Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 233/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 19. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 233/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23020060

 

Kæra [...]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 18. febrúar 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. febrúar 2023, um að henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Í kæru krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að henni verði veitt vegabréfsáritun til Íslands. 

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 27. janúar 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í fjóra daga. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. febrúar 2022. Hinn 18. febrúar 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda, ásamt fylgiskjölum.

Hinn 20. mars 2023 óskaði kærunefnd eftir eftirfarandi rökstuðningi frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar. Eftirfarandi rökstuðningur, sem barst kærunefnd 27. mars 2023, verður rakinn í niðurstöðukafla úrskurðarins.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að umsókn hennar um vegabréfsáritun til Íslands hafi verið synjað vegna þess að rökstuðningur fyrir tilgangi og skilyrðum dvalarinnar hafi ekki veittur. Kærandi vísar til þess að með umsókn sinni hafi hún lagt fram bókunarstaðfestingu sem staðfesti að hún hafi bókað og greitt ferð til Íslands með Senlinmao (Forest Cat Travel ehf.). Þá hafi kærandi lagt fram bókunarstaðfestingu sem tilgreini ferða- og gistiupplýsingar og fylgibréf.

Kærandi hafi sótt um vegabréfsáritun til landsins ásamt vinum sínum sem hafi bókað sömu ferðina. Kærandi og vinir hennar hafi lagt fram samskonar skjöl með umsóknunum þar sem fram komi rökstuðningur fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen- svæðinu en honum er heimilt.  

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Í ákvörðun Útlendingastofnun er notað staðlað synjunarform, í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 785/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.  

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun. 

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Íslenska sendiráðið í Washington, í Bandaríkjunum, tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Bandaríkjunum, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.  

Í gögnum málsins liggja fyrir gögn frá deild borgaraþjónustu og áritunarmála utanríkisráðuneytisins vegna umsóknar kæranda um vegabréfsáritun. Er þar að finna meðal annars tölvubréf sem sent var til kæranda 30. janúar 2023. Í tölvubréfinu kemur fram að verið sé að afgreiða umsókn kæranda og er henni tilkynnt að hún þurfi að leggja fram útfyllt I-20 eyðublað með undirskrift og útfyllt rafrænt I-94 eyðublað. Var kæranda gefinn tveggja daga frestur til að leggja fram umbeðin gögn svo hægt væri að halda áfram með afgreiðslu umsóknar hennar. Í dagbókarfærslum í málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, er skráð af starfsmanni utanríkisráðuneytisins 6. febrúar 2023 að mælt sé með því að synja umsókn kæranda um vegabréfsáritun.

Hinn 27. mars 2023 barst kærunefnd eftirfarandi rökstuðningur frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Var umsókn kæranda synjað þar sem hún hefði ekki lagt fram öll nauðsynleg fylgigögn með umsókn sinni sem talin séu upp í gátlista sem fylgi með umsóknareyðublaði um Schengen-áritun. Þar komi fram að umsækjandi skuli leggja fram gilda vegabréfsáritun til Bandaríkjanna ásamt eyðublaði I-94. Þá skuli þeir sem stundi nám í Bandaríkjunum jafnframt leggja fram eyðublað I-20 til að sýna fram á löglega skólavist þeirra í Bandaríkjunum. Við vinnslu umsóknar kæranda hafi komið í ljós að gögn vantaði og hafi henni verið gefið færi með tölvubréfi á að bæta úr því. Kærandi hefði ekki svarað tölvubréfinu og þá hafi ekki verið hægt að ná í hana í síma þar sem hún hefði ekki gefið upp símanúmer í umsókn sinni. Vegna framangreinds hafi það verið mat Útendingastofnunar að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar.

Kærandi hefur ekki lagt fram hjá kærunefnd önnur gögn en þegar lágu fyrir við málsmeðferð Útlendingastofnunar. Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.  

 Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum