Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 249/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 10. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 249/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030079

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. mars 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Taílands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. febrúar 2023, um synja beiðni hans um endurnýjun á dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með Íslendingi. Hinn 24. febrúar 2023 var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Ákvörðun Útlendingastofnunar var send til umboðsmanns kæranda með ábyrgðarpósti 23. febrúar 2023. Umboðsmanni kæranda var send tilkynning um væntanlega heimsendingu 24. febrúar 2023 og tilkynning skilin eftir þann sama dag um að sækja þyrfti sendingu á pósthús. Hinn 27. febrúar 2023 var umboðsmanni kæranda send tilkynning að nýju og ítrekun 6. mars 2023. Kærandi kærði ákvörðunina 22. mars 2023. Ljóst er að kærufresturinn, sem var til 11. mars 2023, var liðinn þegar kæran barst.

Með tölvubréfi til kæranda, dags. 19. apríl 2023, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna kæra hafi borist utan frests. Í tölvubréfi frá kæranda, dags. 24. apríl 2023, kemur fram að tilkynning um ákvörðunina hafi borist umboðsmanni kæranda 24. febrúar 2023 án þess að þar kæmi fram efnisinnihald eða hvort um áríðandi bréf væri að ræða. Þá hafi ákvörðunin ekki verið send á kæranda sjálfan til að undirstrika kærufrestinn eða ákvörðunina. Umboðsmaður kæranda hafi sótt ákvörðunina á pósthús 15. mars 2023 og þá fyrst séð hvers efnis bréfið væri. Kærandi hafi svo kært ákvörðunina 22. mars 2023. Kærandi telji því að kæran hafi borist innan frests frá því að umboðsmanni hans hafi réttilega borist hin kærða ákvörðun.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Umboðsmanni kæranda barst tilkynning 24. febrúar 2023 um að hann gæti nálgast ákvörðun Útlendingastofnunar á pósthúsi. Er því ljóst að ákvörðun Útlendingastofnunar var komin til vitundar kæranda í samræmi við reglur stjórnsýslulaga þann dag. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist of seint. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

Úrskurðarorð:

 

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

 

The applicants appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

Þorsteinn Gunnarsson

Sandra Hlíf Ocares                                                    Gunnar Páll Baldvinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum