Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 760/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. desember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 760/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23120001 og KNU23120002

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í málum […], […] og barns þeirra

 

I.        Málsatvik

Hinn 23. nóvember 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 10. júlí 2023, um að umsóknir […], fd. […], ríkisborgari Íran og […], fd. […], ríkisborgari Íran, og barns þeirra, […], fd. […], ríkisborgari Íran, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þau yrðu endursend til Ítalíu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðilum 24. nóvember 2023 og 30. nóvember 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar ásamt greinargerð.

Aðilar krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sín fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður aðila

Aðilar byggja beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að þau hyggist höfða mál fyrir dómstólum og krefjast ógildingar á úrskurðum kærunefndar útlendinga í málum þeirra. Aðilar vísa til 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þess að kærunefnd útlendingamála geti ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Að mati aðila séu fyrir hendi sjónarmið í málum þeirra sem styðji að víkja eigi frá meginreglunni um framkvæmd ákvörðunar. Aðilar leggi áherslu á að fara þurfi fram heildarmat á aðstæðum þeirra með hliðsjón af málsmeðferð umsókna þeirra. Aðilar greina frá því að í úrskurði kærunefndar komi fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar hafi verið birtar aðilum 12. júlí 2023. Hins vegar hafi þeim ekki verið birtar ákvarðanirnar á þeim tíma þar sem löglærður talsmaður þeirra hafi vanrækt að birta þeim ákvarðanirnar á lægra stjórnsýslustigi. Fengin hafi verið nýr talsmaður til þess að skila greinargerð til kærunefndar og skilaði hann þeim 19. október 2023 ásamt fylgiskjölum. Framangreind málsmeðferð á máli þeirra feli í sér annmarka á málsmeðferð þar sem þau hafi ekki notið aðstoðar talsmanns sem þau hafi samþykkt til verksins. Þá hafi talsmaður aðila hjá kærunefnd ekki verið viðstaddur viðtal þeirra hjá Útlendingastofnun og hafi því ekki getað gætt hagsmuna þeirra í hvívetna. Aðilar telja að í málsmeðferð þeirra hafi falist brot gegn 9., 13. og 14. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Aðilar vísa jafnframt til þess að vegabréfsáritanir þeirra til Ítalíu hafi verið fengnar með sviksamlegum hætti, sbr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 795/2022. Aðilar hafi greitt tilteknum aðila sem hefi tengsl við ítalska sendiráðið í Íran til að fá vegabréfsáritun inn á Shengen-svæðið. Vegabréfsáritun aðila til Ítalíu hafi verið neyðarúrræði og þau hafi alltaf ætlað sér að koma til Íslands. Aðilar og barn þeirra komi frá landsvæði þar sem þau hafi ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi greitt 3,3 milljónir íslenskra króna fyrir vegabréfsáritunina. Í þessu samhengi vísa kærendur til þess að þau byggi á 32. gr. laga um útlendinga um refsileysi vegna ólöglegrar komu. Ekki hafi verið byggt á þessari málsástæðu hjá Útlendingastofnun eða kærunefnd útlendingamála en þau ætli að láta reyna á hana fyrir dómstólum. Þar sem ekki hafi verið látið reyna á lögmæti áritunarinnar sé uppi lagaleg óvissa um atriði sem skipti sköpum fyrir niðurstöðu máls aðila.

Þá vísa aðilar til þess að ómannúðlegt sé að senda aðila og barn þeirra frá Íslandi til Ítalíu, þar sem fjölskyldan eigi ekkert heimili. Barn þeirra hafi aðlagast vel á Íslandi. Verði aðilar og barn þeirra send til Ítalíu muni það valda þeim óafturkræfum skaða, auk þess sem þau óttist ofsóknir. Þá muni aðilar eiga erfitt með að eiga í samskiptum við lögmann sinn vegna fyrirhugaðs dómsmáls þar sem óvíst sé hvernig síma eða netsamband sé í flóttamannabúðunum á Ítalíu.

III.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu þeirra að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að þau skuli yfirgefa landið takmarki möguleika þeirra til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hafa aðilar möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra um efnismeðferð. Fyrir liggur að stjórnvöld í viðtökuríkinu hafa viðurkennt skyldu sína til þess að taka við aðilum og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að þeim sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar bera stjórnvöld viðtökuríkis ábyrgð á umsóknum aðila um alþjóðlega vernd og er skylt að tryggja að þau verði ekki endursend í slíkar aðstæður annars staðar. Í samræmi við framangreint er það mat kærunefndar að aðilar eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi þau aftur til viðtökuríkis.

Aðilar vísa til þess í greinargerð að fyrrum talsmaður þeirra hafi vanrækt að birta þeim ákvarðanir Útlendingastofnunar á tilsettum tíma. Framangreind málsmeðferð í málum þeirra feli því í sér annmarka á málsmeðferð þar sem þau hafi ekki notið aðstoðar talsmanns sem þau hafi samþykkt til verksins. Kærunefnd vekur athygli á því að aðilum sé ávallt kleift að hafa samband við Útlendingastofnun varðandi fyrirspurnir um mál sín þrátt fyrir að hafa skipaðan talsmann sem komi fram fyrir þeirra hönd og veiti þeim liðsinni. Þá geti aðilar jafnframt leitað til stofnunarinnar telji þeir skipaðan talsmaður ekki sinna starfi sínu með fullnægjandi hætti. Í máli aðila er ljóst að sjálfkrafa kæra á ákvörðunum í málum þeirra barst kærunefnd 12. júlí 2023. Aðilum var skipaður nýr talsmaður og veittur greinargerðafrestur til 20. október 2023. Aðilar hafa því notið aðstoðar talsmanns við meðferð mála þeirra á kærustigi. Varðandi tilvísun aðila til þess að vegabréfsáritanir þeirra til Ítalíu hafi verið fengnar með sviksamlegum hætti vísar kærunefnd til þess að ítölsk stjórnvöld hafi samþykkt viðtöku aðila á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þá ítrekar kærunefnd að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðilum til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Í úrskurði kærunefndar í máli aðila var gerð grein fyrir mati nefndarinnar á hagsmunum barna aðila. Var það niðurstaða kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til heimaríkis samrýmdist hagsmunum barnanna þegar litið væri m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli þeirra.

ÚRSKURÐARORÐ

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum