Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

1193/2024. Úrskurður frá 5. júní 2024

Hinn 5. júní 2024 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1193/2024 í máli ÚNU 24040010.
 

Kæra og málsatvik

Þann 8. apríl 2024 sendi félagið Vinnuverndarnámskeið ehf. erindi til úrskurðarnefndar um upplýs­inga­mál þar sem farið var fram á aðstoð nefndarinnar við að fá svar frá Vinnueftirlitinu við erindi fél­ags­ins. Liðnir væru fleiri en 30 virkir dagar frá því erindið var sent.
 
Með hliðsjón af 17. gr. og 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga ber úrskurðarnefndinni að taka erindi félagsins Vinnu­verndarnámskeið ehf. fyrir sem stjórnsýslukæru. 
 
Aðdragandi málsins er sá að með erindi kæranda til Vinnueftirlitsins, dags. 21. febrúar 2024, vakti hann at­hygli á því að það væri mis­ræmi í því hvernig for­varnir væru skilgreindar af Vinnueftirlitinu, annars veg­ar í kennslu­efni á námskeiðinu „Nám til viður­kenningar í vinnuvernd“ og hins vegar í bæklingi Vinnu­eftir­litsins frá 2018. Þá sýndist kæranda að skilgreiningarnar tvær útilokuðu hvor aðra. Loks ósk­aði kærandi upplýs­inga um það hvaða eldri bæklingar Vinnueftirlitsins væru þess eðlis að hafa þyrfti á fyrirvara um útgáfu­ár við lestur þeirra.
 

Niðurstaða

Upplýsingaréttur almennings tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til aðgangs að fyrir­liggj­andi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Þegar aðili sem heyrir undir gildis­svið laganna tekur á móti erindi sem ber með sér að vera beiðni um aðgang að gögn­um á hann að athuga hvort fyrir liggi annaðhvort þau gögn sem beinlínis er óskað eftir eða gögn sem innihalda þær upplýsingar sem tilgreindar eru í beiðninni, og taka ákvörðun um hvort aðgangur að gögn­un­um á grundvelli upplýsingalaga verði veittur.
 
Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda til að svara erindum sem bera ekki með sér að vera beiðnir um að­gang að gögnum. Ekki er útilokað að skylt kunni að vera að bregðast við slíkum erind­um, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leið­beiningar­reglu þess efnis að stjórn­völd­um sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauð­synlega aðstoð og leið­beiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það ekki hlutverk úrskurðarnefndar um upp­lýs­inga­­mál að skera úr um rétt beiðanda til að fá svar við slíku erindi, sbr. 3. mgr. 17. gr. upp­lýs­inga­laga, sbr. og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, eða ágrein­ing um það hvort erindinu hafi verið svarað með full­nægj­andi hætti, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga, enda byggja framangreindar kæruheimildir á því að beð­ið hafi verið um aðgang að gögnum.
 
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir erindi kæranda til Vinnueftirlitsins. Eins og efni þess ber með sér þá felst ekki í því beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga heldur ábending og fyrirspurn um kennsluefni og bæklinga frá stofnuninni. Af þeim sökum verður kærunni vísað frá úrskurðar­nefnd­inni.
 

Úrskurðarorð

Kæru Vinnuverndarnámskeiða ehf., dags. 8. apríl 2024, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum