Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 547/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 28. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 547/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060204

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 27. júní 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. júní 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 1. júní 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í heildina fyrir 90 daga. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda hafi hann ætlað að ferðast til Íslands 1. júlí 2023 og fara aftur til heimaríkis 28. september 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. júní 2023. Hinn 27. júní 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi undirgengist verkefni fyrir íslenskt verktakafyrirtæki sem snýst um logsuðu með sérstökum búnaði auk þjálfunar fyrir starfsmenn hins íslenska fyrirtækis. Fram kemur að upphafleg umsókn miðist við 90 daga dvöl en kærandi óski nú eftir dvöl í 70 daga. Meðal fylgigagna með kæru eru skýringar frá fyrirsvarsmanni íslenska verktakafyrirtækisins um verkið sem kæranda er ætlað að sinna ásamt afriti verksamnings.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands, sbr. fyrrgreind 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 13 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að rökstudd ástæða sé til að draga í efa ásetning kæranda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritun rennur út. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi eftir rökstuðningi Útlendingastofnunar en bréf með rökstuðningi er undirritað 30. júní 2023. Rökstuðningur fyrir ákvörðun í máli kæranda byggist einkum á tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi vegna misræmis á fyrirhugaðri lengd dvalar samkvæmt umsókn og upplýsingum sem fram komu í símaviðtali kæranda við utanríkisþjónustuna. Í öðru lagi er vísað til vanþekkingar á verkefni því sem honum er falið að sinna á Íslandi.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hans hjá sendiráðinu er rakin. Þar kemur fram að mælt sé með því að umsókn kæranda um vegabréfsáritun verði synjað. Fram kemur að kæranda kveðist ætlað að sinna verki fyrir íslenskt verktakafyrirtæki samkvæmt samningi þess við indverskt verktakafyrirtæki. Kærandi hafi ekki lagt fram eigin skattframtöl, eingöngu gögn frá hinu indverska fyrirtæki. Þá hafi hann ekki lagt fram launaseðla og samkvæmt gögnum málsins var hann nýlega ráðinn til fyrirtækisins. Enn fremur er vísað til símaviðtals kæranda við fulltrúa sendiráðsins þar sem kemur fram að hann tali eingöngu Hindí og að hann væri ómeðvitaður um verkið á Íslandi að því undanskildu að honum bæri að þjálfa íslenskt starfsfólk. Vísað var til þess að kærandi ætti vini á Íslandi sem hafi komið hingað til lands á grundvelli vegabréfsáritunar og sótt síðar um atvinnuleyfi. Þá hafi hann sagst ætla að dveljast í 3 til 6 mánuði.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Við það mat hefur kærunefnd m.a. litið til þess að fulltrúar sendiráðsins hafi tekið símaviðtal við kæranda þar sem komið hafi í ljós að hann virtist hafa litla þekkingu á verkinu sem hann kvaðst ráðinn til að sinna. Þar að auki kemur fram í gögnum málsins að kærandi tali eingöngu Hindí og lítur kærunefnd því til þess að honum gæti reynst erfitt að miðla þekkingu til starfsmanna íslenska verktakafyrirtækisins. Þá lítur kærunefnd einnig til takmarkaðra tengsla kæranda við vinnuveitanda sinn en samkvæmt gögnum málsins hóf hann störf 1. maí 2023 samkvæmt ráðningarsamningi dags. 15. apríl 2023. Þá liggja hvorki fyrir fyrri launaseðlar né skattframtöl sem sýnt gætu fram á atvinnuþátttöku kæranda hjá fyrirtækinu. Þá lítur kærunefnd einnig til misræmis um ætlaða dvöl kæranda með vísan til umsóknar, upplýsingum úr símaviðtali og loks upplýsinga sem komu fram samhliða stjórnsýslukæru.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að rökstudd ástæða sé til að draga í efa ásetning kæranda til að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritun rennur út, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið hætta á að kærandi myndi dveljast lengur á Schengen-svæðinu en honum hafi verið heimilt, sbr. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum