A-356/2011. Úrskurður frá 26. janúar 2011
ÚRSKURÐUR
Hinn 26. janúar 2011 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð í málinu A-356/2011.
Kæruefni og málsatvik
Með bréfi, dags. 23. ágúst 2010, kærði [X] hdl. f.h. [...] hdl. þá ákvörðun Seðlabanka Íslands, dags. 19. ágúst, að synja henni um aðgang gögnum er lúta að: „Beiðni Magma Energy Sweden AB, kaupanda hlutabréfa Geysis Green Energy í HS Orku, um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál í tengslum við umrædd kaup.“
Í synjun Seðlabanka Íslands, frá 19. ágúst, á beiðni kæranda kemur fram að samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál er Seðlabanka Íslands heimilt að veita undanþágur frá banni á fjármagnshreyfingum meðal annars samkvæmt bráðabirgðaákvæði I, liggi fyrir umsögn þar að lútandi. Í 15. gr. laga nr. 87/1992 er kveðið á um að þeir sem annist framkvæmd þeirra laga séu bundnir þagnarskyldu um hagi einstakra viðskiptamanna og önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skuli fara samkvæmt lögum eða eðli máls, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þá er tekið fram að viðskiptamenn í skilningu ákvæðisins séu bæði einstaklingar og lögaðilar sem leggja fram beiðni um gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingar, sbr. 10. gr. laganna. Með gagnályktun frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, þar sem fram kemur að almenn ákvæði laga um þagnarskyldu takmarki ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt upplýsingalögum, sé Seðlabanka Íslands óheimilt að afhenda kæranda umbeðnar upplýsingar og beiðni hans með vísan til þess synjað.
Málsmeðferð
Eins og áður var rakið barst kæra máls þessa með bréfi, dags. 23. ágúst 2010. Í kærunni kemur fram að fyrir liggi að kaupverð á hlut Geysis Green Energy í HS Orku sé um 16 milljarðar króna og að greitt hafi verið fyrir hlutinn með reiðufé og yfirtöku skuldabréfa, sbr. frétt um málið á fréttavefnum mbl.is frá 17. maí 2010. Af hálfu kæranda er á því byggt að 15. gr. laga nr. 87/1992 komi ekki í veg fyrir að Seðlabanka Íslands sé skylt og/eða heimilt að afhenda þau gögn sem um ræðir. Þá kemur eftirfarandi m.a. fram í kærunni:
„Málatilbúnað Seðlabankans verður að skilja á þann veg að tilvitnað þagnarskylduákvæði 15. gr. laga nr. 87/1992 gangi framar meginreglu upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings.
Ekki er af hálfu bankans vísað til þess að takmarkanir á aðgangsrétti samkvæmt 4. - 6. gr. upplýsingalaga eigi við. Má vera ljóst af því að bankinn telur að ekki þurfi að meta hvort þau ákvæði eigi við eða að öðru leyti hvort upplýsingarnar/gögnin eru þess efnis að eðlilegt sé að um þau sé leynd.
Þessum skilningi og málatilbúnaði Seðlabanka Íslands er alfarið hafnað. Þó umrætt þagnarskylduákvæði 15. gr. laga nr. 87/1992 sé talið sérákvæði laga um þagnarskyldu er ekki að sjá að þeir hagsmunir og/eða gögn sem óskað er eftir séu þess efnis að trúnaður skuli ríkja um það, hvorki samkvæmt lögum eða eðli máls.
...
Ákvæði 15. gr. snýr þannig ekki að því að vernda upplýsingar um einstakar undanþágur, eins og þá sem mál þetta snýst um, enda varðar slík undanþágubeiðni tæplega mikilvæg atriði í rekstri umrædds félags, hvorki fjárhagslega eða viðskiptalega. Hér verður að hafa í huga að viðskiptin sem slík eru opinber sem og upplýsingar sem þau varða, s.s. kaupverð.
Það er því ekki að sjá að þær upplýsingar og gögn sem mál þetta snýr að sé þesslegt að ástæða sé til að það njóti sérstakrar verndar gegn upplýsingarétti almennings. Hér er ekki á nokkurn hátt verið að vernda rekstrar- og/eða fjárhagslega hagsmuni viðskiptamanna bankans í skilningi 15. gr., enda standa hvorki önnur lagaákvæði til þess að þessi atriði skuli fara leynt né byggir það á eðli máls.
Þá má einnig benda á að þegar 15. gr. laga nr. 87/1992 var lögfest var ekki um það að ræða að sækja þyrfti um slíka undanþágu sem hér um ræðir. Því má þar af leiðandi halda fram að þagnarskylduregla 15. gr. eigi ekki við í þessu tilviki.
Loks ber að vekja athygli á því að upplýsingarnar sem um ræðir eiga við um framkvæmd Seðlabanka Íslands á reglum varðandi gjaldeyrishöft. Um er að ræða verulega íþyngjandi reglur og munur á beitingu þeirra milli aðila til þess fallinn að vera mjög íþyngjandi og skaðlegur aðilum á samkeppnismarkaði. Því er sérstaklega brýnt að slík leynd hvíli ekki yfir málsmeðferðinni að þeir sem lúta reglunum sé gert ókleift að átta sig á því hvaða forsendur valda því að undanþágur séu veittar.
Verður hér eins og ávallt við meðferð stjórnsýsluvalds að hafa í huga eina helstu meginreglu stjórnsýsluréttarins, þ.e. jafnræðisregluna. Sú regla verður ekki virt nema stjórnsýsla og öll framkvæmd hennar sé opin og gegnsæ og öllum sem þess óska sé gefið færi á að kynna sér framkvæmd sambærilegra mála en leynd eins og sú sem Seðlabankinn ber fyrir sig er einmitt til þess fallin að vekja upp efasemdir um að jafnræðis sé gætt.“
Með bréfi úrskurðarnefndar um upplýsingamál, dags. 27. ágúst 2010, var Seðlabanka Íslands send kæran og veittur frestur til að gera athugasemdir við hana til 6. september. Óskaði úrskurðarnefndin jafnframt eftir því að sér yrðu látin í té afrit af umbeðnum gögnum innan sama frests.
Athugasemdir Seðlabanka Íslands ásamt gögnum málsins bárust úrskurðarnefndinni með bréfi, dags. 21. september. Eftirfarandi kemur m.a. fram í bréfinu:
„Með þeim breytingum sem gerðar voru á lögum nr. 87/1992 í árslok 2008, sbr. lög nr. 134/2008, var bankanum fengin heimild til að takmarka og stöðva tiltekna flokka fjármagnshreyfinga til og frá landinu og gjaldeyrisviðskipti sem þeim tengjast með útgáfu reglna, sbr. bráðabirgðaákvæði I. Eins og kemur fram í athugasemdum í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 134/2008 beindist umrædd breyting einkum að því að veita heimild til framangreindra takmarkana í lengri tíma en ákvæði 3. gr. laganna mælti fyrir um. Ber bankanum því eins og áður að bregðast við með þessum hætti meti hann það svo að þessir flokkar fjármagnshreyfinga og gjaldeyrisviðskipta valdi alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum. Seðlabankinn hefur sett reglur um gjaldeyrismál á grundvelli framangreinds bráðabirgðaákvæðis, nú síðast nr. 370/2010. Samkvæmt þeim eru fjármagnshreyfingar til og frá landinu á milli innlendra og erlendra aðila sem og slík gjaldeyrisviðskipti óheimil nema með tilteknum þröngum undanþágum. Viðskiptamaður sem hyggur á fjármagnshreyfingu eða gjaldþrotaviðskipti og telur sig uppfylla undanþágu umræddra reglna leggur fram gögn því til staðfestingar.
Sem fyrr hefur Seðlabankinn heimild til að veita undanþágur frá reglum um gjaldeyrismál samkvæmt umsókn þar að lútandi, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 87/1992. Viðskiptamaður sem óskar eftir undanþágu frá reglum Seðlabankans leggur fram gögn með beiðni auk þess sem Seðlabankinn beinir þeim tilmælum til hans að hann leggi fram þau gögn og upplýsingar sem nauðsynlegt er til töku umræddrar ákvörðunar reynist slíkt nauðsynlegt. Það skal tekið fram að almennt er um að ræða gögn um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga eða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja.
Fyrir liggur að beiðni [A lögmannsstofu] beinist að aðgangi að gögnum í máli sem varðar ákvörðun sem tekin er á grundvelli 1. mgr. 7. gr. laga nr. 87/1992. Þá liggur fyrir að Seðlabankinn synjaði beiðninni með vísan til 15. gr. laga nr. 87/1992. Eins og áður er rakið er tekið fram í því ákvæði að þeir sem annast framkvæmd laganna séu bundnir þagnarskyldu um hagi einstakra viðskiptamanna og önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Ljóst er að Seðlabankinn annast framkvæmd laganna. Þá er ljóst að viðskiptamenn í skilningi þess ákvæðis eru bæði einstaklingar og lögaðilar sem leggja fram beiðni um gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingu og einstaklingar eða lögaðilar sem eru lokamóttakendur yfirfærslunnar, sbr. 10. gr. laganna. Samkvæmt því eru það viðskiptamenn í skilningi laganna sem geta sótt um undanþágu til Seðlabankans á grundvelli 1. mgr. 7. gr. laga nr. 87/1992. Fyrir liggur að upplýsingar í tengslum við slíkar beiðnir, hvort sem þær eru lagðar fram að frumkvæði viðskiptamanns eða að beiðni Seðlabankans, geta almennt varðað fjárhag, rekstur, samkeppnisstöðu og viðskiptahagsmuni þessara viðskiptamanna.
Ákvæði 15. gr. laga nr. 87/1992 er sérstakt þagnarskylduákvæði þar sem þær upplýsingar sem trúnaður skal ríkja um eru tilgreindar sérstaklega, þ.e. trúnaður skal ríkja um „hagi einstakra viðskiptamanna“. Af þessu leiðir að þagnarskylda hvílir á öllum þeim sem sjá um framkvæmd laganna, hvort sem um er að ræða Seðlabanka Íslands eða fjármálafyrirtæki. Þá er ljóst að ákvarðanir um gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingu til og frá landinu varða „hagi einstakra viðskiptamanna“, m.a. fjárhag, rekstur, samkeppnisstöðu og viðskiptahagsmuni þeirra.
Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið og gagnályktun frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 er Seðlabankanum óheimilt að láta af hendi upplýsingar sem varða beiðni um gjaldþrotaskipti og fjármagnshreyfingar á milli landa í skilningi laga nr. 87/1992 og reglna settum á grundvelli þeirra hvort sem um er að ræða flutning eða móttöku yfirfærslunnar. Með vísan til þess er rétt að taka fram að ekki hefur verið tekin afstaða til aðgangs að umræddum gögnum með vísan til 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996.“
Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 22. september 2010, voru kæranda kynntar athugasemdir Seðlabankans og veittur frestur til að koma á framfæri frekari athugasemdum við kæru sína til 1. október. Frekari athugasemdir kæranda bárust með bréfi, dags. 28. september og kemur fram að helstu rök og sjónarmið kæranda séu í kæru en í bréfinu segir m.a:
„Um helstu rök og sjónarmið er vísað til nefndrar kæru þar sem er að finna athugasemdir við flest þau atriði sem Seðlabankinn setur fram í umsögn sinni.
Því til viðbótar skal tekið fram að ekki er gerður ágreiningur um að Seðlabankanum sé heimilt að veita undanþágur frá þeim takmörkunum sem nú eru í gildi vegna fjármagnshreyfinga til og frá landinu. Þá er ekki dregið í efa að þagnarskylduákvæði 15. gr. laga nr. 87/1992 gildi um bankann.
Hins vegar telur kærandi þagnarskylduákvæðið ekki koma í veg fyrir að umbeðnar upplýsingar verði veittar og gögn afhent, eins og ítarlega er gerð grein fyrir í kærunni.
...
Þá skal áréttað að gera má ráð fyrir að þagnarskylda samkvæmt nefndri 15. gr. afmarkist við samskonar atriði og takmörkuð eru með 5. gr. upplýsingalaga, þ.e. mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni eða önnur sambærileg atriði sem eðlilegt er að leynt skuli fara.
Hér er því á engan hátt kveðið á um þagnarskyldu varðandi öll viðskipti einstakra viðskiptamanna við bankann heldur verður að meta hverju sinni hvort rétt sé að hagsmunirnir séu verndaðir, sbr. umfjöllun í kæru.
Því er alfarið hafnað, eins og Seðlabankinn virðist halda fram, að beiðni um undanþágu í því máli sem hér er til umfjöllunar geti talist slík atriði sem falla undir þagnarskylduákvæði 15. gr. laga nr. 87/1992 enda ekkert fyrirliggjandi um að um sé að ræða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni.
...
Ein helsta regla stjórnsýsluréttarins er jafnræðisreglan en í henni felst að samskonar mál skuli afgreidd með sambærilegum hætti. Þessa reglu verður Seðlabankinn að sjálfsögu að virða þegar hann veitir undanþágur frá gjaldeyrishöftum og má hverjum vera ljóst að það er umsækjendum um undanþágur mjög mikilvægt að geta gengið úr skugga um að svo sé. Upplýsingalögin gegna einmitt því hlutverki að auðvelda almenningi að sannreyna hvort jafnræðis sé gætt og málefnaleg sjónarmið hafi verið höfð í heiðri við töku stjórnvaldsákvarðana. Leynd sem hvílir yfir afgreiðslu slíkra beiðna er einungis til þess fallin að vekja tortryggni og grunsemdir um misræmi og ójafnræði við afgreiðslu undanþága.“
Með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þykir ekki ástæða til þess að rekja frekar það sem kemur fram í gögnum málsins um málsatvik og ágreiningsefni aðila, en úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af þeim við úrlausn málsins.
Niðurstöður
1.
Eins og rakið hefur verið fór kærandi fram á aðgang að gögnum Seðlabanka Íslands er lúta að beiðni Magma Energy Sweden AB, kaupanda hlutabréfa Geysis Green Energy í HS Orku, um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál í tengslum við umrædd kaup.
Þau gögn sem Seðlabanki Íslands hefur afhent úrskurðarnefnd um upplýsingamál eru eftirfarandi:
1. Beiðni frá Lögfræðistofu Reykjavíkur og Artica Law ehf., dags. 1. desember 2009, um mat á undanþágu frá reglum nr. 880/2009 um gjaldeyrismál.
2. Ákvörðun Seðlabanka Íslands, dags. 7. desember 2009.
3. Beiðni frá Lögfræðistofu Reykjavíkur, dags. 3. desember 2009, f.h. Magma Energy Sweden AB, um undanþágu frá reglum nr. 880/2009 um gjaldeyrismál.
4. Bréf frá lögfræðistofu Reykjavíkur, dags. 14. janúar 2010, um upplýsingar um afdrif máls.
5. Ákvörðun Seðlabanka Íslands, dags. 8. júlí 2010.
6. Samningur, dags. 24. nóvember 2009, um gjaldeyrisviðskipti Magma Energy Corp. hjá The Bank of New York Mellon.
7. Kaupsamningur milli Magma Energy Sweden AB og Orkuveitu Reykjavíkur, um kaup hins sænska félags á hlut Orkuveitunnar í HS Orku hf., dags. 31. ágúst 2009.
8. Kaupsamningur á milli Magma Energy Sweden AB og Hafnarfjarðarkaupstaðar, um kaup hins sænska félags á hlut Hafnarfjarðarkaupstaðar í HS Orku hf., dags. 31. ágúst 2009.
9. Kaupsamningur á milli Magma Energy Sweden AB og Sandgerðisbæjar, um kaup hins sænska félags á hlut Sandgerðisbæjar í HS Orku hf., dags. 31. ágúst 2009.
10. Samningur milli Magma Energy Sweden AB og Orkuveitu Reykjavíkur um útgáfu skuldabréfs í bandaríkjadollurum sem hluta af greiðslu kaupverðs, dags. í ágúst 2009.
11. Samningur milli Magma Energy Sweden AB og Hafnarfjarðarkaupstaðar um útgáfu skuldabréfs í bandaríkjadollurum sem hluta af greiðslu kaupverðs, dags. í ágúst 2009.
12. Samningur milli Magma Energy Sweden AB og Sandgerðisbæjar um útgáfu skuldabréfs í bandaríkjadollurum sem hluta af greiðslu kaupverðs, dags. í ágúst 2009.
Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 er heimilt að bera synjun stjórnvalds um að veita aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Kæruheimildin er bundin því skilyrði að ágreiningur sé uppi um annað tveggja; skyldu stjórnvalds til að veita aðgang að gögnum eða skyldu þess til að veita aðgang í formi ljósrits af skjölum eða afrits af öðrum gögnum.
2.
Kærandi byggir kröfu sína um aðgang á gögnum á 1. mgr. 3. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings. Í greininni segir orðrétt: „Stjórnvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að gögnum sem varða tiltekið mál með þeim takmörkunum sem greinir í 4.-6. gr.“ Í 5. gr. laganna segir síðan: „Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Sömu takmarkanir gilda um aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila.“
Í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga er tekið fram að almenn ákvæði laga um þagnarskyldu takmarki ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt lögunum. Með gagnályktun frá þessu ákvæði hefur hins vegar verið litið svo á að sérstök þagnarskylduákvæði geti ein og sér komið í veg fyrir að aðgangur verði veittur að gögnum í vörslum stjórnvalda hvað sem líður öðrum lagaákvæðum um upplýsingaskyldu. Þegar um er að ræða sérákvæði laga um þagnarskyldu, þ.e. þegar upplýsingar þær sem þagnarskyldan tekur til eru sérgreindar, fer það eftir „efni og orðalagi þagnarskylduákvæðis hvernig slík ákvæði verða skýrð og þýdd ákvæðum upplýsingalaga“ eins og segir í skýringum við 2. gr. frumvarps þess sem síðar varð að upplýsingalögum. Með hliðsjón af þessu telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál að óhjákvæmilegt sé að taka hér fyrst til nokkurrar umfjöllunar það ákvæði um þagnarskyldu sem Seðlabanki Íslands hefur vísað til í máli þessu, þ.e. 15. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál.
3.
Eftirfarandi ákvæði um þagnarskyldu er í 15. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál:
„Þeir sem annast framkvæmd þessara laga eru bundnir þagnarskyldu um hagi einstakra viðskiptamanna og önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.“
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál telur að líta beri á tilvitnað ákvæði 15. gr. nr. 87/1992 sem sérstakt ákvæði um þagnarskyldu í skilningi 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga. Umrætt ákvæði felur í sér vísireglu, sem tilgreinir að einhverju leyti þær upplýsingar sem þagnarskylda á að ríkja um þó ákvæðið sé orðað með mjög almennum hætti. Að því leyti sem í tilvitnuðu ákvæði eru ekki tilgreindar með beinum og skýrum hætti þær upplýsingar sem ber að gæta trúnaðar um verður að skýra það með hliðsjón af efni 5. gr. upplýsingalaga.
4.
Þau gögn sem afhent hafa verið úrskurðarnefnd um upplýsingamál lúta með einum eða öðrum hætti að beiðni Magma Sweden Energy AB til Seðlabanka Íslands um undanþágu frá reglum nr. 880/2009 um gjaldeyrismál, dags. 2. desember 2009.
Í athugasemdum í frumvarpi til upplýsingalaga við 5. gr. segir m.a.: „Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um fjárhagsmálefni einstaklinga. [...] Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja eða annarra lögaðila. Þannig er óheimilt að veita upplýsingar um atvinnu framleiðslu- og viðskiptaleyndarmál eða viðkvæmar upplýsingar um rekstrar- eða samkeppnisstöðu svo og aðra mikilvæga viðskiptahagsmuni.“
Að framan er gerð grein fyrir 15. gr. laga nr. 87/1992 um þagnarskyldu en hún nær til þeirra aðila sem annast framkvæmd laganna, þ.á m. Seðlabanka Íslands. Þegar starfsmenn Seðlabanka Íslands tóku við beiðni um undanþágu frá reglum nr. 880/2009 um gjaldeyrismál og gögnum sem lutu að þeirri beiðni féll á þá þagnarskylda að svo miklu leyti sem gögnin hafa að geyma efni sem fellur undir framangreint þagnarskylduákvæði.
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál er framangreint þagnarskylduákvæði í lögum nr. 87/1992 víðtækara, þ.e. gengur lengra en þær takmarkanir sem kveðið er á um í 5. gr. upplýsingalaga.
5.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur yfirfarið þau gögn sem um ræðir. Lúta þau öll að mögulegum undanþágum frá reglum nr. 880/2009, um gjaldeyrismál, sem settar voru á grundvelli ákvæðis I til bráðabirgða við lög nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þau gögn sem um ræðir eru beiðnir um undanþágur og tengd bréf, ákvarðanir Seðlabanka Íslands vegna þeirra beiðna og gögn sem fylgdu beiðnum.
Með vísan til þagnarskylduákvæðis 15. gr. laga nr. 87/1992 og 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 er það niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að Seðlabanka Íslands beri ekki að veita kæranda aðgang að gögnum málsins sem eru eftirfarandi:
1. Beiðni frá Lögfræðistofu Reykjavíkur og Artica Law ehf., dags. 1. desember 2009, um mat á undanþágu frá reglum nr. 880/2009 um gjaldeyrismál.
2. Ákvörðun Seðlabanka Íslands, dags. 7. desember 2009.
3. Beiðni frá Lögfræðistofu Reykjavíkur, dags. 3. desember 2009, f.h. Magma Energy Sweden AB, um undanþágu frá reglum nr. 880/2009 um gjaldeyrismál.
4. Bréf frá Lögfræðistofu Reykjavíkur, dags. 14. janúar 2010, um upplýsingar um afdrif máls.
5. Ákvörðun Seðlabanka Íslands, dags. 8. júlí 2010.
6. Samningur, dags. 24. nóvember 2009, um gjaldeyrisviðskipti Magma Energy Corp. hjá The Bank of New York Mellon.
7. Kaupsamningur milli Magma Energy Sweden AB og Orkuveitu Reykjavíkur, um kaup hins sænska félags á hlut Orkuveitunnar í HS Orku hf., dags. 31. ágúst 2009.
8. Kaupsamningur á milli Magma Energy Sweden AB og Hafnarfjarðarkaupstaðar, um kaup hins sænska félags á hlut Hafnarfjarðarkaupstaðar í HS Orku hf., dags. 31. ágúst 2009.
9. Kaupsamningur á milli Magma Energy Sweden AB og Sandgerðisbæjar, um kaup hins sænska félags á hlut Sandgerðisbæjar í HS Orku hf., dags. 31. ágúst 2009.
10. Samningur milli Magma Energy Sweden AB og Orkuveitu Reykjavíkur um útgáfu skuldabréfs í bandaríkjadollurum sem hluta af greiðslu kaupverðs, dags. í ágúst 2009.
11. Samningur milli Magma Energy Sweden AB og Hafnarfjarðarkaupstaðar um útgáfu skuldabréfs í bandaríkjadollurum sem hluta af greiðslu kaupverðs, dags. í ágúst 2009.
12. Samningur milli Magma Energy Sweden AB og Sandgerðisbæjar um útgáfu skuldabréfs í bandaríkjadollurum sem hluta af greiðslu kaupverðs, dags. í ágúst 2009.
Að þessari niðurstöðu fenginni telur úrskurðarnefndin óþarft að taka afstöðu til annarra röksemda sem aðilar hafa fært fram máli sínu til stuðnings.
Úrskurðarorð
Staðfest er synjun Seðlabanka Íslands á að veita kæranda [X] hdl. f.h. [...] hdl. aðgang að gögnum er lúta að beiðni Magma Energy Sweden AB, kaupanda hlutabréfa Geysis Green Energy í HS Orku, um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál í tengslum við umrædd kaup.
Trausti Fannar Valsson
formaður
Sigurveig Jónsdóttir Friðgeir Björnsson