Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 310/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 22. júní 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 310/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030010

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 2. mars 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. febrúar 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru kæranda má ráða að hann krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 8. febrúar 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í átta daga. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda hafi hann ætlað að ferðast til Íslands 19. mars 2023 og til baka 26. mars 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. febrúar 2023. Hinn 2. mars 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda og 4. mars 2023 bárust frekari gögn. Hinn 4. maí 2023 óskaði kærunefnd eftir eftirfarandi rökstuðningi frá Útlendingastofnun. Kærunefnd barst eftirfarandi rökstuðningur Útlendingastofnunar 10. maí 2023. Hinn 15. maí 2023 var kæranda sendur eftirfarandi rökstuðningur Útlendingastofnunar til andmæla. Svar barst frá kæranda 16. maí 2023 ásamt fylgigagni.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að hann hafi sótt um vegabréfsáritun til Íslands ásamt vinkonu sinni. Vinkona hans hafi fengið umsókn sína samþykkta en hans hafi verið synjað. Kærandi telur það ekki hafa komið nógu skýrt fram að ferð þeirra til Íslands sé greidd af fyrirtæki vinkonu hans. Vinkona hans sé framkvæmdarstjóri fyrirtækisins [...]. Þau séu ferðafélagar og hafi t.a.m. ferðast saman til Malasíu árið 2017 og innan Indlands. Kærandi sé áhugamaður um landbúnað og með lífræna ræktun á eigin landi en starfi einnig sem sjálfstætt starfandi vefsíðuhönnuður. Kærandi og vinkona hans vilji ferðast til Íslands til að skoða norðurljósin á afmælisdegi hennar [...]. 

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10 og 11 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að upplýsingar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins virðist kærandi ekki hafa óskað eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hans hjá sendiráðinu er rakin. Þar kemur fram að kærandi hafi ekki verið trúverðugur. Hann hafi lagt fram staðfestingu á gistingu á Hótel Natura sem ekki hafi verið búið að greiða. Þá hafi hann einnig lagt fram ferðaáætlun sem líklega sé fölsuð að mati starfsmanns sendiráðsins. Í ferðaáætluninni komi fram gististaðir sem kærandi hafi greint frá að hafa þegar greitt fyrir. Með vísan til framangreinds var það mat fulltrúa sendiráðsins að umsókn kæranda skyldi synjað.

Hinn 11. maí 2023 barst kærunefnd eftirfarandi rökstuðningur frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar, dags. 22. febrúar 2023, um að synja umsókn kæranda um vegabréfsáritun.  Þar kemur fram að umsókn kæranda hafi verið synjað þar sem að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun kæranda væru áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og skilyrði 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Byggði niðurstaða Útlendingastofnunar á því að í símaviðtali við starfsmann utanríkisráðuneytis Íslands hafi kærandi ekki getað veitt upplýsingar um dvöl sína hér á landi, þ.e. hvaða staði kærandi ætlaði að heimsækja með nákvæmum hætti. Kærandi hafi þó getað nefnt að hann hugðist dvelja í Reykjavík í sjö daga og kvaðst vilja sjá norðurljósin og heimsækja Bláa lónið. Þá kvað kærandi ferðaskrifstofu hafa skipulagt ferðaáætlunina. Í ferðaáætluninni sé að finna umfangsmikla dagskrá í sex daga þar sem lagt verður af stað í skoðunarferðir og fjölmargir staðir heimsóttir á vegum ferðaskrifstofunnar. Í ferðaáætluninni er ítarlega greint frá þeim stöðum, hvað þeir heita, sögulega og landfræðilega.

Útlendingastofnun taldi ástæðu til að draga í efa áreiðanleika gagna frá ferðaskrifstofunni, sem kærandi lagði fram. Ferðaáætlunin geri ráð fyrir að umsækjandi gisti á Grandi by Center Hotels í fjórar nætur og þrjár nætur á Hótel Óðinsvé. Með umsókn kæranda var hins vegar lögð fram hótelbókun frá Hótel Natura, Reykjavík í sjö nætur bókuð af starfsmanni ferðaskrifstofunnar. Aðspurður kvaðst kærandi hafa greitt fyrir gistinguna. Var það mat Útlendingastofnunar að ef kærandi ætlaði sér að ferðast til Íslands og framfylgja þeirri ferðaáætlun sem lögð var fram hefði hann átt að geta gert grein fyrir fleiri stöðum sem þar komu fram og jafnframt því ósamræmi sem fram kom í ferðaáætlun varðandi hótelbókanir. Þau svör sem kærandi hafi veitt hafi verið ósannfærandi og ljóst að kærandi hefði takmarkaðar upplýsingar um fyrirhugaða ferð sína hingað til lands.

Með tölvupósti kærunefndar til kæranda, dags. 15. maí 2023, var kæranda veittur frestur til að andmæla eftirfarandi rökstuðningi Útlendingastofnunar. Í andmælum kæranda sem bárust kærunefnd 16. maí 2023 kemur fram að þrátt fyrir að hann hafi falið ferðaskrifstofu að annast skipulagningu ferðarinnar hafi hann tekið þátt í því með því að koma að þeim stöðum sem hann hafi langað að heimsækja og hvaða hótel hann myndi vilja gista á. Þau hótel sem komið hafi fram í ferðaáætlun hafi bara verið tillögur og kærandi og ferðafélagi hans hafi bókað Hótel Natura frekar en þau hótel. Hann kveður að í símaviðtalinu hafi hann greint fulltrúanum frá ferðaplönum sínum og greint frá eftir sinni bestu vitneskju.

Samkvæmt eftirfarandi rökstuðningi Útlendingastofnunar byggir niðurstaða stofnunarinnar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands á misræmi í ferðaáætlun hans um hótelbókanir og ósannfærandi svörum kæranda í símaviðtali. Í símaviðtali starfsmanns sendiráðsins í Nýju-Delí við kæranda, dags. 16. febrúar 2023, var kæranda ekki veitt tækifæri til að gefa skýringar á umræddu misræmi á hótelbókunum og þá virðist starfsmaður sendiráðsins ekki hafa beðið kæranda um að skýra nánar frá ferðaáætlun sinni hér á landi en hann gerði.

Að mati kærunefndar hefur kærandi við meðferð málsins hjá nefndinni gert grein fyrir því ósamræmi í ferðaáætluninni sem niðurstaða Útlendingastofnunar byggir á. Kærunefnd telur því ekki forsendur til annars en að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og senda málið til nýrrar meðferðar enda virðist kærandi uppfylla önnur skilyrði vegabréfsáritunar samkvæmt því sem fram kemur í rökstuðningi Útlendingastofnunar og öðrum gögnum málsins.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum