Hoppa yfir valmynd

Úrskurðir og álit

Sýni 2001-2200 af 19793 niðurstöðum.

Áskriftir

  • 08. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 512/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

  • 08. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 524/2022-Úrskurður

    Fjárhagsaðstoð. Staðfest synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um styrk vegna flutningskostnaðar. Skilyrði 24. gr. reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð ekki uppfyllt.

  • 08. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 492/2022-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu húsnæðisbóta aftur í tímann. Húsnæðisbætur greiddar frá umsóknarmánuði.

  • 08. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 456/2022

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta. Tekjur hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir.

  • 08. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 454/2022

    Mál nr. 448/2022-Úrskurður

    Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta. Eignastaða umfram skerðingarmörk.

  • 08. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 515/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Kæranda er veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

  • 08. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 508/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.

  • 08. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál 491/2022

    Felld úr gildi ákvörðun um greiðslu lögmannskostnaðar.

  • 08. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 513/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum vísa henni frá Íslandi er staðfest.

  • 08. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 506/2022 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar er felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar.

  • 08. desember 2022 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 31/2022

    Í málinu hafði kærandi kært ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um niðurfellingu á lífeyri og þátttöku í dvalarkostnaði á hjúkrunarheimili. Ákvörðun tryggingastofnunar hvað varðar mánaðarlega þátttöku í dvalarkostnaði var staðfest. Hins vegar taldi ráðuneytið að skráning upphafs dvalar á hjúkrunarheimilinu hefði ekki verið í samræmi við lög. Skráningin hefði miðast við þann dag sem kæranda hefði verið boðið pláss á hjúkrunarheimilinu en ekki þann dag sem hann hefði flutt á heimilið, líkt og lög gerðu ráð fyrir. Þar sem dagsetning upphaf dvalar hefði áhrif á niðurfellingu lífeyris og þátttöku í dvalarkostnaði var sá hluti ákvörðunar tryggingastofnunar felldur úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka hann til nýrrar meðferðar.

  • 07. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 504/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 er staðfest.

  • 07. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 502/2022-Úskurður

    Tannlækningar. Staðfest afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands á umsókn um greiðsluþátttöku í tannlækningum.

  • 07. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 461/2022-Úrskurður

    Hjálpartæki. Felld úr gildi synjun Sjúkratrygginga Íslands um styrk til kaupa á göngugrind og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

  • 07. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 477/2022-Úrskurður

    Slysatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga

  • 07. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 451/2022-Úrskurður

    Tannlækningar erlendis. Staðfest afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands frá 6. júní 2022 á umsókn um þátttöku í kostnaði vegna tannlækninga erlendis.

  • 07. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 505/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa kæranda frá Íslandi og ákveða honum endurkomubann er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

  • 07. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 294/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt. Ekki fallist á að ákvörðun Tryggingastofnunar brjóti í bága við 65. og 76. gr. stjórnarskrárinnar.

  • 07. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 503/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.

  • 07. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 503/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.

  • 07. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 487/2022-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt. Felld úr gildi ákvörðun stofnunarinnar að synja kæranda um örorkustyrk. Fallist á að skilyrði örorkustyrks væru uppfyllt og málinu heimvísað til ákvörðunar á tímalengd örorkustyrks.

  • 07. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 447/2022-Úrskurður

    Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Að mati úrskurðarnefndar var misræmi í gögnum málsins varðandi mat á andlegri færni kæranda.

  • 07. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 510/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa kæranda frá Íslandi og ákveða honum endurkomubann er staðfest.

  • 07. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 473/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 71. gr. laga um útlendinga er staðfest.

  • 07. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 497/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 65. og 70. gr. laga um útlendinga er staðfest.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 95/2022-Álit

    Forgangsröðun viðhalds. Þörf á gluggaskiptum.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 84/2022-Úrskurður

    Tímabundinn leigusamningur: Krafa leigusala í tryggingu leigjanda.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 82/2022-Úrskurður

    Tímabundinn leigusamningur: Tryggingarfé.

  • 01. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 449/2022-Beiðni um endurupptöku

    Endurupptökubeiðni synjað. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að ekki yrði ráðið að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 né að kærandi ætti rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 79/2022-Úrskurður

    Tryggingarfé. Krafa um endurgreiðslu leigu.

  • 01. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 439/2022-Beiðni um endurupptöku

    Endurupptökubeiðni synjað. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að ekki yrði ráðið að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 né að kærandi ætti rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 64/2022-Álit

    Kostnaðarskipting: Viðhald á aðkeyrslu að bílskúrum.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 53A/2022- Úrskurður

    Tímabundinn leigusamningur: Uppsögn. Tryggingarfé.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 52/2022-Álit

    Kosning gjaldkera. Lögmæti aðalfundar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 43/2022-Úrskurður

    Tímabundinn leigusamningur: Tryggingarfé.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 486/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 491/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 485/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 494/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 531/2022-Úrskurður

    Frávísun. Engin stjórnvaldsákvörðun.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 471/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 478/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 480/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 501/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 502/2022 Úrskurður

    Kröfu kærenda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 483/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 482/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 489/2022 Úrskurður

    Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 492/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 495/2022 Úrskurður

    Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 488/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er felld úr gildi.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 493/2022 Úrskurður

    Nr. 496/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 481/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er felld úr gildi.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 484/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 475/2022 Úrskurður

    Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 487/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 476/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 477/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 479/2022 Úrskurður

    Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

  • 01. desember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 490/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 150/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Sigurbogi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 149/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Fallist er á móðurkenninguna Júlíönudóttur og Júlíönuson.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 148/222 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Scott (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 147/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Hrímir (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 146/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Hófí (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 145/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Þórína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 144/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Fallist er á föðurkenninguna Jesúsdóttir.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 143/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Kappi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 142/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Askalín (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 141/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Sammy (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 140/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Díon (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 139/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Bjart er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.

  • 30. nóvember 2022 / Mannanafnanefnd

    Mál nr. 138/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

    Beiðni um eiginnafnið Miguel (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  • 30. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 478/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.

  • 30. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 494/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt.

  • 30. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 490/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins varðandi synjun á örorkustyrk tímabundið felld úr gildi og vísað aftur til stofnunarinnar til að ákveða gildistíma.

  • 30. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 468/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt

  • 30. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 458/2022-Úrskurður

    Endurhæfingarlífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu endurhæfingarlífeyris. Endurhæfingaráætlun var ekki talin uppfylla skilyrði 7. gr. laga um félagslega aðstoð þar sem að hún var hvorki talin nægilega umfangsmikil né markviss.

  • 30. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 436/2022-Úrskurður

    Örokumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála var ósamræmi milli tveggja skoðunarskýrslna

  • 30. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 403/2022 - Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.

  • 25. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 476/2022-Úrskurður

    Málefni fatlaðs fólks. Felld úr gildi ákvörðun Mosfellsbæjar um að synja umsókn kæranda um notendastýrða persónulega aðstoð. Skilyrði í reglum sveitarfélagsins um að einstaklingur þurfi að hafa náð 18 ára aldri til að geta notið notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar á sér ekki lagastoð.

  • 1110/2022. Úrskurður frá 16. nóvember 2022

    Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um gögn í tengslum við umsókn um byggingarleyfi vegna óleyfisframkvæmda. Reykjavíkurborg kvað engin gögn sem heyrðu undir gagnabeiðni kæranda vera fyrirliggjandi. Úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að rengja þær staðhæfingar Reykjavíkurborgar og hefði að auki ekki valdheimildir til að ganga úr skugga um hvort gögnin væru til, þrátt fyrir að kærandi teldi slíkt vera hafið yfir vafa. Að mati nefndarinnar var þannig ekki um að ræða synjun um aðgang að fyrirliggjandi gögnum, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, og kærunni því vísað frá.

  • 1109/2022. Úrskurður frá 16. nóvember 2022

    Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um gögn um tilurð götumerkinga í Bankastræti. Kæran barst rúmlega 14 mánuðum eftir að kærufrestur skv. 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga rann út. Úrskurðarnefndin taldi skilyrði 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga ekki uppfyllt og var kærunni því vísað frá.

  • 1108/2022. Úrskurður frá 16. nóvember 2022

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um hvort kvartað hefði verið til Vinnueftirlitsins vegna eineltis af hálfu kæranda sem og vinnugögnum í vörslum stofnunarinnar. Það var mat úrskurðarnefndarinnar að 2. til 4. málsliður 2. mgr. 83. gr. laga nr. 46/1980 fæli í sér sérstaka þagnarskyldureglu um upplýsingar sem vörðuðu umkvartanir til Vinnueftirlitsins. Þannig væri ljóst að upplýsingar um hvort kvartað hafi verið til stofnunarinnar vegna eineltis á vinnustað, sem og gögn stofnunarinnar sem fjalla kynnu um slíka umkvörtun, féllu undir þagnarskylduákvæðið. Taldi úrskurðarnefndin því að Vinnueftirlitinu væri óheimilt að veita kæranda slíkar upplýsingar og staðfesti ákvörðun stofnunarinnar að þessu leyti en kærunni var að öðru leyti vísað frá.

  • 24. nóvember 2022 / Úrskurðir á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðuneytisins

    Úrskurður v. skráningar firmaheitis.

    Úrskurður v. skráningar firmaheitis. Skráning firmaheitis, heiti fasteignar, lagagrundvöllur ákvörðunar, valdþurrð, tómlæti.

  • 24. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 455/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.

  • 24. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 469/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 364/2022 - Úrskurður

    Meðlag og barnalífeyrir. Felldar úr gildi ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna og barnalífeyrisgreiðslur.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 697/2021-Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum vegna áranna 2019 og 2020. Úrskurðarnefndin taldi „uføretrygd“ greiðslur frá Noregi ekki falla undir undantekningarreglu 4. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 415/2022-Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 350/2022-Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins að synja umsókn kæranda um niðurfellingu á endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ekki fallist á að tilefni sé til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Ekki fallist á að um brot á stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, væri að ræða.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 512/2022-Úrskurður

    Frávísun. Frávísun á kæru varðandi synjun Tryggingastofnunar ríkisins um örorkulífeyri og tengdar greiðslur þar sem kæra barst of seint.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál 479/2022-Úrskurður

    Formágalli. Kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem ekki er ágreiningur til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 432/2022-Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál 431/2022-Úrskurður

    Örorkubætur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að heildargreiðslur til kæranda skuli vera óbreyttar, þrátt fyrir hækkun á greiðsluhlutfalli örorkulífeyris.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 417/2022-Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 464/2022-Úrskurður

    Milliganga um meðlagsgreiðslur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um milligöngu um meðlagsgreiðslur.

  • 23. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 452/2022-Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um niðurfellingu að hluta á endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta vegna fjárhagslegra aðstæðna á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Þeim hluta kæru er varðar kröfu um greiðslu vaxta og 15% álags er vísað frá úrskurðarnefndinni þar sem ekki liggur fyrir stjórnvaldsákvörðun í málinu.

  • 22. nóvember 2022 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 30/2022

    Í málinu hafði kærandi kært málsmeðferð embættis landlæknis vegna álits embættisins um mistök og vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu. Byggði kærandi m.a. á því að tiltekinn starfsmaður embættisins hefði verið vanhæfur auk þess sem andmælaréttur hefði ekki verið virtur. Ráðuneytið hafði þegar tekið afstöðu til málsástæðna um hæfi og vísaði til fyrri úrskurða í málum kæranda. Þá var talið að kæranda hefði verið veitt fullnægjandi tækifæri til að koma að athugasemdum við meðferð kvörtunarinnar, en honum hafði t.a.m. verið send umsögn óháðs sérfræðings til athugasemda í tölvupósti og með ábyrgðarbréfi. Var málsmeðferð embættis landlæknis því staðfest.

  • 21. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál nr. 499/2022-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kæranda við dóttur sína.

  • 21. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál nr. 475/2022-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kæranda við son hennar.

  • 21. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál 401/2022-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun barnaverndar að loka máli barns.

  • 21. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 468/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 62. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 er staðfest.

  • 18. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Fæðingar- og foreldraorlof

    Mál nr. 485/2022-Úrskurður

    Felld úr gildi ákvörðun Fæðingarorlofssjós um greiðslur til kæranda.

  • 18. nóvember 2022 / Yfirfasteignamatsnefnd

    Mál nr. 4/2022

    Finneiðharvegur [], Grímsnes- og Grafningshreppi

  • 17. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 467/2022-Úrskurður

    Viðurlög. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði. Ekki talið að kærandi hafi hafnað starfi.

  • 17. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 459/2022-Úrskurður

    Viðurlög. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að staðfesta fyrri ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Sú ákvörðun hafði verið felld úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála.

  • 17. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 465/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.

  • 17. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 427/2022-Úrskurður

    Almenn skilyrði. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Fullnægjandi gögn lágu ekki til grundvallar ákvörðun stofnunarinnar.

  • 17. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 464/2022 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Grikklands eru staðfestar.

  • 17. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 463/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Grikklands er staðfest.

  • 17. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 412/2022-Úrskurður

    Ofgreiddar bætur. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta. Ekki heimilt að skerða atvinnuleysisbætur kæranda vegna fjármagnstekna maka hennar.

  • 17. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 371/2022-Úrskurður

    Biðtími. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði. Ekki talið að kærandi hafi misst starf sitt af ástæðum sem hún átti sjálf sök á.

  • 17. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 458/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Argentínu er staðfest.

  • 17. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 457/2022 Úrskurður

    Kröfu kæranda um frestun framkvæmdar er vísað frá.

  • 17. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 458/2022 Úrskurður

    Kröfu kærenda um frestun framkvæmdar er vísað frá.

  • 17. nóvember 2022 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 29/2022

    Kærandi kærði meinta ranga sjúkdómsgreiningu og meintar rangfærslur í sjúkraskrá. Ráðuneytið tók fram að embætti landlæknis tæki kvartanir vegna meintrar vanrækslu og mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu til meðferðar en ekki ráðuneytið. Þá þyrfti að beina beiðni um leiðréttingu á sjúkraskrá til umsjónaraðila hennar en hægt væri að skjóta synjun á slíkri beiðni til embættis landlæknis. Hefði ráðuneytið engu hlutverki að gegna í því sambandi. Laut kæra þannig ekki að neinni ákvörðun eða málsmeðferð sem kæranleg væri til ráðuneytisins og var kærunni því vísað frá.

  • 17. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 467/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.

  • 16. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 460/2022-Úrskurður

    Tannlækningar. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um greiðsluþátttöku í tannlækningum

  • 16. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 473/2022-Úrskurður

    Tannlækningar. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um greiðsluþátttöku í tannlækningum.

  • 16. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 445/2022-Úrskurður

    Kærufrestur. Kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem kærufrestur var liðinn.

  • 16. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 316/2022-Úrskurður

    Læknismeðferð erlendis. Staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands um endurgreiðslu á kostnaði vegna læknismeðferðar erlendis.

  • 16. nóvember 2022 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 28/2022

    Kærandi kærði frávísun embættis landlæknis á kvörtun sem hún hafði lagt fram til embættisins vegna starfa sálfræðings sem dómkvadds matsmanns. Ráðuneytið taldi að kærandi hefði ekki verið notandi heilbrigðisþjónustu í skilningi 2. mgr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Hún hefði þannig ekki sérstakra eða verulegra hagsmuna að gæta af því að fá kvörtunina til meðferðar. Með sömu rökum taldi ráðuneytið að kærandi gæti ekki átt kærurétt í málinu og var kærunni því vísað frá ráðuneytinu.

  • 16. nóvember 2022 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 27/2022

    Úrskurður nr. 26/2022

  • 14. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 462/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.

  • 1107/2022. Úrskurður frá 2. nóvember 2022

    Kærð var synjun dómsmálaráðuneytis á beiðni um aðgang að minnispunktum ráðuneytisins af fundi fulltrúa ráðuneytisins með namibískri sendinefnd. Synjunin byggðist á 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga en samkvæmt greininni er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast enda hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin sem kæranda var synjað um aðgang að og taldi að ráðuneytinu hefði verið heimilt að synja kæranda um aðgang að gögnunum. Var ákvörðun ráðuneytisins því staðfest.

  • 1106/2022. Úrskurður frá 2. nóvember 2022

    Barna- og fjölskyldustofa synjaði kæranda um aðgang að bréfi frá fjölskyldu- og félagsþjónustu með beiðni um lögreglurannsókn og bréfi frá lögreglustjóra sem vörðuðu kæranda. Úrskurðarnefndin taldi gögnin ótvírætt tilheyra rannsókn sakamáls og yrði aðgangur að þeim því ekki byggður á ákvæðum upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga. Var því óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá nefndinni.

  • 1105/2022. Úrskurður frá 2. nóvember 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að áfangaskýrslu starfshóps um starfsemi og starfshætti Samgöngustofu frá október 2017 í heild sinni. Innviðaráðuneytið afhenti stærstan hluta skýrslunnar á grundvelli 1. mgr. 11. gr. upplýsingalaga, en afmáði aðra hluta með vísan til þess að um vinnugögn væri að ræða samkvæmt 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi skýrsluna ekki uppfylla skilyrði upplýsingalaga fyrir því að teljast vinnugagn, þar sem hún var afhent Samgöngustofu. Þá taldi nefndin ekki að önnur undanþáguákvæði upplýsingalaga ættu við. Var innviðaráðuneytinu því gert að afhenda skýrsluna án útstrikana.

  • 1104/2022. Úrskurður frá 2. nóvember 2022

    Deilt var um rétt kæranda, fréttamanns, til aðgangs að gögnum í tengslum við fyrirætlanir um toll- og landamæraskoðun á vegum bandarískra stjórnvalda á Keflavíkurflugvelli. Synjun Isavia ohf. byggðist m.a. á 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga en samkvæmt greininni er heimilt að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjast enda hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögnin sem kæranda var synjað um aðgang að og taldi að Isavia hefði verið heimilt að synja kæranda um aðgang að gögnunum. Var synjun félagsins því staðfest.

  • 11. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 33/2022. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Hæfi. Reglugerð nr. 340/2017. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.

  • 11. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 30/2022. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Hæfi. Reglugerð nr. 340/2017. Stöðvunarkröfu vísað frá.

  • 11. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 19/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Þjónustusamningur. Viðmiðunarfjárhæð. Valdsvið kærunefndar útboðsmála. Frávísun.

  • 11. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 25/2022. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál r. 81/2022-Úrskurður

    Tímabundinn leigusamningur: Tryggingarfé.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 78/2022-Úrskurður

    Tímabundinn leigusamningur: Tryggingarfé.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 76/2022-Úrskurður

    Tímabundinn leigusamningur: Tryggingarfé.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 68/2022-Álit

    Ákvörðunartaka. Gluggaskipti. Breyting á útliti glugga.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 65/2022-Álit

    Viðhald á runnum í sameiginlegum garði.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 62/2022- Álit

    Fundarstjórn. Hagnýting séreignarhluta og sameiginlegrar lóðar. Ný eignaskiptayfirlýsing.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd húsamála

    Mál nr. 61/2022 - Úrskurður

    Ótímabundinn leigusamningur: Leiga.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 451/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls hennar og barna hennar er hafnað.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 453/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 10. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 454/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er felld úr gildi. Kæranda er veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

  • 09. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 449/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa kæranda frá Íslandi og ákveða honum endurkomubann er felld úr gildi.

  • 09. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 432/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga er staðfest.

  • 09. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 431/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga er staðfest.

  • 09. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 407/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 3. mgr. 69. gr., sbr. 70. gr. laga um útlendinga er staðfest.

  • 08. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 461/2022 Úrskurður

    Kröfu aðila er hafnað.

  • 07. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 15/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Valforsendur. Kröfugerð. Kærufrestur. Tilboðsgögn.

  • 07. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 9/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Kærufrestur. Útboðsskilmálar. Valforsendur. Mat á hæfi.

  • 07. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 32/2022. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

    Verðfyrirspurn. Útboðsskylda. Viðmiðunarfjárhæð. Valdsvið kærunefndar. Stöðvunarkröfu hafnað.

  • 07. nóvember 2022 / Kærunefnd útboðsmála

    Mál nr. 3/2022. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

    Hönnunarsamkeppni. Kærufrestur. Jafnræði. Bindandi samningur. Vanhæfi. Skaðabótaskyldu hafnað.

  • 03. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 439/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Grikklands er staðfest.

  • 03. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 397/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Belgíu er staðfest.

  • 03. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 443/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.

  • 03. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 444/2022 Úrskurður

    Nr. 445/2022 Úrskurður

    Nr. 442/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.

  • 03. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 452/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er hafnað. Kröfu kæranda um frestun framkvæmdar er vísað frá.

  • 03. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 441/2022 Úrskurður

    Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

  • 03. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 438/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er staðfest.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 351/2022 - Úrskurður

    Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Málinu vísað til Tryggingastofnunar á ný til mats á örorku kæranda.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 449/2022-Úrskurður

    Ráðningarstyrkur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um ráðningarstyrk þar sem tiltekinn starfsmaður hafði verið við störf hjá fyrirtækinu og að einhverju leyti í forsvari fyrir það á síðastliðnum 12 mánuðum.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 383/2022 - Úrskurður

    Endurhæfingarlífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um endurhæfingarlífeyri. Endurhæfing hvorki talin nægjanlega umfangsmikil né markviss.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 450/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríksins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál 436/2022-Úrskurður

    Ráðningarstyrkur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um ráðningarstyrk þar sem tiltekinn starfsmaður hafði verið við störf hjá fyrirtækinu og að einhverju leyti í forsvari fyrir það á síðastliðnum 12 mánuðum.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 365/2022-Úrskurður

    Styrkur til bifreiðakaupa. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um 60% styrk vegna kaupa á bifreið og málinu heimvísað til nýrrar meðferðar.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 378/2022-Úrskurður

    Endurupptaka. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um endurupptöku máls.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 416/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 413/2022-Úrskurður

    Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

    Mál nr. 377/2022-Úrskurður

    Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hún mætti ekki á boðað námskeið.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 281/2022 - Úrskurður

    Örorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til mats á örorku. Að mati úrskurðarnefndar er endurhæfing fullreynd.

  • 02. nóvember 2022 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 23/2022

    Í málinu var kærð ákvörðun embættis landlæknis um að áminna lækni vegna brots á starfsskyldum sínum í tveimur málum. Að mati ráðuneytisins voru skilyrði fyrir áminningu uppfyllt, enda hefði alvarleikastig annars málsins verið mikið. Var ákvörðun embættis landlæknis því staðfest.

  • 02. nóvember 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 450/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um útgáfu vegabréfsáritunar er staðfest.

  • 31. október 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 433/2023 Úrskurður

    Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa kærendum frá Íslandi og ákveða endurkomubann eru staðfestar.

  • 31. október 2022 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta (3)

    Byggðakvóti. Úthlutun aflaheimilda. Skilyrði fyrir úthlutun. Sérreglur sveitarfélags. Kæruheimild.

  • 1100/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um starfsheiti, föst launakjör og fastar greiðslur til starfsmanna Landspítala sem eru félagsmenn Eflingar stéttarfélags. Synjun Landspítala var á því byggð að stéttarfélagsaðild geti ekki talist lögmæt afmörkun fyrirspurnar um störf og launakjör starfsmanna, enda teldist stéttarfélagsaðild til viðkvæmra persónuupplýsinga. Úrskurðarnefndin rakti að upplýsingar um stéttarfélagsaðild teldust vera upplýsingar sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Þótt gögnin innihéldu ekki nöfn starfsmanna taldi nefndin að kæranda yrði engu að síður fært að persónugreina starfsmennina með notkun viðbótarupplýsinga, og þannig öðlast upplýsingar um stéttarfélagsaðild þeirra. Var ákvörðun Landspítala því staðfest.

  • 1102/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að fundargerðum ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins, frá þeim fundum þar sem rætt hafi verið um fyrirkomulag við seinna útboð á hlutabréfum ríkisins í Íslandsbanka. Ákvörðun forsætisráðuneytis að synja beiðni kæranda studdist við 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þar sem fram kemur að réttur almennings til aðgangs að gögnum nái ekki til fundargerða ríkisráðs og ríkisstjórnar, minnisgreina á ráðherrafundum eða gagna sem tekin hafa verið saman fyrir slíka fundi. Úrskurðarnefndin féllst á að gögnin teldust til minnisgreina af ráðherrafundum í skilningi ákvæðisins og staðfesti ákvörðun ráðuneytisins.

  • 1103/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Í málinu var kærð töf ríkisendurskoðanda á afgreiðslu beiðni kæranda um upplýsingar. Í 4. mgr. 15. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, kæmi fram að ákvarðanir ríkisendurskoðanda um aðgang að gögnum sættu ekki kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Af framangreindu leiddi að töf ríkisendurskoðanda á afgreiðslu beiðni um aðgang að gögnum yrði ekki kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Varð því að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni.

  • 1101/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Landspítali synjaði kæranda um aðgang að rótargreiningu sem spítalinn lét framkvæma vegna fráfalls eiginmanns kæranda, á þeim grundvelli að um vinnugagn væri að ræða. Úrskurðarnefndin rakti skilyrði upplýsingalaga fyrir því að gagn gæti talist vinnugagn og féllst á að skilyrðin væru uppfyllt. Á hinn bóginn taldi nefndin að rótargreiningin kynni að innihalda upplýsingar um atvik máls auk þess sem þar væri lýsing á vinnureglum eða stjórnsýsluframkvæmd á viðkomandi sviði. Nefndin taldi sig hins vegar ekki hafa forsendur til að taka afstöðu til þess fyrst á kærustigi hvaða upplýsingar í skjalinu skyldu afhentar kæranda. Var hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir Landspítala að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

  • 1099/2022. Úrskurður frá 19. október 2022

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að samningi milli dótturfélags Ríkisútvarpsins og Storytel um heimild til að dreifa hljóðbókum Ríkisútvarpsins á streymisveitu Storytel. Synjun Ríkisútvarpsins byggðist á því að samningurinn varðaði mikilvæga viðskiptahagsmuni Storytel auk þess sem almannahagsmunir krefðust þess að hann færi leynt þar sem Ríkisútvarpið væri að þessu leyti í samkeppni við aðra. Úrskurðarnefndin taldi að um rétt kæranda færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga, sem varðar upplýsingar um aðila sjálfan. Þá taldi nefndin að viðskiptahagsmunir Storytel og samkeppnislegir hagsmunir Ríkisútvarpsins vægju ekki eins þungt og hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að samningnum. Var því lagt fyrir Ríkisútvarpið að afhenda kæranda samninginn.

  • 31. október 2022 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta (2)

    Byggðakvóti. Úthlutun aflaheimilda. Skilyrði fyrir úthlutun. Sérreglur sveitarfélags. Kæruheimild.

  • 31. október 2022 / Úrskurðir um sjávarútveg og fiskeldi

    Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta (1)

    Byggðakvóti. Úthlutun aflaheimilda. Skilyrði fyrir úthlutun. Sérreglur sveitarfélags. Kæruheimild.

  • 28. október 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál 379/2022-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni föður við dóttur sína.

  • 28. október 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál 369/2022-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kæranda við dóttur sína.

  • 28. október 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

    Mál 327/2022-Úrskurður

    Felldur úr gildi úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kæranda við dótturson hennar.

  • 27. október 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 430/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.

  • 27. október 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

    Mál nr. 465/2022-Úrskurður

    Félagslegt leiguhúsnæði. Staðfest synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Skilyrði e-liðar 4. gr. reglna sveitarfélagsins um félagslegt leiguhúsnæði ekki uppfyllt.

  • 27. október 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 434/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 27. október 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 436/2022 Úrskurður

    Beiðni kæranda um endurupptöku er hafnað.

  • 27. október 2022 / Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis

    Úrskurður nr. 22/2022

    Í málinu hafði kærandi kært ákvörðun embættis landlæknis um að vísa frá umsókn hennar um almennt lækningaleyfi á þeim grundvelli að hún hefði ekki lagt fram starfsleyfi, líkt og embættið taldi að gera mætti kröfu um á grundvelli 1. mgr. 16. gr. reglugerðar nr. 465/2015. Var það mat ráðuneytisins að umsókn kæranda um almennt lækningaleyfi yrði ekki vísað frá embætti landlæknis á þeim grundvelli, enda féllu aðstæður kæranda ekki með skýrum hætti undir orðalag ákvæðisins. Taldi ráðuneytið að ákvæði 1. mgr. 2. gr. laga nr. 26/2010, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, útilokaði ekki að breskir ríkisborgarar ættu rétt á að gegna hér á landi starfi með sömu skilmálum og giltu um íslenska ríkisborgara, framvísuðu þeir hæfnisvottorði eða vitnisburði um þá formlegu menntun og hæfi sem krafist væri, enda uppfylltu þeir t.a.m. skilyrði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB, sbr. a-lið ákvæðisins. Bæri embætti landlæknis því að leggja efnislegt mat á sambærileika menntunar hennar við innlendar kröfur líkt og gert væri ráð fyrir í almenna kerfi IV. kafla reglugerðar nr. 510/2020, að teknu tilliti til dóms EFTA-dómstólsins í máli E-3/20. Þar sem embætti landlæknis hafði ekki lagt mat á umsóknina var hin kærða ákvörðun felld úr gildi og lagt fyrir embættið að taka málið til nýrrar meðferðar.

  • 27. október 2022 / Kærunefnd útlendingamála

    Nr. 429/2022 Úrskurður

    Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.

  • 26. október 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 302/2022 - Úrskurður

    Læknismeðferð erlendis. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um endurgreiðslu á kostnaði vegna læknismeðferðar erlendis.

  • 26. október 2022 / Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

    Mál nr. 446/2022 - Úrskurður

    Hjálpartæki. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um styrk til kaupa á þríhjóli.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum