Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 673/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 6. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 673/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23100152

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli [...]

I.        Málsatvik

Hinn 12. október 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. maí 2023, um að umsókn [...], fd. 17. mars 1994, ríkisborgari Nígeríu, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrði ekki tekin til efnismeðferðar og að hún yrði endursend til Ítalíu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 16. október 2023 og 23. október 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 27. október 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður aðila

Aðili fer fram á að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar verði frestað þar sem hún hyggist bera mál sitt undir dómstóla. Aðili byggir beiðni sína á því að hún geti ekki snúið aftur til Ítalíu með son sinn þar sem þau muni ekki hafa húsnæði þar í landi og hún muni ekki geta séð fyrir barni sínu. Eiginmaður aðila sem sé búsettur á Ítalíu geti ekki veitt þeim húsnæði þar sem hann deili leiguíbúð með vini sínum. Þá sé eiginmaður aðila ekki með atvinnu á Ítalíu og hann muni ekki hafa val um annað en að senda aðila og barnið þeirra til heimaríkis þar sem ástandið sé slæmt. Fjölskylda aðila í heimaríki hafi ekki öruggt skjól, hús móður aðila hafi verið brennt og þau hafi neyðst til að fara frá einum stað til annars. Þá glími aðili við hjartsláttartruflanir og hjarta hennar hafi slegið mjög hratt eftir að úrskurðað hafi verið í máli hennar. Aðili sé hrædd við að leita sér læknisaðstoðar. Aðili óski þess að henni og syni hennar verði gefið tækifæri til þess að dvelja löglega hér á landi. Aðili sé dugleg að vinna og leggi hart af sér til að gefa syni sínum gott líf.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hennar að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar um efnismeðferð. Fyrir liggur að stjórnvöld í viðtökuríkinu hafa viðurkennt skyldu sína til þess að taka við aðila og umsókn hennar um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að henni sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar bera stjórnvöld viðtökuríkis ábyrgð á umsókn aðila um alþjóðlega vernd og er skylt að tryggja að hún verði ekki endursend í slíkar aðstæður annars staðar. Í samræmi við framangreint er það mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hún aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Í úrskurði kærunefndar í máli aðila var gerð grein fyrir mati nefndarinnar á hagsmunum barns aðila. Í úrskurðinum er m.a. vísað til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga þar sem fram koma sérviðmið er varða börn og ungmenni. Var það niðurstaða kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til viðtökuríkis samrýmdist hagsmunum barnsins þegar litið væri m.a. til öryggis þess , velferðar og félagslegs þroska, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá var það einnig mat kærunefndar að gögn málsins bentu ekki til þess að hætta væri á að fjölskyldan yrði aðskilin við meðferð máls þeirra í viðtökuríki.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hennar.

 

ÚRSKURÐARORÐ

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum