Úrskurðir og álit
-
-
27. júlí 2016 /Úrskurður um ákvörðun Fiskistofu um bann við netaveiði göngusilungs við Faxaflóa
Lax- og silungsveiði - Bann við netaveiði göngusilungs - Stjórnvaldsákvörðun - Kæruheimild
-
26. júlí 2016 /Mál 15060093 Löggilding slökkviliðsmanns
Úrskurður um stjórnsýslukæru Unnars Arnar Ólafssonar, dags. 25. júní 2015, til ráðuneytisins var kærð ákvörðun Mannvirkjastofnunar frá 3. júní 2015 þess efnis að synja kæranda löggildingar sem slökkviliðsmaður.
-
21. júlí 2016 /628/2016. Úrskurður frá 6. júlí 2016
Endurmenntun Háskóla Íslands krafðist frestun réttaráhrifa úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 622/2016 sem kveðinn var upp 7. júní 2016. Úrskurðarnefndin benti á að í úrskurðarframkvæmd nefndarinnar hefði verið lagt til grundvallar að með heimildarákvæði 1. mgr. 24. gr. upplýsingalaga væru fyrst og fremst höfð í huga tilvik þar sem í húfi séu tiltölulega mikilvægir hagsmunir, ekki síst hagsmunir einkaaðila, sem gætu verið skertir með óbætanlegum hætti ef veittur yrði aðgangur að gögnum með upplýsingum um þá, í andstöðu við ákvæði upplýsingalaga eins og þau kynnu síðar að verða skýrð af dómstólum. Úrskurðarnefndin taldi ekkert hafa komið fram í málinu sem gæti breytt mati nefndarinnar í máli því sem lauk með úrskurði nr. 622/2016. Var því kröfunni hafnað.
-
20. júlí 2016 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun sýslumanns um endurgreiðslu ofgreiddrar staðgreiðslu
Kærð var ákvörðun sýslumannsins á Suðurnesjum um að hafna kröfu kæranda um að endurgreiða kæranda ofgreidda staðgreiðslu sem skuldajafnað var upp í gjaldfallin þing- og sveitarsjóðsgjöld samskattaðs maka kæranda.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
08. júlí 2016 /Mál nr. IRR16010163
Samgöngustofa: Ágreiningur vegna bóta fyrir seinkun á flugi Easyjet
-
-
08. júlí 2016 /Mál nr. IRR16010398
Samgöngustofa: Ágreiningur um greiðslu bóta vegna seinkunar á flugi Icelandair
-
08. júlí 2016 /Mál nr. IRR15050088
Samgöngustofa: Ágreiningur um hvort Icelandair hafi brotið gegn skyldum í tengslum við innritun og sætisúthlutun flugfarþega
-
-
07. júlí 2016 /Mountaintravel ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, um að afturkalla úthlutun á 1.838 þorskígildiskílóum af byggðakvóta sem úthlutað var við úthlutun byggðakvóta Súðavíkur fyrir fiskveiðiárið 2014/2015 til bátsins Ásu ÍS-132
Byggðakvóti - Kærufrestur - Frávísun - Löndun til vinnslu - Löndun utan byggðarlags
-
06. júlí 2016 /Mál nr. 30/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Sparnaður á tímabili greiðsluskjóls skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge
-
06. júlí 2016 /Mál nr. 33/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Sparnaður á tímabili greiðsluskjóls skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
01. júlí 2016 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun Bankasýslu ríkisins um athafnarleysi
Ráðuneytinu barst stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Bankasýslu ríkisins að aðhafast ekki vegna erindis sem kærandi sendi stofnuninni.
-
01. júlí 2016 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun Bankasýslu ríkisins
Ráðuneytinu barst stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar Bankasýslu ríkisins um að aðhafast ekki vegna ereindis sem kærandi sendi stofnuninni.
-
30. júní 2016 /Mál nr. 37/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
30. júní 2016 /Mál nr. 23/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr. og d-liðar 1. mgr. 6. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
30. júní 2016 /Mál nr. 24/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda á grundvelli c-liðar 2. mgr. 6. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
29. júní 2016 /Mál nr. 28/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Skuldari hefur á ámælisverðan hátt látið hjá líða að standa við skuldbindingar sínar eftir því sem honum var framast unnt skv. f-lið 2. mgr. 6. gr. lge.
-
29. júní 2016 /Mál nr. 22/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Riftanleg ráðstöfun skv. e-lið 2. mgr. 6. gr. lge.
-
29. júní 2016 /Mál nr. 25/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Skuldari uppfyllir ekki skilyrði til að leita greiðsluaðlögunar skv. a-lið 1. mgr. 6. gr. lge.
-
-
28. júní 2016 /Úrskurður nr. 242/2016
Dyflinnarmál, barnafjölskylda, sérstaklega viðkvæm staða, ákv. ÚTL felld úr gildi
-
-
-
-
-
-
24. júní 2016 /Mál nr. 25/2015. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 20. nóvember 2015 kæra All Iceland Tours ehf., Andrés Eyberg Magnússon, Björn Angantýsson, Björn Úlfarsson og Haraldur Örn Arnarson framkvæmd varnaraðila Strætó bs. á B-hluta samningskaupa um tilfallandi akstur fyrir fatlað fólk og fötluð skólabörn samkvæmt rammasamningi sem gerður var í september 2014 að undangengnum samningskaupum nr. 13261 auðkenndum „Akstursþjónusta fatlaðs fólks og fatlaðra skólabarna“.
-
24. júní 2016 /Mál nr. 3/2016. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. febrúar 2016 kærðu Úti og inni sf. og Landform ehf. útboð Hafnarfjarðarkaupstaðar (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) auðkennt „Hönnun og ráðgjöf fyrir hjúkrunarheimili Sólvangi“. Kærendur krefjast þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að leita samninga við STH teiknistofu ehf. og Landmótun sf. Þá krefst kærandi einnig að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem krafist er málskostnaðar.
-
24. júní 2016 /Mál nr. 7/2016. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 2. júní sl. kærir Köfunarþjónustan ehf. útboð Framkvæmdasýslu ríkisins, f.h. Ísafjarðarbæjar og Ofanflóðasjóðs (hér eftir vísað sameiginlega til sem varnaraðila) nr. 20316, auðkennt „Snjóflóðavarnir á Ísafirði, Uppsetning stoðvirkja í kubba“.
-
-
-
-
24. júní 2016 /Mál 2/2016. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 17. febrúar 2016 kæra All Iceland Tours ehf., Andrés Eyberg Magnússon, Björn Páll Angantýsson, Björn Úlfarsson og Haraldur Örn Arnarson ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um að semja við leigubílastöð um tilfallandi akstur fyrir fatlað fólk og fötluð skólabörn. Kærendur krefjast þess að ákvörðunin verði felld verði úr gildi en hafi komist á samningur á grundvelli ákvörðunarinnar er þess krafist að hann verði lýstur óvirkur. Þá er þess krafist að kærunefnd útboðsmála „úrskurði um brot varnaraðila á samningskaupum um tilfallandi akstursþjónustu fatlaðs fólks og fatlaðra skólabarna“, að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kærendum og úrskurði kærendum málskostnað.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
22. júní 2016 /Mál nr. 19/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Skuldari bakar sér skuldbindingu sem einhverju nemur miðað við fjárhag hans, með háttsemi sem varðar refsingu eða skaðabótaskyldu skv. d-lið 2. mgr. 6. gr.
-
22. júní 2016 /Mál nr. 20/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Riftanlegar ráðstafanir skv. e-lið 2. mgr. 6. gr. lge. Fyrirmælum umsjónarmanns um sölu á eign ekki framfylgt 5. mgr. 13. gr. lge.
-
-
22. júní 2016 /Mál nr. 26/2016
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Skuldari stofnar til skulda þegar hann var greinilega ófær um að standa við fjárhagsskuldbindingar sínar skv. b-lið 2. mgr. 6. gr. lge. Skuldari hagar fjármálum sínum á verulega ámælisverðan hátt eða tekur fjárhagslega áhættu sem ekki var í samræmi við fjárhagsstöðu hans þegar til fjárhagsskuldbindingar var stofnað skv. c-lið 2. mgr. 6. gr. lge.
-
-
-
-
-
21. júní 2016 /Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um sérfræðingsleyfi í hjúkrun
Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis að synja kæranda um sérfræðingsleyfi í hjúkrun. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun landlæknis.
-
-
-
-
-
21. júní 2016 /Kæra vegna synjunar námsstyrkjanefndar um námsstyrk
Ár 2016, þriðjudagurinn 21. júní, var kveðinn upp í mennta- og menningarmálaráðuneytinu svofelldurÚRSKURÐUR:I.Kröfur aðila.Með bréfi sem barst mennta- og menningarmálaráðuneytinu, þann 22. mars sl. kæ)...
-
-
21. júní 2016 /Úrskurður nr. 200/2016
Alþjóðleg vernd, synjað um efnismeðferð, Ungverjaland, ákvörðun ÚTL staðfest
-
16. júní 2016 /627/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016
Í málinu kærði A meðferð Landsbankans hf. á áskorun um framlagningu gagna í einkamáli aðila. Kæru kæranda var vísað frá þar sem upplýsingalög taka ekki til Landsbankans sbr. auglýsing nr. 600/2013.
-
15. júní 2016 /621/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016
A kærði synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að upplýsingum um gögn sem lágu til grundvallar samþykkis stofnunarinnar á réttindatöflu Lífverks, lífeyrissjóðs verkfræðinga. Deilt var um aðgang að tveimur gögnum, tryggingarfræðilegri úttekt og minnisblaði án útstrikana. Undir rekstri málsins afhenti FME kæranda úttektina og var kæru því vísað frá hvað það gagn varðaði. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi enga lagaskyldu standa til afhendingar minnisblaðsins en FME hafði afhent kæranda minnisblaðið að hluta á grundvelli 11. gr. laga nr. 140/2012 með því að afmá nafn þess starfsmanns sem vann skjalið. Var staðfest synjun Fjármálaeftirlitsins um aðgang að upplýsingum um nafn starfsmanns er ritaði umbeðið minnisblað.
-
15. júní 2016 /Mál nr. 27/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Ekki lagt fyrir á tímabili greiðsluskjóls skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.
-
-
15. júní 2016 /625/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016
A, blaðamaður, kærði ákvörðun utanríkisráðuneytisins um að synja um aðgang að upplýsingum um tvö erindi frá bandarískum stjórnvöldum um B. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi erindin falla undir ákvæði 1. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þar af leiðandi yrði réttur til aðgangs að gögnunum ekki byggður á upplýsingalögum nr. 140/2012, sbr. 1. mgr. 4. gr. laganna. Kæru var því vísað frá nefndinni.
-
15. júní 2016 /622/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016.
A kærði þá ákvörðun Endurmenntunar Háskóla Íslands að synja beiðni um aðgang að krossaspurningum í fyrri hluta prófs í námskeiði á vegum stofnunarinnar en A reisti rétt sinn til aðgangs á 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Synjun Endurmenntunar var byggð á 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að ákvæðið takmarkaði rétt til aðgangs að krossaspurningunum þar sem prófið hefði þegar verið lagt fyrir og ekki væri fyrirhugað að leggja það fyrir aftur í óbreyttri mynd. Var því Endurmenntun Háskóla Íslands gert að veita kæranda aðgang að krossaprófinu.
-
-
-
15. júní 2016 /Mál nr. 18/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Fjárhagur kæranda ekki nægilega glöggur skv. b-lið 1. mgr. 6. gr. lge. Riftanlegar ráðstafanir skv. e-lið 2. mgr. 6. gr. lge.
-
15. júní 2016 /623/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016
Viðskiptaráð Íslands kærði þá ákvörðun embættis tollstjóra að hafna beiðni um aðgang að upplýsingum um skiptingu tekna ríkisins vegna aðfluttra vara. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga í efa að einu gögnin sem tollstjóri hefði undir höndum og féllu undir upplýsingabeiðni kæranda væru tollskjöl sem hefðu að geyma upplýsingar um aðflutningsgjöld sem íslenska ríkið innheimti af innfluttum vörum. Þá taldi úrskurðarnefndin engan vafa á því að tollskjölin væru háð sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. 188. gr. tollalaga nr. 88/2005. Var því kæru Viðskiptaráðs vísað frá nefndinni.
-
-
-
15. júní 2016 /Útgerðarfélagið Burst ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. janúar 2016, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Bíldudals í Vesturbyggð fyrir fiskveiðiárið 2015/2016 til bátsins Þrastar BA-48
Byggðakvóti - Löndun til vinnslu - Sérstök skilyrði - Stjórnvaldsákvörðun - Lögvarðir hagsmunir
-
15. júní 2016 /624/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016
Kærð var afgreiðsla Akranesskaupstaðar á beiðni um upplýsingar í tengslum við breytingar á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Akranesi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki forsendur til þess að rengja þá fullyrðingu kaupstaðarins að kæranda hafi verið afhent öll þau gögn er lytu að deiliskipulagsbreytingunni. Þar sem ekki lá fyrir synjun stjórnvalds á beiðni til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum var kæru kæranda vísað frá nefndinni.
-
-
15. júní 2016 /626/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016
RÚV kærði synjun Samgöngustofu á beiðni um aðgang að skoðunarskýrslum tiltekins báts fyrir árin 2000 til 2015, bréfaskiptum og tölvupóstsamskiptum í tengslum við eftirlit á bátnum sem og upplýsingum um hugsanleg afskipti Samgöngustofu/Siglingastofnunar varðandi bátinn fyrir sama árabil. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að almenningur hefði ríka hagsmuni af því að geta fylgst með lögbundnu eftirliti með öryggi skipa og báta. Nefndin taldi hin umbeðnu gögn ekki falla undir sérstakrar þagnarskyldureglu Samgöngustofu skv. 19. laga nr. 119/2012 þar sem í gögnunum væru ekki að finna mikilvægar rekstrar- og viðskiptaupplýsingar eftirlitsskyldra aðila. Þá taldi nefndin 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 ekki standa í vegi fyrir því að aðgangur yrði veittur að gögnunum en þó bæri að afmá nafn starfsmanns tiltekins eftirlitsaðila úr gögnum málsins með vísan til 1. málsl. 9. gr. laganna. Eins var því hafnað að 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga tæki til gagnanna en ekki var talið að afhending á gögnunum leiddi til þess að rannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa yrði þýðingarlaus eða skilaði ekki tilætluðum árangri yrðu upplýsingarnar gerðar opinberar.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
14. júní 2016 /Nr. 192/2016 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 13. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002 er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.
-
14. júní 2016 /620/2016. Úrskurður frá 7. júní 2016
Kærð var ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu tilboð tveggja bjóðenda í verðfyrirspurn borgarinnar. Reykjavíkurborg taldi óheimilt að veita aðgang að tilboðum bjóðenda, sundurliðuðum fyrir hvern afmarkaðan hluta verðfyrirspurnarinnar, með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Þar sem kærandi var meðal tilboðsgjafa var réttur hans til aðgangs að gögnunum reistur á 14. gr. upplýsingalaga. Ekki var talið að þær upplýsingar sem fram kæmu í tilboði umræddra bjóðenda gætu valdið bjóðendum tjóni fengi kærandi aðgang að þeim. Þá taldi nefndin hagsmuni kæranda af því að fá aðgang að gögnunum vega þyngra en hagsmunir umræddra bjóðenda af því að upplýsingunum yrði haldið leyndum. Var því fallist á að Reykjavíkurborg bæri að afhenda kæranda umbeðin tilboð. Kæru um afhendingu annarra gagna og upplýsinga sem lágu til grundvallar við mat á tilboðunum var vísað frá úrskurðarnefndinni þar sem Reykjavíkurborg hafði þegar afhent umrædd gögn.
-
14. júní 2016 /Úrskurður nr. 196/2016
Hæli, 46. Gr. A, Ítalía, ákv. ÚTL staðfest að hluta, dvalarleyfi af mannúðarástæðum
-
13. júní 2016 /Mál nr. 5/2016. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 1. maí 2016 kærir Björgun ehf. útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) auðkennt „16-041 Landeyjahöfn – Haust dýpkun 2016 til 2018“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útoðsmála stöðvi innkaupaferli varnaraðila þar til endanlega hefur verið leyst úr kæru og að lagt verði fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva innkaupaferlið.
-
13. júní 2016 /Mál nr. 6/2016. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 19. maí 2016 kærði Enor ehf. örútboð Ríkiskaupa, fyrir hönd Reykjanesbæjar, nr. 20302 „Endurskoðun Reykjanesbæjar“. Kærandi krefst þess að felldir verði niður skilmálar örútboðsins sem kveða á um: 1) að sá sem stjórni verkinu skuli, auk þess að falla í A-flokk samkvæmt rammasamningnum, hafa reynslu af endurskoðun sveitarfélaga með 4.000 íbúa eða fleiri, 2) að aðrir í endurskoðunarteymi hafi reynslu af endurskoðun sveitarfélags og 3) að bjóðendur skili staðfestingu á reynslu af endurskoðun sveitarfélags með 4000 íbúa eða fleiri. Þá var þess einnig krafist að örútboðið yrði auglýst á nýjan leik án skilmálanna og að varnaraðilum yrði gert að greiða kæranda málskostnað. Af hálfu varnaraðila er þess krafist að öllum kröfum kæranda verði hafnað, en í þessum þætti málsins er þess krafist að sjálfkrafa stöðvun útboðsins verði aflétt. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sbr. 15. gr. laga nr. 58/2013, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
-
10. júní 2016 /Stjórnsýsluúrskurður - leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána
Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun ríkisskattstjóra um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána.
-
10. júní 2016 /Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun tollstjóra
Kærð var til ráðuneytisins synjun tollstjóra m.a. á beiðni um afturköllun gjaldþrotaskiptabeiðni og um gerð greiðsluáætlunar
-
-
09. júní 2016 /Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar ríkisskattstjóra - leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána
Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun ríkisskattstjóra um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
06. júní 2016 /Mál nr. IRR15120305
Samgöngustofa: Ágreiningur um hvort skipta þurfi út spólurofum í skipi
-
03. júní 2016 /Kæra vegna tilkynningar ríkisskattstjóra
Kæra vegna fyrirframgreidds arfs til drengja sem ekki voru sjálfstæðir skattaðilar og taldist umræddur arfur til auðlegðarskattstofns foreldra þeirra.
-
02. júní 2016 /Mál nr. 31/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
02. júní 2016 /Mál nr. 35/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
02. júní 2016 /Mál nr. 34/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
01. júní 2016 /Mál nr. 17/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Ekki lagt fyrir á tímabili greiðsluskjóls skv. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Stofnað til nýrra skulda eða gerðar aðrar ráðstafanir sem gætu skaðað hagsmuni lánardrottna skv. d-lið 1. mgr. 12. gr. lge
-
-
-
-
-
-
-
-
-
27. maí 2016 /Mál nr. 4/2016. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Kærandi, Kongsberg Maritime AS, sendi Ríkiskaupum erindi 29. mars sl. vegna útboðs Ríkiskaupa, fyrir hönd Tækniskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri, nr. 20149 (hér eftir „varnaraðila“) „Bridge and Engine Room Simulators“. Ríkiskaup framsendu erindið til kærunefndar útboðsmála sem taldi rétt að túlka efni þess sem kæru en þar sem erindið uppfyllti ekki kröfur 2. mgr. 94. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007, sbr. 11. gr. laga nr. 58/2013, var kæranda gefinn frestur til úrbóta. Endurbætt kæra barst 7. apríl sl. þar sem þess er krafist að samningsgerð verði stöðvuð og ákvörðun varnaraðila um að taka tilboði Transas Marine Ltd. verði ógilt en varnaraðila gert að semja við kæranda.
-
-
-
26. maí 2016 /Mál nr. 1/2016. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 31. janúar 2016 sem barst kærunefnd útboðsmála 1. febrúar sama ár kærir BP Shiping Agency Island ehf. fyrir hönd Stocznia Remontowa Nauta S.A. útboð Ríkiskaupa, fyrir hönd Landhelgisgæslu Íslands nr. V20159 „Maintenance for Icelandic Coast Guard vessel Þór“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um val á tilboði Alkor Sp. z o.o. eða beini því til varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik. Þá er þess krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi.
-
-
-
-
-
-
-
26. maí 2016 /Mál nr. 29/2015. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 27. desember 2015 kærir Hópferðamiðstöðin ehf. útboð Hafnarfjarðarbæjar „Skólaakstur fyrir grunnskóla 2016-2020“. Kærandi krefst þess aðallega að skilmálar útboðsgagna í kafla 0.15 og 2. lið 1. mgr. greinar 0.16.2 verði felldir niður í heild sinni, en til vara að skilmálarnir verði felldir niður að hluta. Þá krefst kærandi þess að nefndin láti í ljós álit á skaðabótaskyldu varnaraðila og að varnaraðila verði gert að greiða málskostnað.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
25. maí 2016 /Mál nr. 11/2015
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara. Stofnað til nýrra skulda eða gerðar aðrar ráðstafanir sem gætu skaðað hagsmuni lánardrottna skv. d-lið 1. mgr. 12. gr. lge.
-
-
-
-
23. maí 2016 /Eskja hf., kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 27. nóvember 2015, um leiðréttingu á skráningu aflamarks á Aðalsteini Jónssyni SU 11, (2699), sem nemur 273.067 kg.
lögmætlisreglan - skráning afla - breytt stjórnarframkvæmd
-
23. maí 2016 /Eskja hf., kærir er ákvörðun Fiskistofu, dags. 27. nóvember 2015, um leiðréttingu á skráningu aflamarks á Huginn VE-55, skipaskrárnúmer 2411, sem nemur 611.704 kg.
lögmætlisreglan - skráning afla - breytt stjórnarframkvæmd
-
-
-
-
-
-
-
-
17. maí 2016 /Úrskurður nr. 171/2016
Dyflinnarmál, Ítalía, sérstaklega viðkvæm staða, ákv. ÚTL felld úr gildi
-
17. maí 2016 /617/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016
A kærði ákvörðun Tollstjóra um synjun beiðni um upplýsingar um tollflokksnúmer tiltekinna bifreiða. Tollstjóri bar fyrir sig að embættinu væri óheimilt að afhenda upplýsingarnar með vísan til 9. gr. upplýsingalaga og 188. gr. tollalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að líta bæri á síðarnefnda ákvæðið sem sérstakt ákvæði um þagnarskyldu sem gengi framar rétti almennings til aðgangs að upplýsingum eftir upplýsingalögum og vísaði kæru kæranda frá.
-
17. maí 2016 /616/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016
Deilt var um synjun Landsnets hf. á beiðni um afrit af skýrslu um jarðstrengi. Landsnet bar fyrir sig að skýrslan hefði að geyma upplýsingar um fjárhags- og viðskiptahagsmuni sem leynt skyldu fara samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga og 1. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með Landsneti að tilteknar upplýsingar í skýrslunni gætu haft verðmyndandi áhrif þegar kæmi til útboðs vegna framkvæmdarinnar. Synjun var því staðfest hvað þær upplýsingar varðar en kæranda veittur aðgangur að skýrslunni að öðru leyti.
-
17. maí 2016 /619/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016
A kærði tvær ákvarðanir utanríkisráðuneytisins á beiðnum um aðgang að gögnum um Norður-Atlantshafsbandalagið (NATO). Af hálfu ráðuneytisins kom fram að hluti gagnanna væri ekki í vörslum þess. Þau gögn sem eftir stæðu væru undanþegin upplýsingarétti samkvæmt upplýsingalögum á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki efni til að rengja mat ráðuneytisins og vísaði kærunum frá nefndinni.
-
17. maí 2016 /618/2016. Úrskurður frá 4. maí 2016
Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að hafna beiðni um aðgang að gögnum sem varða samning embættisins, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og TV-Software um VERU – heilsuvef. Kærandi byggði á því að ekki hefði farið fram mat á því hvort heimilt væri að veita aðgang að umbeðnum gögnum að hluta og að landlæknir hefði ekki metið efnislega hvort 9. gr. upplýsingalaga ætti við heldur byggt á því að aðrir aðilar samningsins hefðu ekki samþykkt að aðgangur yrði veittur. Af hálfu landlæknis kom fram að þetta mat væri í höndum úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Úrskurðarnefndin féllst ekki á þau sjónarmið og felldi ákvörðun landlæknis úr gildi.
-
17. maí 2016 /Úrskurður nr. 177/2016
Alþjóðleg vernd, synað um efnismeðferð, Ungverjaland, ákvörðun ÚTL felld úr gildi
-
-
-
-
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.