1020/2021. Úrskurður frá 28. júní 2021.
Úrskurður
Hinn 28. júní 2021 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1020/2021 í máli ÚNU 20120026.Kæra og málsatvik
Þann 21. desember 2020, kærði A, fréttamaður RÚV, afgreiðslu ríkisskattstjóra, dags. 26. nóvember 2020, á beiðni hans frá 12. nóvember 2020 um gögn um skráningu raunverulegra eigenda.Með bréfi, dags. 12. nóvember 2020, óskaði kærandi eftir aðgangi að öllum gögnum sem tengjast skráningu raunverulegra eigenda félaganna Samherja ehf., Samherja Holding ehf. og K&B ehf. Í beiðninni kom fram að óskað væri eftir öllum gögnum sem staðfesti raunverulegt eignarhald félaganna og borist hafi ríkisskattstjóra á grundvelli f-liðar 2. mgr. 4. gr. laga nr. 82/2019, um skráningu raunverulegra eigenda.
Ríkisskattstjóri afhenti kæranda umbeðin gögn með tölvubréfi, dags. 20. nóvember 2020. Þar kom fram að til þess að tryggja að þagnarskyldar upplýsingar yrðu afmáðar með fullnægjandi hætti hefðu gögnin verið prentuð út og þagnarskyldar upplýsingar verið afmáðar handvirkt. Því næst hefðu gögnin verið skönnuð yfir á pdf. form.
Með tölvubréfi, dags. 23. nóvember 2020, fór kærandi í fyrsta lagi fram á að gögnin yrðu afhent á upprunalegu formi. Í öðru lagi kom fram að kærandi teldi sig eiga rétt á upplýsingum um hlutafjáreign hvers og eins hluthafa sem strikaðar höfðu verið út í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 935/2020. Í svari ríkisskattstjóra, dags. 26. nóvember 2020, kom fram að ríkisskattstjóri hefði afgreitt beiðni kæranda með þeim takmörkunum sem kveðið var á um í úrskurði úrskurðarnefndarinnar nr. 935/2020. Var það mat ríkisskattstjóra að nafnverð, er fram kom í fylgigögnum tilkynninga, yrðu afmáð í ljósi niðurstöðu úrskurðarins.
Í kæru kemur fram að kærð sé annars vegar ákvörðun ríkisskattstjóra að afhenda ekki umbeðin gögn nema með tilteknum upplýsingum afmáðum. Í öðru lagi snýr kæran að þeirri ákvörðun ríkisskattstjóra að afhenda umbeðin gögn ekki á upprunalegu, rafrænu formi.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt ríkisskattstjóra með bréfi, dags. 22. desember 2020, og honum veittur kostur á að koma á framfæri umsögn vegna kærunnar.Í umsögn ríkisskattstjóra, dags. 14. janúar 2021, eru málavextir raktir. Í umsögninnier vísað til þess að í kæru sé því haldið fram að sambærilegar upplýsingar og þær sem afmáðar voru séu opinberar upplýsingar og því skjóti skökku við að strika út upplýsingarnar. Í því sambandi bendir ríkisskattstjóri á úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál í máli nr. 935/2020 þar sem fram komi að embættinu sé skylt að strika út fjárhæðir sem fram komi í hlutafjármiðum einstaklinga. Ein þessara fjárhæða sé nafnverð hlutafjárins og því sé útstrikun ríkisskattstjóra í fullu samræmi við þær skyldur sem lagðar hafi verið á ríkisskattstjóra með úrskurðinum.
Hvað varðar þann þátt kærunnar er snýr að afhendingarformi er í umsögninni vísað til 18. gr. upplýsingalaga og tekið fram að ákvæðið taki ekki á því þegar um sé að ræða afhendingu gagna sem bundin séu trúnaði og geymi upplýsingar sem beri að afmá. Um afhendingu slíkra gagna sé fjallað í 14. gr. laganna og veiti ákvæðið ákveðið svigrúm til að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar séu til að tryggja öryggi afmáðra upplýsinga.
Þá vísar ríkisskattstjóri til þess að með úrskurði í máli nr. 935/2020 hafi ríkisskattstjóra verið gert að afmá hluta af þeim upplýsingum sem óskað hafi verið eftir með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Þar sem um sé að ræða sömu upplýsingar, þ.e. nafnverð hlutafjár, beri embættinu að fara að niðurstöðu úrskurðarins og afmá umræddar upplýsingar.
Hlutaskrárnar hafi orðið að færa á pappírsform í þeim tilgangi að afmá úr þeim með öruggum hætti þær upplýsingar sem ríkisskattstjóra hafi ekki verið heimilt að veita aðgang að. Ríkisskattstjóri hafi metið það svo að þessi aðferð við útstrikun viðkvæmra upplýsinga væri öruggust þar sem það væri tryggt að ekki væri hægt að afmá útstrikunina. Þá er vísað til þess að gögnin hafi hvorki verið í miklu magni né hafi þau haft að geyma mikinn texta. Öll önnur gögn sem afhent hafi verið hafi verið véllæsileg. Við mat á því hvaða aðferð beri að notast við hvað varðaði útstrikun upplýsinga hafi embættið m.a. farið eftir þeim verklagsreglum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi sett í kjölfar úrskurðar persónuverndar í máli 2014/1470. Þó er tekið fram að ríkisskattstjóri hafi ekki haft aðgang að umræddum verklagsreglum en vísað er til fréttar Ríkisútvarpsins frá 10. janúar 2016 varðandi nánara efni þeirra. Loks er tekið fram að á ríkisskattstjóra hvíli rík skylda til að tryggja öryggi þessara gagna og það sé því mat embættisins að það sé best gert með þeim hætti sem lýst er í umsögninni. Með vísan til þessa verði umrædd gögn því ekki afhent með öðrum hætti en þegar hafi verið gert.
Í athugasemdum kæranda, dags. 13. febrúar 2021, við umsögn ríkisskattstjóra er í fyrsta lagi vísað til rökstuðnings kæranda sem fylgdi beiðni hans um endurupptöku úrskurðar nr. 935/2020. Þar kom fram að upphæðir þær sem koma fram á hlutafjármiðum sýni hlutafjáreign hvers og eins aðila í tilteknu félagi. Þótt ýmsar fjárhagslegar upplýsingar um einstaklinga séu almennt taldar geta verið viðkvæmar, þar á meðal upplýsingar um launakjör, bankaviðskipti og skuldastöðu, hafi slíkt ekki verið talið gilda um hlutabréfaeign. Þvert á móti hafi sjónarmið um gagnsæi í viðskiptum verið talin vega það þungt að upplýsingar um hlutafjáreign eigi að vera aðgengilegar í opinberum gögnum. Fyrirtækjum sé skylt að skila árlega ársreikningi til opinberrar birtingar hjá ársreikningaskrá. Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra haldi utan um ársreikningaskrána, og ársreikningar séu aðgengilegir á vefsvæði embættisins án endurgjalds. Samkvæmt 3. mgr. 65. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga skuli fyrirtæki láta fylgja með ársreikningi skrá yfir nöfn og kennitölur allra hluthafa félagsins í stafrófsröð, ásamt upplýsingum um hlutafjáreign hvers og eins og hundraðshluta hlutafjár í árslok. Upplýsingar um hlutafjáreign hvers einasta hluthafa í tilteknu félagi séu þannig aðgengilegar öllum á vefsíðu fyrirtækjaskrár. Þá var bent á að þar sem umræddar upplýsingar séu nú þegar aðgengilegar almenningi á opnu vefsvæði geti upphæðir á hlutafjármiðum einfaldlega ekki talist viðkvæmar upplýsingar sem falli undir 9. gr. upplýsingalaga.
Hvað varðar þann þátt kærunnar er snýr að afhendingarformi ríkisskattstjóra vísar kærandi til umsagnar hans, dags. 13. febrúar 2021, í tilefni af kæru hans í máli nr. ÚNU20120008 þar sem reyndi á sambærileg atriði. Í þeirri umsögn er áréttuð sú afstaða að afgreiðsla ríkisskattstjóra á beiðni kæranda um gögn samræmist ekki 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga, m.a. eins og henni hafi verið beitt í úrskurðum úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Kærandi telji aðferð ríkisskattstjóra við að afmá umræddar upplýsingar gamaldags og vísar til þess að embættinu hefði verið fært að óska eftir ráðgjöf t.d. frá ráðgjafa um upplýsingarétt almennings, tölvusérfræðingum eða sérfræðingum um gagnaöryggi. Kærandi vísar einnig til þess að þegar viðkvæmar upplýsingar séu afmáðar úr gögnum sé mikilvægt að eins lítið sé hróflað við þeim og mögulegt sé til að þau haldist sem næst upprunalegu formi. Þá telji kærandi nauðsynlegt að árétta að þótt umfang gagna sé takmarkað hafi úrskurður um efnið fordæmisgildi. Í því sambandi bendir kærandi á að hann hafi þegar farið fram á afhendingu og fengið frekari sambærileg gögn frá ríkisskattstjóra en ekki á upprunalegu formi.
Niðurstaða
1.Í máli þessu er í fyrsta lagi deilt um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um hlutafjáreign hvers og eins hluthafa sem afmáðar voru úr gögnum varðandi raunverulegt eignarhald félaganna Samherja ehf., Samherja Holding ehf. og K&B ehf. Synjun ríkisskattstjóra er reist á því að samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar upplýsingamál í máli nr. 935/2020 sé embættinu skylt að afmá upplýsingar um fjárhæðir sem fram koma á hlutafjármiðum einstaklinga, þ. á m. nafnverð hlutafjárins.
Í fyrrgreindum úrskurði úrskurðarnefndarinnar nr. 935/2020 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ríkisskattstjóra væri óheimilt að veita kæranda aðgang að upphæðum á hlutafjármiðum með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Nánar tiltekið var það afstaða úrskurðarnefndarinnar að í þeim fælust upplýsingar um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari. Með úrskurði úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 977/2021 frá 22. febrúar 2021 synjaði úrskurðarnefndin beiðni kæranda um endurupptöku úrskurðarins.
Ljóst er að upplýsingar um nafnverð hlutafjár í eigu einstaklinga sem afmáðar voru úr þeim upplýsingum, sem kærandi fékk afhentar, eru hluti af þeim fjárhæðum sem fram koma á hlutafjármiðum. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin ótvírætt að um sé að ræða upplýsingar sem óheimilt er að veita aðgang að með vísan til 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, sbr. m.a. framangreindan úrskurð úrskurðarnefndarin í máli nr. 935/2020. Með hliðsjón af framangreindu verður hin kærða ákvörðun ríkisskattstjóra staðfest að þessu leyti.
Fyrir liggur að ríkisskattstjóri hefur einnig strikað yfir upplýsingar um nafnverð hlutafjár í eigu lögaðila. Af þessu tilefni tekur nefndin fram að við beitingu ákvæðis 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, er tekur til lögaðila, gera lögin ráð fyrir að metið sé í hverju og einu tilviki hvort viðkomandi upplýsingar varði svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni viðkomandi fyrirtækja eða annarra lögaðila að ætla megi að þær séu til þess fallnar að valda þeim tjóni, verði þær gerðar opinberar. Við framkvæmd slíks mats verður að líta til þess hversu mikið tjónið geti orðið og hversu líklegt það er að tjón muni verða ef aðgangur er veittur að upplýsingunum. Enn fremur verður að líta til eðlis upplýsinganna, framsetningar þeirra og aldurs, svo og hvaða þýðingu þær hafa fyrir þann lögaðila sem um ræðir á þeim tíma er matið fer fram.
Þegar allt þetta hefur verið virt verður að meta hvort vegi þyngra, hagsmunir viðkomandi lögaðila af því að upplýsingunum sé haldið leyndum eða þeir hagsmunir sem meginreglu upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings er ætlað að tryggja. Af gögnum málsins og umsögn ríkisskattstjóra verður ekki séð að lagt hafi verið mat á upplýsingar um einstaka lögaðila í samræmi við ákvæði 2. málsl. áður en strikað var yfir þær upplýsingar og beiðni kæranda þar með synjað. Af þeim sökum er óhjákvæmlegt að vísa þessum þætti málsins til nýrrar meðferðar hjá ríkisskattstjóra.
2.
Í öðru lagi er deilt um hvort ríkisskattstjóra hafi við afhendingu umbeðinna gagna verið heimilt að synja kæranda um afhendingu hluta þeirra á rafrænu formi, nánar tiltekið á því formi sem þau voru upprunalega vistuð á, með það að markmiði að tryggja öryggi gagnanna sem best.
Í 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 segir að heimilt sé að bera synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál sem úrskurði um ágreininginn. Samkvæmt seinni málslið 1. mgr. 20. gr. laganna gildir hið sama um synjun stjórnvalds á beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er.
Í 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga segir að eftir því sem við verði komið skuli veita aðgang að gögnum á því formi eða sniði, og á þeim tungumálum sem þau séu varðveitt á nema þau séu þegar aðgengileg almenningi, sbr. 2. mgr. 19. gr. Þegar gögn séu eingöngu varðveitt á rafrænu formi geti aðili valið á milli þess að fá þau á því formi eða útprentuð á pappír. Í athugasemdum við 1. mgr. 18. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 140/2020 segir eftirfarandi:
„Ákvæði 1. mgr. 18. gr. byggist á því að veita beri aðgang að upplýsingum á því formi eða með því sniði sem þær eru varðveittar á, nema þær séu þegar aðgengilegar almenningi. Af 2. mgr. 19. gr. leiðir síðan að sé beiðni afgreidd með vísan til þess að upplýsingar séu þegar aðgengilegar, þá skal í slíkri afgreiðslu tilgreina nákvæmlega hvar og með hvaða hætti þær eru það. Þegar upplýsingar eru varðveittar á rafrænu formi getur aðili valið á milli þess að fá þær á því formi eða útprentaðar á pappír. Almennt ætti það að vera til hagræðis fyrir þann sem hefur beiðni til afgreiðslu að geta afhent upplýsingar á rafrænu formi, en sé um upplýsingar að ræða sem falla undir 14. gr. frumvarpsins og eru viðkvæmar á einhvern hátt, ber eðli máls samkvæmt að tryggja viðeigandi öryggi þeirra gagnvart óviðkomandi. Þá er tiltekið í ákvæðinu að eftir því sem fært er skuli viðkomandi heimilað að kynna sér gögn á starfsstöð viðkomandi. Ræðst það auðvitað af aðstæðum að hvað marki þessi leið á við.“
Af framangreindu leiðir að ríkisskattstjóra ber að afhenda gögn á rafrænu formi sem varðveitt eru með þeim hætti ef þess er óskað. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tekur fram að þrátt fyrir að ríkisskattstjóri hafi afhent kæranda umbeðin gögn hefur hluti þeirra ekki verið afhentur á því formi sem þau eru varðveitt á hjá embættinu í skilningi 1. mgr. 18. gr. svo sem kærandi fór fram á. Þau gögn sem um ræðir tengjast skráningu raunverulegra eigenda og munu almennt vera varðveitt með rafrænum hætti hjá ríkisskattstjóra, sbr. t.d. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 82/2019, um skráningu raunverulegra eigenda, þar sem segir að málsmeðferð við skráningu upplýsinga um raunverulega eigendur skuli vera rafræn sé þess kostur.
Af hálfu ríkisskattstjóra hefur því verið borið við að ekki sé unnt að tryggja nægjanlega öryggi þeirra upplýsinga í gögnunum sem undirorpnar eru 9. gr. upplýsingalaga með öðrum hætti en gert var við afgreiðslu á beiðni kæranda, þ.e. með því að prenta gögnin út og afmá handvirkt umræddar upplýsingar og loks skanna þau inn í tölvu áður en þau voru send kæranda.
Úrskurðarnefndin tekur fram að vissulega megi fallast á með ríkisskattstjóra að rík skylda hvíli á embættinu að grípa til nauðsynlegra ráðstafana í því skyni að tryggja öryggi upplýsinga sem leynt skulu fara t.d. á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Hins vegar fær úrskurðarnefndin ekki séð að ríkisskattstjóra hafi verið ómögulegt grípa til slíkra ráðstafana í því skyni að tryggja öryggi upplýsinganna en verða jafnframt við beiðni kæranda um afhendingu umræddra gagna á því formi sem þau eru varðveitt á hjá embættinu í samræmi við skýr fyrirmæli 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin horfir í því sambandi til þess að algengt er að stjórnvöld afhendi borgurunum gögn á rafrænu formi þar sem afmáðar eru viðkvæmar upplýsingar sem leynt eiga að fara.
Þá virðist ríkisskattstjóri enn fremur reisa afstöðu sína á verklagsreglum sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu setti starfsemi sinni í kjölfar úrskurðar persónuverndar sem upp var kveðinn árið 2015. Þrátt fyrir að efni verklagsreglnanna kunni að hafa almennt leiðsagnargildi við meðferð persónuupplýsinga áréttar úrskurðarnefndin að slíkar verklagsreglur eru ekki bindandi fyrir ríkisskattstjóra og getur efni þeirra þaðan af síður þokað ákvæðum upplýsingalaga varðandi afhendingu gagna.
Með vísan til þess sem að ofan greinir fellst úrskurðarnefnd um upplýsingamál ekki á að ríkisskattstjóra hafi verið heimilt að synja kæranda um afhendingu hluta af umbeðnum gögnum á því formi sem þau voru varðveitt á. Er það því niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að ríkisskattstjóra beri að afhenda kæranda umbeðin gögn á því formi sem þau eru varðveitt á, þ.e. rafrænu formi. Þessi niðurstaða er í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndarinnar nr. 994/2021 frá 30. mars 2021 þar sem reyndi á sambærileg málsatvik.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 26. nóvember 2020, um að synja beiðni kæranda um afhendingu umbeðinna gagna á því formi sem þau eru varðveitt á er felld úr gildi. Ríkisskattstjóra ber að afhenda umbeðin gögn á því formi sem þau eru varðveitt á, þ.e. rafrænu formi. Ákvörðun ríkisskattstjóra um að strika yfir upplýsingar um nafnverð hlutafjár í eigu lögaðila er felld úr gildi og vísað til nýrrar meðferðar. Að öðru leyti er ákvörðun ríkisskattstjóra staðfest.Hafsteinn Þór Hauksson
formaður
Kjartan Bjarni Björgvinsson Sigríður Árnadóttir