1246/2025. Úrskurður frá 28. janúar 2025
Hinn 28. janúar 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1246/2025 í máli ÚNU 24120010.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 21. desember 2024, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál tafir á afgreiðslu Garðabæjar á fyrirspurn hans. Fyrirspurninni sem um ræðir, dags. 11. nóvember 2024, var beint til bæjarstjóra Garðabæjar og er svohljóðandi:
[…]
Kærandi ítrekaði fyrirspurnina samdægurs og aftur dagana 23. og 30. nóvember 2024.
Niðurstaða
Upplýsingaréttur almennings tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Þegar aðili sem heyrir undir gildissvið laganna tekur á móti erindi sem ber með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum á hann að athuga hvort fyrir liggi annaðhvort þau gögn sem beinlínis er óskað eftir eða gögn sem innihalda þær upplýsingar sem tilgreindar eru í beiðninni, og taka ákvörðun um hvort aðgangur að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga verði veittur.
Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda til að svara erindum sem bera ekki með sér að vera beiðnir um aðgang að gögnum. Ekki er útilokað að skylt kunni að vera að bregðast við slíkum erindum, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leiðbeiningarreglu þess efnis að stjórnvöldum sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það ekki hlutverk úrskurðarnefndar um upplýsingamál að skera úr um rétt beiðanda til að fá svar við slíku erindi eða ágreining um það hvort erindinu hafi verið svarað með fullnægjandi hætti, enda byggja kæruheimildir til nefndarinnar í upplýsingalögum á því að beðið hafi verið um aðgang að gögnum, sbr. 3. mgr. 17. gr. og 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga. Þá þarf og að liggja fyrir beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum til að kæru, vegna óhóflegs dráttar á afgreiðslu máls samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, teljist réttilega beint til úrskurðarnefndarinnar.
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir erindi kæranda til bæjarstjóra Garðabæjar og telur erindið ekki bera með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga heldur beiðni um skýringar á ákveðnum atriðum sem tilgreind eru í beiðninni og ósk um afstöðu bæjarstjóra til þeirra. Af þeim sökum er óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kæru […], dags. 21. desember 2024, vegna tafa á afgreiðslu Garðabæjar á fyrirspurn hans er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Símon Sigvaldason
Sigríður Árnadóttir