1217/2024. Úrskurður frá 25. september 2024
Hinn 25. september 2024 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1217/2024 í máli ÚNU 24040002.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 22. apríl 2024, kærði […] ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. að synja beiðni um aðgang að ráðningarsamningum framkvæmdastjóra félagsins og útgerðarstjóra þess. Beiðnin var lögð fram 4. mars 2024 og henni synjað 16. apríl sama ár, með þeim rökum að gögnin féllu undir 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og félaginu væri heimilt að takmarka aðgang kæranda að þeim. Í kæru er rakið að um sé að ræða tvo æðstu embættismenn félags sem sé alfarið í eigu Vestmannaeyjabæjar. Til samanburðar gefi sveitarfélagið upp laun og samninga sinna æðstu manna.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi með erindi, dags. 24. apríl 2024, og félaginu veittur kostur á að koma á framfæri umsögn um hana. Jafnframt var þess óskað að úrskurðarnefnd um upplýsingamál yrði látið í té afrit af þeim gögnum sem kæran lýtur að.
Umsögn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs barst úrskurðarnefndinni 6. maí 2024. Þau gögn sem deilt er um aðgang að í málinu bárust nefndinni 15. maí 2024. Í umsögninni kemur fram að úrskurðarnefndin hafi í eldri málum staðfest ákvarðanir félagsins að synja beiðnum um aðgang að ráðningarsamningum starfsmanna þess.
Umsögn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs var kynnt kæranda með erindi, dags. 13. maí 2024, og honum veittur kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust 23. maí 2024. Í þeim tiltekur kærandi að það eigi að vera hindrunarlaust að fá upplýsingar um laun æðstu stjórnenda félagsins.
Niðurstaða
1.
Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningum framkvæmdastjóra og útgerðarstjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. Ákvörðun félagsins er byggð á því að gögnin falli undir 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og verði ekki afhent. Ákvæðið hljóðar svo:
Réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lög þessi taka til skv. 2. gr. tekur ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti.
Í athugasemdum við 7. gr. með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að með gögnum í málum sem varða starfssambandið sé átt við gögn í málum þar sem teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur starfsmanna, t.d. mál þar starfsmaður hefur þurft að sæta frádrætti frá launum, ákvarðanir stjórnenda um sveigjanlegan vinnutíma og um aukastörf, og enn fremur mál er lúta að aðfinnslum og áminningu eða eftir atvikum starfslokum.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál telur að gögn í málum einstakra starfsmanna sem varða ráðningu þeirra í starf teljist einnig varða starfssambandið í skilningi 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Ráðningarsamningur viðkomandi starfsmanns er gagn í slíku máli og verður því að telja að aðila sem heyrir undir gildissvið upplýsingalaga sé almennt heimilt að takmarka aðgang að slíkum samningi.
2.
Samkvæmt 2. tölul. 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga ber lögaðila sem fellur undir gildissvið laganna að veita almenningi upplýsingar um launakjör æðstu stjórnenda og menntun þeirra. Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fellur undir gildissvið upplýsingalaga, sbr. 2. mgr. 2. gr. laganna. Þá hefur úrskurðarnefndin áður komist að þeirri niðurstöðu að framkvæmdastjóri félagsins teljist til æðstu stjórnenda þess, sbr. úrskurð nr. 860/2019. Samkvæmt því er ljóst að almenningur á rétt til aðgangs að upplýsingum um launakjör framkvæmdastjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.
Við mat á því hvort útgerðarstjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs teljist til æðstu stjórnenda félagsins er til þess að líta að hvorki er í upplýsingalögum, nr. 140/2012, né lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, fjallað um það hverjir teljist til æðstu stjórnenda lögaðila sem falla undir gildissvið upplýsingalaga, sbr. 2. mgr. 2. gr. laganna. Með hliðsjón af orðalagi ákvæða upplýsingalaga og sjónarmiðum sem lýst er í athugasemdum um 7. gr. með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, verður að mati úrskurðarnefndarinnar að leggja til grundvallar að með orðasambandinu „æðstu stjórnendur“ sé almennt átt við þá einstaklinga sem eru í fyrirsvari fyrir einstakar ríkisstofnanir og sveitarfélög, með þeirri undantekningu að skrifstofustjórar í Stjórnarráðinu og æðstu stjórnendur sveitarfélaga falli einnig undir ákvæðið.
Við túlkun orðasambandsins „æðstu stjórnendur“ að þessu leyti verður enn fremur að hafa í huga þá almennu og skýru stefnumörkun sem byggt var á við setningu upplýsingalaga, nr. 140/2012, um að réttur almennings til aðgangs að gögnum næði ekki til gagna sem tengdust málefnum starfsmanna, sbr. 4. tölul. 6. gr. og 7. gr. laganna.
Úrskurðarnefndin leggur til grundvallar að í tilviki opinberra hlutafélaga falli forstjórar og eftir atvikum framkvæmdastjórar undir orðasambandið „æðstu stjórnendur“ í skilningi upplýsingalaga, sbr. IX. kafla laga um hlutafélög. Í því sambandi kann þá einnig að vera rétt að horfa til þess hvernig stjórnskipulagi viðkomandi lögaðila er háttað.
Á grundvelli 79. gr. a laga um hlutafélög hefur Vestmannaeyjaferjan Herjólfur sett sér starfskjarastefnu, sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins 27. maí 2020 og birt er á vef félagsins. Í 2. gr. stefnunnar er fjallað um starfskjör stjórnarmanna og nefndarmanna, og í 3. gr. stefnunnar er fjallað um starfskjör framkvæmdastjóra. Þá er í 4. gr. tilgreint að gera skuli skriflega og ótímabundna ráðningarsamninga við „aðra æðstu stjórnendur“ félagsins. Samkvæmt 5. gr. stefnunnar skal útbúa skýrslu um framkvæmd gildandi starfskjarastefnu fyrir liðið fjárhagsár. Í henni skal koma fram yfirlit yfir allar greiðslur launa og hvers kyns hlunnindi til stjórnarmanna, nefndarmanna og „æðstu stjórnenda“ félagsins.
Í skýrslu félagsins um framkvæmd starfskjarastefnu fyrir árið 2023 eru tilgreind starfskjör stjórnar félagsins og framkvæmdastjóra þess. Í skýringum frá Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi hefur komið fram að ekki hafi verið skilgreint hverjir, ef einhverjir, teljist til „annarra æðstu stjórnenda“ í skilningi 4. gr. starfskjarastefnu félagsins. Í ljósi þessa, sem og þeirra atriða sem rakin eru hér að framan, metur úrskurðarnefndin það svo að útgerðarstjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs teljist ekki til æðstu stjórnenda félagsins með þeim hætti að félaginu sé skylt að veita aðgang að launakjörum hans samkvæmt 2. tölul. 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga.
3.
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir þau gögn sem kæran lýtur að og telur að Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi hafi verið heimilt að hafna beiðni kæranda um aðgang að þeim ráðningarsamningum sem óskað var eftir. Í 7.–9. gr. ráðningarsamnings framkvæmdastjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs, sem gerður var í desember 2020, eru hins vegar ákvæði um laun, önnur kjör og fríðindi. Með vísan til þess að framkvæmdastjórinn telst til æðstu stjórnenda félagsins verður að telja að kærandi eigi rétt til aðgangs að þessum upplýsingum. Þótt úrskurðarnefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að aðilum sem heyra undir gildissvið upplýsingalaga sé almennt heimilt að takmarka aðgang að ráðningarsamningum þarf að horfa til þess að ef ákvæði 6.–10. gr. upplýsingalaga um takmarkanir á upplýsingarétti eiga aðeins við um hluta gagns skal veita aðgang að öðrum hlutum þess, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Verður því að ætla að ef ráðningarsamningur inniheldur þær upplýsingar sem getið er um í 2. tölul. 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga sé lögaðila skylt að afhenda þann hluta ráðningarsamningsins sem hefur að geyma upplýsingarnar. Því telur úrskurðarnefndin að Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi sé skylt að afhenda kæranda þann hluta ráðningarsamningsins sem hefur að geyma upplýsingar um launakjör framkvæmdastjóra félagsins. Að öðru leyti verður ákvörðun félagsins að hafna beiðni kæranda staðfest.
Úrskurðarorð
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf. skal veita kæranda, […], aðgang að upplýsingum um launakjör framkvæmdastjóra félagsins sem finna má í 7.–9. gr. ráðningarsamnings hans, dags. 18. desember 2020. Að öðru leyti er ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf., dags. 16. apríl 2024, staðfest.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir