutningur þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga
Kortlagning á stöðu þjónustunnar fyrir flutning með það að markmiði að afla upplýsinga um stöðu málaflokksins og meta faglegan ávinning af flutningi hans frá ríki til sveitarfélaga.
Eitt af meginmarkmiðum tilfærslu á málefnum fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga í byrjun árs 2011 er að bæta þjónustu við fatlað fólk og auka möguleika á að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum.
Svo að unnt verði að meta hvort þetta markmið náist ákvað velferðarráðuneytið (þá félags- og tryggingamálaráðuneytið) að ráðast í nokkuð viðamikla úttekt á stöðu fatlaðs fólks og þjónustu við það í lok ársins 2010 eða um það leyti sem þjónustan var flutt á milli stjórnsýslustiga.
- Flutningur þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga
Kortlagning á stöðu þjónustunnar fyrir flutning (194 bls. - október 2011) - Flutningur þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga - viðaukar (384 bls.)