Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 658/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 658/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23070035

 

Kæra  [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. júlí 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnunni verði gert að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði ógilt og stofnuninni verði gert að taka málið til meðferðar á ný.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 21. mars 2023. Hinn 30. maí 2023 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Möltu, sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá yfirvöldum á Möltu, dags. 13. júní 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 18. apríl 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 29. júní 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 30. júní 2023 og barst kærunefnd greinargerð kæranda 12. júlí 2023 ásamt fylgigagni. Þá bárust kærunefnd upplýsingar frá Vinnumálastofnun 1. nóvember 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að maltnesk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Möltu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Möltu.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi flúið heimaríki sitt og komið til Möltu árið 2011. Kærandi sé gift og eigi tvö börn í heimaríki. Eiginmaður kæranda dvelji nú á Ítalíu en kærandi sé í takmörkuðum samskiptum við hann. Kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á Möltu. Samkvæmt svari frá yfirvöldum á Möltu hafi hún fengið útgefið tímabundið dvalarleyfi þar í landi en kærandi véfengi þær upplýsingar og kveðst ekki hafa verið veitt dvalarleyfi þar í landi. Kærandi hafi farið frá Möltu til Ítalíu ásamt eiginmanni sínum þegar honum hafi verið vísað frá Möltu. Þaðan hafi kærandi ferðast ein til Íslands og sótt um alþjóðlega vernd hér á landi.

Kærandi byggir á því að taka beri umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, en þar komi fram viðmiðunarreglur sem taka beri mið af við mat á sérstökum ástæðum. Kærandi vísar til andlegra kvilla sem hún glími við og kveðst ekki hafa getað leitað til læknis vegna þeirra. Þá hafi kærandi ekki undirgengist læknisrannsókn, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um, en mikilvægt sé að kanna andlega heilsu hennar. Þá telur kærandi mikilvægt að hún verði ekki send til Möltu fyrr en búið sé að ganga úr skugga um að hún glími ekki við alvarleg andleg veikindi sem hún hafi ekki kost á að fá meðferð við í viðtökuríki. Kærandi byggir á því að vegna persónubundinna aðstæðna hennar tengdum andlegri heilsu séu sérstakar ástæður uppi í máli hennar sem geri það að verkum að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar. Þar sem kærandi hafi ekki notið heilbrigðisþjónustu meðan hún hafi dvalið á Möltu megi ráða að flóttamannakerfið þar í landi sé ekki í stakk búið að takast á við þau andlegu veikindi sem hún kunni að glíma við. Þá vísar kærandi til þess að henni hafi verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á Möltu. Þá hafi kærandi aldrei fengið staðfestingu þess efnis að hún hafi verið með dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku þar í landi. Kærandi óttist að vera endursend til Möltu þar sem hún njóti ekki sömu réttinda og almenningur og kunni að vera synjað um dvalarleyfi þar í landi. Kærandi vísar þá til þess að yfirvöld á Möltu hafi þegar tekið afstöðu til umsóknar hennar um alþjóðlega vernd auk þess sem hún hafi dvalið þar ólöglega frá árinu 2021, því sé einsýnt að yfirvöld muni endursenda hana til heimaríkis þar sem ekkert bíði hennar og þar sem aðgangur hennar að nauðsynlegri læknismeðferð vegna andlegra veikinda sé enn verri. Þá vísar kærandi til 42. gr. laga um útlendinga um bann við endursendingu (non-refoulement) og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Þá byggir kærandi á því að Útlendingastofnun hafi láðst að afla nauðsynlegra upplýsinga og ákvörðun í máli hennar byggi því á röngum upplýsingum um atriði málsins. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi þar með brotið gegn 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og því beri að ógilda ákvörðunina. Kærandi hafi enn ekki gengist undir lögboðna læknisrannsókn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Kærandi hafi misst af skilaboðum Útlendingastofnunar um boðaða læknisheimsókn 8. júní 2023 og hafi verið sofandi þegar leigubíll hafi komið að sækja hana. Þá hafi verið óskað eftir nýjum læknatíma fyrir kæranda þar sem frekari gagna sé aflað um andlega heilsu hennar. Kærandi hafi fengið þau svör að hún yrði að bera sig eftir tímanum. Af þeim sökum hefur kærandi ekki getað lagt fram haldbær gögn um andleg veikindi sín þrátt fyrir að allt bendi til þess að hún glími við umfangsmikinn vanda tengdum andlegri heilsu sinni. Af þeim sökum telur kærandi að málið sé ekki nægjanlega rannsakað þar sem nauðsynleg gögn vanti sem geti staðfest eða hnekkt fullyrðingum kæranda þess efnis að hún glími við alvarleg heilsufarsvandamál svo óforsvaranlegt væri að vísa henni af landi brott. Kærandi telur að viðtal læknis sé nauðsynlegt og sanngjarn undanfari ákvörðunar í máli hennar.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...]. Samkvæmt gögnum málsins og framburði kæranda hafi hún yfirgefið heimaríki árið 2011 og farið til Möltu. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Möltu en verið synjað. Þá hafi kærandi kært þá niðurstöðu en ákvörðun um synjun verið staðfest. Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi farið frá Möltu til Ítalíu ásamt eiginmanni sínum þegar honum hafi verið vísað frá Möltu. Þaðan hafi kærandi ferðast ein til Íslands og sótt um alþjóðlega vernd hér á landi 21. mars 2023. Kærandi greindi frá því að vera ekki í góðu sambandi við eiginmann sinn. Kærandi hafi dvalið í flóttamannabúðum á Möltu í sex mánuði en að þeim tíma liðnum hafi kærandi fengið atvinnu og yfirgefið búðirnar. Kærandi hafi fengið framfærslu frá stjórnvöldum meðan hún hafi dvalið í flóttamannabúðunum. Kærandi greindi frá því að hafa ekki þurft að leita sér læknisaðstoðar á meðan dvölinni á Möltu stóð. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera við ágæta líkamlega heilsu en verði fyrir yfirnáttúrulegum árásum (e. spiritual attacks) en þyrfti ekki að fara á spítala vegna þessa. Þá greindi hún frá því að þetta hefði ekki áhrif á daglegt líf hennar. Þá hafi kærandi orðið fyrir árás í heimaríki og misst tönn í þeirri árás.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Möltu á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hefur fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja maltnesk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Möltu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Möltu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Malta (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Asylum Information Database, Country Report: Malta (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2023);
  • ECRI Report on Malta (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);
  • Freedom in the World 2023 – Malta (Freedom House, mars 2023);
  • National Report on Hate Speech and Hate Crime in Malta 2016 (E-More Project, nóvember 2016);
  • Progress Report 2018: A Global Strategy to Support Governments to End the Detention of Asylum seekers & Refugees, 2014-2019 (UN High Commissioner for Refugees (UNCHR), febrúar 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Malta (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), júlí 2018);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) (https://e-justice.europa.eu);
  • Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (http://www.unhcr.org.mt);
  • Upplýsingar af vefsíðu IPCAN (e. Independent Police Complaints Authorities Network) (www.ipcan.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu lögreglunnar á Möltu (https://pulizija.gov.mt/en/Pages/Home.aspx);
  • Upplýsingar af vefsíðu maltneskra yfirvalda (https://deputyprimeminister.gov.mt/en/Pages/health.aspx) og
  • Upplýsingar af vefsíðum Report Racism Malta og Reporting Hate: (www.reportracism-malta.org) og (reportinghate.eu).

Malta er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Malta verið aðili að Evrópuráðinu frá 29. apríl 1965 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1967. Malta fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð og um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi 13. september 1990 og barnasáttmálann 30. september 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 17. júní 1971.

Í skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá 2023 kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem séu sendir til Möltu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti lagt fram umsókn hjá útlendingayfirvöldum þar í landi (e. International Protection Agency, IPA), sem taki ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd á Möltu. Fram kemur að umsækjendur séu boðnir til viðtals þar sem þeir eigi rétt á aðstoð túlks. Fram kemur í skýrslu ECRE að umsækjendur um alþjóðlega vernd geti kært ákvarðanir útlendingayfirvalda innan tveggja vikna til kærunefndar útlendingamála (e. International Protection Appeals Tribunal, IPAT). Úrskurður kærunefndar sé endanleg niðurstaða í máli umsækjanda um alþjóðlega vernd en hægt sé að bera hann undir maltneska dómstóla.

Samkvæmt skýrslu ECRE heyri þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd undir velferðarstofnun (e. Agency for the welfare of Asylum-Seekers, AWAS). Stofnunin beri ábyrgð á búsetuúrræðum og félagslegri aðstoð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu sé takmarkað aðgengi að búsetuúrræðum vegna fjölgunar umsækjenda en fjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu hafi forgang að úrræðunum. Sérstakar móttökumiðstöðvar séu starfræktar til að hýsa fjölskyldur, einstæðar konur og viðkvæma einstaklinga. Fjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu fái að dvelja í úrræði á vegum AWAS í eitt ár en að því liðnu geti þeir leitað til félagsþjónustu á Möltu. Þá geti einstæðir karlmenn dvalið í úrræðum AWAS í sex mánuði sem hægt sé að framlengja ef umsækjandi sé í viðkvæmri stöðu. Umsækjendur sem dvelji í opnum rýmum í móttökumiðstöðvum eigi rétt á dagpeningum, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og aðgengi að menntun til sextán ára aldurs. Samkvæmt skýrslu ECRE eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á að stunda atvinnu á Möltu og eigi börn umsækjenda rétt á menntun til 16 ára aldurs. Þá kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Mat á viðkvæmri stöðu fari fram hjá AWAS og sé m.a. tekið mið af því hvort umsækjandi hafi verið alvarlega veikur, eigi við andleg vandamál að stríða eða glími við fötlun og fari stuðningur við umsækjanda eftir stöðu hans og þörfum. Einstaklingar í viðkvæmri stöðu geti sem dæmi verið fylgdarlaus börn, þungaðar konur, einstæðir foreldrar með ung börn og þolendur ofbeldis.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að stjórnarskrá Möltu leggi bann við mismunun á grundvelli kynþáttar og kyns. Í framangreindri skýrslu European Commission against Racism and Intolerance (ECRI) frá árinu 2018 kemur m.a. fram að flóttamenn og innflytjendur sæti mismunun á Möltu, þ. á m. á vinnumarkaði, en að maltnesk yfirvöld framfylgi aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju og útlendingahatri (e. National Action Plan Against Racism and Xenophobia), sem gefin hafi verið út árið 2010. Telji einstaklingar á sér brotið geti þeir m.a. leitað til nefndar um opinbera þjónustu (e. Public Service Commission), jafnréttisnefndar (e. National Commission for the Promotion of Equality), umboðsmanns þingsins (e. Parliamentary ombudsman) og dómstóla. Ekki liggi fyrir sundurliðuð, opinber gögn um hatursglæpi á Möltu, s.s. um tíðni þeirra, kærufjölda, fjölda mála sem sæti ákæru o.s.frv. Hatursglæpir, þ. á m. á grundvelli kynþáttar, séu refsiverðir samkvæmt maltneskum hegningarlögum. Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRI skorti þó eftirfylgni með löggjöfinni, fá mál séu kærð og lágt hlutfall kærumála sæti ákæruferli.

Þolendur afbrota geti leitað til lögregluyfirvalda á Möltu en á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að einstaklingar geti tilkynnt um brot til lögreglunnar á lögreglustöð eða í gegnum síma. Þá sé einnig hægt að tilkynna í gegnum rafrænt kerfi á vefsíðu lögreglunnar. Þá kemur fram að þolendur geti gengið út frá því að komið verði fram við þá af virðingu óháð menningu, kynþætti, kyni eða annarra þátta. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar á Möltu sem séu þolendur afbrota og tali hvorki né skilji maltnesku eða ensku geti lagt fram kæru til lögreglu á sínu móðurmáli og eigi rétt á nauðsynlegri aðstoð við það, s.s. túlkaþjónustu. Jafnframt geti þau leitað til samtakanna Victim Support og tilkynnt um hatursglæpi á þar til gerðum vefsíðum, www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu. Þá kemur fram á framangreindri vefsíðu IPCAN að umboðsmaður maltneska þingsins fari með rannsókn á embættisverkum maltnesku lögreglunnar.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er kona á fimmtugsaldri [...]sem stödd er einsömul hér á landi. Kærandi greindi frá því að hún sé við ágæta líkamlega heilsu en verði fyrir yfirnáttúrulegum árásum (e. spiritual attacks). Í þessu samhengi telur kærandi að það hjálpi henni að hún sé trúuð og biðjist fyrir. Þá þurfi hún ekki að fara á spítala vegna umræddra árása og þær hafi ekki áhrif á daglegt líf hennar. Þá greindi kærandi frá því að hafa orðið fyrir líkamsárás í heimaríki og misst tönn í þeirri árás. Með tölvubréfi kærunefndar til Vinnumálastofnunar, dags. 31. október 2023, var óskað eftir upplýsingum um þá þjónustu sem kæranda hefði verið veitt hjá stofnuninni. Í svari Vinnumálastofnunar, dags. 1. nóvember 2023, kemur fram að kærandi hefði fengið viðtal hjá lækni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 20. júlí 2023 og fyrstu læknisskoðun á Göngudeild sóttvarna 3. ágúst 2023.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 18. apríl 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 5. júlí 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur ljóst að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður á Möltu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kæranda komi því til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi. Kærunefnd áréttar það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa ekki þurft að leita sér heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki.

Kærandi hefur greint frá því að óttast ekki neinn á Möltu en að hún óttist að vera ekki með skilríki þar í landi. Þá greindi kærandi frá því að hafa ekki orðið fyrir fordómum þar í landi. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að hún muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hún geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og telji kærandi sér mismunað eða óttist hún öryggi sitt að einhverju leyti geti hún leitað sér aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá er ekkert sem bendir til þess að löggæsluyfirvöld á Möltu muni ekki veita kæranda viðeigandi vernd.

Kærandi hefur greint frá því að hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á Möltu auk þess sem hún hafi kært þá niðurstöðu til kærunefndar. Kærunefnd vísar til þess sem áður hefur komið fram að fái umsækjandi um alþjóðlega vernd endanlega synjun á umsókn sinni hjá maltneskum yfirvöldum eigi hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla. Þá geti hann lagt fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji hann endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Af framburði kæranda og framlögðum gögnum málsins má ráða að kærandi hafi getað nýtt sér þau úrræði sem til staðar eru samkvæmt maltneskum lögum til að kæra niðurstöðu í máli sínu til kærunefndar. Þá hafi kærandi notið allra grunnréttinda á meðan málsmeðferð hennar stóð hjá maltneskum stjórnvöldum.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 18. apríl 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 21. mars 2023.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Möltu, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Möltu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun og reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við það að hún hafi ekki farið í fyrstu læknisskoðun hér á landi áður en ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið tekin og því hafi kærandi ekki getað lagt fram haldbær gögn um andleg veikindi sín. Kærandi telur að mál hennar hafi af þeim sökum ekki verið nægjanlega rannsakað, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga skal umsækjandi um alþjóðlega vernd gangast undir læknisskoðun svo fljótt sem verða má frá því að umsókn er lögð fram en sú læknisskoðun fer fram á vegum þess stjórnvalds sem fer með framkvæmd þjónustu við umsækjendur, þ.e. Vinnumálastofnunar. Ákvæði 1. mgr. 25. gr. laganna verður að skilja svo að stjórnvöldum sé skylt að tryggja að slík skoðun standi umsækjanda um alþjóðlega vernd til boða. Verður umsækjandi ekki þvingaður til slíkrar skoðunar í þágu málsmeðferðar. Að hvaða leyti umsækjandi vill byggja málsástæður sínar á heilsufarsgögnum er svo eftir atvikum undir honum sjálfum komið. Þá verður ákvæðið ekki skilið svo að stjórnvöld geti ekki lokið málsmeðferð án þess að slík skoðun fari fram ef umsækjandi virðir ekki þá skyldu sína að gangast undir læknisskoðun.

Kærandi var samkvæmt gögnum málsins boðuð til læknisskoðunar 9. júní sl. en samkvæmt greinargerð missti kærandi af skilaboðunum og var sofandi þegar leigubíll kom að sækja hana. Þá kemur fram að þeim upplýsingum hafi talsmaður komið á framfæri við Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun eftir að ákvörðun Útlendingastofnunar lá fyrir 29. júní sl. Þá liggur fyrir að kærandi gekkst undir læknisskoðun 3. ágúst og hitti lækni 20. júlí.

Niðurstaða kærunefndar er að ekki sé um annmarka á málsmeðferð að ræða þar sem læknisskoðun var boðuð 9. júní áður en ákvörðun Útlendingastofnunar lá fyrir. Þá liggur fyrir að kærandi gerði ekki tilraun því að fá nýjan læknistíma fyrr en eftir að ákvörðun Útlendingastofnunar lá fyrir 29. júní. Kærandi hefur síðan notið læknisaðstoðar og gengist undir læknisskoðun en þrátt fyrir leiðbeiningar þar um hafa ekki verið lögð fram frekari heilsufarsgögn.

Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 18. apríl 2023. Aðspurð kvaðst kærandi vera við ágæta líkamlega heilsu. Kærandi greindi þá frá því að verða fyrir yfirnáttúrulegum árásum (e. spiritual attacks) en þyrfti ekki að fara á spítala vegna þessa og þetta hefði ekki áhrif á daglegt líf hennar. Af endurriti viðtals við kæranda má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt út í andlegt og líkamlegt heilsufar hennar, s.s. hvort hún hafi leitað til læknis í viðtökuríki, hvernig henni hafi liðið undanfarið og hvaða áhrif þeir atburðir sem hún hafi orðið fyrir hafi haft á líf hennar. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í tengslum við heilsufar sitt. Af ákvörðun Útlendingastofnunar má sjá að mat hafi verið lagt á aðgang handhafa alþjóðlegrar verndar að viðeigandi heilbrigðisþjónustu á Möltu með hliðsjón af þeim heilsufarsvandamálum sem kærandi kvaðst glíma við. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari hennar og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli hennar enda er ekkert sem bendir til þess að hún glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 5. júlí 2023, var kæranda einnig leiðbeint um að leggja fram frekari heilsufarsgögn í málinu. Er því varakröfu kæranda hafnað.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 21. mars 2023 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal flutt til Möltu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa maltnesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hennar um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Möltu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Gunnar Páll Baldvinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum