Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 528/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 28. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 528/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050175

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. maí 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur Click or tap here to enter text. og vera ríkisborgari Jemen (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 30. janúar 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, 1. febrúar 2023, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 23. febrúar 2023 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 2. mars 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. mars 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 30. maí 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst greinargerð kæranda 12. júní 2023 ásamt fylgigögnum.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að ítölsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ítalíu.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað varðar málsatvik. Kærandi hafi komið til Íslands frá Ítalíu þar sem hann hafi aðeins dvalið í fimm daga. Kærandi hafi alltaf ætlað sér að koma til Íslands þar sem bróðir hans sé búsettur hér á landi ásamt fjölskyldu sinni. Þeir séu nánir og kærandi hafi lagt fram gögn því til stuðnings. Kærandi þjáist af líkamlegum og andlegum vandamálum og sé með sykursýki tegund tvö sem hafi háð honum í daglegu lífi en hann hafi ekki alltaf haft aðgengi að nauðsynlegum lyfjum. Sykursýki sé alvarlegur sjúkdómur sem geti valdið tjóni á líkama og heilsu og geti jafnvel leitt til dauða hafi sjúklingur ekki greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Kærandi hafi aðgang að lyfjum hér á landi en hann óttist að hafa það ekki á Ítalíu, miðað við landaupplýsingar og þær móttökur sem hann hafi fengið þar í landi. Þá hafi kærandi sótt tíma hjá sálfræðingi hér á landi en hann glími við andlega vanlíðan og kvíða eftir það sem hann hafi upplifað, bæði í heimaríki og á Ítalíu. Nauðsynlegt sé að kærandi fái áframhaldandi sálfræðiaðstoð og stuðning í tengslum við heilsufar sitt.

Kærandi fjallar um aðstæður og réttindi flóttafólks á Ítalíu með vísan til alþjóðlegra skýrslna. Fjöldi flóttamanna hafi komið til Ítalíu síðustu ár sem hafi haft í för með sér álag á flóttamannakerfið og aðstæður og aðbúnaður umsækjenda hafi sætt gagnrýni í kjölfar þess. Þá séu möguleikar umsækjenda um alþjóðlega vernd til þátttöku og aðlögunar í samfélaginu takmarkaðir, sérstaklega fyrir einstaklinga með sérþarfir. Auk þess sé aðgangur að heilbrigðis- og félagsþjónustu takmarkaður, þ. á m. sálfræðiþjónustu. Þá hafi ítölsk stjórnvöld hneppt umsækjendur í varðhald í þeim tilgangi að hefta för þeirra og stýra för flóttamanna inn í landið.

Kærandi byggir á því að hann hafi sérstök tengsl við Ísland í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi nafngreindan albróður sem hafi hlotið alþjóðlega vernd hér á landi. Kona og börn bróður hans séu jafnframt búsett hér á landi. Kærandi sé í nánum og miklum samskiptum við bróður sinn, bæði fyrir og eftir komuna til landsins, líkt og framlögð gögn sýni fram á. Kærandi hafi engin tengsl við Ítalíu og þekki engan þar í landi. Kærandi hafi aðeins dvalið þar í fimm daga. Kærandi hafi stuðning bróður síns og fjölskyldu hans hér á landi en hann hafi reitt sig á hann hingað til, bæði félags- og fjárhagslega. Kærandi sé háður bróður sínum um lífsafkomu og almennan stuðning í daglegu lífi. Bróðir kæranda hafi oft sent kæranda pening til heimaríkis til þess að styðja við kæranda, konu hans og þrjú börn. Bróðir kæranda hafi jafnframt stutt kæranda eftir komuna til landsins, fært honum mat og veitt honum fjárhags- og félagslegan stuðning. Kærandi hafi gist nokkrum sinnum hjá bróður sínum og fari í mat í hverri viku. Bróðir kæranda hafi boðið honum að búa hjá sér en kæranda hafi þótt skynsamlegra að dvelja í úrræði á vegum Útlendingastofnunar á meðan umsókn hans sé til meðferðar. Ljóst sé að kærandi uppfylli skilyrði þess að hafa sérstök tengsl við Ísland og að auki ríkari tengsl við Ísland en við Ítalíu. Því sé ekki um að ræða heimild heldur skyldu íslenskra stjórnvalda til að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi vísar til þess að gerðar séu minni kröfur til skyldleika samkvæmt íslenskum lögum en samkvæmt t.a.m. Dyflinnarreglugerðinni, sbr. m.a. úrskurð kærunefndar nr. 303/2018 frá 28. júní 2018.

Kærandi vísar til þess að í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að ekki þyki ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingjum hans að senda hann aftur til Ítalíu enda sé um fullfríska fullorðna einstaklinga að ræða. Kærandi sé þessu ósammála og telji þvert á móti um ósanngjarna ákvörðun að ræða. Kærandi vísar til þess að hann þjáist af sykursýki sem hái honum í daglegu lífi auk þess sem hann þjáist af andlegum vandamálum vegna atburða sem hann hafi upplifað og sé í sálfræðimeðferð hér á landi. Kærandi sé því ekki fullfrískur einstaklingur og sé í viðkvæmri stöðu og af þeim ástæðum sé hann í enn ríkari þörf fyrir stuðning bróður síns. Kærandi sé ekki í aðstöðu til að standa á eigin fótum í ókunnugu landi þar sem hann eigi við framangreind vandamál að stríða og hafi hingað til reitt sig á bróður sinn. Þá vísar kærandi til þess að í hinni kærðu ákvörðun hafi komið fram að kærandi sé ekki í ríkari eða nánari tengslum við bróður sinn en gengur og gerist á milli systkina almennt. Kærandi sé ósammála því, enda geti hann ekki lifað af án þess stuðnings sem hann hafi haft frá bróður sínum hingað til. Kærandi hafi lagt fram fjölda gagna sem sýni fram á þessi ríku tengsl, bæði fyrir Útlendingastofnun og ný gögn fyrir kærunefnd útlendingamála, þ. á m. skjáskot af millifærslum töluverðra upphæða frá bróður kæranda til kæranda sjálfs og systur þeirra sem sé stödd í heimaríki og taki við fjármunum fyrir eiginkonu og börn kæranda. Kærandi hafi í hyggju að sameinast þeim hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

Kærandi byggir jafnframt á því að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga vegna einstaklingsbundinna aðstæðna sinna og taka beri tillit til þess við meðferð umsóknar hans. Kærandi glími við líkamleg og andleg vandamál, þjáist af sykursýki og glími við kvíða og þunglyndi. Kærandi vísar til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga um að taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mæli með því. Með því sé átt við einstakling sem sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, s.s. vegna heilsufars, sbr. athugasemdir í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Þá vísar kærandi til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi sé ekki nógu vel á sig kominn líkamlega sökum sjúkdóms síns og glími við andlega erfiðleika og vanlíðan. Þá hafi kærandi ekki fengið úthlutað húsnæði eða haft aðgang að fjárhagsaðstoð og grunnþjónustu á Ítalíu. Því verði ekki annað séð en að kærandi hafi átt erfitt uppdráttar á Ítalíu og að staða hans hafi verið síðri en staða almennings í landinu og leiða megi líkur af því með hliðsjón af frásögn hans og landaupplýsingum að það hafi stafað af stöðu hans sem flóttamaður. Þá gæti kærandi þurft á sálfræðiaðstoð að halda vegna andlegra veikinda sinna en ekki sé tryggt að hann hafi aðgang að slíkri þjónustu á Ítalíu.

Kærandi krefst þess að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli meginreglunnar um bann við endursendingu (non-refoulement), sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til 1. mgr. 33. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna og 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til þess að aðstæður flóttamanna á Ítalíu séu slæmar, þar viðgangist fordómar og mismunun, t.a.m. á vinnumarkaði. Auk þess sé skortur á húsnæði og margir búi á götunni við slæmar aðstæður, líkt og kærandi hafi gert þann stutta tíma sem hann dvaldi þar í landi. Við slíkar aðstæður sé lífi, heilsu og velferð kæranda stofnað í hættu, einkum vegna þess að hann þjáist af sykursýki og sé í þörf fyrir læknisaðstoð, lyf og gott utanumhald. Kærandi vísar jafnframt til þess að hann sé ósammála mati Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun um að aðstæður í málefnum flóttamanna á Ítalíu feli ekki í sér ómannúðlegar aðstæður sem brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til niðurstöðu í dómi frá Hollandi þess efnis að ekki hafi verið talið heimilt að senda tvo flóttamenn til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þær aðstæður sem ríki í málefnum flóttamanna á Ítalíu nái því lágmarks alvarleikastigi að falla undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Í greinargerð vísar kærandi til 1. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar um að hverju aðildarríki sé heimilt að taka til meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd þrátt fyrir að það beri ekki ábyrgð á slíkri umsókn samkvæmt þeim viðmiðum sem komi fram í III. kafla reglugerðarinnar, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar. Því sé ekki um að ræða skyldu til að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd heldur hafi íslenska ríkið þvert á móti heimild til þess að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar. Kærandi vísar til þess að þrátt fyrir að samkvæmt lögum séu mannréttindi flóttamanna tryggð á Ítalíu virðist svo ekki vera í framkvæmd. Ekki sé nóg að umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á grunnþjónustu samkvæmt ítölskum lögum heldur þurfi einnig að líta til þess hvort umsækjendur fái í raun þá nauðsynlegu aðstoð sem lög kveði á um. Kærandi vísar til frásagnar sinnar, sem fái stoð í landaupplýsingum, en svo virðist sem að kærandi hafi ekki fengið þá aðstoð sem hann hafi átt rétt á samkvæmt lögum og verið í þörf fyrir.

Þá vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, um að við meðferð máls beri Útlendingastofnun að afla allra nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga og rannsaka mál til þess að þau teljist nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Þá vísar kærandi til handbókar um réttarstöðu flóttamanna þar sem fram komi í greinum 203-205 að umsækjandi eigi að njóta vafans. Það sé oft ómögulegt fyrir umsækjanda að sanna öll atriði í máli sínu. Kærandi hafi bent á hvernig mannréttindi flóttamanna á Ítalíu séu fótum troðin og þá fordóma sem ríki gagnvart flóttamönnum þar í landi. Kærandi sé best til þess fallinn að skýra frá því hvers vegna hann vilji ekki snúa aftur og sömuleiðis verði af vitnisburði hans best séð hvort hann segi sannleikann eður ei.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Kærandi er karlmaður á [...] sem kom einsamall hingað til lands en hefur greint frá því við meðferð málsins að bróðir hans og fjölskylda séu búsett hér á landi. Þá hefur kærandi greint frá því að eiginkona hans og þrjú börn séu stödd í heimaríki. Kærandi hafi farið frá heimaríki til Sádí-Arabíu og dvalið þar í tvo mánuði. Þá hafi kærandi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu 25. janúar 2023 og dvalið þar í fimm daga eða þar til hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 30. janúar 2023. Kæranda hafi ekki verið úthlutað húsnæði á Ítalíu og hann hafi dvalið á götunni í þrjár nætur. Þá hafi kærandi ekki fengið fjárhagsaðstoð frá ítölskum yfirvöldum en hafi verið bent á að leita til útlendingastofnunar þar í landi. Auk þess hafi kæranda ekki verið boðin lögfræðiaðstoð. Kærandi óttist ástandið á Ítalíu og hafi næstum því upplifað fordóma. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri með sykursýki sem hafi byrjað árið 2015 og hann taki lyf að staðaldri. Þá kvaðst kærandi vera við góða andlega heilsu. Í máli kæranda liggja fyrir heilsufarsgögn um að kærandi hafi verið greindur með sykursýki og fengið lyf vegna þess. Þá hafi kærandi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í eitt skipti.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Kærandi vísar til þess að ákvæði 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar kveði á um heimild en ekki skyldu íslenskra stjórnvalda til að synja því að taka umsókn til meðferðar og vísar jafnframt til 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Framangreint ákvæði er undanþáguákvæði frá meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram komi í reglugerðinni. Kærunefnd hefur í eftirfarandi umfjöllun lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a - d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu á umsókn kæranda er byggð á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem kærandi er með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja ítölsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Italy (United States Department of State, 20. mars 2023);

  • Amnesty International Report 2022/23 – Italy – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2023);
  • Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerence, 7. júní 2016);
  • Freedom in the World 2023 – Italy (Freedom House, mars 2023);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elenea, European legal network on asylum, október 2015);
  • Italy: A new system of reception and integration (European Web Site on Integration - Migrant Integration Information and good practices, 25. janúar 2021);
  • Italy: How has the reception system for asylum seekers and refugees changed (European Web Site on Integration - Migration Integration Information and good practices, 4. febrúar 2021);
  • Mutual Trust is Still Not Enough. The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018);
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, janúar 2020);
  • Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
  • The ELENA Index (Elena, European legal network on asylum og European Council on Refugees and Exiles, uppfært febrúar 2019);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/eng/);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (www.hatecrime.osce.org/italy);
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Ítalía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Ítalía verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 16. október 1955. Ítalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 12. janúar 1989 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 15. nóvember 1954.

Í skýrslu European Council on Refugee and Exciles (ECRE) kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni geti hann áfrýjað þeirri niðurstöðu. Þá eigi hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla (í. Tribunale Civile). Jafnframt eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá kemur fram í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafi endanlega synjun á umsókn sinni hjá ítölskum yfirvöldum, eigi þess kost að leggja fram viðbótarumsókn á grundvelli nýrra gagna í máli þeirra hjá lögreglunni og njóti þá sömu almennu réttinda og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, séu frjáls félagasamtök til staðar sem veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veiti gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu.

Í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Ef engin pláss séu til staðar í slíkum móttökumiðstöðvum séu til staðar gistirými í móttökumiðstöðvum sem nefnist CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria). CAS miðstöðvarnar hafi upphaflega einungis verið ætlaðar til tímabundinnar dvalar en vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu nýtur meirihluti umsækjenda um alþjóðlega vernd eingöngu þjónustu í CAS miðstöðvunum. Umræddar miðstöðvar hafa verið gagnrýndar fyrir afskekktar staðsetningar og fyrir að vera yfirfullar og skorta hreinlæti. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tóku ný lög nr. 130/2020 gildi árið 2020 á Ítalíu sem kveða á um breytingar á móttökumiðstöðvum og búsetuúrræðum fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur móttöku- og húsnæðiskerfið SIPRIOMI, sem áður var einungis ætlað þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og fylgdarlausum börnum, verið endurskipulagt og fengið nýtt nafn, SAI (e. System of reception and integration). Búsetuúrræðinu hafi verið skipt í tvennt; annars vegar móttökumiðstöðvar og búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og hins vegar búsetuúrræði og þjónustu fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Samkvæmt lagabreytingum sem tóku gildi í maí 2023 verði móttökukerfinu SAI breytt í undirkerfi og sé einungis ætlað handhöfum alþjóðlegrar verndar.

Af framangreindum gögnum, s.s. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Af skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar geti greining á þolendum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taki ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geti þær m.a. óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fari mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafi haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur sem gefnar hafa verið út af heilbrigðisráðuneytinu varðandi þjónustu handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru þolendur pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þeir þurfi þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fái þeir útgefið tryggingarkort sem veiti þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna. Fyrir útgáfu tryggingarkortsins eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þó rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta geri þó sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fái aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafi lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, jafnt ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Af fyrrnefndum skýrslum, s.s. skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins og samtakanna Human Rights Watch, verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu. Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í kjölfar sendifarar til Ítalíu sem farið var í árið 2019 til þess að meta aukna mismunun á grundvelli kynþáttar, kemur fram að í ítalskri löggjöf sé kveðið á um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Þá sé í stjórnarskrá landsins kveðið á um vernd ákveðinna hópa, þ. á m. útlendinga. Ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Á Ítalíu sé starfrækt stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali (UNAR)) sem hafi það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfa á aðstoð eða ráðgjöf að halda geti leitað til stofnunarinnar og tilkynnt hvers kyns mismunun í gegnum vefsíðu hennar. Þá reki lögreglan stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori (OSCAD)) sem vinni náið með UNAR. Stofnuninni sé m.a. ætlað að auka þjálfun lögreglufólks og stuðla að því að hatursglæpir séu tilkynntir og skráðir. Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Þær tilkynningar sem teljist geta falið í sér glæpsamlegt athæfi séu áframsendar lögreglu til rannsóknar en aðrar séu áframsendar til UNAR. Þá standi dómstólar landsins styrkum fótum sem hafi stuðlað að virkri framkvæmd hluta löggjafar um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kveður stjórnarskrá Ítalíu á um að dómsvald skuli vera sjálfstætt. Þá er einnig kveðið á um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar. Sakborningar séu álitnir saklausir uns sekt er sönnuð og eigi þeir rétt á að vera viðstaddir réttarhöld í máli sínu og njóta aðstoðar lögmanns. Þá geti þeir krafist réttarúrræða fyrir innlendum dómstólum vegna mannréttindabrota og farið með mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna mannréttindabrota stjórnvalda hafi þeir nýtt sér þau réttarúrræði sem þeim standi til boða innanlands.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mála annars með því.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri við góða andlega heilsu en hann hafi verið greindur með sykursýki árið 2015 og taki lyf að staðaldri. Kærandi hafi fengið lyf í heimaríki og Sádí-Arabíu en hann hafi verið með lyf með sér á Ítalíu. Þá hafi kærandi farið í rannsókn og fengið lyf hér á landi. Í komunótu frá Landspítalanum, dags. 2. febrúar 2023, kemur fram að kærandi sé með þekkta sykursýki tegund tvö til fimm ára og hafi verið á lyfjum að staðaldri. Síðastliðinn mánuð hafi kærandi verið lyfjalaus og ekki getað mælt blóðsykur sinn. Kæranda hafi verið vísað á Landspítalann af Rauða krossinum þar sem blóðsykur hans hafi mælst hár. Kærandi hafi ekki verið veikur nýlega en drekki meira en venjulega. Kæranda hafi verið ávísað sambærilegum lyfjum og hann hafi áður verið á. Þá hafi kæranda verið ráðlagt að fara á heilsugæslu og að hann þyrfti helst að fá blóðsykursmæli. Kæranda hafi verið leiðbeint um að leita aftur á spítalann ef hann upplifi slappleika, uppköst eða hita. Þá liggur fyrir upplýsingabréf frá Landspítalanum, dags. 2. febrúar 2023, þar sem framangreindar upplýsingar koma fram. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 6. febrúar til 5. apríl 2023, kemur m.a. fram að kærandi sé með sykursýki og hafi verið ávísað lyfjum vegna þess. Kæranda vanti blóðsykursmæli og bókaður hafi verið tími í sykursýkismóttöku á heilsugæslu Suðurlands. Þá hafi verið pantaður tími fyrir kæranda hjá sálfræðingi. Í læknisvottorði frá heilsugæslunni í Keflavík, dags. 27. mars 2023, kemur m.a. fram að kærandi hafi verið greindur með sykursýki tegund tvö í heimaríki fyrir sjö árum. Kærandi hafi verið lyfjalaus um tíma en hafi nú aftur fengið lyf og blóðsykur sé betri. Að sögn kæranda séu foreldrar hans með sykursýki. Tekin hafi verið BMI-stuðull hjá kæranda. Kæranda hafi verið ráðlögð insúlínnotkun en kæranda sé illa við nálar og ætli að forðast sykur og kolvetni í matvælum og koma aftur í mælingu eftir 1-2 mánuði. Bókaður hafi verið nýr tími í sykursýkismóttöku og kæranda ávísað lyfi vegna vegna próteinmigu og blóðþrýstings sem sé á mörkunum. Í samskiptaseðli frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 12. apríl 2023, kemur fram að kærandi hafi mælst með væg einkenni þunglyndis og lágmarks einkenni kvíða. Kærandi hafi greint frá því að hafa mátt þola erfiða atburði síðastliðið ár. Kærandi hafi lent í vandræðum í heimaríki eftir að hann starfaði með mannréttindasamtökum. Kærandi hafi m.a. orðið vitni að morði vinar og bróður síns í heimaríki. Kærandi hafi flúið til Sádí-Arabíu, þar sem hann hafi fengið taugaáfall. Þá sé hann með samviskubit yfir að hafa skilið fjölskyldu sína eftir en hann hafi gert það í góðum tilgangi. Kærandi hafi sameinast bróður sínum hér á landi eftir tíu ára aðskilnað. Kæranda líði betur hér á landi og vera hans hér á landi hafi haft góð áhrif á geðheilsu hans. Á meðal gagna málsins er jafnframt ódagsett beiðni um styrk til kaupa á hjálpartæki hjá Sjúkratryggingum Íslands, n.tt. blóðhníf og efni til blóðsykursmælinga. Þá liggja fyrir heilbrigðisgögn frá heimaríki kæranda.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 7. mars 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun sem kærandi hafi gert og liggja fyrir í málinu. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 31. maí 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn hafa borist. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Tekur kærunefnd fram í þessu sambandi að kærandi hefur lifað með sykursýki síðastliðin átta ár og ferðaðist með þau lyf sem hann þurfi. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu. Auk þess er gerð sú krafa í samþykki ítalskra stjórnvalda á viðtöku kæranda, dags. 2. mars 2023, að upplýsingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu eða sérstakar þarfir sé miðlað til ítalskra yfirvalda a.m.k. 10 virkum dögum fyrir flutning.

Kærandi hefur greint frá því að hann hafi næstum því upplifað fordóma á Ítalíu. Framangreindar heimildir bera með sér að fordómar viðgangist á Ítalíu en að löggæslan sé virk og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Af framangreindum gögnum verður jafnframt ráðið að ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Lögreglan á Ítalíu reki m.a. stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori). Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar.

Þá hefur kærandi borið fyrir sig að hann hafi ekki fengið húsnæðis- eða fjárhagsaðstoð á Ítalíu. Kæranda hafi þó verið bent á að leita til útlendingastofnunar þar í landi varðandi fjárhagsaðstoð. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Það er jafnframt mat kærunefndar með hliðsjón af þeim heimildum sem nefndin hefur kynnt sér að þær aðstæður sem hafi verið til staðar í móttökukerfinu á Ítalíu undanfarið séu tímabundnar. Þá bendi umræddar heimildir ekki til annars en að ítölsk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Þá bendir kærunefnd á að samkvæmt gögnum málsins dvaldi kærandi aðeins í fimm daga í viðtökuríki, á eða nálægt flugvellinum, og hefur því ekki víðtæka reynslu af móttökukerfinu þar í landi og þeim réttindum sem honum muni standa til boða þar í landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að nafngreindur bróðir hans og fjölskylda hans væru búsett hér á landi. Kærandi greindi m.a. frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að bróðir hans hafi farið frá heimaríki þeirra fyrir tíu árum en þeir hafi verið í sambandi síðastliðin fjögur ár í gegnum síma. Þá hafi bróðir kæranda aðstoðað kæranda og fjölskyldu hans fjárhagslega. Kærandi greindi frá því að samband þeirra væri sterkt, bróðir hans hafi stutt hann og kærandi hafi komið hingað til lands af því þeir séu í góðu sambandi. Kærandi hafi dvalið hér í mánuð þegar viðtal hans hjá Útlendingastofnun hafi farið fram og þá hafi hann hitt bróður sinn þrisvar og m.a. gist hjá honum. Bróðir hans hafi boðið kæranda að búa hjá sér en kærandi hafi ekki vilji það á meðan umsókn hans væri í ferli. Kærandi hefur lagt fram ýmis gögn máli sínu til stuðnings, m.a. afrit af samskiptum þeirra í gegnum samfélagsmiðla, ljósmyndir hér á landi og í heimaríki, myndskeið hér á landi, fæðingarvottorð, fjölskyldubók, tölvubréf frá kæranda um tengsl hans við bróður sinn og fjölskyldu hans, afrit af millifærslum til kæranda á tímabilinu október 2022 til janúar 2023 og til systur kæranda á tímabilinu mars 2023 til júní 2023.

Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl skv. 2. mgr. 36. gr. skuli túlkað. Í athugasemdum sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilvika þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuríkið, svo sem vegna fyrri dvalar. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að með ákvæðinu sé stjórnvöldum eftirlátið mat og hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því má m.a. leiða að þau tengsl sem ákvæðið vísar til geta verið fjarlægari en þau nánu fjölskyldutengsl sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um, sbr. m.a. g-lið 2. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Í 4. mgr. 32. gr. b reglugerðar um útlendinga stendur að umsækjandi teljist ekki hafa sérstök tengsl við Ísland nema aðstandandi hans sé búsettur hér á landi í lögmætri dvöl. Við mat á sérstökum tengslum skal m.a. líta til þess hvort umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi, hvort umsækjandi og aðstandandi hans hafi deilt eða alist upp á sama heimili eða hafi á einhverjum tímapunkti haft uppeldisskyldu eða framfærsluskyldu sín á milli. Stjórnvöldum er heimilt að krefja umsækjanda um að sýna fram á umrædd tengsl, t.d. með framlagningu skilríkja eða vottorða. Þá er stjórnvöldum heimilt að óska eftir því að aðstandandi umsækjanda staðfesti umrædd tengsl. Þá segir í 5. mgr. ákvæðisins að við mat á sérstökum tengslum ber þó ávallt að hafa til hliðsjónar þau tengsl sem viðkomandi hefur í því ríki þar sem hann hefur heimild til dvalar í, m.a. lengd dvalar í ríkinu, fjölskyldutengsl og samfélagsleg tengsl sem umsækjandi hefur myndað við ríkið. Þá skal jafnframt hafa til hliðsjónar hvort viðkomandi eigi rétt á fjölskyldusameiningu skv. VIII. kafla laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður að leggja til grundvallar að eigi umsækjandi um alþjóðlega vernd sannanlega ættingja hér á landi sem hafa heimild til dvalar hér og umsækjandi hefur raunveruleg og sérstök tengsl við hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsókn hans verið tekin til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið. Kærunefnd telur að við mat á sérstökum tengslum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sé stjórnvöldum heimilt að líta til 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en hafa verður í huga að hugtakið er annað og þrengra en hugtakið ættingi sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Þannig geta önnur fjölskyldutengsl fallið undir 2. mgr. 36. gr., en gera verður ríkari kröfur til þess að sýnt sé fram á að þau tengsl séu sérstök og rík. Umræddir ættingjar kæranda teljast ekki til nánustu aðstandenda hans samkvæmt orðalagi 17. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og því verður að mati kærunefndar að gera ríkari kröfur til þeirra tengsla sem kærandi byggir málatilbúnað sinn á.

Þegar málið er metið heildstætt er það mat nefndarinnar að leggja verði til grundvallar að kærandi eigi ættingja hér á landi í lögmætri dvöl. Á hinn bóginn hafa þau gögn sem kærandi hefur lagt fram, þ. á m. gögn frá heimaríki og myndir, ekki sýnt fram á að umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi. Þrátt fyrir að kærandi hafi á tímabili móttekið greiðslur frá bróður sínum verður ekki talið að þeir hafi á einhverjum tímapunkti haft uppeldis- eða framfærsluskyldu sín á milli, sbr. 4. mgr. 32. gr. b reglugerðar um útlendinga. Við það mat lítur kærunefnd m.a. til þess að þeir hafi ekki hist síðastliðin tíu ár og aðeins verið í sambandi síðastliðin fimm ár. Þá fellst kærunefnd ekki á þá málsástæðu kæranda að hann þurfi aðstoð bróður síns sökum sykursýkinnar en kærandi hefur lifað með sjúkdóminn síðan 2015 og ekki annað að dæma samkvæmt heilsufarsgögnum en að heilsufar hans vegna sjúkdómsins sé stöðugt. Af heildarmati á aðstæðum kæranda og fyrirliggjandi gögnum málsins er það því niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. 303/2018 frá 28. júní 2018, og þess að minni kröfur séu gerðar til skyldleika samkvæmt íslenskum lögum en t.a.m. samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni. Í framangreindu máli var um að ræða sérstök tengsl við móður sem var að glíma við andleg veikindi. Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda í þessu máli og kærenda í framangreindu máli ólíkar og ekki hægt að jafna þeim saman. Þá vísar kærunefnd til þess að framangreindur úrskurður féll fyrir gildistöku 4. og 5. mgr. 3. gr. reglugerðar um útlendinga.

Kærandi vísar jafnframt til þess í greinargerð að hann sé ósammála mati Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun á sérstökum tengslum kæranda við bróður sinn. Útlendingastofnun hafi m.a. vísað til þess að um væri að ræða fullfríska fullorðna einstaklinga en kærandi þjáist af sykursýki sem hái honum í daglegu lífi. Kærandi geti ekki staðið á eigin fótum og reiði sig á bróður sinn. Þá hafi Útlendingastofnun vísað til þess að samband þeirra væri ekki ríkara eða nánara en gengur og gerist á milli systkina. Kærunefnd tekur undir með kæranda að líta þurfi til stöðu kæranda og bróður hans við mat á sérstökum tengslum, þ. á m. til heilsufars og gerir athugasemd við orðalag Útlendingastofnunar hvað þetta atriði varðar. Líkt og komið hefur fram hefur kærandi verið greindur með sykursýki og þarfnast lyfja að staðaldri. Kærunefnd telur þó að framlögð gögn bendi ekki til þess að kærandi sé háður umönnun bróður síns í daglegu lífi. Þá vísar kærunefnd til þess að kærandi eigi rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og lyfjum á Ítalíu. Þá geti kærandi áfram ræktað tengsl  við bróður sinn og fjölskyldu hans þrátt fyrir að hann verði endursendur til Ítalíu.

Þá telur kærunefnd að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 30. janúar 2023.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að vegna stöðu hans sem umsækjanda um alþjóðlega vernd á Ítalíu verði endursending hans þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Vegna umfjöllunar kærenda um mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann taldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna. Líkt og fram hefur komið benda heimildir til þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi. 

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar og telur að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. laga um útlendinga við meðferð málsins. Kærunefnd hefur tekið afstöðu til athugasemda kæranda að framan og telur að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst hjá Útlendingastofnun áður en ákvörðun hafi verið tekin, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera frekari athugasemdir við hana.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 30. janúar 2023 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Ítalíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Valgerður María Sigurðardóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum