Hoppa yfir valmynd
19. október 2006 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Forvali vegna aukins gsm-sambands á þjóðvegum lokið

Fjarskiptasjóður, sem stofnaður var með 2,5 milljarða króna framlagi sem fékkst við sölu Landssíma Íslands, undirbýr nú þrenns konar verkefni á sviði aukinnar farsímaþjónustu, háhraða nettenginga og dreifingar sjónvarps- og útvarpssendinga til strjálbýlla svæða á landinu.

Jón Eðvald Malmquist, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu, og Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, skýrðu frá markmiðum fjarskiptaáætlunar og verkefnum fjarskiptasjóðs á ársfundi Eyþings, sambands sveitarfélaga við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum, sem haldinn var fyrir stuttu.

Fram kom varðandi verkefni fjarskiptasjóðs að lokið er forvali vegna þéttingar gsm farsímanetsins á hringveginum og fimm fjallvegum og næsta skref er að bjóðendur sem hafa uppfyllt skilyrði fái afhent útboðsgögn. Gert er ráð fyrir að skrifa megi undir samning við verktaka í byrjun næsta árs og að framkvæmdir gætu hafist í framhaldi af því. Markmið þessa áfanga verkefnisins er að gsm-farsímaþjónustan nái yfir allan hringveginn og fjallvegina Fróðárheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þverárfjallsveg, Fagradal og Fjarðarheiði. Alls eru þetta um 500 km svæði og er búið að kortleggja hvar þörf er á sendum. Lengsti kaflinn á hringveginum þar sem gsm-samband er ekki fyrirhendi í dag er um Mývatnsöræfi eða um 80 km langur.

Jafnframt þessu er ætlunin að bæta farsímaþjónustu á Barðaströnd. Settur verður upp sendir í Flatey á Breiðafirði en hann mun ná til nærri því helmings leiðarinnar um Barðaströnd þar sem farsímaþjónustu nýtur ekki við í dag.

Þetta er fyrri hluti áætlunar um endurbætur á gsm-farsímanetinu og gert er ráð fyrir að síðari hluti hennar verði tilbúinn til útboðs snemma á næsta ári. Snýst sá hluti um stofnvegi og helstu ferðamannastaði á landinu.

Útboð vegna háhraðatenginga undirbúið

Annað verkefni fjarskiptasjóðs er undirbúningur útboðs vegna háhraðatenginga fyrir alla landsmenn. Snýst það um að allir landsmenn sem þess óska hafi aðgang að háhraðatengingum og á að ná yfir þau svæði sem markaðsaðilar telja sig ekki geta sinnt vegna fámennis. Verið er að greina nánar hvaða svæðum markaðurinn muni ekki sinna, skilgreina gæðakröfur og ákveða útboðsleið. Í þessu sambandi er einnig ætlunin að fulltrúar fjarskiptasjóðs ræði við fulltrúa sveitarfélaga og verður efnt til þeirra funda á næstu vikum og mánuðum.

Þriðja verkefni fjarskiptasjóðs sem nú er í deiglunni er dreifing á stafrænu sjónvarpi og hljóðvarpi um gervihnött til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlla svæða. Nokkur heimili í landinu búa við óviðunandi eða engar útvarps- og sjónvarpssendingar. Leitað hefur verið eftir samstarfi við Ríkisútvarpið og er verið að kanna hvaða gervihnetti hugsanlegt er að nota í þessu sambandi. Ákveðið hefur verið að fara svonefnda samningakaupaleið; að samið verði við ákveðinn aðila um framkvæmd þjónustunnar. Er verið að kanna tæknilegar hliðar málsins en stefnt er að því að gengið verði frá samningi fyrir lok ársins.



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta