Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 451/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 30. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 451/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24030145

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 23. mars 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. desember 2023, um að ógilda vegabréfsáritun hennar, sem útgefin hafði verið 20. nóvember 2023. Samkvæmt kæru kæranda var ákvörðun Útlendingastofnunar móttekin 16. janúar 2024.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, en í ákvæðinu kemur fram að heimilt sé að kæra ákvarðanir Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins móttók kærandi ákvörðun í málinu 16. janúar 2024. Kærandi kærði ákvörðunina 23. mars 2024. Ljóst er að kærufresturinn, sem var til og með 31. janúar 2024, var liðinn þegar kæran barst.

Með tölvubréfi til kæranda, dags. 10. apríl 2024, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna kæra hafi borist utan lögmælts kærufrests. Í tölvubréfi frá kæranda, dags. 12. apríl 2024, kemur fram  óánægja kæranda með málsmeðferðina. Samkvæmt gögnum málsins hafi hún sótt um áritun 9. nóvember 2023 og fengið útgefna áritun 20. nóvember 2023, undir auðkenninu [...], vegna ferðar sem átti að fara fram 23. nóvember til 30. nóvember 2023. Útlendingastofnun hafi síðan tekið ákvörðun um ógildingu áritunar kæranda 13. desember 2023, sem kærandi hafi móttekið 16. janúar 2024. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir tjóni vegna ákvörðunarinnar, bæði vegna ferðaáætlunar og röskunar á vinnu. Kærandi telur eðlilegt í ljósi þess hversu langan tíma málsmeðferðin tók að vikið verði frá kærufresti, kæranda til hagsbóta.

II.       Niðurstaða

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Ekki verður séð að þær upplýsingar sem kæranda voru veittar í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi kæru til kærunefndar útlendingamála hafi verið ófullnægjandi eða að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið gætt. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki beri að taka kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

Úrskurðarorð:

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

 

The appellant’s appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum