Umsagnarfrestur framlengdur um drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu
Framlengdur hefur verið umsagnarfrestur um drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu nr. 364/2003. Umsagnarfrestur er nú til og með 2. september næstkomandi og skulu umsagnir sendar á netfangið [email protected].
Hagsmunaaðilar og aðrir þeir sem gera vilja athugasemdir við drögin eru beðnir að senda umsagnir sínar á ofangreint netfang. Sjá má nánari lýsingu á efninu og reglugerðardrögin sjálf hér að neðan.