Hoppa yfir valmynd

Úrskurðir og álit


Forsætisráðuneytið
Sýni 601-800 af 1550 niðurstöðum.
Raða eftir: Dagsetningu Mikilvægi

Áskriftir

  • 699/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Kærð var synjun Þingvallaþjóðgarðs og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á beiðni kæranda um afhendingu gagna er varða kaup ríkisins á sumarhúsi á Valhallarstíg nyrðri 13 og niðurrif á því. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að hvorki Þingvallaþjóðgarður, Þingvallanefnd né íslenska ríkið geti talist eiga mikilvægra fjárhags- eða viðskiptahagsmuna að gæta af því að upplýsingar um kaup hins opinbera á fasteign fari leynt í skilningi 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Almenningur hafi hins vegar ríka hagsmuni af því að geta kynnt sér gögn um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Var því lagt fyrir Þingvallaþjóðgarð að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að gagnabeiðni kæranda hafi meðal annars tekið til afrits af tilboði í niðurrif hússins og upplýsinga um hvernig stæði til að ganga frá lóðinni og nýta hana. Úrskurðarnefndin taldi ekki að öllu leyti ljóst hvort Þingvallanefnd hefði undir höndum gögn sem gætu veitt kæranda upplýsingar um þessi atriði. Var því lagt fyrir Þingvallanefnd að afgreiða beiðni kæranda að þessu leyti að nýju.


  • 695/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Deilt var um afgreiðslu Þingeyjarsveitar á beiðni um afrit af öllum gögnum í tengslum við samning sveitarfélagsins við Landsnet hf. frá 26. september 2014 um fébætur vegna lagningar háspennulínu um jörðina Þeistareyki. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þær staðhæfingar sveitarfélagsins að öll gögn hefðu verið afhent kæranda. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 696/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Kærð var afgreiðsla Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem tengjast honum og notuð voru til umfjöllunar í Kastljóssþætti sem sýndur var í sjónvarpinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þá fullyrðingu RÚV að gögnin væru ekki í vörslum félagsins heldur hafi félagið fengið aðgang að gögnum hjá þriðja aðila við vinnslu fréttarinnar. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 697/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skýrslu Náttúrufræðistofnunar Íslands um rannsókn á myglusveppum í tveimur sýnum úr gólfefnum í skólastjórabústað við Húnavallaskóla en skýrslan var í vörslum Fasteigna Húnavatnshrepps. Kærandi hafði haft búsetu í húsnæðinu sem skýrslan fjallaði um og fór því um rétt hans til aðgangs eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi engin rök hafa verið færð fram fyrir því að synja bæri kæranda um aðgang að skýrslunni. Var því synjunin felld úr gildi.


  • 688/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    Deilt var um aðgang að tilboðum fyrirtækis í gerð vefsíðna fyrir Reykjanesbæ sem synjaði um afhendingu gagnanna með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki að í gögnunum fælust upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni tilboðsgjafa að undanskildum upplýsingum um viðskiptamenn fyrirtækisins. Var því aðgangur veittur að hluta. Beiðni kæranda um tilboðsbeiðni sveitarfélagsins var vísað til nýrrar meðferðar þar sem ekki hafði verið tekin afstaða til aðgangs að því gagni.


  • 689/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    Kærð var synjun embættis landlæknis á beiðni um aðgang að samstarfssamningi embættisins, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og TM Software um þróun á hugbúnaði. Synjun embættisins var byggð á því að í samningnum kæmu fram upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni TM Software sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki hafa verið sýnt fram á að í samningnum kæmu fram upplýsingar sem væru til þess fallnar að valda fyrirtækinu tjóni yrði aðgangur veittur. Þá var litið til þess að upplýsingarnar lytu með beinum hætti að ráðstöfun opinberra fjárhagslegra hagsmuna. Nefndin taldi að þegar vegnir væru saman hagsmunir fyrirtæksins af því að efni samningsins færi leynt og þeir mikilvægu almannahagsmunir sem felast í aðgangi almennings að upplýsingum um ráðstöfun opinberra hagsmuna, stæðu lagarök ekki til þess að heimilt væri að synja um aðgang að samningnum grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningnum í heild sinni.


  • 690/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    Kærð var synjun Akureyrarbæjar á aðgangi að launamiðum tiltekinna verktaka fyrir tiltekin ár en synjun sveitarfélagsins var reist á 9. gr. upplýsingalaga. Í málinu lá fyrir að sveitarfélagið hafði að eigin frumkvæði útbúið skjal með umbeðnum upplýsingum og sent þær með tölvupósti. Með hliðsjón af atvikum máls taldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál tækt að fjalla um hvort kærandi ætti rétt til aðgangs að tölvupóstinum. Nefndin benti á að tölvupósturinn innibæri upplýsingar um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Var það niðurstaða nefndarinnar að ekkert í gagninu væri þess eðlis að heimilt væri að takmarka aðgang kæranda að þeim vegna hagsmuna þriðja aðila, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að tölvupóstinum.  


  • 691/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    Kærð var synjun Matvælastofnunar á beiðni blaðamanns um aðgang að gögnum um aðbúnað dýra á tilteknu lögbýli. Synjun stofnunarinnar var byggð á á 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ljóst að þær upplýsingar sem fram kæmu í gögnunum varði einkamálefni einstaklinga í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Þegar vegnir væru saman hagsmunir aðila málsins af því að upplýsingar um viðkvæm persónuleg málefni þeirra fari leynt á móti þeim almennu hagsmunum sem felast í því að fjölmiðlar fái aðgang að gögnum um aðbúnað dýra, þótti nefndinni hinir fyrrgreindu vega þyngra. Var því ákvörðun Matvælastofnunar um synjun beiðni kæranda staðfest.


  • 692/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    Kæru vegna synjunar á aðgangi að gögnum í vörslum Langanesbyggðar var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem sveitarfélagið afhenti kæranda gögnin eftir að kæra barst.


  • 06. júlí 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 5/2017

    Launakjör.


  • 30. júní 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 4/2017

    Ráðning í starf. Hæfnismat.


  • 682/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    Kærð var afgreiðsla Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast Landsbanka Íslands Úrskurðarnefndin taldi ýmis samskipti starfsmanna bankans og annarra lúta þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og taldi safnið bundið þagnarskyldunni samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins. Þá væri einnig að finna í umbeðnum gögnum upplýsingar sem vörðuðu mikilvæg einkamálefni  sem sanngjarnt væri og eðlilegt að fari leynt á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Staðfest var synjun Þjóðskjalasafnsins á beiðni um aðgang að öllum umbeðnum gögnum nema minnisblaði Fjármálaeftirlitsins frá nóvember 2008.


  • 685/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    Úrskurður Hinn 2. júní 2017 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 685/2017 í máli ÚNU 16070008. Kæra og málsatvik Með bréfi, dags. 28. júlí 216, kærði A hrl., f.h. Geiteyra)...


  • 687/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    Beiðni kæranda um afrit af skjölum í vörslum embættis landlæknis sem varði hana sjálfa og nefni hana á nafn var vísað til embættisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Af skýringum embættis landlæknis varð ekki annað ráðið en að embættið hafi ekki framkvæmt leit í skjalavörslukerfi sínu í tilefni gagnabeiðninnar en ljóst var af skjölum sem fylgdu kæru sem og umsögn embættisins að kærandi hafi verið í samskiptum við embættið sem embættinu var skylt að halda til haga, sbr. t.d. 2. mgr. 27. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.


  • 686/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    Kæru vegna beiðni um upplýsingar um umsækjendur í starf við félagslega liðleiðslu fyrir börn og fullorðna hjá Vestmannaeyjabæ var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem Vestmannaeyjabær hafði gefið þær skýringar að enginn hafi sótt um starfið. Lá því ekki fyrir synjun á afhendingu gagna, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga.


  • 684/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    Kærð var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum varðandi ívilnunarsamning við Silicor Materials. Ráðuneytið hafði synjað um aðgang að gögnunum á þeim grundvelli að gögnin vörðuðu mikilvæga fjarhags- eða viðskiptahagsmuni Silicor Materials, sbr. 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin staðfesti synjun ráðuneytisins að hluta en taldi ekki sýnt fram á að sum gagnanna innihéldu trúnaðarupplýsingar sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færi. Var því kveðið á um skyldu ráðuneytisins til að afhenda kæranda þau gögn.


  • 683/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    Kærandi óskaði eftir gögnum í vörslu Þjóðskjalasafns Íslands er varða Landsbanka Íslands. Úrskurðarnefnd tók fram að 1. mgr. 13. gr. nr. 87/1998 laga um opinbert eftirlit  með fjármálastarfsemi og 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um Seðlabanka Íslands feli í sér sérstaka þagnarskyldu og takmarki þar af leiðandi aðgang almennings á grundvelli 5. gr. upplýsingalaga. Talið var að hluti umbeðinna gagna féllu undir þessar þagnarskyldureglur og þar af leiðandi ekki unnt að veita aðgang að þeim. Var því synjun Þjóðskjalasafns Íslands staðfest.


  • 01. júní 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 1/2017

    Endurhæfingarlífeyrir vegna meðgöngu og fæðingar barns.


  • 18. maí 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 6/2016

    Mismunur á launakjörum. Frávísun.


  • 18. maí 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 5/2016

    Mismunur á launakjörum. Frávísun.


  • 04. maí 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 6/2017

    Túlkun á lögum nr. 10/2008. Frávísun.


  • 04. maí 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 2/2017

    Skipun í embætti. Hæfnismat.


  • 681/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Deilt var um aðgang fjölmiðils að starfslokasamningi sem Kirkjuráð gerði við fyrrverandi framkvæmdastjóra ráðsins. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að samningurinn hefði að geyma upplýsingar um föst launakjör starfsmannsins og tilhögun starfsloka, sem almenningur ætti rétt á aðgangi að samkvæmt 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Því bæri Kirkjuráði að veita kæranda aðgang að samningnum.


  • 680/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Deilt var um aðgang fjölmiðils að starfslokasamningi sem Kirkjuráð gerði við fyrrverandi framkvæmdastjóra ráðsins. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að samningurinn hefði að geyma upplýsingar um föst launakjör starfsmannsins og tilhögun starfsloka, sem almenningur ætti rétt á aðgangi að samkvæmt 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Því bæri Kirkjuráði að veita kæranda aðgang að samningnum.


  • 679/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum frá Hagstofu Íslands um hvernig vísitala neysluverðs hefði reiknast ef ekki hefði komið til mistaka við útreikning hennar á árinu 2016 sem og allra gagna sem útreikningarnir hefðu byggst á. Úrskurðarnefndin vísaði beiðni um útreikning frá þar sem beiðnin lyti ekki að fyrirliggjandi gögnum. Þar sem ekki yrði séð að tekin hafi verið afstaða til beiðni um gögn sem útreikningar byggðust á, var þeim hluta upplýsingabeiðninnar vísað til nýrrar meðferðar hjá Hagstofu Íslands.


  • 678/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Kærð var afgreiðsla Sorpurðunar Vesturlands á afgreiðslu á beiðni um upplýsingar um magn laxafurða sem stofnunin tók til urðunar frá fiskeldi og skráningu um laxafurðir frá fiskeldi á tilteknu ári. Af hálfu stofnunarinnar kom fram að ekki væru til sundurliðaðar upplýsingar um urðaðan fiskúrgang eftir tegund. Úrskurðarnefndin tók fram að valdsvið hennar næði ekki til þess að skera úr um það hvort slík skráning samrýmdist reglugerð 738/2003. Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd með vísan til þess að gögnin væru ekki fyrirliggjandi, sbr. 20. gr. upplýsingalaga.  


  • 677/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Deilt var um aðgang að gögnum um samþykki Íslands á nýjum aðildarríkjum að Norður-Atlantshafsbandalaginu í vörslum utanríkisráðuneytisins. Kærandi hafði fengið aðgang að gögnunum að hluta en af hálfu ráðuneytisins kom fram að sum þeirra hefðu ekki fundist í skjalasafni þess. Úrskurðarnefndin tók fram að úrskurðavald nefndarinnar sé afmarkað við að fjalla um réttmæti synjunar á beiðnum samkvæmt upplýsingalögum. Þegar svo hátti til að umbeðin gögn eru ekki til staðar teljist ekki vera um synjun að ræða. Kæru kæranda var því vísað frá nefndinni.


  • 672/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    Deilt var um aðgang kæranda að gögnum í vörslum Þekkingarnets Þingeyinga sem varða fjölþjóðlegt verkefni. Kærandi vann að verkinu sem verktaki fyrir hönd Þekkingarnetsins en stjórn þess færðist síðar yfir til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Þekkingarnetsins um að synja kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum samræmdist ekki ákvæðum upplýsingalaga og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Annmarkarnir voru taldir svo verulegir að ekki væri hjá því komist að fella ákvörðunina úr gildi og leggja fyrir Þekkingarnet Þingeyinga að taka málið til nýrrar og lögmætrar meðferðar.


  • 671/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    Deilt var um aðgang kæranda að gögnum í vörslum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem varða fjölþjóðlegt verkefni. Kærandi vann að verkinu sem verktaki fyrir hönd Þekkingarnets Þingeyinga en stjórn þess færðist síðar yfir til Nýsköpunarmiðstöðvarinnar. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun miðstöðvarinnar um að synja kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum samræmdist ekki ákvæðum upplýsingalaga og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Annmarkarnir voru taldir svo verulegir að ekki væri hjá því komist að fella ákvörðunina úr gildi og leggja fyrir Nýsköpunarmiðstöð Íslands að taka málið til nýrrar og lögmætrar meðferðar.


  • 673/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    Kærð var sú ákvörðun Reykjanesbæjar að synja kæranda um aðgang að gögnum um tilboðsumleitanir vegna nýrrar vefsíðu bæjarins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að í slíkum málum væri lögð áhersla á hagsmuni þeirra sem taka þátt í útboðum af því að rétt sé staðið að framkvæmd þeirra. Þá standi almannahagsmunir til þess að veittur sé aðgangur að gögnum um ráðstöfun opinbers fjár. Kærandi var talinn hafa hagsmuni af því að vita um hvaða möguleika sveitarfélagið hafði að velja við ákvörðun um að ráðstafa fjármunum. Aðgangur að hluta umbeðinna gagna var þó takmarkaður með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, þ.e. upplýsingar um aðra viðskiptavini tveggja fyrirtækja sem sendu inn tilboð.


  • 674/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    ÚrskurðurHinn 17. mars 2017 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 674/2017 í máli ÚNU 17020001.  Kæra, málsatvik og málsmeðferðMeð erindi, dags. 24. janúar 2017, kvartaði A)...


  • 676/2017. Úrskurður frá 23. mars 2017

    Ríkisútvarpið kærði synjun Matvælastofnunar á beiðni um aðgang að hluta gagna um fjögur tiltekin mál sem stofnunin hafði til meðferðar. Matvælastofnun hafði afhent skýrslur og önnur gögn að undanskildum atriðum sem stofnunin taldi sér skylt að takmarka aðgang að á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin leit til þess markmiðs upplýsingalaga er lýtur að því að styrkja aðhald fjölmiðla og almennings að stjórnvöldum og möguleika þeirra til að miðla upplýsingum um opinber málefni, sbr. 3. og 4. tl. 1. mgr. 1. gr. upplýsingalaga. Niðurstaða nefndarinnar var sú að kærandi ætti rétt til aðgangs að umbeðnum gögnum að undanskildum upplýsingum um samskipti fyrirtækis við erlenda birgja um kaup á tilteknum vörum. Þá var réttur kæranda til aðgangs að upplýsingum um dauða kýr á búi á Norðvesturlandi viðurkenndur, fyrir utan þann hluta gagnanna sem höfðu að geyma upplýsingar um einkahagsmuni bóndans og annarra sem komu að málinu.


  • 675/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    ÚrskurðurHinn 17. mars 2017 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 675/2017 í máli ÚNU 17020004.  Kæra, málsatvik og málsmeðferðMeð erindi, dags. 2. febrúar 2017, kvartaði A)...


  • 667/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum um rannsókn um skimun fyrir góðkynja einstofna mótefnahækkun. Vísindasiðanefnd hafði synjað kæranda um aðgang á grundvelli 1. mgr. 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 vegna fjárhagslegra hagsmuna Háskóla Íslands og ábyrgðarmanns rannsóknarinnar. Einnig vísaði vísindasiðanefnd til þess að gögnin lytu að samkeppnishagsmunum,s br. 4. tl. 1. mgr. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi gögnin ekki hafa að geyma upplýsingar um hagsmuni þessara aðila í þeim mæli að upplýsingaréttur almennings næði ekki til aðgangs að þeim og úrskurðaði að veita bæri kæranda aðgang að almennri umsókn fyrir rannsóknina og eftirfarandi bréfaskiptum vísindasiðanefndar og umsækjanda.


  • 668/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Kærð var synjun ríkisskattstjóra á beiðni um aðgang að gögnum sem kærandi vísaði til þess að ríkisskattstjóri fengi afhent beint frá ýmsum lögaðilum. Ríkisskattstjóri bar fyrir sig að upplýsingarnar tilheyri framtali kæranda og væru honum einum aðgengilegar þar til framtali er skilað. Fram að því væru þær vistaðar sjálfvirkt í gagnagrunni sem ríkisskattstjóri geti ekki kallað eftir gögnum úr. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skýringar ríkisskattstjóra leiða til þess að upplýsingarnar teldust ekki fyrirliggjandi hjá embættinu í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Með vísan til þess var málinu vísað frá nefndinni.


  • 669/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Deilt var um aðgang að gögnum í tengslum við athugun Lyfjastofnunar á afhendingu kæranda á lyfjum til tiltekinna heilbrigðisstofnana. Úrskurðarnefndin tók fram að ekki væri séð að Lyfjastofnun hefði tekið afstöðu til beiðni kæranda um hluta beiðninnar. Um önnur umbeðin gögn tók nefndin fram að kærandi væri tilgreindur í þeim og þau hefðu að geyma upplýsingar um hvernig hann afgreiði lyf. Kærandi var talinn eiga rétt til aðgangs á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, sem ekki yrði takmarkaður vegna 3. mgr. ákvæðisins.


  • 670/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Kærð var afgreiðsla forsætisráðuneytis á beiðni um aðgang að samantekt um síma og tölvur sem fyrrverandi ráðherra lét taka saman fyrir ríkisstjórnina. Ráðuneytið studdi ákvörðun sína við 1. tl. 6. gr. og 1. tl. 10. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar kom fram að ekki væru efni til að draga þær skýringar ráðuneytisins í efa að umbeðið gagn hafi verið tekið saman fyrir ráðherrafund, sbr. 1. tl. 6. gr. upplýsingalaga. Synjun forsætisráðuneytisins var því staðfest.


  • 26. janúar 2017 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 4/2016

    Ráðning í sumarstarf.


  • 665/2016. Úrskurður frá 30. desember 2016

    Kærð var ákvörðun Seðlabanka Íslands um að synja kæranda um aðgang að andmælum Klakka ehf. við niðurstöðum rannsóknar bankans á greiðslum samkvæmt nauðasamningi, lista yfir gögn sem bankinn sendi úrskurðarnefndinni í tilefni af eldra kærumáli milli sömu aðila og loks bréfi bankans til fjármála- og efnahagsráðuneytis um nauðsyn til lagabreytinga um gjaldeyrismál. Úrskurðarnefndin vísaði kæru frá að því er varðaði beiðni um lista yfir gögn sem Seðlabanki sendi úrskurðarnefndinni, þar sem nefndin hafði þegar tekið afstöðu til aðgangs kæranda að gögnunum. Að öðru leyti var hin kærða ákvörðun staðfest með vísan til þess að umbeðin gögn væru undirorpin sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001.


  • 666/2016. Úrskurður frá 30. desember 2016

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál felldi úr gildi ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að synja kæranda um aðgang að ráðningarsamningi sveitarfélagsins við framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og lagði fyrir það að veita kæranda aðgang að samningnum. Áður skyldi afmá úr samningnum bankaupplýsingar starfsmannsins og upplýsingar um aðild hans að lífeyrissjóði.


  • 663/2016. Úrskurður frá 30. desember 2016

    Kærð var ákvörðun Seðlabanka Íslands á beiðni erlendra tryggingarfélaga um gögn um Landsbanka Íslands. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að umbeðin gögn lytu sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001, að undanskildri beiðni kærenda um aðgang að öllum skriflegum samskiptum á milli Seðlabanka og Landsbanka á tilteknu tímabili. Nefndin taldi Seðlabankann ekki hafa sýnt fram á að heimilt hefði verið að hafna beiðni kærenda að þessu leyti með vísan til þess að meðferð hennar tæki svo mikinn tíma eða krefðist svo mikillar vinnu að ekki teldist fært að verða við henni. Beiðni kærenda var að þessu leyti vísað til nýrrar meðferðar hjá Seðlabankanum.


  • 664/2016. Úrskurður frá 30. desember 2016

    Deilt var um aðgang kærenda að skýrslu sem unnin var fyrir Grundarfjarðarbæ um meint einelti gegn þeim. Eldri upplýsingalög nr. 50/1996 giltu í málinu þar sem sveitarfélagið hafði færri en 1.000 íbúa, sbr. 4. mgr. 35. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir hvern hluta skýrslunnar fyrir sig og tók afstöðu til þess hvort sveitarfélaginu hefði verið heimilt að synja kærendum um aðgang á grundvelli 3. mgr. 9. gr. eldri upplýsingalaga vegna einkahagsmuna þeirra sem koma fyrir í skýrslunni. Niðurstaðan var sú að sveitarfélaginu beri að afhenda kærendum þá hluta skýrslunnar sem ekki geymdu upplýsingar um einkahagsmuni annarra einstaklinga eða þar sem hagsmunir kærenda að aðgangi væru meiri en hagsmunir einstaklinganna af því að upplýsingar færu leynt.


  • 19. desember 2016 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 3/2016

    Launamismunun.


  • 659/2016. Úrskurður frá 30. nóvember 2016

    Blaðamaður kærði synjun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að veita honum aðgang að gögnum sem urðu til við meðferð fyrri upplýsingabeiðnar kæranda. Úrskurðarnefndin tók fram að þegar fyrri beiðnin var borin upp hafi stofnast stjórnsýslumál sem leysa þurfti úr á grundvelli stjónsýslulaga. Þar sem upplýsingalög gilda ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum, sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, taldi nefndin ekki hjá því komist að vísa kæru frá nefndinni.


  • 662/2016. Úrskurður frá 30. nóvember 2016

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum um fyrirhugaða byggingu stórskipahafnar í Finnafirði við Bakkaflóa í vörslum sveitarfélagsins Langanesbyggðar. Sveitarfélagið synjaði beiðni kæranda með vísan til 5. og 6. gr. eldri upplýsingalaga nr. 50/1996, sem giltu áfram um sveitarfélög með færri en 1.000 íbúa. Úrskurðarnefndin taldi hvorki fært að fallast á það með sveitarfélaginu að gögnin vörðuðu samkeppnishagsmuni stofnana eða fyrirtækja í eigu sveitarfélagsins né að um væri að ræða fyrirhugaðar ráðstafanir eða próf sem skiluðu ekki tilætluðum árangri ef upplýsingarnar yrðu veittar. Loks varð ekki við skoðun nefndarinnar séð að aðgangur almennings að gögnunum gæti skaðað hagsmuni þeirra einkaaðila sem koma að verkefninu, fyrir utan verkefnaáætlun. Var því fallist á rétt til kæranda að öðrum gögnum um framkvæmdina.


  • 660/2016. Úrskurður frá 30. nóvember 2016

    Deilt var um aðgang að fundargerðum Stjórnstöðvar ferðamála í vörslum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Ráðuneytið synjaði kæranda um aðgang með vísan til 2. mgr. 8. gr. upplýsingalaga um vinnugögn nefnda eða starfshópa. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að ákvæðið fjallaði fyrst og fremst um það hver hefði haft gögn undir höndum en ekki hvort þau gætu fallið undir hugtakið vinnugagn, sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna. Þar sem slíkt mat virtist ekki hafa farið fram hjá ráðuneytinu var hin kærða ákvörðun felld úr gildi og lagt fyrir það að taka málið til nýrrar meðferðar.


  • 661/2016. Úrskurður frá 30. nóvember 2016

    Fallist var á rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi sveitarfélags við slökkviliðsstjóra að undanskildum upplýsingum um aðild hans að stéttarfélagi, lífeyrissjóði og bankaviðskipti.


  • 12. desember 2016 / Úrskurðir forsætisráðuneytisins

    Úrskurður forsætisráðuneytisins í máli nr. 3/2016

    Kæra lóðareigenda Klapparstíg 19 vegna ákvörðunar Minjastofnunar Íslands


  • 12. desember 2016 / Úrskurðir forsætisráðuneytisins

    Úrskurður forsætisráðuneytisins í máli nr. 2/2016

    Kæra dánarbús Herborgar Friðjónsdóttur vegna ákvarðana Minjastofnunar Íslands.


  • 654/2016. Úrskurður frá 31. október 2016

    A kærði afgreiðslu Háskóla Íslands á beiðni um aðgang að gögnum. Kæranda var veittur aðgangur að gögnum tiltekinna námskeiða í eina viku. Kærandi óskaði eftir bindandi úrskurði um rétt sinn til aðgangs samkvæmt upplýsingalögum. Ekki var efnislegur ágreiningur um rétt kæranda til aðgangs heldur hvort Háskóla Íslands hafi verið heimilt að takmarka aðganginn við eina viku. Úrskurðarnefndin tók fram að upplýsingalög nr. 140/2012 hefðu ekki að geyma reglu um að stjórnvald taki ákvörðun um hvort veita skuli afrit eða gögn sýnd. Háskóla Íslands bar því að afhenda kæranda afrit af gögnunum án takmarkana.


  • 658/2016. Úrskurður frá 31. október 2016

    Kærð var afgreiðsla Borgarskjalasafns á beiðni um upplýsingar um kæranda sjálfan, en kærandi hafði fengið afhent gögn þar sem afmáðar voru upplýsingar um aðra einstaklinga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að Borgarskjalasafn hefði vegið hagsmuni þessara einstaklinga gegn hagsmunum kæranda að fá aðgang að upplýsingunum og leiddi skoðun nefndarinnar ekki annað í ljós en að matið samræmdist ákvæðum 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 77/2014. Hin kærða ákvörðun var því staðfest.


  • 653/2016. Úrskurður frá 31. október 2016

    Kærð var afgreiðsla Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast Kaupþingi banka. Úrskurðarnefndin taldi ýmis samskipti starfsmanna bankans og annarra lúta þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og taldi safnið bundið þagnarskyldunni samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins. Þá væri einnig að finna í umbeðnum gögnum upplýsingar sem vörðuðu mikilvæg viðskipta- og fjárhagsmálefni bankans sjálfs sem sanngjarnt væri og eðlilegt að fari leynt á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Um skjalið „Liquidity Risk – template – 18 months – SEPT all currencies SENT.xls“ tók nefndin fram að áður hefði verið fjallað um rétt almennings til aðgang að því. Skjalið hefði að geyma upplýsingar sem háðar væru þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 og 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.


  • 655/2016. Úrskurður frá 31. október 2016

    Miðbaugur ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum. Úrskurðarnefndin tók fram að loforð stjórnvalds um trúnað gangi ekki framar ákvæðum upplýsingalaga um aðgang. Umbeðin gögn voru ekki talin hafa að geyma mikilvægar fjárhags-eða viðskiptaupplýsingar sem leynt skyldu fara. Kærandi hefði hins vegar hagsmuni af aðgangi, meðal annars til að geta lagt mat á hvernig framkvæmd samkeppninnar var háttað. Isavia var gert að afhenda kæranda tæknilega tillögu annars þátttakanda og einkunnir fyrir hana.


  • 657/2016. Úrskurður frá 31. október 2016

    Kærð var afgreiðsla sýslumannsins í Vestmannaeyjum á beiðni um aðgang að upplýsingum um fjölda þinglýstra húsaleigusamninga og kaupsamninga um húsnæði á tilteknu tímabili. Af hálfu sýslumanns kom fram að upplýsingar um fjölda samninga væru ekki fyrirliggjandi hjá embættinu. Úrskurðarnefndin tók fram að af 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga leiði að almenningur eigi rétt til upplýsinga í fyrirliggjandi gögnum í vörslum stjórnvalda, en stjórnvöldum sé hvorki skylt að útbúa ný skjöl né taka saman tölulegar upplýsingar úr skjölum sínum sínum samkvæmt lögunum. Kæru kæranda var því vísað frá.


  • 656/2016. Úrskurður frá 31. október 2016

    Deilt var um aðgang eins aðila, að rammasamningi um innkaup vegna hjúkrunarheimila á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins, að gögnum um samskipti og samráð við aðra rammasamningshafa. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það með Framkvæmdasýslu ríkisins að umbeðin gögn hefðu að geyma upplýsingar um efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins eða einkamálefni annarra sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færi, utan hluta sem fjallaði m.a. um fyrri notendur og kaupendur þeirra vara sem rammasamningshafar buðu Framkvæmdasýslunni til kaups hverju sinni. Því var fallist á rétt kæranda til aðgangs að þeim hluta sem eftir stóð.


  • 652/2016. Úrskurður frá 31. október 2016

    Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum nafngreindra einstaklinga sem gefnar voru fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Þagnarskylda. Einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.


  • 12. október 2016 / Úrskurðir forsætisráðuneytisins

    Úrskurður forsætisráðuneytisins nr. 3 í máli nr. 1/2016

    Kæra Skotveiðifélags Íslands vegna ákvörðunar sveitarfélagsins Húnaþings vestra


  • 649/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

    Ríkisskattstjóri afturkallaði bindandi álit og fjarlægði það af vef embættisins. Kærandi krafðist aðgangs að álitinu en beiðninni var synjað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að hið umbeðna gagn væri fyrirliggjandi hjá ríkisskattstjóra í skilningi 5. gr. upplýsingalaga. Ekki var fallist á að um vinnugagn væri að ræða þar sem það hafði verið birt öðrum og kæranda heimilaður aðgangur.


  • 650/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum sem tollstjóri safnaði um hann við komu til landsins á Keflavíkurflugvelli. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að umbeðin gögn lytu að rannsókn sakamáls í skilningi 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 að teknu tilliti til hlutverks tollstjóra samkvæmt 4. mgr. 9. gr. lögreglulaga og 183. gr. tollalaga. Kæru var því vísað frá úrskurðarnefndinni.


  • 648/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

    Kærð var synjun innanríkisráðuneytisins á beiðni kærenda um gögn um skilnað foreldra sinna. Um aðgang að gögnunum fór eftir lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014, sbr. 4. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að í málinu vægjust á annars vegar hagsmunir kærenda af því að fá afhent gögn um skilnað foreldra sinna, þar sem fram koma ýmsar upplýsingar um kærendur sjálfa, og  hins vegar sjónarmið um friðhelgi einkalífs foreldra þeirra, sem báðir eru látnir. Eins og á stóð taldi nefndin hagsmuni kærenda nægjanlega ríka til að heimila þeim aðgang að umbeðnum gögnum.


  • 651/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

    Óskað var eftir skýrslum tiltekins starfslaunaþega í vörslum stjórnar listamannalauna. Beiðninni var synjað á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga þar sem þær hefðu að geyma einkahagsmuni starfslaunaþegans. Úrskurðarnefndin tók fram að almenningur eigi ríkan rétt til aðgangs að gögnum um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Sá réttur verði hins vegar almennt að víkja fyrir þeim hagsmunum listamanna að upplýsingar um verk í vinnslu og ófullkomin verk, hugmyndir að verkum, ferlum við sköpun listverka og afstöðu listamanna til verka sinna séu ekki á almannavitorði, sbr. 71. og 73. gr. stjórnarskrárinnar. Staðfest var synjun stjórnar listamannalauna á þeim hluta skýrslnanna sem hafa að geyma slíkar upplýsingar en kæranda heimilaður aðgangur að því sem eftir stendur.


  • 645/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

    Einkahlutafélag kærði afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að gögnum um niðurstöðu bankans á ætluðum brotum annars á lögum nr. 87/1992 vegna greiðsla úr nauðasamningi. Kærandi hafði óskað eftir aðgangi að „öllum álitum, úrskurðum, túlkunum, tilmælum og hvaðeina sem bankinn hafi látið frá sér fara“ um heimildir til útgreiðslna úr nauðasamningi félagsins en einnig nánar tilgreindum gögnum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að Seðlabankanum bæri að afgreiða fyrri beiðnina efnislega en kæru var vísað frá úrskurðarnefndinni um önnur gögn þar sem þau væru undirorpin sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 og 15. gr. laga nr. 87/1992.


  • 644/2016. Úrskurður frá 20. september 2016

    Deilt var um rétt erlendra tryggingarfélaga til gagna um í vörslum Þjóðskjalasafns Íslands. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti synjun safnsins á beiðni um aðgang að CAMELS-mati á Kaupþingi frá maí 2008, tölvubréf einstaklings til rannsóknarnefndar Alþingis og skjal frá Kaupthing Singer Friedlander, ýmist á grundvelli 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og 9. gr. upplýsingalaga. Fallist var á rétt kærenda til aðgangs að bréfi þáv. stjórnarformanni Kaupþings til forsætisráðherra frá apríl 2008.




  • 12. september 2016 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 1/2016

    Setning í stöðu. Hæfnismat.


  • 641/2016. Úrskurður frá 29. ágúst 2016

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslum innanríkisráðuneytis um bálför ömmu sinnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að rétturinn ákvarðaðist af 14. gr. upplýsingalaga með vísan til þess að löggjöf gerði ráð fyrir aðkomu kæranda að ákvörðuninni sem umbeðin gögn fjölluðu um. Kærandi var talinn eiga ríkari hagsmuni af aðgangi en umsækjendur af því að gögn færu leynt og aðgangur veittur.


  • 642/2016. Úrskurður frá 29. ágúst 2016

    Ritstjóri fjölmiðils kærði synjun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á beiðni um netföng og vinnusímanúmer hjá starfsmönnum á ákærusviði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri skylt að birta almenningi slíkar upplýsingar á grundvelli 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga og staðfesti synjun lögreglunnar.


  • 643/2016. Úrskurður frá 29. ágúst 2016

    Kærð var synjun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum á beiðni um afrit af lögregluskýrslum og dagbók lögreglu. Kæru var vísað frá á grundvelli 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga þar sem fram kemur að lögin gilda ekki um rannsókn sakamála.


  • 635/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

    Í málinu var deilt um rétt A til afrits af öllum samningum sem Menntamálastofnun hafði gert við B á tilteknu tímabili um gerð námsefnis í tónmennt. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi A eiga rétt til aðgangs á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga að samningum um efni sem A ætti höfundarétt að. Var réttur A til afrits af samningunum talinn ríkari en réttur B á því að efni samninganna yrði haldið leyndu. Kærandi var talinn eiga rétt til aðgangs að öðrum samningum við B á grundvelli 5. gr. upplýsingalaga. Ekki var talið að 9. gr. laganna stæði aðgangi í vegi. Var því fallist á rétt A til afrits af öllum samningum stofnunarinnar við B.


  • 634/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

    Deilt var um rétt erlendra tryggingafélaga til aðgangs að gögnum um Landsbanka Íslands í vörslum Fjármálaeftirlitsins. Úrskurðarnefndin hefur áður fjallað um aðra liði beiðninnar en í þessu máli var skorið úr um rétt til aðgangs að fundargerðum vegna vettvangsathugunar FME á bankanum í september 2007. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að um væri að ræða upplýsingar sem féllu undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 og vísaði kæru frá.


  • 639/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

    Kærð var synjun innanríkisráðuneytisins á afhendingu greinargerðar um fjárhagslegt samband ríkis og kirkju en gagnabeiðnin var reist á 5. gr. upplýsingalaga. Innanríkisráðuneytið bar því við að um væri að ræða gagn sem tekið hafi verið saman fyrir ráðherrafund og væri það því undanskilið aðgangi á grundvelli 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að þótt greinargerðin bæri ekki skýrlega með sér að hafa sérstaklega verið tekin saman fyrir ráðherrafund hefði nefndin ekki forsendur til þess að draga skýringar ráðuneytisins í efa. Var því synjun ráðuneytisins staðfest.


  • 640/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

    Deilt var um aðgang að gögnum sem vörðuðu gjafsóknarbeiðni fyrrum eiginkonu kæranda í dómsmáli á milli þeirra. Talið var að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum færi eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi hins vegar að réttur fyrrum eiginkonu kæranda til þess að efni gagnanna færi leynt, vægi þyngra en réttur kæranda til aðgangs og staðfesti synjun ráðuneytisins með vísan til 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.


  • 636/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

    Deilt var um rétt erlendra tryggingafélaga til aðgangs að gögnum í tveimur töluliðum um Landsbanka Íslands í vörslum Fjármálaeftirlitsins. Úrskurðarnefndin hefur áður fjallað um aðra töluliði beiðninnar en í þessu máli var skorið úr um rétt til aðgangs að gögnum um rannsóknir FME á bankanum og kærur til lögregluyfirvalda. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að hugtakið „rannsókn“ væri ekki nægilega afmarkað í beiðni kærenda til að hún uppfyllti tilgreiningarreglu 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Þá væri FME óheimilt að veita upplýsingar um kærur til lögreglu á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga og þagnarskylduákvæði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998. Var kæru því vísað frá.


  • 638/2016. Úrskurður frá 12. ágúst 2016

    Deilt var um aðgang Landverndar að samningi Landsnets hf. við PCC Bakka Silicon hf. um flutning raforku án útstrikana. Úrskurðarnefnd taldi aðgang að samningnum fara eftir lögum um upplýsingarétt um umhverfismál nr. 23/2006. Talið var að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingum er tengjast tímasetningum á afhendingu raforku með vísan til þess að hluti upplýsinganna væru þegar opinberar auk þess sem ekki yrði séð að þær vörðuðu mikilvæga viðskiptahagsmuni PCC sem til þess væru fallnar að valda tjóni yrði aðgangur veittur. Þá taldi úrskurðarnefndin kæranda eiga rétt til aðgangs að upplýsingum um getu flutningsmannvirkja og skammhlaupsafl en ekki hafi verið sýnt fram á aukna hættu gegn öryggis- eða almannahagsmunum yrði aðgangur veittur og ekki yrði séð að önnur takmörkunarákvæði frá upplýsingarétti stæðu aðgangi í vegi. Úrskurðarnefndin staðfesti synjun Landsnets að aðgangi að upplýsingum um móðurfélagstryggingu PCC í samningnum með vísan til 1. tölul. 6. gr. um upplýsingarétt um umhverfismál, sbr. 9. gr. upplýsingalaga og 8. mgr. 9. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Að lokum staðfesti úrskurðarnefndin synjun Landsnets á upplýsingum um áætlaðan kostnað vegna flutningsmannvirkja með vísan til viðskiptahagsmuna Landsnets en taldi ekki nægilega sýnt fram á að undanskilja mætti upplýsingar um áætlaða upphæð sparnaðar Landsnets vegna styrkingar flutningskerfisins og áætlað kerfisframlag PCC vegna framkvæmdanna, frá upplýsingarétti almennings.



  • 632/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

    Kærð var synjun Þingeyjarsveitar á afhendingu starfslokasamnings við fráfarandi skólastjóra. Leyst var úr málinu á grundvelli eldri upplýsingalaga nr. 50/1996 sbr. 4. mgr. 35. gr. laga nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að samkvæmt skýrri og fastmótaðri framkvæmd eldri upplýsingalaga hefðu 3. og 5. gr. laganna verið skýrðar svo að veita skuli aðgang að upplýsingum um föst launakjör opinberra starfsmanna, ráðningarsamningum og öðrum samningum sem geymdu upplýsingar um fastar greiðslur. Var það niðurstaða nefndarinnar að Þingeyjarskóla hafi verið óheimilt að synja kæranda um afhendingu starfslokasamningsins.


  • 629/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

    Kærð var synjun Isavia ohf. á beiðni kæranda um afrit af gögnum. Kæru var vísað frá úrskurðarnefndinni hvað varðar gögn í vörslum Isavia sem urðu til fyrir gildistöku upplýsingalaga, sbr. 3. mgr. 35. gr. laganna. Þá var kæru vísað frá hvað varðar umbeðin gögn sem urðu til eftir 1. janúar 2013 með vísan til þess að gögnin væru ekki fyrirliggjandi sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga.


  • 631/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

    Kærð var synjun grunnskóla á aðgangi að nafnlausu bréfi foreldra barna í bekk sonar kæranda til skólans. Í bréfinu voru að því er virðist frásagnir fjögurra barna af samskiptum við son kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að hagsmunir barnanna sem haft var eftir í bréfinu, af því að upplýsingar um líðan þeirra, tilfinningar og heilsu færu leynt, væru ríkari en þeir hagsmunir sem kærendur kynnu að hafa af aðgangi að bréfinu. Var því staðfest synjun skólans á afhendingu bréfsins með vísan til 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.


  • 633/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

    Deilt var um afhendingu þriggja samninga Reykjaneshafnar og Reykjanesbæjar við Thorsil ehf. Úrskurðarnefndin taldi samningana fjalla um umhverfismál í skilningi 3. tölul. 3. gr. laga um upplýsingarétt um umhverfismál nr. 23/2006 þar sem þeir lytu að þeirri ráðstöfun Reykjanesbæjar að leigja lóð undir kísilmálmsmiðju í bænum ásamt skyldum ráðstöfunum. Úrskurðarnefndin féllst ekki á að þær upplýsingar sem fram kæmu í samningunum vörðuðu svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Thorsil ehf. að leynd um efni samninganna gengi framar lögbundnum rétti almennings til aðgangs að upplýsingunum. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningunum á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 23/2006.


  • 630/2016. Úrskurður frá 29. júlí 2016

    Í málinu var deilt um afgreiðslu Reykjavíkurborgar á beiðni um skýrslu um eineltisásakanir á hendur kæranda og tölvupóstsamskiptum sem tengdust málinu. Kærandi hafði fengið aðgang að hluta umbeðinna upplýsinga.  Úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti synjun Reykjavíkurborgar á afhendingu skýrslunnar án útstrikana með vísan til þess að hagsmunir skýrslugjafa af því að ekki væri heimilaður aðgangur að umræddum hluta skýrslunnar vægju þyngra en hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að honum sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Hins vegar ætti kærandi rétt til aðgangs að tölvupóstsamskiptum er tengdust kvörtun um einelti án útstrikana með vísan til 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga og þess að kærandi væri aðili að tölvusamskiptunum.


  • 628/2016. Úrskurður frá 6. júlí 2016

    Endurmenntun Háskóla Íslands krafðist frestun réttaráhrifa úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 622/2016 sem kveðinn var upp 7. júní 2016. Úrskurðarnefndin benti á að í úrskurðarframkvæmd nefndarinnar hefði verið lagt til grundvallar að með heimildarákvæði 1. mgr. 24. gr. upplýsingalaga væru fyrst og fremst höfð í huga tilvik þar sem í húfi séu tiltölulega mikilvægir hagsmunir, ekki síst hagsmunir einkaaðila, sem gætu verið skertir með óbætanlegum hætti ef veittur yrði aðgangur að gögnum með upplýsingum um þá, í andstöðu við ákvæði upplýsingalaga eins og þau kynnu síðar að verða skýrð af dómstólum. Úrskurðarnefndin taldi ekkert hafa komið fram í málinu sem gæti breytt mati nefndarinnar í máli því sem lauk með úrskurði nr. 622/2016. Var því kröfunni hafnað. 


  • 627/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

    Í málinu kærði A meðferð Landsbankans hf. á áskorun um framlagningu gagna í einkamáli aðila. Kæru kæranda var vísað frá þar sem upplýsingalög taka ekki til Landsbankans sbr. auglýsing nr. 600/2013. 


  • 625/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

    A, blaðamaður, kærði ákvörðun utanríkisráðuneytisins um að synja um aðgang að upplýsingum um tvö erindi frá bandarískum stjórnvöldum um B. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi erindin falla undir ákvæði 1. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þar af leiðandi yrði réttur til aðgangs að gögnunum ekki byggður á upplýsingalögum nr. 140/2012, sbr. 1. mgr. 4. gr. laganna. Kæru var því vísað frá nefndinni.


  • 621/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

    A kærði synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að upplýsingum um gögn sem lágu til grundvallar samþykkis stofnunarinnar á réttindatöflu Lífverks, lífeyrissjóðs verkfræðinga. Deilt var um aðgang að tveimur gögnum, tryggingarfræðilegri úttekt og minnisblaði án útstrikana. Undir rekstri málsins afhenti FME kæranda úttektina og var kæru því vísað frá hvað það gagn varðaði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi enga lagaskyldu standa til afhendingar minnisblaðsins en FME hafði afhent kæranda minnisblaðið að hluta á grundvelli 11. gr. laga nr. 140/2012 með því að afmá nafn þess starfsmanns sem vann skjalið. Var staðfest synjun Fjármálaeftirlitsins um aðgang að upplýsingum um nafn starfsmanns er ritaði umbeðið minnisblað. 


  • 622/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016.

    A kærði þá ákvörðun Endurmenntunar Háskóla Íslands að synja beiðni um aðgang að krossaspurningum í fyrri hluta prófs í námskeiði á vegum stofnunarinnar en A reisti rétt sinn til aðgangs á 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Synjun Endurmenntunar var byggð á 5. tölul.  10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að ákvæðið takmarkaði rétt til aðgangs að krossaspurningunum þar sem prófið hefði þegar verið lagt fyrir og ekki væri fyrirhugað að leggja það fyrir aftur í óbreyttri mynd. Var því Endurmenntun Háskóla Íslands gert að veita kæranda aðgang að krossaprófinu.  


  • 624/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

    Kærð var afgreiðsla Akranesskaupstaðar á beiðni um upplýsingar í tengslum við breytingar á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Akranesi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki forsendur til þess að rengja þá fullyrðingu kaupstaðarins að kæranda hafi verið afhent öll þau gögn er lytu að deiliskipulagsbreytingunni. Þar sem ekki lá fyrir synjun stjórnvalds á beiðni til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum var kæru kæranda vísað frá nefndinni. 


  • 623/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

    Viðskiptaráð Íslands kærði þá ákvörðun embættis tollstjóra að hafna beiðni um aðgang að upplýsingum um skiptingu tekna ríkisins vegna aðfluttra vara. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa að einu gögnin sem tollstjóri hefði undir höndum og féllu undir upplýsingabeiðni kæranda væru tollskjöl sem hefðu að geyma upplýsingar um aðflutningsgjöld sem íslenska ríkið innheimti af innfluttum vörum. Þá taldi úrskurðarnefndin engan vafa á því að tollskjölin væru háð sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 188. gr. tollalaga nr. 88/2005. Var því kæru Viðskiptaráðs vísað frá nefndinni. 


  • 626/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

    RÚV kærði synjun Samgöngustofu á beiðni um aðgang að skoðunarskýrslum tiltekins báts fyrir árin 2000 til 2015, bréfaskiptum og tölvupóstsamskiptum í tengslum við eftirlit á bátnum sem og upplýsingum um hugsanleg afskipti Samgöngustofu/Siglingastofnunar varðandi bátinn fyrir sama árabil. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að almenningur hefði ríka hagsmuni af því að geta fylgst með lögbundnu eftirliti með öryggi skipa og báta. Nefndin taldi hin umbeðnu gögn ekki falla undir sérstakrar þagnarskyldureglu Samgöngustofu skv. 19. laga nr. 119/2012 þar sem í gögnunum væru ekki að finna mikilvægar rekstrar- og viðskiptaupplýsingar eftirlitsskyldra aðila. Þá taldi nefndin 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 ekki standa í vegi fyrir því að aðgangur yrði veittur að gögnunum en þó bæri að afmá nafn starfsmanns tiltekins eftirlitsaðila úr gögnum málsins með vísan til 1. málsl. 9. gr. laganna. Eins var því hafnað að 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga tæki til gagnanna en ekki var talið að afhending á gögnunum leiddi til þess að rannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa yrði þýðingarlaus eða skilaði ekki tilætluðum árangri yrðu upplýsingarnar gerðar opinberar. 


  • 620/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016

    Kærð var ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu tilboð tveggja bjóðenda í verðfyrirspurn borgarinnar. Reykjavíkurborg taldi óheimilt að veita aðgang að tilboðum bjóðenda, sundurliðuðum fyrir hvern afmarkaðan hluta verðfyrirspurnarinnar, með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Þar sem kærandi var meðal tilboðsgjafa var réttur hans til aðgangs að gögnunum reistur á 14. gr. upplýsingalaga. Ekki var talið að þær upplýsingar sem fram kæmu í tilboði umræddra bjóðenda gætu valdið bjóðendum tjóni fengi kærandi aðgang að þeim. Þá taldi nefndin hagsmuni kæranda af því að fá aðgang að gögnunum vega þyngra en hagsmunir umræddra bjóðenda af því að upplýsingunum yrði haldið leyndum. Var því fallist á að Reykjavíkurborg bæri að afhenda kæranda umbeðin tilboð. Kæru um afhendingu annarra gagna og upplýsinga sem lágu til grundvallar við mat á tilboðunum var vísað frá úrskurðarnefndinni þar sem Reykjavíkurborg hafði þegar afhent umrædd gögn. 


  • 616/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

    Deilt var um synjun Landsnets hf. á beiðni um afrit af skýrslu um jarðstrengi. Landsnet bar fyrir sig að skýrslan hefði að geyma upplýsingar um fjárhags- og viðskiptahagsmuni sem leynt skyldu fara samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga og 1. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með Landsneti að tilteknar upplýsingar í skýrslunni gætu haft verðmyndandi áhrif þegar kæmi til útboðs vegna framkvæmdarinnar. Synjun var því staðfest hvað þær upplýsingar varðar en kæranda veittur aðgangur að skýrslunni að öðru leyti.


  • 617/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

    A kærði ákvörðun Tollstjóra um synjun beiðni um upplýsingar um tollflokksnúmer tiltekinna bifreiða. Tollstjóri bar fyrir sig að embættinu væri óheimilt að afhenda upplýsingarnar með vísan til 9. gr. upplýsingalaga og 188. gr. tollalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að líta bæri á síðarnefnda ákvæðið sem sérstakt ákvæði um þagnarskyldu sem gengi framar rétti almennings til aðgangs að upplýsingum eftir upplýsingalögum og vísaði kæru kæranda frá.


  • 619/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

    A kærði tvær ákvarðanir utanríkisráðuneytisins á beiðnum um aðgang að gögnum um Norður-Atlantshafsbandalagið (NATO). Af hálfu ráðuneytisins kom fram að hluti gagnanna væri ekki í vörslum þess. Þau gögn sem eftir stæðu væru undanþegin upplýsingarétti samkvæmt upplýsingalögum á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki efni til að rengja mat ráðuneytisins og vísaði kærunum frá nefndinni.


  • 618/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að hafna beiðni um aðgang að gögnum sem varða samning embættisins, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og TV-Software um VERU – heilsuvef. Kærandi byggði á því að ekki hefði farið fram mat á því hvort heimilt væri að veita aðgang að umbeðnum gögnum að hluta og að landlæknir hefði ekki metið efnislega hvort 9. gr. upplýsingalaga ætti við heldur byggt á því að aðrir aðilar samningsins hefðu ekki samþykkt að aðgangur yrði veittur. Af hálfu landlæknis kom fram að þetta mat væri í höndum úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Úrskurðarnefndin féllst ekki á þau sjónarmið og felldi ákvörðun landlæknis úr gildi.


  • 04. maí 2016 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 2/2016

    Ráðning í starf. Hæfni. Valdsvið. Frávísun.


  • 614/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016

     Kærð var synjun Seðlabanka Íslands um aðgang að gjaldeyrisskiptasamningi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Kína. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi upplýsingar í samningnum heyra undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands sem væri sérstök þagnarskylduregla. Þar sem trúnaðarupplýsingar kæmu mjög víða fram í samningnum væri ekki unnt að veita aðgang að þeim hlutum skjalsins sem sérstök þagnarskylda náði ekki til, sbr. 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Var því ekki hjá því komist að vísa kærunni frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 615/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016

    Kærð var afgreiðsla embættis landlæknis á beiðni kæranda um upplýsingar varðandi stofnanir  sem sinna fíkniefnameðferð. Hvað varðaði fyrirspurnir kæranda um upplýsingar um fjölda skráðra atvika og kvartana taldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál ekki ástæðu til að draga í efa þá fullyrðingu embættis landslæknis að hinar umbeðnu upplýsinga væru ekki fyrirliggjandi. Lá því ekki fyrir synjun á afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Þá hafði fyrirspurn um upplýsingar um framkvæmd embættisins á gæðaeftirliti á fíknimeðferð verið svarað með því að vísa til fyrirliggjandi upplýsinga á heimasíðu embættisins, sbr. 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga. Var því kæru málsins vísað frá úrskurðarnefndinni í heild sinni. 


  • 613/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016

    Kærð var synjun Neytendastofu um aðgang að gögnum er vörðuðu rafrænar skilríkjalausnir en gagnabeiði kæranda var sett fram í 4. töluliðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi stofnunina ekki hafa sýnt fram á að efni skjalsins skjalinu „Svar Auðkennis ehf. vegna ábendingar um vísbendingar um öryggisgalla í rafrænum skilríkjalausnum Auðkennis ehf.“, sem beiðst var í 2. tölul. gagnabeiðni, væri þess eðlis að leynt ætti að fara og var kæranda því veittur aðgangur að skjalinu. Hins vegar taldi úrskurðarnefndin að tvö fylgiskjöl með skjalinu væru háð þagnarskyldu á grundvelli 4. mgr. 20. gr. laga nr. 28/2001 og var kæru vegna synjunar á aðgangi að þeim því vísað frá nefndinni. Þá taldi úrskurðarnefndin að rökstuðningur fyrir synjun Neytendastofu að gögnum samkvæmt 1, 3. og 4. í gagnabeiðni kæranda samræmdist ekki ákvæði 1. mgr. 19. gr. upplýsingalaga og 22. gr. stjórnsýslulaga. Var því ákvörðunin felld úr gildi hvað varðaði þá töluliði í gagnabeiðni og lagt fyrir stofnunina að taka málið til nýrrar meðferðar þar sem rökstudd afstaða væri tekin til hvers gagns fyrir sig.


  • 611/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016

      A óskaði eftir gögnum í vörslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Úrskurðarnefndin taldi gögnin bera það með sér að vera rannsóknargögn í sakamáli eins og lögreglan héldi fram að þau væru. Þar sem upplýsingalög gilda ekki um rannsókn sakamáls eða saksókn, sbr. 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, var málinu vísað frá nefndinni.


  • 612/2016. Úrskurður frá 7. mars 2016

     Kærandi kærði þá ákvörðun innanríkisráðuneytisins að birta ekki opinberlega úrskurði í kærumálum í umgengnismálum. Þar sem ekki var um að ræða synjun á afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 605/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

    Kærandi krafðist þess að Ríkisútvarpið ohf. veitti honum aðgang að sundurliðuðum starfslokasamningum og greiðslum tengdum þeim til tiltekinna stjórnenda RÚV árin 2013 og 2014. Samkvæmt 18. gr. laga um félagið nr. 23/2013 skyldu eldri upplýsingalög nr. 50/1996 gilda um starfsemi þess. Úrskurðarnefndin taldi að teknu tilliti til lögskýringargagna að um rétt kæranda til aðgangs færi eftir upplýsingalögum nr. 140/2012. Við mat á því hvaða gögnum kærandi átti rétt á aðgangi að þurfti að meta hverjir væru æðstu stjórnendur RÚV í skilningi 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin lagði til grundvallar að svonefndir framkvæmdastjórar félagsins féllu ekki undir hugtakið. Var því staðfest synjun RÚV á beiðni kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum.


  • 610/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

    Kærandi óskaði eftir ýmsum gögnum og fundargerðum frá Fjármálaeftirlitinu tengdum uppsögn sinni og málaferlum gegn stofnuninni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál áréttaði að 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 væri sérstök þagnarskylduregla og þar af leiðandi var ekki unnt að veita aðgang að þeim gögnum er féllu undir hana. Þá var kæru vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál að því leyti sem hún varðaði ákvarðanir sem voru teknar samkvæmt stjórnsýslulögum eða ekki kærðar innan 30 daga kærufrests upplýsingalaga. Hins vegar var felld úr gildi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að afhenda ekki tiltekin gögn á þeirri forsendu að kærandi hefði þau þegar undir höndum.


  • 609/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

    Kærandi óskaði eftir gögnum í vörslu Þjóðskjalasafns Íslands er vörðuðu Kaupþing banka og Seðlabanka Íslands. Gögnin höfðu að miklu leyti orðið til eða komist í vörslu stjórnvalda í tenglsum við athugun rannsóknarnefndar Alþingis á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008. Úrskurðarnefnd tók fram að 1. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og 1. mgr. 35. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001 feli í sér sérstaka þagnarskyldu og takmarki þar af leiðandi aðgang almennings á grundvelli 5. gr. upplýsingalaga, sbr. 9. gr. s.l. Nefndin tók þó fram að allar hugsanlegar upplýsingar er varði Seðlabankann falli ekki sjálfkrafa þar undir heldur taki ákvæðið meðal annars til upplýsinga um fjárhagsleg málefni eða fjárhagslegar ráðstafanir bankans, um beinar ákvarðanir sem varða starfsemi hans eða undirbúning þeirra og eftir atvikum aðrar upplýsingar sem telja má eðlilegt að leynt fari. Umbeðnar upplýsingar voru taldar falla undir þagnarskylduna. Jafnframt var það ekki talið breyta hagsmununum sem lágu til grundvallar leynd gagnanna að þau höfðu að ýmsu leyti verið notuð við gerð skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.


  • 608/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

    Kærandi óskaði eftir kynningu sem flutt var á dánarmeinafundi á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi um eiginmann hennar heitinn. Að sögn LSH var kynningin ekki vistuð á spítalanum. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál voru ekki efni til að vefengja þá staðhæfingu og var málinu því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


  • 607/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

    Kærandi óskaði eftir gögnum um hvaða starfsmenn Landspítala-Háskólasjúkrahúss hefðu haft aðgang að og skoðað sjúkraskrá eiginmanns hennar heitins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að hugtakið sjúkraskrárupplýsingar yrði að skýra rúmt. Umbeðin gögn voru talin falla undir hugtakið. Þar sem um aðgang að sjúkraskrám fer samkvæmt lögum um sama efni var málinu vísað frá nefndinni.


  • 606/2016. Úrskurður frá 18. janúar 2016

    Kærendur kröfðust aðgangs að samningi Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís) við sjálfboðaliðasamtökin Seeds og samstarfsaðila þeirra, Concordia, um fræðsluferð fyrir fullorðið fólk. Annar kæranda var þátttakandi í ferðinni. Kærendur nutu því réttar til aðgangs á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Rannís bar því við að samningurinn væri trúnaðarmál. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi stofnunina ekki hafa sýnt fram á að efni samningsins væri þess eðlis að leynt ætti að fara og var kærendum því veittur aðgangur að honum.


  • 600/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

    Kærandi krafðist þess að Borgarskjalasafn Reykjavíkur léti honum í té minnispunkta Barnahúss vegna skýrslu sem tekin var af dóttur hans ásamt skýrslu Barnahúss, vegna greiningar og meðferðar hennar. Jafnframt fór hann fram á aðgang að öllum gögnum umgengnismáls fyrir sýslumanni án yfirstrikana. Móðir fór með forræði stúlkunnar. Úrskurðarnefndin taldi kröfu um aðgang að öllum gögnum fyrir sýslumanni og barnaverndarnefnd ekki eiga undir sig þar sem kærandi væri aðili stjórnsýslumáls sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Hins vegar hafi Borgarskjalasafn skilgreint hugtakið foreldri of þröngt og því ekki tekið afstöðu til hugsanlegrar aðildar kæranda að málinu hvað varðar minnispunkta og skýrslu Barnahúss á réttum forsendum. Var því ákvörðun Borgarskjalasafns um synjun felld úr gildi og lagt fyrir safnið að taka málið til meðferðar að nýju að þessu leyti.


  • 601/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

    Kvartað var yfir synjun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um aðgang að verklagsreglum um símahlustanir frá 2010, ódagsettum leiðbeiningum vegna sérstakra rannsóknarúrræða í LÖKE, þremur skýrslum innri endurskoðunar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og skýrslum um framkvæmd símahlustana o.fl. Kærandi taldi að þau fælu í sér upplýsingar um almenna verkferla innan lögreglunnar og væri því ómögulegt að líta á að þau fælu í sér upplýsingar er varða öryggi ríkisins eða varnarmál í skilningi 1. tl. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin yfirfór gögnin og veitti aðgang að ýmsum fylgiskjölum sem innihéldu ekki upplýsingar sem leynt áttu að fara en að öðru leyti var synjun lögreglustjórans staðfest.


  • 602/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

      Kvartað var yfir synjun Landsbankans á aðgangi að nánar tilgreindum upplýsingum. Kærandi byggði kröfu sína um aðgang að gögnum á að Landsbankinn væri í ríkiseigu. Landsbankinn synjaði á þeim grundvelli að upplýsingalög ættu ekki við um bankann. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að skv 2. mgr. 3. gr. upplýsingalaga sbr. auglýsingu nr. 600/2013 væri Landsbankinn undanþeginn ákvæðum upplýsingalaga.


  • 604/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

    Óskað var endurupptöku tveggja mála úrskurðarnefndarinnar frá 2008 og 2015 ásamt því að óskað var eftir að því að úrskurðarnefndin aðstoðaði við að fá Borgarskjalasafn að gera leit að tilteknum gögnum. Síðarnefndu kröfunni var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál með vísan til hlutverks og valdsviðs nefndarinnar. Hvað varðar kröfu um endurupptöku úrskurða komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ekkert væri fram komið sem benti til þess að þeir hefðu byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum. Þá hefðu atvik ekkibreyst svo verulega frá fyrri ákvarðanartöku að réttlætti endurupptöku málanna. Var þeirri kröfu því hafnað.


  • 603/2015. Úrskurður frá 30. nóvember 2015

    Kærandi kvartaði yfir að Vestmannaeyjabær hefði í engu sinnt beiðni sinni um aðgang að aðgang að samþykkt um hunda- og kattahald í Vestmannaeyjum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að Vestmannaeyjabær hefði fallist á beiðni kæranda 25. febrúar 2015 enda þó bréf þess efnis hefði verið stílað á vitlaust heimilisfang. Var það hvorki talið fela í sér synjun né drátt á meðferð máls sem réttlætti kæru til úrskurðarnefndarinnar. Var málinu því vísað frá nefndinni.


  • 19. nóvember 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 9/2015

    Ráðning í starf. Hæfnismat.


  • 11. nóvember 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 10/2015

    Mismunun. Starfslok.


  • 20. október 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 8/2015

    Skipun í starf. Hæfnismat.


  • 16. október 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 5/2015

    Launakjör. Málskostnaður.


  • 16. október 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 4/2015

    Launakjör. Málskostnaður.


  • 13. október 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 6/2015

    Ráðning í starf. Hæfnismat.


  • 596/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að samningi bæjarins um rekstur upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn. Bærinn afhenti kæranda samninginn undir rekstri upphaflega kærumálsins fyrir úrskurðarnefndinni með þeirri takmörkun að strikuð hafði verið út sú upphæð sem greidd var fyrir reksturinn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að útstrikuðu upplýsingarnar væru ekki þess eðlis að 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 gæti komið í veg fyrir aðgang kæranda að þeim. Þær væru ekki til þess fallnar að valda umræddu fyrirtæki tjóni. Með hliðsjón af hinum ríka upplýsingarétti almennings þegar um er að ræða ráðstöfun opinberra hagsmuna var fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningnum í heild sinni.


  • 594/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á beiðni um upplýsingar um leiguverð á fermetra í félagslegu húsnæði og þjónustuíbúðum fyrir aldraða í sveitarfélaginu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa þá fullyrðingu bæjaryfirvalda að upplýsingarnar væru ekki fyrirliggjandi. Beiðni kæranda var því vísað frá.


  • 597/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    Kvartað var yfir afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um störf. Í umsögn bæjaryfirvalda kom fram að beiðni kæranda hefði verið óljós og henni ekki svarað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti ákvæði upplýsingalaga og tók fram að aðilum sem falla undir lögin væri ekki í sjálfsvald sett hvort þeir svari beiðnum um aðgang að upplýsingum eftir lögunum. Beiðni kæranda var því vísað aftur til Vestmannaeyjabæjar til nýrrar og lögmætrar afgreiðslu.


  • 599/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um starf fulltrúa á bæjarskrifstofu. Í umsögn bæjaryfirvalda kom fram að fyrirspurn kæranda hefði ekki borist. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í ljósi þess að kæran væri handskrifuð á sama blað og kærandi segði vera upphaflega gagnabeiðni væri vandséð að Vestmannaeyjabær hafi haft beiðnina undir höndum. Ekki gæti því verið um óhæfilegan drátt á meðferð málsins að ræða í skilningi 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 1. mgr. 17. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Kæru kæranda var því vísað frá.


  • 595/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    A kærði meðferð Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að gögnum. Í umsögn bæjaryfirvalda kom fram að beiðnin hefði verið þess eðlis að ekki hefði verið unnt að svara henni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að stjórnvöldum væri ekki í sjálfsvald sett hvort þau svari beiðnum um aðgang að upplýsingum eftir upplýsingalögum nr. 140/2012 og vísaði málinu aftur til Vestmannaeyjabæjar til nýrrar og lögmætrar afgreiðslu.


  • 598/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    A kærði þá afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að fundargerð fundar bæjarstjórnar, að vísa á vefslóð þar sem fundargerðina var að finna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti ákvæði 1. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 19. gr. upplýsingalaga og athugasemdir við þau í frumvarpi til laganna. Af athugasemdunum var talið mega álykta að 2. málsliður 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga yrði ekki túlkaður á þá leið að ákvæðið leggi þá skyldu á stjórnvöld að afhenda gögn á því formi sem aðili óskar eftir þegar þau eru þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. A kærði jafnframt afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að samningi bæjarins við meindýraeyði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa fullyrðingar bæjaryfirvalda um að enginn slíkur samningur liggi fyrir hjá bænum. Kæru A var því í heild sinni vísað frá.


  • 593/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    A kærði ákvörðun Samgöngustofu um að synja honum um aðgang að gögnum varðandi atvinnuleyfi til leigubílstjóra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti ákvæði 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og tók fram að undir ákvæðið falli einna helst upplýsingar um leyfisumsóknir sem taka til afar persónulegra málefna umsækjandans. Sömu sjónarmið ættu ekki við um opinbera leyfisveitingu til að starfa sem leigubílstjóri. Lagt var fyrir Samgöngustofu að veita kæranda aðgang að umbeðnum upplýsingum að undanskildum upplýsingum um kennitölur viðkomandi einstaklinga, enda gildi sérregla 10. gr. laga nr. 77/2000 um notkun þeirra.


  • 592/2015. Úrskurður frá 1. október 2015

    A kærði meðferð Fjármálaeftirlitsins á beiðni nokkurra erlendra tryggingafélaga um aðgang að gögnum sem tengdust LBI hf. Fjármálaeftirlitið hafði vísað frá beiðni um aðgang að gögnum undir þremur liðum gagnabeiðni kærenda, þar sem þau væru ekki fyrirliggjandi hjá stjórnvaldinu. Kærendur gerðu ekki athugasemdir við ákvörðunina hvað einn liðinn varðaði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa að gögn undir eftirstandandi liðunum tveimur væru ekki fyrirliggjandi hjá stjórnvaldinu og staðfesti hina kærðu ákvörðun að þessu leyti. Þá synjaði FME kærendum um aðgang að gögnum undir þremur liðum gagnabeiðni þeirra á grundvelli 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, 58. gr. laga nr. 161/2002 og 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á aðgang kærenda að hluta minnisblaðs sem áður var um fjallað í úrskurði nr. 573/2015 en staðfesti synjun Fjármálaeftirlitsins á aðgangi að öðrum umbeðnum gögnum.


  • 24. september 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 7/2015

    Ráðning í starf. Hæfnismat.


  • 01. september 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 2/2015

    Ráðning í starf. Hæfnismat. Málskostnaður.


  • 589/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

    A kærði ákvörðun Borgarskjalasafns þar sem synjað var um aðgang að gögnum í vörslu safnsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að hefðu að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra í skilningi 2. mgr. 30. gr. laga nr. 77/2014 og 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og staðfesti hina kærðu ákvörðun.


  • 591/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

    A kærði þá ákvörðun ríkisskattstjóra að synja um aðgang að upplýsingum um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Innheimtustofnunar sveitarfélaga á tilteknu tímabili. Ríkisskattstjóri byggði synjunina á 9. gr. upplýsingalaga og 1. mgr. 44. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti forsögu síðarnefnda ákvæðisins og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri unnt að túlka ákvæðið þannig að það mælti fyrir um sérstaka þagnarskyldu um umbeðnar upplýsingar. Þar sem engar þagnarskyldar upplýsingar voru taldar koma fyrir í yfirliti ríkisskattstjóra um endurgreiddan virðisaukaskatt var fallist á rétt kæranda til aðgangs að því.


  • 588/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

    Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum tólf einstaklinga fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Synjun staðfest.


  • 590/2015. Úrskurður frá 28. ágúst 2015

    A kærði ákvörðun Borgarskjalasafns þar sem synjað var um aðgang að gögnum í vörslu safnsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að þau gögn sem kæranda var synjað um aðgang að hefðu að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra í skilningi 2. mgr. 30. gr. laga nr. 77/2014 og 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og staðfesti hina kærðu ákvörðun.


  • 587/2015. Úrskurður frá 31. júlí 2015

    Með úrskurði nr. A-493/2013 felldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál ákvörðun landlæknis um synjun á beiðni A um aðgang að gögnum úr gildi og lagði fyrir embættið að taka málið til nýrrar meðferðar. Í kjölfarið tók embættið nýja ákvörðun sem A felldi sig ekki við. Annars vegar taldi A að landlæknir hefði haldið eftir gögnum umfram afhendingarskyldu, en landlæknir bar fyrir sig að þau væru háð þagnarskyldu eftir 8. og 9. gr. upplýsingalaga. Hins vegar taldi A að landlækni hefði verið óheimilt að gera tilteknar breytingar á skrám úr tölvukerfi embættisins áður en þær voru afhentar á geisladiski. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál sýndi landlæknir ekki fram á nauðsyn breytinga á rafrænu sniði umbeðinna gagna, auk þess sem rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar væri ábótavant. Vegna eðlis umbeðinna gagna varð að vísa beiðni kæranda á ný til löglegrar meðferðar hjá landlækni.


  • 585/2015. Úrskurður frá 31. júlí 2015

    Isavia ohf. krafðist þess aðallega að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál nefndarinnar nr. ÚNU 15020004, sem lyktaði með úrskurði nr. 580/2015. Til vara fór fyrirtækið þess á leit að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki vera fyrir hendi lagaskilyrði til að verða við kröfum fyrirtækisins.


  • 586/2015. Úrskurður frá 31. júlí 2015

    Isavia ohf. krafðist þess aðallega að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál nefndarinnar nr. ÚNU 14100011, sem lyktaði með úrskurði nr. 579/2015. Til vara fór fyrirtækið þess á leit að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki vera fyrir hendi lagaskilyrði til að verða við kröfum fyrirtækisins.


  • 12. júní 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 1/2015

    Ráðning í starf. Hæfnismat. Málskostnaður.


  • 582/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

    Brit Insurance Limited, Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., QBE International Insurance Ltd. og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um gögn í í 23 tölusettum liðum. Seðlabanki Íslands tók ákvörðun um að synja kærendum um aðgang að gögnum undir öllum liðunum með bréfi dags. 14. janúar 2014, að frátöldum liðum 2, 7, 8, 14 og 19. Um þá liði segir í ákvörðun Seðlabankans að gögn undir þeim hafi ekki fundist hjá bankanum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga þá staðhæfingu í efa. Því var ekki talin liggja fyrir synjun stjórnvaldsins á afhendingu gagna undir þessum liðum í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, sbr. 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 15. gr. laganna, og þessum hluta kærunnar vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Seðlabankinn taldi sér ekki fært að afgreiða liði nr. 20 og 21 í gagnabeiðni kærenda, þar sem þeir væru óskýrir og illa afmarkaðir sbr. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin lagði til grundvallar að kærendur hefði afmarkað liðina nægjanlega til að Seðlabanka Íslands hafi verið fært að afgreiða þá efnislega, að minnsta kosti að hluta. Synjun bankans byggði að öðru leyti á því að gögnin féllu undir þagnarskylduákvæði í lögum um Seðlabanka Íslands. Jafnframt bæri að líta til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál lét nærri að öll framangreind gögn í liðum 1, 3-5, 10, 11, 13, 15-18, 22, 23 og 9  teldust háð þeirri sérstöku þagnarskyldu sem 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 kveður á um, enda hefðu þau að geyma umfangsmiklar upplýsingar um fjárhagsleg málefni bankans og viðskiptamanns hans Landsbanka Íslands hf., fjárhagslegar ráðstafanir Seðlabankans, beinar ákvarðanir sem varða starfsemi hans og undirbúning þeirra og margvíslegar aðrar upplýsingar sem telja má eðlilegt að leynt fari með hliðsjón af hagsmunum Seðlabankans sjálfs. Úrskurðarnefndin lagði þó fyrir Seðlabankann að veita kærendum aðgang að tveimur skjölum sem voru almennari að efni til.


  • 583/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

    B kærði synjun embættis ríkislögreglustjóra á beiðni um upplýsingar um hvaða einstaklingum hefur verið veitt leyfi til að kalla sig byssusmið og á hvaða forsendum. Í umsögn ríkislögreglustjóra kom fram að embætti ríkislögreglustjóra hafi veitt einum einstaklingi slíkt leyfi. Ríkislögreglustjóri kvaðst hafa synjað kæranda um aðgang að upplýsingum um nafn þess einstaklings sem hlotið hefði leyfið, á þeim forsendum að kærandi væri ekki aðili að máli í skilningi 15. gr. stjórnsýslulaga. Jafnframt teldi embættið að 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 ætti við þar sem um einkamálefni einstaklings væri að ræða. Úrskurðarnefndin tók fram að upplýsingalög nr. 140/2012 gilda ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum, sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Þar sem kærandi taldist ekki aðili að máli í skilningi 15. gr. stjórnsýslulaga, færi því um rétt kæranda til aðgangs að umbeðnum upplýsingum eftir ákvæðum upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að umbeðin gögn innihéldu ekki upplýsingar um rekstur, fjárhagsmálefni eða viðskipti þess einstaklings sem fékk útgefið leyfisbréf. Ekki var því unnt að líta svo á að nokkrar upplýsingar sem þar koma fram gætu skert samkeppnisstöðu hans við byssusmíði í atvinnuskyni. Var hin kærða ákvörðun því felld út gildi og lagt fyrir embætti ríkislögreglustjóra að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.


  • 584/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

    A kærði synjun Reykjavíkurborgar á beiðni um aðgang að leyfissamningum um tiltekinn hugbúnað og reikningum tengdum þeim. Kærandi hafði fengið aðgang að umbeðnum gögnum en upplýsingar um einingarverð og magntölur höfðu verið afmáðar af þeim með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Heildarfjárhæðir höfðu ekki verið afmáðar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skoðaði umbeðin gögn með tilliti til hagsmuna viðkomandi félaga af því að leynd væri haldið um þessi gögn annars vegar og hins vegar þeirra almannahagsmuna að upplýsingar um ráðstöfun opinberra hagsmuna séu aðgengilegar almenningi. Það var afstaða úrskurðarnefndarinnar að ekki hefði verið sýnt fram á að umræddar upplýsingar nái til svo mikilvægra fjárhags- eða viðskiptahagsmuna að þær væru sérstaklega til þess fallnar að valda samningsaðilum tjóni yrðu þær gerðar opinberar, þótt eitthvert óhagræði gæti fylgt því að kærandi fái aðgang að þeim. Þá leit nefndin til þess að um væri að ræða upplýsingar sem lúta með beinum hætti að ráðstöfun opinberra fjárhagslegra hagsmuna. Úrskurðarnefndin lagði því fyrir Reykjavíkurborg að afhenda kæranda afrit af umbeðnum gögnum.


  • 578/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

    Drífa ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum. Úrskurðarnefndin vísaði til athugasemda í frumvarpi til upplýsingalaga um 3. mgr. 14. gr. um að vega skuli og meta gagnstæða hagsmuni þess sem upplýsinga óskar og annarra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga hagsmuni af því að tilteknum atriðum sé haldið leyndum. Kærandi var talinn hafa hagsmuni af því að fá upplýsingar um einkunnir þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í samkeppninni, meðal annars til að geta lagt mat á það hvernig framkvæmd hennar var háttað. Úrskurðarnefndin áréttaði jafnframt að fyrirtæki sem leita eftir því að fá ráðstafað opinberum gæðum verði að vera undir það búin að upplýsingalög gildi um slíkar úthlutanir. Einnig væri eðlilegt að fyrirtæki á samkeppnismarkaði séu undir það búin að fá ekki hæstu einkunnir í samkeppnum sem þau taka þátt í og ólíklegt þau verði fyrir tjóni þótt upplýst verði hvaða einkunnir þau hljóta fyrir tillögur sínar. Isavia ohf. var því gert að að veita kæranda aðgang að einkunnum annarra þátttakenda í samkeppninni.


  • 579/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

    Kaffitár ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum. Úrskurðarnefndin vísaði til athugasemda í frumvarpi til upplýsingalaga um 3. mgr. 14. gr. um að vega skuli og meta gagnstæða hagsmuni þess sem upplýsinga óskar og annarra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga hagsmuni af því að tilteknum atriðum sé haldið leyndum. Kærandi var talinn hafa hagsmuni af því að fá upplýsingar um nöfn, einkunnir og tillögur þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í samkeppninni, meðal annars til að geta lagt mat á það hvernig framkvæmd hennar var háttað. Úrskurðarnefndin áréttaði jafnframt að fyrirtæki sem leita eftir því að fá ráðstafað opinberum gæðum verði að vera undir það búin að upplýsingalög gildi um slíkar úthlutanir. Einnig væri eðlilegt að fyrirtæki á samkeppnismarkaði séu undir það búin að fá ekki hæstu einkunnir í samkeppnum sem þau taka þátt í og ólíklegt þau verði fyrir tjóni þótt upplýst verði að þau verði ekki fyrir valinu í samkeppnum eða hvaða einkunnir þau hljóta fyrir tillögur sínar. Isavia ohf. var því gert að að veita kæranda aðgang að nöfnum, tillögum og einkunnum annarra þátttakenda í samkeppninni að undanskildum gögnum sem vörðuðu flokka samkeppninnar sem kærandi tók ekki þátt í.


  • 580/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

    Gleraugnamiðstöðin ehf. kærði afgreiðslu Isavia ohf. á beiðni um aðgang að gögnum varðandi samkeppni um verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Úrskurðarnefndin taldi að samkeppnin fæli ekki í sér hefðbundið útboð. Engu að síður var kærandi talinn njóta réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga til aðgangs að gögnum eins og þátttakendur í útboðum. Úrskurðarnefndin vísaði til athugasemda í frumvarpi til upplýsingalaga um 3. mgr. 14. gr. um að vega skuli og meta gagnstæða hagsmuni þess sem upplýsinga óskar og annarra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga hagsmuni af því að tilteknum atriðum sé haldið leyndum. Kærandi var talinn hafa hagsmuni af því að fá upplýsingar um einkunn og tillögu annars þátttakanda í samkeppninni, meðal annars til að geta lagt mat á það hvernig framkvæmd hennar var háttað. Úrskurðarnefndin áréttaði jafnframt að fyrirtæki sem leita eftir því að fá ráðstafað opinberum gæðum verði að vera undir það búin að upplýsingalög gildi um slíkar úthlutanir. Einnig væri eðlilegt að fyrirtæki á samkeppnismarkaði séu undir það búin að fá ekki hæstu einkunnir í samkeppnum sem þau taka þátt í og ólíklegt þau verði fyrir tjóni þótt upplýst verði hvaða einkunnir þau hljóta fyrir tillögur sínar. Isavia ohf. var því gert að að veita kæranda aðgang að tillögu og einkunnum annars þátttakanda í samkeppninni að undanskildum gögnum sem voru talin hafa að geyma mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni hans.


  • 581/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015

    A kærði afstöðu Sparisjóðs Vestmannaeyja til gagnabeiðna sinna til sjóðsins. Óskað var eftir upplýsingum um nöfn umsækjenda um starf sparisjóðsstjóra, starfslokasamning fráfarandi sparisjóðsstjóra, dagsetningu stjórnarfundar þar sem nýr sparisjóðsstjóri var ráðinn, stofnfjáreigendur sjóðsins og afkomu dóttursjóða. Úrskurðarnefndin vísaði til ákvæðis 2. mgr. 3. gr. upplýsingalaga. Á grundvelli þess hefði ráðherra birt tvær auglýsingar um undanþágur lögaðila frá upplýsingalögum. Sparisjóður Vestmanneyja og Landsbankinn hf. væru báðir meðal þeirra lögaðila sem þar eru nefndir. Upplýsingalög nr. 140/2012 tækju því ekki til þeirra. Þegar af þeirri ástæðu taldi úrskurðarnefndin ekki unnt að skjóta afstöðu þessara aðila til gagnabeiðna kæranda til nefndarinnar og málinu vísað frá nefndinni.


  • 12. maí 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 8/2014

    Ráðning í starf. Hæfnismat.


  • 28. apríl 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 6/2014

    Ráðning í starf. Hæfnismat.



  • 14. apríl 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 3/2015

    Ráðning í starf. Hæfnismat. Málskostnaður. Kærufrestur.


  • 576/2015. Úrskurður frá 23. mars 2015

    A kærði þá ákvörðun Lyfjastofnunar Íslands að synja honum um aðgang að vísindarannsóknaniðurstöðum vegna markaðsleyfis á bóluefnum og/eða fyrir notkun á innihaldsefnum í bóluefnum. Upphafleg synjun stofnunarinnar byggðist á því að beiðni kæranda varðaði ekki stjórnsýslumál sem kærandi var aðili að. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að Lyfjastofnun hefði borið að afgreiða beiðnina á grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012. Jafnvel þó afgreiðsla stofnunarinnar hafi verið ófullnægjandi að þessu leyti kom fram undir rekstri málsins að stofnunin hafi ekki í vörslum sínum þau gögn sem kærandi krafðist aðgangs að. Málinu var því vísað frá nefndinni.


  • 577/2015. Úrskurður frá 23. mars 2015

    A gerði þá kröfu fyrir hönd Háskóla Íslands að úrskurðarnefnd um upplýsingamál taki upp að nýju mál nr. ÚNU 13120003 sem lyktaði með úrskurði nr. 566/2015 á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Jafnframt væru forsendur til að afturkalla úrskurðinn. Loks var þess óskað að úrskurðarnefndin frestaði réttaráhrifum úrskurðarins á meðan málið yrði borið undir dómstóla. Úrskurðarnefndin féllst ekki á röksemdir kæranda er lutu að því að ekki hefði verið tekin afstaða til þess hvort upplýsingar í umbeðinni skýrslu vörðuðu B umfram aðra í skilningi 14. gr. upplýsingalaga. Þá var heldur ekki fallist á það með kæranda að nefndin hefði ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sem á henni hvíldi skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Loks féllst nefndin ekki á að henni hafi verið skylt að veita kæranda kost á að koma á framfæri frekari röksemdum um aðgang B á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Var því kröfu kæranda um endurupptöku málsins hafnað. Hins vegar leit nefndin til þess að af gögnum málsins mátti ráða að þeim starfsmönnum kæranda sem skýrslan fjallaði um hafi verið heitið trúnaði um upplýsingagjöf þeirra. Þótt þetta atriði gæti ekki eitt og sér staðið í vegi fyrir aðgangi þriðja aðila að skýrslunni taldi nefndin ekki hægt að útiloka að hægt væri að rekja einstök efnisatriði hennar til tiltekinna nafngreindra einstaklinga. Taldi nefndin því rétt eins og á stóð að gefa kæranda möguleika á sönnunarfærslu af því tagi fyrir dómstólum og féllst á frestun réttaráhrifa úrskurðarins.


  • 575/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

    A gerði þá kröfu f.h. Sorpu bs. að úrskurðarnefnd um upplýsingamál frestaði réttaráhrifum úrskurðar nr. 570/2015 á meðan málið yrði borið undir dómstóla. Krafan byggði á því að upplýsingarnar væru bundnar trúnaði samkvæmt ákvæði í útboðslýsingu á grundvelli 1. mgr. 17. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að heimildarákvæði 24. gr. upplýsingalaga væri undantekning sem aðeins yrði beitt þegar sérstaklega stendur á. Ákvæðið eigi fyrst og fremst við þegar í húfi eru mikilvægir hagsmunir sem geta verið skertir með óbætanlegum hætti ef aðgangur yrði veittur að umbeðnum gögnum. Að mati nefndarinnar benti ekkert til þess að slíkir hagsmunir væri í húfi og kröfu kæranda því hafnað.


  • 574/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

    A kærði, f.h. Tryggingamiðstöðvarinnar hf., ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að hafna beiðni félagsins um aðgang að gögnum um Glitni hf. FME bar fyrir sig 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, en kærandi taldi 5. mgr. sömu greinar leiða til þess að FME bæri að afhenda umbeðin gögn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál túlkaði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 með þeim hætti að ákvæðið heimilaði miðlun gagna fyrir dómi innan ramma laga um meðferð einkamála, en gæti ekki vikið sérstakri þagnarskyldu 1. mgr. þegar um er að ræða beiðni um afhendingu gagna á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi umbeðin gögn hafa að geyma upplýsingar um viðskipti og rekstur eftirlitsskylds aðila í skilningi 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 og staðfesti því synjun FME á beiðni kæranda um aðgang að þeim.


  • 573/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

    A kærði, f.h. Tryggingamiðstöðvarinnar hf., ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að hafna beiðni félagsins um aðgang að gögnum um Glitni hf. FME bar fyrir sig 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998, en kærandi taldi 5. mgr. sömu greinar leiða til þess að FME bæri að afhenda umbeðin gögn. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál túlkaði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 með þeim hætti að ákvæðið heimilaði miðlun gagna fyrir dómi innan ramma laga um meðferð einkamála, en gæti ekki vikið sérstakri þagnarskyldu 1. mgr. þegar um er að ræða beiðni um afhendingu gagna á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi umbeðin gögn hafa að geyma upplýsingar um viðskipti og rekstur eftirlitsskylds aðila í skilningi 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998. Nefndin staðfesti því synjun FME á beiðni kæranda um aðgang að þeim utan minnisblaðs sem talið var fela í sér lýsingu á vinnureglum stjórnvalds í skilningi 4. tl. 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga.


  • 572/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

    A kvartaði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að yfirliti um starfsleyfi lánastofnana frá 19. mars 2007. Af hálfu FME kom fram að skjalið fyndist ekki hjá stofnuninni þrátt fyrir víðtæka leit. Undir meðferð málsins hjá nefndinni kom fram af hálfu kæranda að hann hefði aflað yfirlitsins sjálfur og komið því á framfæri við FME. Því væru engar hindranir til staðar til að aðgangur yrði veittur. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þegar umbeðin gögn eru ekki til staðar hjá stjórnvaldi telst ekki vera um synjun að ræða í skilningi 20. gr. upplýsingalaga. Þar sem umbeðið gagn var ekki til hjá FME þegar beiðni kæranda barst stofnuninni var málinu vísað frá nefndinni.


  • 571/2015. Úrskurður frá 2. mars 2015

    A kærði afgreiðslu Kópavogsbæjar á beiðni um svör við tilteknum spurningum. Spurningarnar lutu að bótagreiðslum sveitarfélagsins til nafngreindra einstaklinga vegna skerðingar á lóð við Vatnsendablett. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál lagði til grundvallar að beiðni kæranda næði ekki til þess að fá aðgang að fyrirliggjandi gögnum í samræmi við ákvæði 5. og 15. gr. upplýsingalaga. Kærunni var því vísað frá.


  • 17. febrúar 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 5/2014

    Skipun í starf. Hæfnismat


  • 17. febrúar 2015 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 7/2014

    Mismunun. Lögvarðir hagsmunir. Frávísun.


  • 569/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

    Félag atvinnurekenda kærði synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni félagsins um gögn, m.a. gögn tengd ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara. Ráðuneytið taldi kærufrest félagsins vera útrunninn, og að ekki væru skilyrði til að verða við kröfunni. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það. Því var tekin efnisleg afstaða til málsins. Af hálfu félagsins hafði í fyrsta lagi verið vísað til réttar sem það hefði samkvæmt stjórnsýslulögum, en nefndin kvað það ekki heyra undir sitt valdsvið að skera úr um hvort það ætti rétt samkvæmt þeim lögum. Félagið hafði í öðru lagi vísað til þess að það nyti réttar skv. 14. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi svo ekki vera. Í þriðja lagi hafði það vísað til ákvæða um rétt almennings til aðgangs að gögnum. Af hálfu ráðuneytisins hafði verið talið að takmarka bæri aðgang almennings vegna viðskiptahagsmuna þeirra er ættu hlut að máli. Úrskurðarnefndin taldi ekki verða með góðu móti ráðið að hagsmunum þeirra væri hætta búin þótt félaginu yrði veittur aðgangur að gögnunum og ákvað að veita bæri aðganginn.


  • 570/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

    Íslenska gámafélagið hf. kærði synjun Sorpu bs. á beiðni hlutafélagsins um að fá aðgang að gögnum varðandi útboð á verki byggðasamlagsins. Til skoðunar kom hvort niðurstaða Sorpu bs. ætti sér stoð í ákvæði um takmörkun aðgangs vegna hagsmuna annarra, einkum hvort takmarka bæri aðgang að upplýsingum um einingaverð. Úrskurðarnefndin fór yfir gögnin en taldi ekki verða ráðið að hagsmunum annarra væri hætta búin þótt kæranda yrði veittur umbeðinn aðgangur. Var því ákveðið að Sorpu bs. beri að afhenda kæranda útboðsgögn Efnamóttökunnar hf. vegna útboðs í verkið „Viðtaka spilliefna af endurvinnslustöðvum 2014-2018“. 


  • 566/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

    A kærði ákvörðun Háskóla Íslands um að veita honum ekki aðgang að skýrslu sem hafði verið unnin af sjálfstætt starfandi sérfræðingum utan skólans, þ.e. skýrslu um innra starfsumhverfi viðskiptafræðideildar. Því hafði í fyrsta lagi verið haldið fram að um vinnugagn væri að ræða, en úrskurðarnefndin féllst ekki á það. Í öðru lagi hafði því verið haldið fram að skýrslan hefði að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra en kæranda. Úrskurðarnefndin athugaði skýrsluna. Hún taldi að almennt væri ekki, af þeim upplýsingum einum sem þar koma fram, þ.e. án þess að viðbótarupplýsingar kæmu til, unnt að bera kennsl á eða rekja einstök efnisatriði til tiltekinna nafngreindra einstaklinga, jafnvel þótt einhverjir staðkunnugir kynnu að geta getið sér til um slík tengsl. Á stöku stað væru þó slíkar upplýsingar, þ.e. persónuupplýsingar, en þær væru hvorki viðkvæmar né að öðru leyti þess eðlis að telja mætti hagsmuni viðkomandi, af því að upplýsingunum væri haldið leyndum, vega þyngra en hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að þeim.  Því varð niðurstaðan sú að háskólanum bæri að veita A aðgang að skýrslunni.


  • 568/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

    A kærði synjun forsætisráðuneytisins á beiðni hans um að fá aðgang að tillögum ráðgjafahóps um aðferðir við losun fjármagnshafta. Ráðuneytið hafði í fyrsta lagi vísað til þess að aðgangsréttur almennings tæki ekki til fundargerða ríkisráðs og ríkisstjórnar, minnisgreina á ráðherrafundum og gagna sem tekin hefðu verið saman fyrir slíka fundi. Fyrir lá hins vegar að þessu gagni hafði verið dreift til utanaðkomandi aðila og því taldi úrskurðarnefndin ekki hafa verið heimilt að synja um aðgang á þessum grundvelli. Ráðuneytið hafði í öðru lagi vísað til þess að takmarka yrði aðganginn vegna almannahagsmuna og sjónarmiða um öryggi og sjálfstæði ríkisins, en nefndin taldi þessi sjónarmið, eins og þau voru sett fram, ekki heldur geta stutt synjun ráðuneytisins. Hins vegar féllst nefndin á að um væri að ræða upplýsingar um mögulegar ráðstafanir, sem kynnu að verða þýðingarlausar, eða skiluðu ekki tilætluðum árangri, yrðu þær á almannavitorði, og ákvað af þeirri ástæðu að staðfesta synjun ráðuneytisins.


  • 567/2015. Úrskurður frá 21. janúar 2015

    A kærði, f.h. Samtaka meðlagsgreiðenda, synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni samtakanna um að fá upplýsingar um a) fjölda öryrkja sem greiða meðlög, b) um hve margir meðlagsgreiðndur séu með fulla örorku eða á endurhæfingalífeyri og c) um hve mikið sé um millifærslu barnalífeyris til meðlagsþega. Af hálfu TR kom fram að þessar upplýsingar lægju ekki fyrir nema á ófullgerðu skjali, er telja yrði til vinnugagns. Úrskurðarnefndin skoðaði skjalið, féllst á að um vinnugagn væri að ræða og staðfesti synjunina.


  • 562/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

    A kærði, f.h. Tryggingamiðstöðvarinnar hf., ákvörðun Fjármálaeftirlitsins, um að hafna beiðni félagsins um aðgang að gögnum um Glitni hf. FME bar fyrir sig 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998. Nefndin taldi það vera sérstakt þagnarskylduákvæði og, að með óviðkomandi aðilum væri átt við aðila sem ekki væri gert ráð fyrir í lögum að FME miðlaði upplýsingum til. Það ætti við um kæranda og að Glitnir nyti réttarverndar samkvæmt ákvæðinu. Var því staðfest synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni Tryggingamiðstöðvarinnar hf. um aðgang að afritum af gögnum er tengjast rannsókn og athugasemdum Fjármálaeftirlitsins vegna CAMELS mats á starfsemi Glitnis 


  • 563/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

    D kærði, f.h. félagsins Nemendur & Trú, afgreiðslu Reykjavíkurborgar  á beiðni félagsins um aðgang að umsögnum um reynslu af reglum um samskipti leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar við trúar- og lífsskoðunarfélög. Nefndin taldi þessar umsagnir hafa að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar og, fyrir utan eina umsögn sem viðkomandi einstaklingur hafði samþykkt að yrði miðlað, var ákveðið að ekki bæri að miðla þeim í heild. Þó skyldi miðla þeim eftir að persónuauðkenni (s.s. nafn/netfang/símnúmer) hefðu verið afmáð.


  • 564/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

    A kærði afgreiðslu forsætisráðuneytisins á beiðni hennar um aðgang að minnisblaði ráðherranefndar um ríkisfjármál, sem hafi verið lagt fram á ráðherrafundi. Að sögn ráðuneytisins hafði hið umbeðna gagn verið tekið saman fyrir nefnd ráðherra eða ráðherrafund. Úrskurðarnefndin taldi sig ekki hafa forsendur til að draga það í efa. Varð því að staðfesta ákvörðun ráðuneytisins um að synja beiðni kæranda.


  • 561/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

    A kærði synjun Ríkisskattstjóra (RSK) á beiðni hans um gögn um innsendan fjármagnstekjuskatt frá Innheimtustofnun sveitarfélaga. Af hálfu RSK var vísað til 1. mgr. 117. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi það vera ákvæði um sérstaka þagnarskyldu og þ.a.l. féllu gögnin ekki undir upplýsingalög. Var málinu vísað frá.


  • 565/2014. Úrskurður frá 17. desember 2014

    A gerði kröfu um endurupptöku máls og endurskoðun úrskurðar í því, en málinu hafði lokið með vísun til þess að a) kvörtun yfir að erindi hefði ekki verið svarað væri ekki á rökum reist og b) að kærufrestur væri runninn út. Við umfjöllun um endurupptökukröfuna leit nefndin til þess að þótt hún hefði, í tilteknu bréfi til kæranda, mátt vera skýrari varðandi kærufrestsinn hafi það ekki valdið A nokkrum réttarspjöllum, og gæti auk þess ekki vikið til hliðar skýru lagaákvæði um frestinn. Þá hefði ekkert komið fram um að úrskurðurinn  hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að á honum væru verulegir annmarkar að lögum. Með vísan til þess varð að hafna kröfunni. 


  • 560/2014. Úrskurður frá 17. nóvember 2014

    Félag sjúkraþjálfara kærði afgreiðslu landlæknis á beiðni þess um upplýsingar um þá sem höfðu starfað fyrir embættið á tilteknu tímabili. Nefndin taldi kæranda hafa átt rétt á upplýsingum um föst launakjör starfsmanna og æðstu stjórnenda og að landlækni hafi verið skylt að veita honum upplýsingar um nöfn og starfssvið þeirra og um föst launakjör. Ekki væri þó skylt að veita upplýsingar um menntun starfsmannanna eða stéttarfélagsaðild. Það varð því niðurstaða nefndarinnar að leggja fyrir landlækni að veita kæranda aðgang að upplýsingum um nöfn þeirra starfsmanna sem störfuðu hjá embættinu á árunum 2011, 2012 og 2013 - og um föst launakjör þeirra og starfssvið. 


  • 559/2014. Úrskurður frá 17. nóvember 2014

    A kærði meðferð skattrannsóknarstjóra á beiðni hans um aðgang að lista frá breskum yfirvöldum - þ.e. lista yfir tíu Íslendinga sem tengdust svokölluðum skattaskjólum. Mun listinn upphaflega hafa komið frá ICIJ, sem er alþjóðlegur samstarfsvettvangur rannsóknarblaðamanna, en það voru bresk skattyfirvöld sem létu skattrannsóknarstjóra fá hann. Það gerðu þau á grundvelli 25. gr. þágildandi tvísköttunarsamning Íslands og Bretlands. Nefndin taldi þá grein samningsins fela í að trúnaður hvíldi á upplýsingunum, enda yrði að líta á samninginn sem þjóðréttarsamning í skilningi 2. ml. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Því giltu lögin ekki um umrædd gögn. Af þeirri ástæðu varð að vísa málinu frá nefndinni.


  • 558/2014. Úrskurður frá 17. nóvember 2014

    A kærði synjun Seðlabanka Íslands á að verða við beiðni hans um aðgang að greiningu bankans á greiðslujöfnuði Íslands. Bankinn hafði synjað kæranda um aðgang að greiningunni, m.a. á grundvelli lagaákvæða um þagnarskyldu. Nefndin féllst á að þagnarskyldan ætti við. Þá taldi hún, að með vísan til þess hversu víða í gögnunum væru upplýsingar undanþegnar upplýsingarétti, að ekki væru forsendur til að leggja fyrir bankann að veita kæranda aðgang að hluta þeirra.


  • 21. október 2014 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 1/2014

    Launakjör. Málskostnaður.


  • 20. október 2014 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 3/2014

    Ráðning í starf. Hæfnismat.


  • 20. október 2014 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 4/2014

    Ráðning í starf. Hæfnismat. Málskostnaður.


  • 540/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

    Mál þetta varðaði tvær kærur. Sú fyrri laut að því að FME hafi ekki svarað beiðni A um gögn. Við meðferð málsins kom í ljós að beiðninni hafði verið svarað, þ.e. með ákvörðun dags. 4. júlí. Því var sú kæra ekki talin eiga við rök að styðjast og var henni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Sú seinni laut að efni ákvörðunarinnar frá 4. júlí. Þar sem sú kæra hafði ekki borist fyrr en að liðnum kærufresti var henni einnig vísað frá.


  • 542/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

    A kærði þá ákvörðun landlæknis að færa tiltekin gögn, sem hann hafði fallist á að afhenda kæranda á stafrænu formi, á annað snið en þau voru þá á. Það gerði hann í því skyni að læsa þeim,þ.e. gera þau óbreytanleg. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leit m.a. lagaákvæða endurnot opinberra upplýsinga og féllst ekki á að landlækni hafi verið heimilt að breyta sniði gagnanna svo „tryggt væri að ekki væri unnt að breyta þeim eftir afhendingu“. 


  • 541/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

    Í framhaldi af ákvörðun úrskurðarnefndar um upplýsingamál, um að endurupptaka mál varðandi kæru [A] yfir þeirri ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að synja um aðgang að skýrslu sem ber heitið: „Samantekt á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008 til 2011“ var málið tekið til úrskurðar að nýju. Eftir nýja yfirferð á efni skýrslunnar varð það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að veita bæri aðgang að henni, en með þeim takmörkunum sem taldar eru upp í úrskurðarorði.  Í úrskurðinum er ekki tekin afstaða til þess hluta skýrslunnar sem kærandi hafði þegar fengið í hendur (um uppl. sem höfðu birst í fjölmiðlum). 


  • 538/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

    B kærði þá ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga að synja honum um afrit af fundargerðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þótt fundargerð teldist vera vinnuskjal gæti bókun í henni átt að vera aðgengileg almenningi, að hluta eða öllu leyti, ef hún hefði að geyma endanlega niðurstöðu um afgreiðslu mála. Það ætti að hluta til við í þessu tilviki. Því lagði nefndin fyrir framkvæmdanefnd búvörusamninga að afhenda kæranda afrit af tveimur fundargerðum. Synjun um aðgang að einni fundargerð var staðfest. 


  • 539/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

    Tryggingamiðstöðin hf. kærði þá ákvörðun FME að synja félaginu um aðgang að upplýsingum um Glitni. Gagnabeiðnin tengdist málaferlum vegna stjórnendatryggingar, sem Glitnir keypti fyrir stjórnendur bankans vorið 2008, en kærandi hafði hafnað gildi tryggingarinnar, m.a.  vegna meints brots á reglum um upplýsingaskyldu. Úrskurðarnefndin taldi umrædd gögn lúta reglum um sérstaka þagnarskyldu, en sú skylda færðist yfir á FME vegna upplýsinga sem það tæki við, og staðfesti því synjun FME um að veita aðgang að gögnunum.


  • 551/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

    Brit Insurance Ltd., QBE Insurance (Europe) Ltd., Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., Allianz Global Corporate & Specialty AG, Novae Syndicate 2007, Dan Re Syndicate 1400 og QBE Syndicate 1886 kærðu ákvörðun Fjármálaeftirlitsins („FME“) um að vísa frá beiðni um aðgang að gögnum í ellefu liðum. Beiðnin laut að nánar tilteknum gögnum varðandi einn aðila á ákveðnu tímabili. Nefndin taldi FME ekki hafa afgreitt beiðnina með fullnægjandi hætti og féllst ekki á varakröfu FME um að beiðninni mætti synja á grundvelli 1. tl. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi beiðnina ekki hafa hlotið þá umfjöllun hjá FME, sem kæruheimild 20. gr. upplýsingalaga, og almennar reglur stjórnsýsluréttar um kæruheimildir á stjórnsýslustigi, gera ráð fyrir. Því varð að fella ákvörðun FME úr gildi og vísa málinu þangað til nýrrar og lögmætrar efnislegrar afgreiðslu. 


  • 552/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

    Þess var krafist af hálfu A að fá, frá Reykjavíkurborg, afhent útboðsgögn – þ.e. án þess að af þeim hefðu áður verið afmáðar upplýsingar um einingarverð og sundurliðaðar fjárhæðir. Niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál varð sú að Reykjavíkurborg bæri að afhenda kæranda gögnin með þeim hætti sem hann bað um.


  • 550/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

    Málið varðaði þríþætta kæru A vegna Vestmannaeyjabæjar. Í fyrsta lagi kæru yfir að bærinn hafi ekki svarað A, í öðru lagi yfir að A hafi ekki fengið tilteknar upplýsingar varðandi ráðningu í starf forstöðumanns og í þriðja lagi yfir að hafa ekki fengið upplýsingar varðandi stefnumótun og starfshætti bæjarins. Fyrsta liðnum var vísað frá nefndinni, þar sem fyrir lá að A hafði verið svarað. Varðandi annan liðinn var lagt fyrir Vestmannaeyjabæ að veita A nákvæmar upplýsingar um laun forstöðumannsins. Þriðji þátturinn þótti ekki varða nægilega vel tilgreind gögn og varð honum vísað frá.


  • 549/2014. Úrskurður frá 1. september 2014

    Hinn 24. júlí 2014 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð nr. A-540/2014 í máli ÚNU 13070006. Síðar barst beiðni um frestun á réttaráhrifum úrskurðarins. Við meðferð þess máls kom í ljós að hann hafði ekki verið byggður á réttum lagagrundvelli og var þá ákveðið að fella hann úr gildi. Af sömu ástæðum varð að vísa umræddri kæru frá nefndinni.


  • 548/2014. Úrskurður frá 13. ágúst 2014

    Þess var krafist af hálfu sveitarfélags að réttaráhrifum úrskurðar nr. 541/2014, sem kveðinn var upp 24. júlí 2014, í máli ÚNU 14040010, yrði frestað. Að mati úrskurðarnefndarinnar var frestur til að gera slíka kröfu runninn út og því var henni vísað frá. 


  • A-541/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    Íslenska gámafélagið hf. kærði synjun Sveitarfélagsins Ölfuss á beiðni um aðgang að tilboðsgögnum Gámaþjónustunnar hf. Sveitarfélagið hafði hvorki leiðbeint um kæruheimild né um kærufrest. Með vísan til 1. töluliðar 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kærunni því ekki vísað frá. Kærandi var einn tilboðsgjafa í umræddu útboði og naut því réttar samkvæmt ákvæði 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin umbeðin gögn ekki falla undir 6. gr. laganna og aðgangur yrði ekki takmarkaður á grundvelli 10. gr. Ákvæði 1. mgr. 17. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sem banna kaupanda að láta af hendi upplýsingar sem fyrirtæki hafa lagt fram sem trúnaðarupplýsingar, tækju einkum til tækni- og viðskiptaleyndarmála og fælu í sér almenna þagnarskyldu er takmarki ekki almennan aðgangsrétt. Því bæri sveitarfélaginu Ölfusi að afhenda þau.


  • A-540/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    Gámaþjónustan hf. kærði afgreiðslu A (sem er í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf., sem er alfarið í eigu Seðlabanka Íslands) á beiðni um svör við því hvort tiltekinn eignarhlutur í Íslenska gámafélaginu hf. hefði verið auglýstur til sölu og ef svo væri, hvar og hvenær, hversu stór eignarhluturinn hefði verið, hvert söluverðið hefði verið, hver hefði verið kaupandi og hvernig greiðslum hefði verið háttað. Kærandi hafði aðeins fengið tiltekin svör. Seðlabankinn bar í fyrsta lagi fyrir sig ákvæði um þagnarskyldu, en nefndin taldi það ekki eiga við. Þá vísaði bankinn til samkomulags um trúnað sem nefndin taldi hann ekki heldur geta borið fyrir sig. Í þriðja lagi vísaði hann til 9. gr. upplýsingalaga, enda væri um að ræða viðkvæmar upplýsingar fyrir viðskiptamenn A.  Nefndin taldi upplýsingarnar varða ráðstöfun opinberra hagsmuna með beinum hætti og gerði A. að afhenda kæranda samkomulag um endurskipulagningu Íslenska gámafélagsins ehf. 


  • A-544/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki en lagði mat að það hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. greinarinnar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri og FME bæri ekki að veita aðgang að skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins PWC, að undanskildum þeim hlutum sem kærendum hafði þegar verið veittur aðgangur að, en það átti við um svo stóran hluta hennar að ekki kom til álita að leggja fyrir FME að afhenda hana að hluta. Beiðni um aðgang að skjalinu „Skýrsla um athugun á óhæði rekstrarfélaga verðbréfasjóða hjá Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf.“ var að mestu vísað frá.


  • A-542/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    Kærð var synjun mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum um gerð skýrslu um stjórnsýslu fornleifarannsókna og fornleifaverndar. Meta varð hvort sá sem vann skýrsluna hafi verið „verkefnaráðinn“ eða „starfsmaður“ í skilningi upplýsingalaga. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var sú að á meðan ráðningarsamband hans við ráðuneytið stóð yfir hafi hann verið starfsmaður . Tiltekin gögn um kostnað vegna verkefnisins, m.a. um „þóknanir“ til hans vegna forvinnu og tölvunotkunar, væru því undanþegin upplýsingarétti þótt veita bæri upplýsingar um föst launakjör. Nefndin féllst ekki á að viss gögn og tölvupóstar, ritaðir áður en C varð starfsmaður ráðuneytisins, og eftir að hann hætti, væru vinnugögn sem ráðuneytið hafi mátt synja um aðgang að. Vissum þáttum kærunnar varð að vísa frá – m.a. um tölvupósta sem höfðu verið afhentir nefndinni án viðhengja og að því sem marki um aðgang kæranda færi að ákvæðum stjórnsýslulaga. Gagn sem kæranda hafði verið tjáð að væru „drög að bréfi til forsætisráðuneytisins“ taldi nefndin vera vinnugagn sem ekki hefði verið skylt að afhenda kæranda.


  • A-543/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    A kærði ákvörðun Orkustofnunar um að synja beiðni um aðgang að skýrslum stofnunarinnar skv. 2. mgr. 31. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Synjunin byggðist á því að umbeðnar skýrslur væru „flestar lokaðar skýrslur“ og því þyrfti „verkkaupi að afhenda efnið“. Var kæranda því bent á að senda beiðni sína til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.  Úrskurðarnefnd taldi, með vísun til 16. gr. upplýsingalaga, að Orkustofnun hafi ekki verið heimilt að áframsenda beiðnina til annars stjórnvalds, sem einnig hefði umbeðin gögn í sínum vörslum, og lagði fyrir hana að fjalla um og taka afstöðu til gagnabeiðni A.


  • A-546/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja þeim um aðgang að 15 fundargerðum lánanefndar samstæðu Kaupþings banka hf. og lánanefndar stjórnar bankans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þagnarskylda samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 færðist yfir á Þjóðskjalasafnið vegna upplýsinga sem stofnunin tæki við, sbr. 2. mgr. greinarinnar. Allar fundargerðirnar innihéldu umsóknir viðskiptamanna Kaupþings banka hf. um lánaviðskipti, ásamt afstöðu lánanefnda bankans til lánveitingar og rökstuðningi fyrir henni, sem nefndin taldi tvímælalaust vera upplýsingar um einka- og fjárhagsmálefni sem varði mikilvæga fjárhagslega hagsmuni einkaaðila. Þær njóti verndar skv. 1. mgr. 58. gr. og 9. gr. upplýsingalaga. Ekki væri unnt að veita aðeins aðgang að hluta þeirra, enda ljóst að yrðu allar persónugreinanlegar upplýsingar afmáðar úr þeim stæði svo lítið eftir að kærendum væri ekki gagn í að fá aðgang að þeim. Synjun Þjóðskjalasafnsins var því staðfest. 


  • A-545/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    A kærði þá ákvörðun Isavia ohf. að veita honum ekki aðgang að samningi um leigu á húsi til farþegaafgreiðslu. Fyrir lá að þetta skjal varð til fyrir gildistöku nýrra upplýsingalaga, eða árið 2009. Féll ágreiningur um aðgang að því þar með utan valdssviðs úrskurðarnefndar um upplýsingamál, eins og það er afmarkað í 20. gr. laganna, og varð að vísa málinu frá.


  • A-547/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

    Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki vera en mat hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. þeirrar greinar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri. Því hafi FME verið rétt að synja kærendum um aðgang að skýrslu um útlánaáhættu Kaupþings banka hf., umfram þá hluta hennar sem kærendur hefðu þegar fengið aðgang að. Þau sjónarmið ættu við um svo stóran hluta skýrslunnar að ekki kæmi til greina að veita aðgang að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Skýrslur um stórar áhættur sem Kaupþing banki hf. sendi til FME á árunum 2007 og 2008 á grundvelli reglna nr. 216/2007 um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum (áður reglur nr. 531/2003) taldi nefndin einnig falla undir þagnarskylduna og að þær upplýsingar sem undanþegnar væru upplýsingarétti væru svo stór og veigamikill hluta þeirra að ekki væru heldur efni til að veita aðgang að hluta þeirra. Þá taldi hún skjalið „Liquidity Risk - template - 18 months - SEPT all currencies SENT.xls“  hafa að geyma upplýsingar háðar þagnarskyldu, en kærendur hefðu ekki fært fram röksemdir sem leiddu til þess að þeirri skyldu skyldi aflétt.


  • A-535/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

    A kærði þá ákvörðun Isavia ohf. að veita honum ekki aðgang að samningi við Mýflug hf., þ.e. að samningi um leigu á flugvél í eigu Isavia ohf. Fyrir lá að þetta skjal varð til fyrir gildistöku nýrra upplýsingalaga, eða árið 2009. Féll ágreiningur um aðgang að því þar með utan valdssviðs úrskurðarnefndar um upplýsingamál, eins og það er afmarkað í 20. gr. laganna, og var málinu því vísað frá.


  • A-536/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

    A kærði þá ákvörðun Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, að synja beiðni hans um afrit af endurskoðunarskýrslu vegna ársreiknings Höfða fyrir árið 2011. Synjunin hafði byggst á því að um viðkvæmar upplýsingar væri að ræða, m.a. samkeppnisupplýsingar. Það var niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að Höfða bæri að veita kæranda aðgang að endurskoðunarskýrslu vegna umrædds ársreiknings.


  • A-539/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

    A kærði þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að synja honum um aðgang að niðurstöðum PISA-könnunar 2012, sundurliðuðum eftir grunnskólum borgarinnar. Reykjavíkurborg synjaði beiðninni m.a. á þeim forsendum að um vinnugögn væri að ræða. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það. Þá taldi hún ekki vera í þeim upplýsingar sem féllu undir lög um persónuvernd. Því bæri Reykjavíkurborg að afhenda kæranda afrit af gögnunum.


  • A-537/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

    A kærði með hvaða hætti landlæknir hefði í hyggju að fara að tilteknum úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Við meðferð málsins kom í ljós að bæði kærandi og embætti landlæknis voru því samþykk því að umrædd gögn yrðu brennd á óendurskrifanlegan geisladisk og afhent þannig. Taldi nefndin þá ekki vera efni til frekari umfjöllunar um málið og vísaði því frá nefndinni.


  • A-538/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

    A kærði afgreiðslu Háskóla Íslands á beiðnum hans um aðgang að gögnum varðandi ráðningar í tiltekin störf. Fyrir lá að hann hafði verið meðal umsækjenda og var því aðili máls í skilningi stjórnsýslulaga. Það með taldi nefndin að hann nyti þess ríka réttar sem þau lög veita slíkum aðilum. Þegar af þeirri ástæðu taldi nefndin hann ekki geta borið málið undir hana og var kærum hans vísað frá.


  • 05. júní 2014 / Kærunefnd jafnréttismála

    Mál nr. 2/2014

    Uppsögn úr starfi. Auglýsing. Kærufrestur.


  • A-534/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

    A kærði Vestmannaeyjabæ fyrir að hafa ekki afhent sér tiltekinn ársreikning útprentaðan, þ.e. á pappír. Af svörum bæjarins mátti ráða að bærinn væri reiðubúinn til að afhenda kæranda gögnin á þannig formi ef hann myndi biðja um það. Því voru ekki forsendur til frekari umfjöllunar um kæruna og var henni vísað frá nefndinni.


  • A-531/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

    A kærði, f.h. Hagsmunasamtaka heimilanna (HH), synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) á beiðni um aðgang að gögnum varðandi yfirfærslu lánasafna frá gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Í fyrsta lagi var óskað aðgangs að tilteknum skýrslum. FME kvað þá beiðni vera endurtekna, henni hafi efnislega verið synjað árið áður og kærufrestur væri útrunninn. HH sögðu fyrri beiðni sína aðeins hafa tekið til hluta skýrslnanna. Það varð niðurstaða nefndarinnar að HH hafi mátt beina nýrri beiðni að FME, enda hefði eftirlitið sjálft ákveðið að taka afstöðu til aðgangs að skýrslunum í heild. Hins vegar staðfesti nefndin efnislega synjun FME. Í öðru lagi var óskað aðgangs að samningum varðandi yfirfærslu lánasafna frá gömlu bönkunum yfir í þá nýju, sem gerðir voru milli kröfuhafa gömlu bankanna og stjórnvalda, eftir atvikum við Fjármálaeftirlitið. Nefndin taldi niðurstöðu um það ráðast af því hvort í samningunum væru upplýsingar sem féllu undir 13. gr. laga nr. 87/1998, þ.e. um starfsemi Fjármálaeftirlitsins, eftirlitsskyldra aðila eða tengdra aðila eða annara. Það ákvæði yrði að skýra með hliðsjón af 9. gr. upplýsingalaga og réttur til aðgangs réðist af því hvort viðskiptahagsmunir lögaðila af leynd um gögn vægju þyngra en hagsmunir almennings af að fá aðgang að þeim. Nefndin taldi tiltekin skjöl lúta að mikilvægum viðskipta- og fjárhagsmálefnum bankanna, eftirlitsskyldra aðila er lytu þagnarskylduákv. Auk þess væru víða í þeim upplýsingar sem falla myndu undir 9. gr. upplýsingalaga þótt sú þagnarskylda ætti ekki við. Því var staðfest synjun FME um aðgang að þessum skjölum. Önnur skjöl taldi hún ekki falla undir þagnarskylduna. Um það vísaði hún til þess að þau hefðu að geyma upplýsingar um þátttöku ríkisins í umfangsmiklum aðgerðum, um ráðstöfun opinberra hagsmuna og ekki hefði verið rökstutt hvernig það gæti valdið tilgreindum aðilum tjóni að veita aðgang að þeim. Þá hefðu stjórnvöld þegar veitt aðgang að sambærilegum gögnum um aðra aðila og birt allar helstu upplýsingarnar í skýrslu fjármálaráðherra.  Í þriðja lagi var óskað aðgangs að ótilgreindum gögnum tengdum yfirfærslu lánasafna í nýju bankana. Þar sem ekki þótti vera ljóst hvaða gögn væri um að ræða var þessum þætti vísað frá.


  • A-532/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

    A kærði, f.h. B og C,  synjun Snæfellsbæjar (S) á beiðni um aðgang að útboðsgögnum. Ekki varð ráðið að C hafi staðið að upphaflegri beiðni og kæru hans var vísað frá. Kæra B laut m.a. að upplýsingum um hver hafi framleitt þá steypu sem notuð var í umrætt verk, en ekki lá fyrir að S hefði þær upplýsingar undir höndum. Því var beiðni um þau vísað frá. S hafði í fyrsta lagi vísað til þagnarskylduákvæðis í lögum um opinber innkaup, en nefndin taldi það vera almennt þagnarskylduákvæði og synjun yrði ekki á því byggð. Í öðru lagi hafði S vísað til 9. gr. upplýsingalaga. B hafði hins vegar verið þátttakandi í útboðinu, og naut réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga. Því taldi nefndin S ekki geta byggt synjun á 9. gr. laganna. Takmarkanir á upplýsingarétti B yrðu aðeins reistar á 2. eða 3. mgr. 14. gr. en þar sem skilyrði þeirra væru ekki uppfyllt bæri S að afhenda B umrædd skjöl.


  • A-533/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

    A kærði, f.h. eitt hundrað tilgreindra einstaklinga, afgreiðslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að upplýsingum um öll leyfisbréf til kennara útgefin á tilteknu tímabili. Úrskurðarnefndinni höfðu ekki verið látnar í té hinar umbeðnu upplýsingar, en af hálfu ráðuneytisins var á því byggt að ekki væri unnt að kalla þær fram með góðu móti. Nefndin taldi sig því ekki hafa forsendur til að fallast á afstöðu ráðuneytisins. Var ákvörðun mennta- og menningarmálaráðuneytisins felld úr gildi og lagt fyrir það að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar. 


  • B-528/2014. Úrskurður frá 27. maí 2014

    Vinnueftirlitið krafðist þess að frestað yrði réttaráhrifum úrskurðar nr. A-528/2014, í máli ÚNU 13070007, sem kveðinn var upp 5. maí 2014. Kröfunni var hafnað.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum