Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 540/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 540/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23090101

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. júní 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. maí 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 24. maí 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í 17 daga. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda hafi hann ætlað að ferðast til Íslands 22. júní 2022 og dvelja hér á landi til 8. júlí 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. maí 2023. Samhliða ákvörðun í máli kæranda var systur hans synjað um vegabréfsáritun en hún hefur komið fram fyrir hönd þeirra beggja gagnvart kærunefnd. Hinn 5. júní 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn frá kæranda 26. júní, 16. júlí, 26. júlí. 11. ágúst, 28. ágúst, 31. ágúst og 11. september 2023.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Systir kæranda skilaði inn athugasemdum með kæru til kærunefndar ásamt fylgigögnum fyrir hönd þeirra beggja. Í athugasemdum kæranda kemur m.a. fram að þau hafi orðið fyrir vonbrigðum þegar umsókn hans um vegabréfsáritun hafi verið synjað. Fram kemur að systir kæranda hafi eytt mikilli vinnu í ferðaáætlun þeirra.

Varðandi búsetuskráningu kæranda kemur fram að kærandi og systir hans séu frá [...]sýslu og þegar þau hafi verið í háskóla hafi þau flutt búsetuskráningu sína til [...]. Þau hafi ekki keypt húsnæði á þeim tíma og því hafi þau verið með sameiginlega heimilisskráningu á vinnustaðnum þeirra. Kærandi og systir hans eigi húsnæði núna en búsetuskráningu hafi enn ekki verið breytt. Hins vegar séu þau sannanlega fjölskylda og búi saman með foreldrum sínum yngri bróður og tveimur köttum. Kærandi og systir hans elski foreldra þeirra og muni aldrei yfirgefa þau eða kettina.

Kærandi vísar til framfærslugagna sem hafi verið lögð fram þar sem tekjur kæranda eru um [...] fyrir hálft ár. Hann eigi ekki mikinn sparnað en systir og foreldrar hans hafi fryst [...] fyrir hann fyrir ferðina. Kærandi vísar jafnframt til þess að þau reyni að stjórna kostnaði á ferðalögum og að elda eigin máltíðir erlendis. Auk framangreinds lagði kærandi fram frekari gögn og upplýsingar, m.a. nýjar flug- og hótelbókanir dagana 26. júní 2023, 16. júlí 2023, 26. júlí 2023, 11. og 28. ágúst 2023, og 11. september 2023.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsókn hans, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Kína, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð hans hjá sendiráðinu er rakin. Þar kemur fram að kærandi hafi neitað að skila inn fyrstu blaðsíðu búsetuskráningar og því hafi ekki verið hægt að sannreyna skjalið. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti kærandi hafi neitað að framvísa búsetuskráningu sinni. Af þeim sökum og með hliðsjón af athugasemdum kæranda sendi kærunefnd systur kæranda tölvubréf 31. ágúst 2023 þar sem henni og kæranda var greint frá meginástæðu synjunar á vegabréfsáritun þeirra og þeim gefið færi á að leggja fram umbeðin gögn. Samdægurs barst tölvubréf frá systur kæranda ásamt fylgiskjali sem hún kveður vera frumrit af forsíðu búsetuskráningar hennar. Í tölvubréfinu kemur jafnframt fram að hún geti aðeins lagt fram ljósmynd af búsetuskráningu kæranda. Dugi það ekki til geti systir kæranda kannað nánar hvort hún fái aðgang að frumriti. Þá vísar systir kæranda til þess að hún og kærandi hafi lagt fram skjöl vegna umsókna þeirra um vegabréfsáritun, dags. 24. maí 2023, þar á meðal forsíðu búsetuskráningar. Starfsfólk á vegabréfsáritunarskrifstofunni sem hafi tekið á móti gögnunum hafi greint þeim frá því að þau þyrftu ekki að leggja fram umrætt skjal þar sem búsetuskráning þeirra væri sameiginleg. Hinn 11. september 2023 barst kærunefnd annað tölvubréf frá kæranda ásamt fylgiskjali. Þar kemur fram að kærandi og bróðir hennar hafi fengið búsetuskráningu bróður kæranda stimplaða sem jafngildi frumriti búsetuskráningar.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kæranda sem áhrif geta haft á niðurstöðu málsins, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 

The decision of the Directorate of Immigration in the appellant’s case is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum