Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 559/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 5. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 559/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23070127

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 24. júlí 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. júlí 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 9. júní 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í 89 daga, fyrir tímabilið 1. júlí til 27. september 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. júlí 2023. Hinn 24. júlí 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru lýsir kærandi vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn hennar um vegabréfsáritun til Íslands. Kærandi hafi ákveðið að skjóta niðurstöðunni til æðra setts stjórnvalds enda telji hún misskilnings hafi gætt við mat Útlendingastofnunar í máli hennar. Kæranda var veittur frestur til 8. ágúst 2023 til þess að leggja fram greinargerð, viðbótarupplýsingar og frekari gögn vegna málsins. Kærandi lagði ekki fram greinargerð né frekari gögn vegna málsins og vísast því til framangreinds málatilbúnaðar úr kæru. Í gögnum málsins kemur fram að tilgangur umsóknar kæranda sé viðskiptaferð og heimsókn til fyrirtækisins [...] ehf. en kærandi hefur starfað hjá fyrirtækinu sem ráðgjafi eða verktaki á grundvelli ráðningarsamnings við indverskt fyrirtæki. Tilgangur með heimsókninni hafi verið að kynnast betur starfsemi fyrirtækisins og þjálfa kæranda til þess að geta tekið að sér ný verkefni.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands, sbr. fyrrgreind 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 10 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun og því liggur ekki fyrir í máli kæranda frekari rökstuðningur Útlendingastofnunar vegna synjunar á umsókn hennar.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá utanríkisþjónustunni er rakin. Fram kemur að kærandi hafi lagt fram nýjar flugbókanir þar sem dagsetning fyrra flugs hafi liðið við vinnslu umsóknarinnar. Hvorki hafi tekist að sannreyna fyrri né síðari flugbókun kæranda. Fram kemur að kærandi hafi verið boðuð til símaviðtals en í viðtalinu hafi m.a. komið fram að kærandi hafi aldrei ferðast út fyrir heimaríki, ætlunin hafi verið að dveljast í 89 daga en það hafi verið samkvæmt ráðlagningu gestgjafa síns, framkvæmdastjóra [...] ehf. Kærandi vísar til þess að hún stundi fjarvinnu og geti starfað hvaðan sem er, og gæti því allt eins nýtt dvalartíma sinn á Íslandi til þess að vinna. Í málaskránni kemur einnig fram að gestgjafi kæranda hafi verið boðuð til símaviðtals. Í viðtalinu hafi komið fram að kærandi starfi sem bókari hjá indversku fyrirtæki sem hið íslenska fyrirtæki kaupi þjónustu frá. Tilgangur heimsóknarinnar hafi verið að kynna hana fyrir fyrirtækinu og starfsemi þess. Fram kemur að kærandi hafi óskað eftir hámarksdvöl innan ramma reglna sem gilda um vegabréfsáritun samkvæmt ráðleggingu gestgjafans. Utanríkisþjónustan bendir á að kærandi er ekki ráðin hjá íslenska fyrirtækinu heldur starfi hún sem ráðgjafi eða verktaki á grundvelli ráðningarsambands við indverskt fyrirtæki. Telur utanríkisþjónustan að kærandi eigi heldur að sækjast eftir atvinnuleyfi. Var því mælst til að umsókn kæranda um vegabréfsáritun yrði synjað.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn kæranda um vegabréfsáritun. Kæranda var boðið að leggja fram frekari gögn eða skýringar til stuðnings kæru sinni sem kærandi gerði ekki. Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga.

Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum