Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 597/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 16. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 597/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23100009 og KNU23100010

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli

[…] og […]

 

I.        Málsatvik

Hinn 27. september 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. mars 2023, um að synja […] og […], ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðilum 28. september 2023 og 4. október 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 12. október 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðilar krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður aðila

Í greinargerð aðila kemur fram að þau hyggi á málshöfðun fyrir íslenskum dómstólum til ógildingar á úrskurði kærunefndar í máli þeirra og telji aðstæður sínar í Venesúela ekki vera þess eðlis að þau hafi þar tækifæri eða getu til að gæta hagsmuna sinna hér á landi. Það sé þeim nauðsynlegt að geta dvalið hér á landi þar til dómstólar hafi fengið tækifæri til að fjalla um málsástæður tengdar umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi. Aðilar bendi sérstaklega á meginregluna um réttláta málsmeðferð og telji hana ekki tryggða nema þau geti gætt hagsmuna sinna hér á landi.

Aðilar vísa til þess að veruleg álitamál séu uppi þegar komi að málsmeðferð og mati stjórnvalda á umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi, álitamál sem ljóst megi vera að hafi áhrif langt umfram þeirra eigin mál. Aðilar vísa til þess að kærunefnd hafi ekki gætt að rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Nefndin byggi á væntingum um betri tíð en ekki staðfestum heimildum um að aðstæður þeirra sem kunni að verða sendir til Venesúela hafi verið betri 27. september 2023 en 18. júlí 2022. Þetta fari gegn tilmælum nefndarinnar í fyrri úrskurðum. Þá fjalla aðilar um aðstæður í Venesúela og vísa í alþjóðlegar skýrslur máli sínu til stuðnings. Aðila benda á að leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafi hingað til verið fylgt og nýju túlkun nefndarinnar á samstarfi samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga verði íslenskur dómstóll að meta.

Að lokum vísa aðilar til jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga, réttmætra væntinga sinna og annarra brota gegn málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga sem framin hafi verið við meðferð umsókna þeirra. Ákvörðun Útlendingastofnunar hafi ekki legið fyrir fyrr en 31. mars 2023 og því um brot á málshraðareglu að ræða. Þá hafi málsmeðferðin brotið gegn 4. mgr. 24. gr. laga um útlendinga, 4. mgr. 23. gr. laganna og 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Regla 4. mgr. 23. gr. laga um útlendinga um að tilkynna beri aðila um tafir á ákvörðun í máli hans komi jafnframt fram í 3. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Aðilar telji þá að sú breyting á stjórnsýsluframkvæmd sem Útlendingastofnun hafi gert án tilkynningar í nóvember 2022, eftir að þau hafi sótt um alþjóðlega vernd, hafi verið ómálefnaleg og ólögleg í ljósi málshraðareglunnar. Engar heimildir eða atburðir í nóvember 2022 hafi gefið Útlendingastofnun tilefni til að setja umsóknir einstaklinga frá Venesúela á ís.

Aðilar telji mikilvægt að íslenskir dómstólar meti áhrif þeirra réttmætu væntinga sem þau hafi haft við komuna til landsins, áhrif jafnræðisreglunnar og áhrif framangreindra brota gegn málsmeðferðarreglum.

III.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu þeirra að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að þau skuli yfirgefa landið takmarki möguleika þeirra til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Aðilar hafa möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991, og þá geta þau ferðast hingað til lands og dvalið hér á landi í 90 daga á hverju 180 daga tímabili á grundvelli áritunarfrelsis venesúelskra ríkisborgara. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki þeirra séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðilum til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli þeirra.

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum