1132/2023. Úrskurður frá 8. mars 2023
Hinn 8. mars 2023 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1132/2023 í máli ÚNU 22060020.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 21. júní 2022, kærði A, f.h. Frigus II ehf., synjun Lindarhvols ehf. á beiðni um gögn.
Kærandi óskaði hinn 6. maí 2022 eftir öllum samskiptum Lindarhvols og/eða fjármála- og efnahagsráðuneytisins við skrifstofu Alþingis, forseta Alþingis, forsætisnefnd Alþingis og Ríkisendurskoðun á árinu 2022 sem vörðuðu greinargerð fyrrum setts ríkisendurskoðanda um málefni Lindarhvols. Hinn 30. maí 2022 afhenti Lindarhvoll kæranda tölvupóst frá félaginu til forseta Alþingis, dags. 20. apríl 2022, og bréf frá félaginu til forsætisnefndar Alþingis, dags. 13. apríl 2022. Samskiptin varða aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda og í þeim leggst Lindarhvoll gegn því að forsætisnefnd verði við beiðni Viðskiptablaðsins um afhendingu greinargerðar setts ríkisendurskoðanda.
Kærandi brást við afhendingu Lindarhvols, þann 1. júní 2022, og óskaði eftir erindi forsætisnefndar Alþingis, dags. 5. apríl 2022, sem vísað var til í hinum afhentu gögnum, enda félli það undir upphaflega beiðni kæranda. Kærandi óskaði jafnframt eftir minnisblöðum MAGNA Lögmanna í tengslum við málið, dags. 16. apríl 2021 og 31. ágúst 2021, sem sömuleiðis var vísað til í hinum afhentu gögnum. Þá var óskað eftir afritum af öllum samskiptum Lindarhvols og/eða fjármála- og efnahagsráðuneytis við skrifstofu Alþingis, forseta Alþingis, Alþingi, forsætisnefnd Alþingis og Ríkisendurskoðun frá árinu 2021 vegna greinargerðar setts ríkisendurskoðanda um málefni Lindarhvols.
Í svari Lindarhvols, dags. 14. júní 2022, kemur í fyrsta lagi fram að láðst hafi að senda kæranda bréf forsætisnefndar Alþingis til Lindarhvols frá 5. apríl 2022, beðist var velvirðingar á því og það afhent. Í öðru lagi hafi verið afhent samskipti Lindarhvols við Alþingi frá árinu 2021, að fylgiskjölum undanskildum en afhendingu vinnuskjals þáverandi setts ríkisendurskoðanda var hafnað. Í þriðja lagi sé um að ræða minnisblað [sic] sem unnið hafi verið fyrir forsætisnefnd í tengslum við ágreining um afhendingu vinnuskjals Ríkisendurskoðunar. Lindarhvoll segir um að ræða skjal sem aflað hafi verið gagngert í tengslum við réttarágreining sem hafi verið til meðferðar hjá forsætisnefnd Alþingis og falli því undir 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Ekki sé forsvaranlegt að beita heimildum 11. gr. laganna vegna minnisblaðsins og því sé synjað um aðgang að því.
Í kæru kemur fram að minnisblöð lögmannsins hafi verið send frá Alþingi til Lindarhvols með erindi, dags. 5. apríl 2022. Þá sé kæranda kunnugt um að þriðja álitsgerðin hafi verið rituð um sama efni en í fundargerð 994. fundar forsætisnefndar Alþingis frá 16. og 17. ágúst 2021 sé vísað til minnisblaðs sama lögmanns, dags. 29. júní 2021. Kærandi telur sig eiga skýran og ótvíræðan rétt til aðgangs að minnisblöðunum.
Kærandi telur umbeðin gögn ekki heyra undir undanþágu 3. mgr. 6. gr. upplýsingalaga. Hann kveður að umbeðinna gagna hafi verið aflað vegna beiðni blaðamanns um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda. Eftir því sem kærandi komist næst fjalli þær ekki um hugsanleg málaferli eða kærumál, eða greiningu á því hvort höfða eigi mál eða fara með málið í annars konar réttarágreining. Hér sé einfaldlega um að ræða lögfræðilega greiningu á því hvort afhenda eigi gagn til blaðamanns. Um sé að ræða hefðbundna málsmeðferð hjá hinu opinbera í samskiptum við blaðamann. Að lokum vekur kærandi athygli á því að um sé að ræða álitsgerðir sem sendar hafi verið þriðja aðila, m.a. Lindarhvoli, og því ekki um að ræða álitsgerðir sem nota hafi átt við mat á málshöfðun eða annars konar kærumeðferð enda ljóst að Lindarhvoll yrði ekki aðili að slíku máli.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Lindarhvoli með erindi, dags. 23. júní 2022, og félaginu veittur kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Jafnframt var þess óskað að Lindarhvoll léti úrskurðarnefnd um upplýsingamál í té afrit af þeim gögnum sem kæran lýtur að.
Umsögn Lindarhvols barst úrskurðarnefndinni hinn 8. júlí 2022, ásamt minnisblaði lögmanns hjá MAGNA Lögmönnum, dags. 16. apríl 2021 og álitsgerð sem minnisblaðinu fylgir, auk minnisblaðs sama lögmanns, dags. 31. ágúst 2021. Lindarhvoll kvað engin frekari minnisblöð hafa borist, hvorki félaginu sjálfu né fjármála- og efnahagsráðuneytinu, þannig sé þriðja minnisblaðið sem kærandi vísar til í kæru ekki fyrirliggjandi.
Lindarhvoll vísar í 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, þar sem segir að bréfaskipti við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining séu undanþegin upplýsingarétti laganna. Þá komi fram í athugasemdum við 4. gr. frumvarps sem varð að breytingum á upplýsingalögum árið 2019 að undanþágunni verði beitt „um samskipti sem verða gagngert til í tengslum við réttarágreining sem er til meðferðar hjá lög- eða samningsbundnum úrskurðaraðila“. Líkt og fram komi í hinni kærðu ákvörðun sé um að ræða minnisblöð sem unnin hafi verið fyrir forsætisnefnd Alþingis í tengslum við ágreining um afhendingu vinnuskjals sem Alþingi hafði undir höndum. Minnisblaðanna hafi verið aflað gagngert í tengslum við réttarágreining sem var til meðferðar hjá forsætisnefnd Alþingis. Lindarhvoll vísar auk þess í 2. mgr. 5. gr. reglna um aðgang að gögnum um stjórnsýslu Alþingis þar sem kemur fram að forsætisnefnd Alþingis skeri úr um ágreining um aðgang að gögnum um stjórnsýslu Alþingis.
Umsögn Lindarhvols var kynnt kæranda með bréfi, dags. 8. júlí 2022, og honum veittur kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Í athugasemdum sínum, dags. 18. júlí 2022, áréttar kærandi rökstuðning sem fram kemur í kæru. Kærandi mótmælir því að umbeðin álitsgerð verði felld undir undanþáguákvæði 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga og bendir á að í athugasemdum við 4. gr. í greinargerð sem fylgdi frumvarpi til laga nr. 72/2019 verði undanþáguákvæðinu aðeins beitt um gögn sem verða til eða aflað er gagngert í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað.
Kærandi telur rangt að umrædd gögn hafi orðið til í tengslum við réttarágreining í skilningi ákvæðisins. Með 4. gr. laga nr. 72/2019 hafi gildissvið 3. tölul. 6. gr. verið útvíkkað þannig að það næði einnig gagna sem aflað væri í tengslum við „réttarágreining“ en áður hafi undanþáguákvæðið aðeins náð til samskipta sem aflað hafi verið í tengslum við dómsmál og höfðun þess. Í skýringum við ákvæðið komi fram að réttarágreiningur hins opinbera væri oft útkljáður með öðrum hætti en málshöfðun fyrir dómi, til að mynda fyrir sjálfstæðum úrskurðarnefndum. Því væri rétt að breyta orðalagi 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þannig að opinberir aðilar gætu átt samskipti við sérfræðinga í tengslum við slíka málsmeðferð án þess að gagnaðili fengi aðgang að þeim. Kærandi segir að við túlkun undanþáguákvæðis 3. tölul. 6. gr. verði að líta til athugasemda við 6. gr. í greinargerð sem fylgdi frumvarpi til upplýsingalaga nr. 140/2012, þar sem fjallað er um tilgang og markmið undanþáguákvæðisins. Þar komi skýrt fram að markmið undanþáguákvæðisins sé að tryggja jafnræði opinberra aðila í dómsmáli eða í tengslum við réttarágreining sem leystur er með öðrum hætti, til að mynda fyrir sjálfstæðum kærunefndum.
Samkvæmt athugasemdum kæranda liggur fyrir að forsætisnefnd Alþingis aflaði umbeðinnar álitsgerðar lögmannsstofunnar í tengslum við meðferð máls fyrir nefndinni sem laut að því hvort veita ætti aðgang að gagni í vörslum Alþingis. Þar af leiðandi sé um að ræða gagn sem aflað var sem þáttar af rannsókn forsætisnefndar við meðferð þess máls. Það sé því ljóst að álitsgerðarinnar hafi hvorki verið aflað í tengslum við hugsanlegt dómsmál kæranda og Alþingis né í tengslum við málskot kæranda vegna afgreiðslu forsætisnefndar. Í þessu máli séu þeir hagsmunir, að tryggja jafnræði opinberra aðila í tengslum við réttarágreining, ekki fyrir hendi. Ekki sé hægt að túlka 3. tölul. 6. gr. svo víðtækt að ákvæðið taki til álitsgerða sem opinber aðili, í þessu tilfelli forsætisnefnd Alþingis, afli í tengslum við meðferð máls sem varðar rétt til aðgangs að gögnum enda færi slík túlkun gegn markmiði undanþáguákvæðisins eins og því er lýst í greinargerð með lögum nr. 140/2012. Þá sé um að ræða undanþáguákvæði frá meginreglunni um upplýsingarétt almennings sem túlka beri þröngri lögskýringu. Kærandi segir að ákveðins misskilnings virðist gæta í málinu, ef horft sé til fundargerða forsætisnefndar Alþingis komi skýrt fram að þessara minnisblaða sé aflað gagngert til ráðgjafar en ekki vegna ágreinings um afhendingu. Það komi skýrt fram í fundargerð 979. fundar forsætisnefndar.
Kærandi undirstrikar að ekki sé hægt að undanskilja gögn upplýsingarétti á grundvelli ákvæðisins nema umrædd gögn fjalli beinlínis um hvort höfða eigi mál eða undirbúning kærumeðferðar, gögnin geti ekki verið liður í málsmeðferð almennt eins og um sé að ræða í þessu tilviki. Kærandi telur vísun Lindarhvols í 2. mgr. 5. gr. reglna um aðgang að gögnum um stjórnsýslu Alþingis enga þýðingu hafa í þessu samhengi. Ekki sé ágreiningur um hvaða aðili það er sem skeri úr um aðgang að gögnum. Það sem skipti höfuðmáli í þessu samhengi sé að umrædd álitsgerð hafi verið hluti af málsmeðferð, en innihaldi ekki greiningu á því hvort höfða eigi mál eða hvort fara eigi með mál í annars konar kærumeðferð.
Niðurstaða
1.
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að tveimur minnisblöðum frá MAGNA Lögmönnum ehf. til forsætisnefndar Alþingis, dags. 16. apríl og 31. ágúst 2021, en fyrra minnisblaðinu fylgir 37 blaðsíðna álitsgerð dagsett sama dag. Í kæru segir að til sé þriðja minnisblað frá sömu stofu sem dagsett sé 29. júní 2021. Lindarhvoll segir í umsögn sinni um kæruna að slíkt minnisblað sé hvorki fyrirliggjandi hjá félaginu né fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til þess að rengja þær staðhæfingar Lindarhvols og verður frávísun Lindarhvols á þeim hluta beiðninnar því staðfest.
Lindarhvoll ehf. fellur undir gildissvið upplýsingalaga á grundvelli 2. mgr. 2. gr. laganna, og nýtur ekki undanþágu frá gildissviði þeirra, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Synjun Lindarhvols að því er varðar minnisblöðin tvö byggir á því að þeirra hafi verið aflað í tengslum við réttarágreining sem hafi þá verið til meðferðar hjá forsætisnefnd Alþingis, nánar tiltekið ágreinings um það hvort afhenda ætti blaðamanni greinargerð setts ríkisendurskoðanda, Sigurðar Þórðarsonar, frá júlí 2018 sem nefndin hafði til umfjöllunar. Með bréfum forseta Alþingis til Lindarhvols, dags. 28. apríl og 4. júní 2021, var Lindarhvoll upplýstur um að forsætisnefnd hefði borist beiðni um afhendingu greinargerðarinnar og að nefndin hygðist afhenda hana. Áður en til þess kæmi skoraði nefndin hins vegar á Lindarhvol, með vísan til 2. mgr. 17. gr. upplýsingalaga, að lýsa afstöðu sinni til afhendingarinnar, enda fjallaði hún um málefni félagsins. Lindarhvoll lagðist gegn því, í bréfum til forsætisnefndar, dags. 22. júní og 11. maí 2021, að greinargerðin yrði afhent. Með erindi, dags. 5. apríl 2022, var Lindarhvoli tilkynnt að forsætisnefnd hygðist afhenda blaðamanninum greinargerðina þann 25. apríl 2022 kl. 12:00 og að nefndin hefði við mat sitt á því hvort greinargerðin geymdi upplýsingar sem kæmu í veg fyrir afhendingu hennar notið aðstoðar frá MAGNA Lögmönnum. Þá fékk Lindarhvoll afrit af minnisblaði lögmannsins, dags. 31. ágúst 2021.
2.
Samkvæmt 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 nær réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til bréfaskipta við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til upplýsingalaga segir:
Hér að baki býr það sjónarmið að hið opinbera geti, á sama hátt og hver annar aðili að dómsmáli, leitað ráðgjafar sérfróðra aðila án þess að þær upplýsingar sem þannig er aflað komist til vitundar gagnaðila. Ber að túlka ákvæðið þannig að það tryggi að hið opinbera standi ekki vegna upplýsingalaga höllum fæti í dómsmálum. Undanþágunni verður aðeins beitt um gögn sem verða til eða aflað er gagngert í þessu skyni og tekur því t.d. ekki til álitsgerða eða skýrslna sérfræðinga sem aflað er við meðferð stjórnsýslumála almennt. Hliðstæð undanþága frá upplýsingarétti aðila máls er í stjórnsýslulögum.
Ákvæði 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga var breytt með lögum nr. 72/2019 og gildissvið þess útvíkkað svo það tæki auk dómsmála til annars réttarágreinings. Í athugasemdum við frumvarp það er varð að fyrrnefndum breytingarlögum segir um þetta:
Í ljósi þess að ýmiss konar réttarágreiningur hins opinbera er útkljáður með öðrum hætti en málshöfðun fyrir dómi, til að mynda fyrir sjálfstæðum úrskurðarnefndum, þykir rétt að breyta orðalagi 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þannig að opinberir aðilar geti átt samskipti við sérfræðinga í tengslum við slíka málsmeðferð án þess að gagnaðili fái aðgang að þeim. Ítreka skal að verði frumvarpið að lögum verður áfram gerð sú krafa að undanþágunni verði aðeins beitt um gögn sem verða til eða aflað er gagngert í þessu skyni en ekki um álitsgerðir eða skýrslur sem aflað er við meðferð stjórnsýslumála almennt.
Þá segir:
Opinberir aðilar hafa augljósa hagsmuni af því að geta átt samskipti við sérfræðinga, t.d. lögmenn, í tengslum við slíka málsmeðferð án þess að gagnaðili fái aðgang að upplýsingum um þau. Þó ber að árétta að undanþáguna bæri að skýra þröngri lögskýringu með hliðsjón af meginreglu um upplýsingarétt almennings eins og aðrar undanþágur og takmörkunarheimildir upplýsingalaga. Henni yrði þannig aðeins beitt um upplýsingar um samskipti sem verða gagngert til í tengslum við réttarágreining sem er til meðferðar hjá lög- eða samningsbundnum úrskurðaraðila eða til greina kemur að vísa til slíkrar meðferðar. Með hliðsjón af 1. mgr. 11. gr. upplýsingalaga verður líka að gera þá kröfu að aðgangur að umbeðnum upplýsingum myndi að öllum líkindum leiða til skerðingar á réttarstöðu hins opinbera aðila sem um ræðir.
Samkvæmt 4. mgr. 2. gr. upplýsingalaga taka lögin til stjórnsýslu Alþingis eins og nánar er afmarkað í lögum um þingsköp Alþingis og reglum forsætisnefndar sem settar eru á grundvelli þeirra. Hins vegar taka ákvæði V.–VII. kafla upplýsingalaga ekki til Alþingis eða stofnana þess. Þannig verður synjun Alþingis á beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum ekki borin undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál, sbr. 20. gr. laganna.
Samkvæmt 9. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, ber forseti Alþingis ábyrgð á rekstri þingsins og hefur æðsta vald í stjórnsýslu þess. Í 2. mgr. 93. gr. laganna segir eftirfarandi um aðgang að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum:
Í reglum sem forsætisnefnd setur og birta skal í B-deild Stjórnartíðinda skal kveðið nánar á um aðgang að upplýsingum um stjórnsýslu Alþingis og um afmörkun hennar gagnvart þeirri starfsemi sem annars fer fram af hálfu Alþingis sem samkomu þjóðkjörinna fulltrúa. Í reglum forsætisnefndar skal jafnframt kveðið á um móttöku og meðferð beiðna um upplýsingar. Má í slíkum reglum ákveða að beiðnum um upplýsingar skuli beint til skrifstofu Alþingis og að synjun um aðgang að gögnum verði skotið til forsætisnefndar eða þriggja manna nefndar utanþingsmanna sem forsætisnefnd skipar.
Forsætisnefnd hefur sett reglur um aðgang að gögnum um stjórnsýslu Alþingis, nr. 90/2020. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglnanna skal beiðnum um upplýsingar beint til skrifstofu Alþingis en „synjun um aðgang að gögnum má bera undir forsætisnefnd.“ Ekki er nánar fjallað um málsmeðferð nefndarinnar í reglunum.
Með lögum nr. 72/2019 var gildissvið 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga útvíkkað til þess að ná ekki einungis til dómsmála heldur einnig réttarágreinings sem útkljáður er fyrir lög- eða samningsbundnum úrskurðaraðilum. Af lögskýringargögnum er hins vegar skýrt að ætlunin var ekki sú að ákvæðið næði utan um álitsgerðir eða minnisblöð sem eru hluti af almennri málsmeðferð stjórnvalda, þó að vissulega geti komið upp ágreiningsefni af ýmsu tagi í málsmeðferð stjórnvalda almennt. Nefndin áréttar að ákvæði 3. tölul. 6. gr. felur í sér undantekningu frá meginreglu 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings og ber því að túlka ákvæðið þröngri lögskýringu og hafa hliðsjón af markmiði undantekningarinnar sem er að tryggja jafnræði á milli aðila máls, komi til dómsmáls eða málsmeðferðar fyrir lögbundnum úrskurðaraðila. Til þess að beita megi undanþágunni þurfa aðstæður því að vera þannig að afhending gagnanna myndi raska jafnræði á milli hins opinbera aðila og gagnaðila þess eða að hið opinbera stæði höllum fæti í sínum málarekstri væri því gert að afhenda upplýsingarnar (sjá til hliðsjónar úrskurði nefndarinnar nr. 317/2009 og 700/2017).
Forsætisnefnd Alþingis óskaði eftir áliti lögmanns og studdist við ráðgjöf hans í sinni ákvarðanatöku við afgreiðslu máls. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur kynnt sér efni minnisblaðanna tveggja ásamt álitsgerðinni sem fylgdi fyrra minnisblaðinu. Í fyrsta hluta fyrra minnisblaðsins, þar sem fjallað er um tilefni og afmörkun þess, kemur fram að lögmanninum hafi verið falið að „veita forsætisnefnd ráðgjöf í tengslum við meðferð og úrlausn kæru Viðskiptablaðsins til nefndarinnar.“ Minnisblaðið var því ritað í kjölfar þess að blaðamaðurinn bar synjun skrifstofu Alþingis um aðgang að greinargerð ríkisendurskoðanda undir forsætisnefnd Alþingis. Í minnisblaðinu er farið yfir atvik málsins og allar helstu réttarreglur og sjónarmið sem við eiga þegar lagt er mat á það hvort Alþingi sé skylt að veita aðgang að greinargerðinni.
Þó að sannarlega hafi verið uppi ágreiningur um afgreiðslu upplýsingabeiðninnar og blaðamaðurinn sem óskað hafði eftir greinargerðinni hafi vísað málinu til forsætisnefndar, í kjölfar synjunar skrifstofu Alþingis, er að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál ekki um að ræða atvik sem leggja má til jafns við málshöfðun til dómstóla eða málskot til sjálfstæðrar kærunefndar í skilningi 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Forsætisnefnd Alþingis er ekki sjálfstæður úrskurðaraðili, enda fjallar hún um hvort Alþingi eigi sjálft að verða við beiðni um aðgang að á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin bendir jafnframt á að Lindarhvoll var ekki aðili að þeim ágreiningi sem var á milli blaðamannsins og forsætisnefndar, heldur fékk félagið afrit af skýrslunni, til upplýsingar, sem þriðji aðili.
Að öllu framangreindu virtu verða minnisblöðin ekki felld undir undanþágu 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga og verður ákvörðun Lindarhvols því felld úr gildi og félaginu gert að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.
Úrskurðarorð
Lindarhvoli ehf. er skylt að veita Frigus II ehf. aðgang að minnisblöðum frá MAGNA Lögmönnum ehf. til forsætisnefndar Alþingis, dags. 16. apríl og 31. ágúst 2021, ásamt álitsgerð þeirri sem fylgdi fyrra minnisblaðinu. Staðfest er frávísun Lindarhvols á beiðni um minnisblað, dags. 29. júní 2021.
Hafsteinn Þór Hauksson, formaður
Kjartan Bjarni Björgvinsson
Sigríður Árnadóttir