1192/2024. Úrskurður frá 5. júní 2024
Hinn 5. júní 2024 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1192/2024 í máli ÚNU 24040007.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Þann 10. apríl 2024 sendi félagið Vinnuverndarnámskeið ehf. erindi til úrskurðarnefndar um upplýsingamál þar sem farið var fram á aðstoð nefndarinnar við að fá svar frá Vinnueftirlitinu við erindi félagsins. Liðnir væru fleiri en 30 virkir dagar frá því erindið var sent.
Með hliðsjón af 17. gr. og 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga ber úrskurðarnefndinni að taka erindi félagsins Vinnuverndarnámskeið ehf. fyrir sem stjórnsýslukæru.
Aðdragandi málsins er sá að með erindi kæranda til Vinnueftirlitsins, dags. 26. febrúar 2024, lýsti félagið áhuga á að kaupa vinnuvélaherma Vinnueftirlitsins. Þá spurði kærandi hvort hermarnir hefðu verið mikið notaðir undanfarið. Kæran var kynnt Vinnueftirlitinu með erindi, dags. 11. apríl 2024. Umsögn stofnunarinnar barst úrskurðarnefndinni 18. apríl 2024. Í henni kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að erindi kæranda rúmist ekki innan gildissviðs upplýsingalaga, þar sem ekki sé óskað aðgangs að fyrirliggjandi gögnum heldur eftir afstöðu stofnunarinnar til nánar tilgreindra atriða. Umsögn Vinnueftirlitsins var kynnt kæranda með erindi, dags. 24. apríl 2024. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda.
Niðurstaða
Upplýsingaréttur almennings tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Þegar aðili sem heyrir undir gildissvið laganna tekur á móti erindi sem ber með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum á hann að athuga hvort fyrir liggi annaðhvort þau gögn sem beinlínis er óskað eftir eða gögn sem innihalda þær upplýsingar sem tilgreindar eru í beiðninni, og taka ákvörðun um hvort aðgangur að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga verði veittur.
Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda til að svara erindum sem bera ekki með sér að vera beiðnir um aðgang að gögnum. Ekki er útilokað að skylt kunni að vera að bregðast við slíkum erindum, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leiðbeiningarreglu þess efnis að stjórnvöldum sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það ekki hlutverk úrskurðarnefndar um upplýsingamál að skera úr um rétt beiðanda til að fá svar við slíku erindi, sbr. 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga, sbr. og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, eða ágreining um það hvort erindinu hafi verið svarað með fullnægjandi hætti, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga, enda byggja framangreindar kæruheimildir á því að beðið hafi verið um aðgang að gögnum.
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir erindi kæranda til Vinnueftirlitsins og telur erindið ekki bera með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga, heldur beiðni um viðbrögð stofnunarinnar við ósk kæranda um að kaupa vinnuvélaherma Vinnueftirlitsins. Kærunni verður því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Úrskurðarorð
Kæru Vinnuverndarnámskeiða ehf., dags. 10. apríl 2024, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir