Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 533/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 21. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 533/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23090052

 

Endurtekin umsókn [...]og barna

I.       Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 133/2023, dags. 9. mars 2023, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 13. og 14. desember 2022, um að taka umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), og barna hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu og [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 13. mars 2023. 

Hinn 15. mars 2023 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og synjaði kærunefnd beiðni kæranda 27. mars 2023 með úrskurði nr. 178/2023. Hinn 12. september 2023 barst kærunefnd endurtekin umsókn kæranda ásamt greinargerð. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá stoðdeild Ríkislögreglustjóra 13. september 2023 og Útlendingastofnun 18. september 2023.

Af greinargerð kæranda má ráða að umsókn hennar byggi á 35. gr. a laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til þess að samkvæmt 1. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin) skuli flutningur umsækjanda eins og um geti í c- eða d-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar, frá aðildarríki sem leggi fram beiðni, til aðildarríkis sem beri ábyrgð, fara fram eins fljótt og við verði komið og í síðasta lagi innan sex mánaða frá því að annað aðildarríkið samþykkir beiðni um endurviðtöku eða lokaákvörðun sé tekin um kæru eða endurskoðun ef um sé að ræða áhrif til frestunar í samræmi við 3. mgr. 27. gr. reglugerðarinnar. Lokaákvörðun í máli kæranda hafi verið tekin með úrskurði kærunefndar útlendingamála 9. mars 2023 og frestur samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar hafi því runnið út 9. september 2023. Með vísan til þess, sbr. einnig 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga sé þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna. 

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland Dyflinnarreglugerðina, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Hinn 12. september 2022 var beiðni um viðtöku kæranda, umsóknar hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 2. mgr. 13. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 9. nóvember 2022, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 13. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli Shiri, C-201/16, frá 25. október 2017 (26.-34. mgr. dómsins). Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í úrskurði kærunefndar í máli nr. 237/2019 ákvað kærunefnd að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu ítölsk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda 9. nóvember 2022. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda 13. mars 2023. Rann því upphaflegur sex mánaða frestur til þess að flytja kæranda úr landi út 13. september 2023.

Með vísan til 35. gr. a laga um útlendinga óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá stoðdeild Ríkislögreglustjóra, dags. 13. september 2023, um skráningu kæranda í kerfi lögreglu, þ.e. hvort kærandi væri stödd hér á landi. Í svari stoðdeildar sama dag kom fram að mál kæranda væri skráð í bið þar sem Ítalía væri lokuð fyrir endurviðtökur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Hinn 18. september 2023 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um flutning kæranda til viðtökuríkis, s.s. hvort frestur til flutnings hafi verið framlengdur úr sex mánuðum í 18 mánuði, sbr. 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Svar Útlendingastofnunar við fyrirspurn kærunefndar barst samdægurs en þar kemur fram að frestur til flutnings hafi ekki verið framlengdur og að Ísland væri fallið á flutningstíma.

Samkvæmt framangreindu er frestur til að flytja kæranda til viðtökuríkis liðinn samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því leiðir að ábyrgð á umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd fluttist yfir á íslensk stjórnvöld þegar umræddur frestur leið og því er ekki lengur hægt að krefja viðtökuríkið um að taka við henni og börnum hennar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Í ljósi alls framangreinds, samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd og þeirrar staðreyndar að kærandi sé stödd á landinu, er það mat kærunefndar að nýjar upplýsingar liggi fyrir í máli hennar sem leiði til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn hennar samkvæmt 24. gr. laganna, sbr. 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga. Er það því niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

 

Úrskurðarorð:

 

Endurtekin umsókn kæranda er tekin til meðferðar.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s subsequent application shall be examined.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

F.h. kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum