Úrskurðir og álit
-
-
-
-
17. október 2014 /Mál nr. 13/2013. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 15. júlí 2014 kærðu Verkís hf. og Arkís arkitektar ehf. niðurstöðu forvals hönnunarsamkeppni Vegagerðarinnar og Vina Þórsmerkur vegna göngubrúar yfir Markarfljót við Húsadal. Kærendur krefjast þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila 20. júní 2014 þar sem þrír aðilar voru valdir til þátttöku í samkeppninni.
-
17. október 2014 /Mál nr. 18/2014. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 30. september 2014 kærir Logaland ehf. rammasamningsútboð nr. 15629 „Skurðstofuhanskar og nitril skoðunarhanskar“. Kröfur kæranda eru aðallega þær að kærunefnd útboðsmála leggi fyrir varnaraðila, sem eru Ríkiskaup ásamt Landspítalanum og 10 öðrum heilbrigðiststofnunum, að auglýsa útboðið að nýju en til vara að vöruflokkar A, C og D verði auglýstir að nýju.
-
17. október 2014 /Álit innanríkisráðuneytisins í máli nr. IRR 14020220
Rangárþing ytra, lánveitingar, bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun
-
16. október 2014 /Mál nr. 174/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
-
-
15. október 2014 /Mál nr. 46/2014
Tímabundinn leigusamningur: Endurgreiðsla tryggingarfjár og húsaleigu. Skemmdir á parketi.
-
15. október 2014 /Ákvörðun landlæknis í kvörtunarmáli kærð
Miðvikudaginn 15. október 2014 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi
-
14. október 2014 /Mál nr. 10/2014
Kærandi var krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta skv. 36. gr., sbr. 39. gr., laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hann lagði ekki fram tekjuáætlun á umræddu tímabili vegna tiltekinna tekna þannig að hann fékk ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
14. október 2014 /Mál nr. 2/2014
Bótaréttur kæranda var felldur niður í þrjá mánuði, skv. 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar vegna ótilkynntra tekna. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
14. október 2014 /Mál nr. 148/2013
Felldar voru niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði skv. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hann hafnaði atvinnutilboði. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
14. október 2014 /Mál nr. 4/2014
Málið fjallar um tekjutengdar atvinnuleysisbætur skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og lengd tímabils sem atvinnuleysisbætur eru greiddar. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
14. október 2014 /Mál nr. 8/2014
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, en kærandi var staddur erlendis samhliða töku atvinnuleysisbóta. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
14. október 2014 /Mál nr. 16/2014
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, en kærandi var stödd erlendis samhliða töku atvinnuleysisbóta. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
14. október 2014 /Mál nr. 17/2014
Kærandi var endurkrafinn um greiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta skv. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna greiðslu lífeyris frá Tryggingastofnun og var hin kærða ákvörðun staðfest.
-
14. október 2014 /Sigurður Ólafsson ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 31. janúar 2014, um að hafna umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 á Höfn í Hornafirði til bátsins Kalla SF-144, (7514).
Aflaheimildir - Úthlutun byggðakvóta - Umsóknarfrestur
-
14. október 2014 /Sigurður Ólafsson ehf., kærir til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 4. febrúar 2014, um að hafna umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 á Höfn í Hornafirði til bátsins Sigurðar Ólafssonar SF-44 (173).
Aflaheimildir - Úthlutun byggðakvóta - Umsóknarfrestur
-
13. október 2014 /542/2014. Úrskurður frá 8. október 2014
A kærði þá ákvörðun landlæknis að færa tiltekin gögn, sem hann hafði fallist á að afhenda kæranda á stafrænu formi, á annað snið en þau voru þá á. Það gerði hann í því skyni að læsa þeim,þ.e. gera þau óbreytanleg. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leit m.a. lagaákvæða endurnot opinberra upplýsinga og féllst ekki á að landlækni hafi verið heimilt að breyta sniði gagnanna svo „tryggt væri að ekki væri unnt að breyta þeim eftir afhendingu“.
-
13. október 2014 /541/2014. Úrskurður frá 8. október 2014
Í framhaldi af ákvörðun úrskurðarnefndar um upplýsingamál, um að endurupptaka mál varðandi kæru [A] yfir þeirri ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að synja um aðgang að skýrslu sem ber heitið: „Samantekt á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008 til 2011“ var málið tekið til úrskurðar að nýju. Eftir nýja yfirferð á efni skýrslunnar varð það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að veita bæri aðgang að henni, en með þeim takmörkunum sem taldar eru upp í úrskurðarorði. Í úrskurðinum er ekki tekin afstaða til þess hluta skýrslunnar sem kærandi hafði þegar fengið í hendur (um uppl. sem höfðu birst í fjölmiðlum).
-
13. október 2014 /539/2014. Úrskurður frá 8. október 2014
Tryggingamiðstöðin hf. kærði þá ákvörðun FME að synja félaginu um aðgang að upplýsingum um Glitni. Gagnabeiðnin tengdist málaferlum vegna stjórnendatryggingar, sem Glitnir keypti fyrir stjórnendur bankans vorið 2008, en kærandi hafði hafnað gildi tryggingarinnar, m.a. vegna meints brots á reglum um upplýsingaskyldu. Úrskurðarnefndin taldi umrædd gögn lúta reglum um sérstaka þagnarskyldu, en sú skylda færðist yfir á FME vegna upplýsinga sem það tæki við, og staðfesti því synjun FME um að veita aðgang að gögnunum.
-
13. október 2014 /540/2014. Úrskurður frá 8. október 2014
Mál þetta varðaði tvær kærur. Sú fyrri laut að því að FME hafi ekki svarað beiðni A um gögn. Við meðferð málsins kom í ljós að beiðninni hafði verið svarað, þ.e. með ákvörðun dags. 4. júlí. Því var sú kæra ekki talin eiga við rök að styðjast og var henni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Sú seinni laut að efni ákvörðunarinnar frá 4. júlí. Þar sem sú kæra hafði ekki borist fyrr en að liðnum kærufresti var henni einnig vísað frá.
-
13. október 2014 /538/2014. Úrskurður frá 8. október 2014
B kærði þá ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga að synja honum um afrit af fundargerðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þótt fundargerð teldist vera vinnuskjal gæti bókun í henni átt að vera aðgengileg almenningi, að hluta eða öllu leyti, ef hún hefði að geyma endanlega niðurstöðu um afgreiðslu mála. Það ætti að hluta til við í þessu tilviki. Því lagði nefndin fyrir framkvæmdanefnd búvörusamninga að afhenda kæranda afrit af tveimur fundargerðum. Synjun um aðgang að einni fundargerð var staðfest.
-
-
-
09. október 2014 /Mál nr. 164/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
09. október 2014 /Mál nr. 166/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli a- og d-liða 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
-
09. október 2014 /Mál nr. 162/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 12. gr. og 5. mgr. 13. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
09. október 2014 /Mál nr. 158/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli d-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
08. október 2014 /Mál nr. 28/2014
Aflétting krafna, umfram söluverð, við frjálsa sölu. Synjun Íbúðalánasjóðs átti sér ekki stoð í skilyrðum stjórnar sjóðsins. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi og málinu vísað aftur til Íbúðalánasjóðs til nýrrar meðferðar. Þeim þætti málsins er leit að lengri samþykkisfresti á grundvelli laga nr. 130/2013 vísað frá.
-
08. október 2014 /Mál nr. 42/2014
Félagsleg leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur. Skilyrði c-og d- liða 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík ekki uppfyllt. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
08. október 2014 /Brugghús-Steðja ehf., kærir ákvörðun heilbrigðiseftirlits Vesturlands, vegna sölustöðvunar og innköllunar hvalabjórs.
Sölustöðvum - Innköllun - Matvælaöryggi - Aukaafurðir dýra - Rannsóknarreglan - Formreglur stjórnsýsluréttar
-
08. október 2014 /Mál nr. 38/2014
Fjárhagsaðstoð. Kærandi sinnti ekki skyldu sinni samkvæmt 3. gr. reglna Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
08. október 2014 /Mál nr. 43/2014
Fjárhagsaðstoð. Styrkur til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Kærandi naut ekki fjárhagsaðstoðar frá Reykjavíkurborg líkt og gert er að skilyrði í 23. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
-
07. október 2014 /Mál nr. 16/2014. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 19. september 2014 kærir Eirberg ehf. rammasamningsútboð nr. 15629 „Skurðstofuhanskar og nitril skoðunarhanskar“. Kröfur kæranda eru að kærunefnd útboðsmála leggi fyrir varnaraðila, sem eru Ríkiskaup ásamt Landspítalanum og 10 öðrum heilbrigðiststofnunum, að bjóða innkaupin út að nýju. Þá er þess krafist að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila og að varnaraðila verði gert að greiða málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa banns við samningsgerð samkvæmt 1. mgr. 94. gr. a. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sbr. 12. gr. laga nr. 58/2013, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
-
06. október 2014 /Mál nr. 15/2014. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 16. september 2014 kærir Atlantsolía ehf. útboð Akureyrarbæjar á eldsneyti fyrir bæinn. Kröfur kæranda eru að nefndin leggi fyrir varnaraðila að fella niður eftirfarandi skilmála í útboðslýsingu: „Akureyrarbær hefur ákveðið að taka einu tilboði í allar diselolíur og bensín í þessu útboði. Bjóða verður í allar tegundir þessara vörutegunda“. Þá er þess krafist að varnaraðila verði gert að bjóða innkaupin út að nýju. Krafist er stöðvunar á samningsgerð þar til skorið hefur verið úr málinu. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til síðastgreindu kröfu kæranda, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
-
06. október 2014 /Mál nr. 9/2014. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 13. maí 2014 kærir Ístak hf. ákvörðun Ríkiskaupa um val tilboðs í útboði fyrir Isavia ohf. nr. 15606 auðkennt „Stækkun Suðurbyggingar til vesturs 2014, SSV14-07 Jarðvinna, burðarvirki og ytri frágangur“. Endanlegar kröfur kæranda eru að tilboði Íslenskra aðalverktaka hf. verði vísað frá vegna formgalla og að kærunefnd útboðsmála yfirfari tilboð sem bárust í heild sinni.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
03. október 2014 /Þorbjörn hf. kærir ákvörðun Fiskistofu frá 22. október 2013 um að hafna kröfu félagsins um að aflahlutdeild í gulllaxi fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 verði úthlutað á grundvelli veiðireynslu fiskveiðiáranna 2006/2007, 2007/2008 og 2008/2009.
Aflaheimildir - Úthlutun aflahlutdeildar - Gulllax - Kæruheimild
-
02. október 2014 /Mál nr. 169/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli d-liðar 2. mgr. 6. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
02. október 2014 /Mál nr. 147/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kærenda um greiðsluaðlögun á grundvelli b- og c-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
02. október 2014 /Mál nr. 156/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar á grundvelli 5. mgr. 13. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
02. október 2014 /Mál nr. 168/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli d-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
-
01. október 2014 /Matsmál nr. 10/2014, úrskurður 1. október 2014
Vegagerðin gegn eigendum Efri- og Neðri-Skálateigs
-
30. september 2014 /Mál nr. 158/2013
Kærandi var krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta skv. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en skuldin á rætur sínar að rekja til þess að kærandi lagði ekki fram tekjuáætlun vegna tekna frá Tryggingastofnun ríkisins.
-
30. september 2014 /Mál nr. 66/2014
Málinu var vísað frá þar sem ekki er fyrir að fara kæranlegri ákvörðun í málinu samkvæmt 26. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
-
30. september 2014 /Mál nr. 89/2013
Málið snýst um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta til kæranda samkvæmt innheimtubréfi Vinnumálastofnunar. Upphaflegar ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem innheimtan byggist á höfðu ekki verið kærðar. Kærandi byggir á því að þær ákvarðanir Vinnumálastofnunar hafi verið haldnar slíkum ágöllum að rétt væri að breyta efni þeirra. Slíkar málsástæður ekki taldar koma til álita skv. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, að kæru skuli ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
30. september 2014 /Mál nr. 104/2013
Kærandi stundaði nám í skilningi 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á sama tíma og hún þáði atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun en hún vann að meistararitgerð við háskóla. Hún var því í lánshæfu námi. Meginregla 52. gr. á við um kæranda, en undanþáguheimildir 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna koma til skoðunar þegar nám er ekki lánshæft og eiga ekki við í málinu. Þar sem kærandi uppfyllir ekki skilyrði 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna á meginregla 1. mgr. 52. gr. laganna við um hana. Ákvörðunin var staðfest.
-
27. september 2014 /Kæra vegna ákvörðunar tollstjóra um að synja um útgáfu á skírteini vegna endurútflutnings á bifreiðum
Farið var fram á að felld yrði úr gildi ákvörðun tollstjóra um að synja kæranda um útgáfu á EUR.1 skírteini vegna endurútflutnings hans á bifreiðum.
-
-
-
26. september 2014 /Mál nr. IRR13110408
Samgöngustofa: Icelandair gert að greiða bætur vegna aflýsingar á flugi
-
25. september 2014 /Mál nr. 132/2012
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
25. september 2014 /Mál nr. 108/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli d-liðar 2. mgr. 6. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
25. september 2014 /Úrskurður nr. 1/2014
Úrskurður úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 1/2014 A gegn Orkustofnun.
-
25. september 2014 /Mál nr. 26/2013 - endurupptaka
Ekki kemur fram í hinni kærðu ákvörðun hvers vegna styrkur til greiðslu lögmannsaðstoðar er takmarkaður við 22 tíma og af henni verður ekki ráðið að litið hafi verið til tímaskýrslunnar sem á við um úrlausnarefnið. Hin kærða ákvörðun var hvorki talin hafa verið byggð á réttum grunni né að færð hafi verið fyrir henni viðhlítandi rök. Af þeim sökum var hún felld úr gildi.
-
25. september 2014 /Mál nr. 69/2014
Staðfest ákvörðun skipaðs umsjónarmanns um að mæla gegn nauðasamningi til greiðsluaðlögunar á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
25. september 2014 /Mál nr. 41/2014
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kærenda um greiðsluaðlögun á grundvelli a-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
25. september 2014 /Endurupptaka - Mál nr. 14/2011
Endurupptaka - Úrskurður vegna kæru Einars Guðmanns gegn Akureyrarkaupstað vegna setningar samþykktar um hundahald í Akureyrarkaupstað nr. 321/2011.
-
-
-
-
22. september 2014 /Mál nr. 36/2014
Lögmæti húsfunda. Verkefni stjórnar. Aðkoma Húseigendafélagsins. Skaðabætur. Löggildur endurskoðandi.
-
-
-
18. september 2014 /Mál nr. 67/2014
Staðfest ákvörðun skipaðs umsjónarmanns um að mæla gegn nauðasamningi til greiðsluaðlögunar á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
18. september 2014 /Mál nr. 127/2012
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kærenda um greiðsluaðlögun á grundvelli b- og c-liða 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
18. september 2014 /Mál nr. 106/2012
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
18. september 2014 /Mál nr. 83/2014
Staðfest ákvörðun skipaðs umsjónarmanns um að mæla gegn nauðasamningi til greiðsluaðlögunar á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
17. september 2014 /Mál nr. IRR14080250
Samgöngustofa: Ágreiningur um heimild til að flytja til landsins ferju og skráningu í skipaskrá
-
17. september 2014 /Mál nr. 14/2014. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. ágúst 2014 kærir Drífa ehf. forval varnaraðila nefnt „Commercial opportunities at Keflavik Airport“ er varðar verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva forvalsferlið um stundarsakir, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
-
16. september 2014 /Mál nr. 156/2013
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009 og 9. gr. laga nr. 142/2012, en kærandi sagði starfi sínu lausu. Ástæður uppsagnarinnar voru ekki taldar gildar og var hin kærða ákvörðun staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 155/2013
Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en aðilar vinnumarkaðarins stóðu hann að vinnu. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 152/2013
Kærandi hafnaði atvinnutilboði og var hin kærða ákvörðun staðfest með vísan til 1., 4. og 5. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
16. september 2014 /Mál nr. 149/2013
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009 og 9. gr. laga nr. 142/2012, en kærandi sagði starfi sínu lausu. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 146/2013
Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en kærandi var staðinn að vinnu jafnframt því að þiggja atvinnuleysisbætur. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 143/2013
Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en aðilar vinnumarkaðarins stóðu hann að vinnu. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 1/2014
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, sbr. einnig 1. mgr. 61. gr. laganna, en kærandi fór til útlanda án þess að láta Vinnumálastofnun vita. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 154/2013
Með vísan til 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar gat kærandi fyrst átt rétt á atvinnuleysisbótum frá og með þeim tíma sem umsókn um atvinnuleysisbætur barst frá henni. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 35/2014
Félagsleg leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur. Umsókn kæranda samþykkt undir rekstri málsins hjá úrskurðarnefndinni. Lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins ekki lengur til staðar. Kæru vísað frá.
-
16. september 2014 /Mál nr. 37/2014
Húsaleigubætur. Ágreiningur um fjárhæð húsaleigubóta til handa kæranda. Húsaleigubætur réttilega reiknaðar út frá tekjum hans. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
16. september 2014 /Mál nr. 40/2014
Félagsleg leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur. Ekki lá fyrir stjórnvaldsákvörðun, sbr. 1. mgr. 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Kæru vísað frá.
-
16. september 2014 /Mál nr. 30/2014
Fjárhagsaðstoð. Hafnarfjarðarbæ heimilt að greiða kæranda skerta fjárhagsaðstoð í samræmi við 1. mgr. 3. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
12. september 2014 /550/2014. Úrskurður frá 9. september 2014
Málið varðaði þríþætta kæru A vegna Vestmannaeyjabæjar. Í fyrsta lagi kæru yfir að bærinn hafi ekki svarað A, í öðru lagi yfir að A hafi ekki fengið tilteknar upplýsingar varðandi ráðningu í starf forstöðumanns og í þriðja lagi yfir að hafa ekki fengið upplýsingar varðandi stefnumótun og starfshætti bæjarins. Fyrsta liðnum var vísað frá nefndinni, þar sem fyrir lá að A hafði verið svarað. Varðandi annan liðinn var lagt fyrir Vestmannaeyjabæ að veita A nákvæmar upplýsingar um laun forstöðumannsins. Þriðji þátturinn þótti ekki varða nægilega vel tilgreind gögn og varð honum vísað frá.
-
12. september 2014 /551/2014. Úrskurður frá 9. september 2014
Brit Insurance Ltd., QBE Insurance (Europe) Ltd., Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., Allianz Global Corporate & Specialty AG, Novae Syndicate 2007, Dan Re Syndicate 1400 og QBE Syndicate 1886 kærðu ákvörðun Fjármálaeftirlitsins („FME“) um að vísa frá beiðni um aðgang að gögnum í ellefu liðum. Beiðnin laut að nánar tilteknum gögnum varðandi einn aðila á ákveðnu tímabili. Nefndin taldi FME ekki hafa afgreitt beiðnina með fullnægjandi hætti og féllst ekki á varakröfu FME um að beiðninni mætti synja á grundvelli 1. tl. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi beiðnina ekki hafa hlotið þá umfjöllun hjá FME, sem kæruheimild 20. gr. upplýsingalaga, og almennar reglur stjórnsýsluréttar um kæruheimildir á stjórnsýslustigi, gera ráð fyrir. Því varð að fella ákvörðun FME úr gildi og vísa málinu þangað til nýrrar og lögmætrar efnislegrar afgreiðslu.
-
12. september 2014 /552/2014. Úrskurður frá 9. september 2014
Þess var krafist af hálfu A að fá, frá Reykjavíkurborg, afhent útboðsgögn – þ.e. án þess að af þeim hefðu áður verið afmáðar upplýsingar um einingarverð og sundurliðaðar fjárhæðir. Niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál varð sú að Reykjavíkurborg bæri að afhenda kæranda gögnin með þeim hætti sem hann bað um.
-
11. september 2014 /Mál nr. 173/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
11. september 2014 /Mál nr. 179/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
-
10. september 2014 /Mál nr. 6/2014
Hin kærða ákvörðun, sem tekin var með bókun, var ekki í samræmi við þær kröfur þ.a.l. í barnaverndarlögum. Ákvörðunin var felld úr gildi og málinu vísað til velferðarnefndar C til meðferðar að nýju samkvæmt heimild í 4. mgr. 51. gr. barnaverndarlaga, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2011.
-
10. september 2014 /Mál nr. 8/2014
Úrskurður barnaverndarnefndar um kröfu afa og ömmu barns í fóstri um rýmri umgengni var staðfestur. Málinu var, samkvæmt 4. mgr. 51. gr. barnaverndarlaga, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2011, vísað til barnaverndarnefndar til meðferðar að nýju vegna kröfu fósturforeldra um niðurfellingu á umgengni við kærendur.
-
09. september 2014 /Nr. 1/2014 Stjórnsýslukæra vegna synjunar á umsókn um leyfi til að gerast dyravörður sbr. lög nr. 85/2007
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur þann 9. september 2014 kveðið upp svohljóðandi: ÚRSKURÐ 1. Kröfur og kæruheimild Þann 18. nóvember 2013 sendi [X], fyrir hönd [Y], hér eftir nefndur kæra)...
-
-
-
08. september 2014 /Mál nr. 28/2014
Atvinnuhúsnæði. Kostnaðarskipting: Lyfta. Brunakerfi. Skemmdir. Húsfélag.
-
08. september 2014 /Mál nr. 27/2014
Endurgreiðsla tryggingarfjár. Breytingar á eignarhaldi leiguhúsnæðis.
-
08. september 2014 /Mál nr. 34/2014
Breyting á hagnýtingu séreignar: Atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Rafmagnstafla. Kostnaðarskipting. Aðgangsréttur.
-
08. september 2014 /549/2014. Úrskurður frá 1. september 2014
Hinn 24. júlí 2014 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð nr. A-540/2014 í máli ÚNU 13070006. Síðar barst beiðni um frestun á réttaráhrifum úrskurðarins. Við meðferð þess máls kom í ljós að hann hafði ekki verið byggður á réttum lagagrundvelli og var þá ákveðið að fella hann úr gildi. Af sömu ástæðum varð að vísa umræddri kæru frá nefndinni.
-
-
-
-
04. september 2014 /Mál nr. 143/2012
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b- og c-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
04. september 2014 /Mál nr. 142/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kærenda um greiðsluaðlögun á grundvelli b- og c-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
04. september 2014 /Mál nr. 182/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
04. september 2014 /Mál nr. 191/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli d-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
03. september 2014 /Mál nr. 24/2014
Greiðsluerfiðleikaaðstoð. Greiðsluerfiðleikamat ekki framkvæmt með réttum hætti. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar.
-
03. september 2014 /Mál nr. 26/2014
Fjárhagsaðstoð. Aðfinnslur. Fjárhagsaðstoð til kæranda ekki rétt reiknuð. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi og málinu vísað til Hafnarfjarðarbæjar til nýrrar meðferðar.
-
03. september 2014 /Mál nr. 14/2014
Málefni fatlaðs fólks. Ferðaþjónusta. Málið ekki tækt til efnislegrar ákvörðunar og því vísað frá.
-
03. september 2014 /Mál nr. 23/2014
Fjárhagsaðstoð. Kærandi fékk skerta fjárhagsaðstoð þar sem hann bar ekki kostnað vegna húsnæðis, sbr. 1. mgr. 15. gr. reglna Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð. Umsókn kæranda um sérstaka aðstoð vegna barna synjað þar sem kærandi var yfir tekjumörkum 30. gr. reglnanna. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
03. september 2014 /Mál nr. 13/2014
Félagsleg leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur. Skilyrði b-og d- liða 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík ekki uppfyllt. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
03. september 2014 /Mál nr. 5/2014
Málefni fatlaðs fólks. Mat Reykjavíkurborgar á þjónustuþörf kæranda staðfest.
-
-
29. ágúst 2014 /Útgerðarfélagið Vigur ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 18. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Guðmundar Sig SU-650, (2585).
Aflaheimildir - Úthlutun byggðakvóta - Skilyrði úthlutunar - Meðalhófsreglan
-
-
25. ágúst 2014 /Mál nr. 105/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
25. ágúst 2014 /Mál nr. 134/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli d-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
25. ágúst 2014 /Mál nr. 136/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli c-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
25. ágúst 2014 /Mál nr. 172/2012
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
21. ágúst 2014 /Mál nr. 11/2014. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 28. maí 2014 kærði Á. Óskarsson ehf. innkaup Reykjanesbæjar á nýjum hreinsikerfum fyrir sundlaugar í Reykjanesbæ samkvæmt svonefndri verðkönnun. Kærandi krefst þess að kærunefnd „felli úr gildi ákvörðun Reykjanesbæjar þess efnis að framkvæma umrædda verðkönnun, svo og aðrar ákvarðanir sem teknar hafa verið á grundvelli hennar, og beini því til Reykjanesbæjar að bjóða út umrædd innkaup með lögmætum hætti.“ Þá krefst kærandi þess einnig að kærunefnd láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, auk þess sem krafist er málskostnaðar.
-
-
21. ágúst 2014 /Mál nr. 12/2014. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 31. maí 2014 kæra Laugar ehf. ákvörðun Kópavogsbæjar um að hafna tilboði kæranda í útboði um útleigu á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogsbæ. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í framangreindu útboði. Til vara krefst kærandi þess að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað.
-
20. ágúst 2014 /Mál nr. 18/2014
Húsaleigubætur. Ekki heimilt að synja kæranda um húsaleigubætur á þeirri forsendu að leigusali væri með lögheimili í íbúð kæranda. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi og lagt fyrir sveitarfélagið að taka málið til löglegrar meðferðar.
-
20. ágúst 2014 /Mál nr. 32/2014
Veðlánaflutningur. Íbúðalánasjóður lagði ekki mat á hvort svo sérstaklega stæði á að heimilt væri að víkja frá reglum um 80% veðmörk fasteignar við veðlánaflutning. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar.
-
-
20. ágúst 2014 /Mál nr. 34/2014
Húsaleigubætur. Kærandi sótti um húsaleigubætur aftur í tímann. Reykjavíkurborg var heimilt að synja um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann þar sem sækja ber um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og skal umsókn hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar, sbr. 2. og 3. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur nr. 138/1997. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
-
20. ágúst 2014 /Mál nr. 98/2011
110%. Endurupptaka. Endurskoðað verðmat. Fyrirliggjandi verðmat of hátt. Fasteignamat hærra en markaðsvirði. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi og lagt fyrir Íbúðalánasjóð að taka nýja ákvörðun á grundvelli fasteignamats.
-
20. ágúst 2014 /Mál nr. 10/2014. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 22. maí 2014 kærðu Afvélar ehf. útboð Ríkiskaupa auðkennt nr. 15647 „Sand-, salt- og pækildreifarar (3-4) fyrir Vegagerðina“. Kærandi krefst þess að kærunefnd felli niður eftirfarandi málsgrein í lið 12 á tilboðsblaði 2: „Skráningarkerfið á að skila notkunar- og afkastagögnum á öruggan hátt inn í tölvukerfi Vegagerðarinnar á DAU-sniði án leyfis- og áskriftargjalda“, og einnig eftirfarandi málsgrein í grein 3.5 í útboðslýsingu: „ ... (þ.m.t. leyfis- og áskriftargjöld) sem hljótast af vegna kaupanna og vegna notkunar boðnar vöru, hverju nafni sem þau nefnast...“. Þá krefst kærandi þess einnig að kærunefnd úrskurði að útboðið „hafi verið ólögmætt og að varnaraðilarnir Ríkiskaup og/eða Vegagerðin séu skaðabótaskyld gagnvart kæranda vegna þess.“ Þá er krafist málskostnaðar.
-
20. ágúst 2014 /Mál nr. 36/2014
Húsaleigubætur. Vestmannaeyjabæ heimilt að fella niður greiðslu húsaleigubóta þar sem kærandi flutti lögheimili sitt í annað sveitarfélag. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
-
19. ágúst 2014 /Mál nr. 145/2013
Vinnumálastofnun taldi kæranda ekki uppfylla almenn skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem hann hefði fengið skráninguna ofgreitt vegna tekna. Hin kærða ákvörðun var staðfest með vísan til 1. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kröfum kæranda um að finna tillögur hans í samskiptasögu Vinnumálastofnunar og að fram fari opinber rannsókn á fjárreiðum Vinnumálastofnunar var vísað frá.
-
19. ágúst 2014 /Mál nr. 137/2013
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en úrskurðarnefndin féllst ekki á það og var hinni kærðu ákvörðun hrundið.
-
18. ágúst 2014 /Mál nr. 130/2012
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kærenda um greiðsluaðlögun á grundvelli b- og c-liða 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
18. ágúst 2014 /Mál nr. 123/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b- og c-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
18. ágúst 2014 /Mál nr. 98/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
18. ágúst 2014 /Mál nr. 133/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b- og c-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
15. ágúst 2014 /548/2014. Úrskurður frá 13. ágúst 2014
Þess var krafist af hálfu sveitarfélags að réttaráhrifum úrskurðar nr. 541/2014, sem kveðinn var upp 24. júlí 2014, í máli ÚNU 14040010, yrði frestað. Að mati úrskurðarnefndarinnar var frestur til að gera slíka kröfu runninn út og því var henni vísað frá.
-
-
-
-
-
13. ágúst 2014 /Kærð ákvörðun Matvælastofnunar að synja um beingreiðslur
Beingreiðslur - Stöðvun afurðarsölu - Bændur á náttúruhamfarasvæðum - Lyfjaskráning - Hjarðbók
-
11. ágúst 2014 /Mál nr. 184/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
11. ágúst 2014 /Mál nr. 144/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli d-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
11. ágúst 2014 /Mál nr. 189/2012
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
-
07. ágúst 2014 /Mál nr. 170/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
07. ágúst 2014 /Mál nr. 131/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr., sbr. 15. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
07. ágúst 2014 /Mál nr. 152/2012
Staðfest ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga
-
06. ágúst 2014 /Synjun um rekstrarstyrk felld úr gildi
Ár 2012, fimmtudagurinn 15. mars, var kveðinn upp í mennta- og menningarmálaráðuneytinu svofelldur ÚRSKURÐUR I. Kröfur aðila. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu barst þann 19. maí 2011 stjórnsýslu)...
-
01. ágúst 2014 /Mál nr. 139/2013
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, vegna ferðar kæranda til útlanda og var hin kærða ákvörðun staðfest. Kröfu kæranda um að fá upplýsingar um nafn þess sem tilkynnti um dvöl hennar í útlöndum var hafnað.
-
01. ágúst 2014 /Mál nr. 121/2013
Kærandi þáði atvinnuleysisbætur þrátt fyrir að vera með sjálfstæðan rekstur. Hún var látin sæta viðurlögum skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar auk þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
-
01. ágúst 2014 /Mál nr. 113/2013
Kæranda var gert að sæta viðurlögum skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ekki var fallist á með kæranda að málið hafi ekki verið upplýst að fullu skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
-
01. ágúst 2014 /Mál nr. 141/2013
Hin kærða ákvörðun var ómerkt og Vinnumálastofnun gert að taka málið fyrir að nýju enda höfðu ný gögn borist eftir að hin kærða ákvörðun hafði verið tekin. Vinnumálastofnun hafði tekið ákvörðun um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta með vísan til námsloka hans hjá Tækniskóla Íslands í þrjá mánuði, með vísan til 1. mgr. 55. gr., sbr. 56. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.
-
-
-
30. júlí 2014 /Matsmál nr. 4/2014, úrskurður 30. júlí 2014
Landsnet gegn Eiganda Hvassahrauns - umráðataka
-
-
-
-
-
-
-
-
29. júlí 2014 /Matsmál nr. 6/2014, úrskurður 29. júlí 2014
Landsnet hf. gegn Eiganda Landakots - umráðataka
-
29. júlí 2014 /A-541/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
Íslenska gámafélagið hf. kærði synjun Sveitarfélagsins Ölfuss á beiðni um aðgang að tilboðsgögnum Gámaþjónustunnar hf. Sveitarfélagið hafði hvorki leiðbeint um kæruheimild né um kærufrest. Með vísan til 1. töluliðar 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kærunni því ekki vísað frá. Kærandi var einn tilboðsgjafa í umræddu útboði og naut því réttar samkvæmt ákvæði 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin umbeðin gögn ekki falla undir 6. gr. laganna og aðgangur yrði ekki takmarkaður á grundvelli 10. gr. Ákvæði 1. mgr. 17. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sem banna kaupanda að láta af hendi upplýsingar sem fyrirtæki hafa lagt fram sem trúnaðarupplýsingar, tækju einkum til tækni- og viðskiptaleyndarmála og fælu í sér almenna þagnarskyldu er takmarki ekki almennan aðgangsrétt. Því bæri sveitarfélaginu Ölfusi að afhenda þau.
-
-
29. júlí 2014 /A-542/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
Kærð var synjun mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum um gerð skýrslu um stjórnsýslu fornleifarannsókna og fornleifaverndar. Meta varð hvort sá sem vann skýrsluna hafi verið „verkefnaráðinn“ eða „starfsmaður“ í skilningi upplýsingalaga. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var sú að á meðan ráðningarsamband hans við ráðuneytið stóð yfir hafi hann verið starfsmaður . Tiltekin gögn um kostnað vegna verkefnisins, m.a. um „þóknanir“ til hans vegna forvinnu og tölvunotkunar, væru því undanþegin upplýsingarétti þótt veita bæri upplýsingar um föst launakjör. Nefndin féllst ekki á að viss gögn og tölvupóstar, ritaðir áður en C varð starfsmaður ráðuneytisins, og eftir að hann hætti, væru vinnugögn sem ráðuneytið hafi mátt synja um aðgang að. Vissum þáttum kærunnar varð að vísa frá – m.a. um tölvupósta sem höfðu verið afhentir nefndinni án viðhengja og að því sem marki um aðgang kæranda færi að ákvæðum stjórnsýslulaga. Gagn sem kæranda hafði verið tjáð að væru „drög að bréfi til forsætisráðuneytisins“ taldi nefndin vera vinnugagn sem ekki hefði verið skylt að afhenda kæranda.
-
29. júlí 2014 /Matsmál nr. 5/2014, úrskurður 29. júlí 2014
Landsnet gegn Eigendum Stóru Vatnsleysu og Minni Vatnsleysu Vatnsleysuströnd - umráðataka
-
29. júlí 2014 /A-540/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
Gámaþjónustan hf. kærði afgreiðslu A (sem er í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf., sem er alfarið í eigu Seðlabanka Íslands) á beiðni um svör við því hvort tiltekinn eignarhlutur í Íslenska gámafélaginu hf. hefði verið auglýstur til sölu og ef svo væri, hvar og hvenær, hversu stór eignarhluturinn hefði verið, hvert söluverðið hefði verið, hver hefði verið kaupandi og hvernig greiðslum hefði verið háttað. Kærandi hafði aðeins fengið tiltekin svör. Seðlabankinn bar í fyrsta lagi fyrir sig ákvæði um þagnarskyldu, en nefndin taldi það ekki eiga við. Þá vísaði bankinn til samkomulags um trúnað sem nefndin taldi hann ekki heldur geta borið fyrir sig. Í þriðja lagi vísaði hann til 9. gr. upplýsingalaga, enda væri um að ræða viðkvæmar upplýsingar fyrir viðskiptamenn A. Nefndin taldi upplýsingarnar varða ráðstöfun opinberra hagsmuna með beinum hætti og gerði A. að afhenda kæranda samkomulag um endurskipulagningu Íslenska gámafélagsins ehf.
-
-
29. júlí 2014 /A-544/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki en lagði mat að það hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. greinarinnar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri og FME bæri ekki að veita aðgang að skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins PWC, að undanskildum þeim hlutum sem kærendum hafði þegar verið veittur aðgangur að, en það átti við um svo stóran hluta hennar að ekki kom til álita að leggja fyrir FME að afhenda hana að hluta. Beiðni um aðgang að skjalinu „Skýrsla um athugun á óhæði rekstrarfélaga verðbréfasjóða hjá Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf.“ var að mestu vísað frá.
-
29. júlí 2014 /A-545/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
A kærði þá ákvörðun Isavia ohf. að veita honum ekki aðgang að samningi um leigu á húsi til farþegaafgreiðslu. Fyrir lá að þetta skjal varð til fyrir gildistöku nýrra upplýsingalaga, eða árið 2009. Féll ágreiningur um aðgang að því þar með utan valdssviðs úrskurðarnefndar um upplýsingamál, eins og það er afmarkað í 20. gr. laganna, og varð að vísa málinu frá.
-
29. júlí 2014 /A-543/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
A kærði ákvörðun Orkustofnunar um að synja beiðni um aðgang að skýrslum stofnunarinnar skv. 2. mgr. 31. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Synjunin byggðist á því að umbeðnar skýrslur væru „flestar lokaðar skýrslur“ og því þyrfti „verkkaupi að afhenda efnið“. Var kæranda því bent á að senda beiðni sína til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Úrskurðarnefnd taldi, með vísun til 16. gr. upplýsingalaga, að Orkustofnun hafi ekki verið heimilt að áframsenda beiðnina til annars stjórnvalds, sem einnig hefði umbeðin gögn í sínum vörslum, og lagði fyrir hana að fjalla um og taka afstöðu til gagnabeiðni A.
-
29. júlí 2014 /A-546/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja þeim um aðgang að 15 fundargerðum lánanefndar samstæðu Kaupþings banka hf. og lánanefndar stjórnar bankans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þagnarskylda samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 færðist yfir á Þjóðskjalasafnið vegna upplýsinga sem stofnunin tæki við, sbr. 2. mgr. greinarinnar. Allar fundargerðirnar innihéldu umsóknir viðskiptamanna Kaupþings banka hf. um lánaviðskipti, ásamt afstöðu lánanefnda bankans til lánveitingar og rökstuðningi fyrir henni, sem nefndin taldi tvímælalaust vera upplýsingar um einka- og fjárhagsmálefni sem varði mikilvæga fjárhagslega hagsmuni einkaaðila. Þær njóti verndar skv. 1. mgr. 58. gr. og 9. gr. upplýsingalaga. Ekki væri unnt að veita aðeins aðgang að hluta þeirra, enda ljóst að yrðu allar persónugreinanlegar upplýsingar afmáðar úr þeim stæði svo lítið eftir að kærendum væri ekki gagn í að fá aðgang að þeim. Synjun Þjóðskjalasafnsins var því staðfest.
-
29. júlí 2014 /A-547/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014
Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki vera en mat hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. þeirrar greinar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri. Því hafi FME verið rétt að synja kærendum um aðgang að skýrslu um útlánaáhættu Kaupþings banka hf., umfram þá hluta hennar sem kærendur hefðu þegar fengið aðgang að. Þau sjónarmið ættu við um svo stóran hluta skýrslunnar að ekki kæmi til greina að veita aðgang að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Skýrslur um stórar áhættur sem Kaupþing banki hf. sendi til FME á árunum 2007 og 2008 á grundvelli reglna nr. 216/2007 um stórar áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum (áður reglur nr. 531/2003) taldi nefndin einnig falla undir þagnarskylduna og að þær upplýsingar sem undanþegnar væru upplýsingarétti væru svo stór og veigamikill hluta þeirra að ekki væru heldur efni til að veita aðgang að hluta þeirra. Þá taldi hún skjalið „Liquidity Risk - template - 18 months - SEPT all currencies SENT.xls“ hafa að geyma upplýsingar háðar þagnarskyldu, en kærendur hefðu ekki fært fram röksemdir sem leiddu til þess að þeirri skyldu skyldi aflétt.
-
28. júlí 2014 /Kærð ákvörðun Matvælastofnunar að stöðva markaðssetningu mjólkur og sláturgripa frá Efri-Brunná
Markaðssetning mjólkur og sláturgripa - Skráning gripa - Hjarðbók - Lyfjaskráning - Opinbert eftirlit
-
28. júlí 2014 /Samkaup hf. kærir ákvörðun Heilbrigðisnefndar Suðurnesjasvæðis um að veita Nettó Reykjanesbæ áminningu
Áminning - Merkingarreglugerðir - Skýrleiki stjórnvaldsákvarðanna - Leiðbeiningarskylda stjórnvalda - Rannsóknarreglan
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.