830/2019. Úrskurður frá 27. september 2019
Úrskurður
Hinn 27. september 2019 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 830/2019 í máli ÚNU 19060008.Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Með erindi, dags. 20. júní 2019, kærði A, töf Þekkingarseturs Vestmannaeyja á afgreiðslu beiðni hans um upplýsingar um ársskýrslu sjálfseignarstofnunarinnar.Óþarft þykir að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Niðurstaða
Í málinu er kærð töf Þekkingarseturs Vestmannaeyja á afgreiðslu beiðni kæranda um upplýsingar. Í 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, kemur fram að lögin taki til allrar starfsemi stjórnvalda. Þá taka lögin til allrar starfsemi lögaðila sem eru að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera, sbr. 2. mgr. 2. gr. upplýsingalaga. Samkvæmt 3. gr. laganna taka upplýsingalög einnig til einkaaðila, hvort sem þeir eru í opinberri eigu eða ekki, að því leyti sem þeim hefur með lögum eða með ákvörðun eða samningi sem byggist á heimild í lögum verið falið að taka stjórnvaldsákvörðun eða sinna þjónustu sem kveðið er á um í lögum að stjórnvald skuli sinna eða telst að öðru leyti liður í opinberu hlutverki stjórnvalds.Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses er sjálfseignarstofnun sem stundar atvinnurekstur. Þekkingarsetur Vestmannaeyja er hvorki stjórnvald né lögaðili í 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera. Þá á 3. gr. upplýsingalaga ekki við í málinu. Þar sem upplýsingalög taka ekki til Þekkingarseturs Vestmannaeyja verður að vísa frá kæru vegna tafa stofnunarinnar á afgreiðslu beiðni um aðgang að gögnum.
Úrskurðarorð:
Kæru A, dags. 20. júní 2019, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.Hafsteinn Þór Hauksson
formaður
Sigurveig Jónsdóttir Friðgeir Björnsson