Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 520/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 19. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 520/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060192

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. júní 2023 kærði[...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. júní 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 23. maí 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í 9 daga. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda hafi hún ætlað að ferðast til Íslands 21. júlí 2023 og dvelja hér á landi til 29. júlí 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. júní 2023. Hinn 22. júní 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að hún sé búsett hjá foreldrum sínum í heimaríki og annist þau. Bróðir kæranda sé hjartalæknir í Bandaríkjunum og ætli að ferðast ásamt fjölskyldu sinni til Íslands. Bróðir kæranda hafi boðið henni að koma með og hafi skipulagt og lagt út allan kostnað vegna ferðarinnar fyrir kæranda. Þau ætli að keyra hringinn í kringum Ísland og skoða landið, þar á meðal Reykjavík, Bláa lónið, Snæfellsjökul, Ytri-Tungu, Þingvelli, Geysi, Kötlu, Jökulsárlón, Mývatn, fara í hvalaskoðun á Húsavík og skoða Akureyri. Bróðir kæranda hafi bókað bílaleigubíl og gistingu í gegnum Airbnb. Kærandi ætli að ferðast til Íslands sem ferðamaður en hún hafi ekki bókað neinar skoðunarferðir þar sem bróðir hennar vilji bíða eftir niðurstöðu vegabréfsumsóknar kæranda. Kærandi hafi aldrei ferðast út fyrir Indland og ekki út fyrir sitt ríki síðastliðin 20 ár. Umrætt ferðalag sé tækifæri fyrir kæranda til að skoða heiminn með bróður sínum. Kærandi hafi lagt fram gögn máli sínu til stuðnings, s.s. upplýsingar um bankastöðu bróður kæranda, ferðaáætlun, bókun á bílaleigubíl, Airbnb bókanir og tölvubréf frá bróður kæranda.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 10 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að upplýsingar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá stofnuninni og því liggur ekki fyrir í máli kæranda frekari rökstuðningur stofnunarinnar vegna synjunar á umsókn hennar.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá sendiráðinu er rakin. Þar kemur fram að mælt sé með því að umsókn kæranda um vegabréfsáritun verði synjað. Kærandi sé að ferðast til Íslands til þess að hitta bróður sinn sem sé búsettur í Bandaríkjunum. Bróðir hennar sé með vegabréfsáritun til Íslands frá sendiráðinu í Washington D.C. Kærandi hafi greint frá því í símaviðtali að hún ætli sér að ferðast til Bandaríkjanna, en henni hafi verið synjað um vegabréfsáritun þangað. Kærandi hafi ekki vitað hvert hún væri að fara en bróðir hennar hafi sagt henni að sækja um vegabréfsáritun til Íslands þar sem henni hafi verið synjað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Kærandi hafi getað nefnt Ísland á nafn eftir að hafa fundið upplýsingar á blaði. Kærandi hafi greint frá því að bróðir hennar hafi skipulagt ferðina og af þeim sökum viti hún ekkert um ferðalagið. Kærandi sé ekki í vinnu og sé háð tekjum föður síns. Alvarlegar áhyggjur hafi vaknað um tilgang ferðar kæranda eftir símaviðtalið. Þá kemur fram að kæranda hafi þrívegis vera synjað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun. Við það mat hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi hafi vitað lítið sem ekkert um Ísland í símaviðtali. Kærandi hefur borið fyrir sig að bróðir hennar hafi skipulagt ferðalagið og því viti hún lítið um það. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi aldrei ferðast út fyrir heimaríki og má því draga í efa að hún viti ekki til hvaða lands hún ætli að ferðast eða hvað hún ætli að gera í sínu fyrsta ferðalagi. Þá lítur kærunefnd til þess að í kæru kæranda kemur m.a. fram að hún ætli að heimsækja Snæfellsjökul og Ytri-Tungu. Samkvæmt Airbnb bókun á bróðir kæranda bókaða gistingu fyrir sig og tvo aðra á Grundarfirði frá 20. til 21. júlí 2023. Þá liggur fyrir Airbnb bókun í Kópavogi fyrir fjóra, þ. á m. kæranda, dags. 21. til 22. júlí 2023. Samkvæmt ferðaáætlun dags. 21. júlí 2023 er dagskráin að skoða Grundarfjörð, Snæfellsjökul, Djúpasand, Gatklett og Ytri-Tungu, ásamt því að sækja kæranda á flugvöllinn og fara í baðlón í Reykjavík. Samkvæmt gögnum málsins á kærandi flug frá Helsinki til Keflavíkur 21. júlí 2023 og er komutími áætlaður kl. 15:45. Samkvæmt framangreindu verður kærandi sótt á flugvöllinn eftir að bróðir hennar hefur verið á Grundarfirði. Frásögn kæranda um að skoða Snæfellsjökul og Ytri-tungu stemmir því ekki við ferðaáætlun. Auk framangreinds lítur kærunefnd til þess að kærandi virðist ekki hafa sterka tengingu við heimaríki fyrir utan foreldra sína en hún hefur greint frá því að vera atvinnulaus og búa hjá foreldrum sínum þar í landi.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum