Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 428/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 8. ágúst 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 428/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050044

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. maí 2023 kærði[...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. apríl 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru kæranda má ráða að hún krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 12. apríl 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í 12 daga. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda hafi hún ætlað að ferðast til Íslands [...] og til baka [...]. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. apríl 2023. Hinn 7. maí 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Þá bárust frekari gögn 11. maí 2023 og upplýsingar frá Útlendingastofnun 18. júlí 2023.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að umboðsmaður hennar hafi útbúið skjöl fyrir ferð hennar en efnið hafi ekki gefið skýrar upplýsingar um stöðu hennar. Ísland hafi ávallt verið draumaáfangastaðurinn hennar. Tilgangur vegabréfsáritunarinnar hafi verið að ferðast til Íslands og hún hafi fengið fyrirtæki til að aðstoða sig við bókanir. Kærandi hafi nú bætt úr þeim annmörkum sem voru til staðar í umsókn hennar. Kærandi ætli sér að ferðast til Reykjavíkur, Víkur og Akureyrar. Ísland sé mjög fallegt land með náttúrufegurð og ævintýrum. Kærandi muni snúa aftur í skólann í heimaríki sínu að ferð lokinni. Kostnaður vegna ferðarinnar, m.a. hótelkostnaður, verði allur greiddur af foreldrum kæranda sem séu ábyrgir fyrir ferð hennar. Kærandi hafi lagt fram upplýsingar um bankainnistæðu og greiðslustöðu foreldra hennar.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 12 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð höfðu verið fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin, eða sannleiksgildi efnis þeirra. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun og því liggur ekki fyrir í máli kæranda frekari rökstuðningur Útlendingastofnunar vegna synjunar á umsókn hennar.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Kína, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá sendiráðinu er rakin. Þar kemur fram að staðfest hafi verið að hótelbókun kæranda hafi verið fölsuð og því leggi sendiráðið til að umsókn kæranda verði synjað.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn kæranda um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að hótelbókun kæranda hafi verið fölsuð þegar hún lagði fram umsókn um vegabréfsáritun. Við meðferð máls kæranda hjá kærunefnd hefur kærandi greint frá því að umboðsmaður hennar hafi séð um að útbúa skjöl fyrir hana en hún hafi nú bætt úr annmörkum umsóknar sinnar og m.a. lagt fram nýjar hótelbókanir. Þær hótelbókanir sem kærandi hefur nú lagt fram eru í Reykjavík, á Akureyri og á Egilstöðum. Kærandi greindi hins vegar frá því í greinargerð til kærunefndar að hún ætlaði að ferðast til Reykjavíkur, Akureyrar og Víkur. Kærandi hefur jafnframt lagt fram flugbókanir innanlands og samkvæmt þeim hafi kærandi ætlað að fljúga frá Reykjavík til Akureyrar 5. júlí 2023, þaðan til Reykjavíkur 8. júlí 2023 og áfram til Egilsstaða sama dag. Þá liggur fyrir flugbókun frá Egilstöðum til Reykjavíkur 12. júlí 2023 klukkan 16:05 en samkvæmt gögnum málsins er flug kæranda til Frakklands sama dag klukkan 10:30. Kærandi hefur jafnframt lagt fram hótelbókun í Reykjavík, dags. 12. til 14. júlí 2023, þrátt fyrir að umsókn hennar um vegabréfsáritun og flugbókun byggi á því að hún muni snúa aftur til heimaríkis 12. júlí 2023. Þá skoðaði kærunefnd framangreindar hótelbókanir en þrjár þeirra hafa verið afbókaðar og þá fjórðu var ekki að finna í kerfum bókunarvefsins. Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að þau gögn sem kærandi hefur nú lagt fram séu ófullnægjandi og að tilgangur ferðar kæranda sé ótrúverðugur.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem kærandi lagði fram, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir við meðferð málsins hjá stofnunni. Í ljósi framkominna upplýsinga um flugbókun kæranda frá Egilstöðum til Reykjavíkur 12. júlí 2023, eftir að flug hennar frá landinu er tímasett, og hótelbókun kæranda í Reykjavík dagana 12. til 14. júlí 2023 er auk þess rökstudd ástæða til að draga í efa ásetning kæranda um að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út, sbr. b.lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga.

Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.


Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, settur varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum