1/2007
Úrskurðarnefnd skv. 31. gr. laga nr. 7/1998.
Ár 2007, föstudaginn 16. mars, kom nefnd skv. 31.gr. l. nr. 7/1998 saman til fundar á skrifstofu formanns nefndarinnar að Suðurlandsbraut 6, Reykjavík. Mætt voru Steinunn Guðbjartsdóttir, Gunnar Eydal og Guðrún Helga Brynleifsdóttir.
Fyrir var tekið mál nr. 1/2007 Gylfi Pálmason, kt. 091146-2669, Leirubakka 14, Reykjavík, hér eftir nefndur kærandi gegn Húnaþingi vestra, Klapparstíg 4, 530 Hvammstanga, hér eftir nefnt kærði.
Í málinu er kveðinn upp svofelldur
úrskurður:
I.
Með bréfi dagsettu 9. janúar 2007 kærði Gylfi Pálmason ákvörðun sveitastjórnar Húnaþings vestra frá 17. mars 2005 um innheimtu sorpeyðingagjalds og gjalds vegna losunar rotþróa á fasteign hans að Hjallholti Vatnsnesi. Í kærunni er jafnframt farið fram á endurgreiðslu á ofteknum gjöldum vegna álagningarinnar.
Fylgiskjöl með stjórnsýslukærunni eru :
1) Bréf kæranda dagsett 7. mars 2007.
2) Bréf kærða dagsett 17. mars 2007.
3) Ljósrit greiðsluseðils v. innheimtu sorpgjalds
4) Bréf Umboðsmanns alþingis dagsett 29. desember 2007.
Með bréfi dagsettu 20 janúar 2006 var kæran kynnt Húnaþingi vestra og því veittur frestur til að koma að athugasemdum við hana og frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Umsögn Húnaþings vestra barst innan tilskilins frests. Umsögnin var send til kæranda og honum gefinn frestur til koma að athugasemdum. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.
II.
Kærandi kveður málavexti vera þá að honum sé gert að greiða sorpeyðingagjald og gjald vegna losunar rotþrór við fasteign sem hann á að Hjallholti, Vatnsnesi. Kærandi telur að gjaldið eigi m.a. að taka mið af magni, losun og þjónustustigi og að ekki eigi að vera sama gjald á fasteign þar sem er föst búseta og fasteign þar sem ekki er búið að jafnaði en ekki er föst búseta á bænum. Þá telur kærandi að ekki sé þörf á losun rotþróarinnar vegna lítillar notkunar og frábiður sér afskipti yfirvalda af henni. Kæran lýtur annarsvegar að álagningu sorpeyðingargjalds og hins vegar að álagningu hreinsunargjalds rotþróa
III
Greinargerð kærða, Húnaþings vestra er dagsett 15. febrúar 2007.
Í greinargerðinni kemur fram að kærði hafi á liðnum árum innheimt sorpeyðingargjald af eigendum lögbýla í sveitarfélaginu svo og sorphirðugjald og sorpeyðingargjald af eigendum fasteigna innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins. Innheimta umræddra gjalda byggi á heimild 3. tl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Kærði hafi á grundvelli umræddrar heimildar sett gjaldskrá þar sem nánar er kveðið á um álagningu sorpgjaldanna.
Jafnframt kemur fram að í dreifbýli í Húnaþingi vestra er sorp ekki sótt að hverju lögbýli heldur eru söfnunargámar fyrir heimilissorp settir upp og þeir svo losaðir með reglubundnum hætti. Innan þéttbýlissvæða sveitarfélagsins er sorp hinsvegar sótt að hverri íbúð vikulega. Í samræmi við þetta fyrirkomulag greiða eigendur lögbýla sorpeyðingargjald en eigendur fasteigna á þéttbýlissvæðum greiða bæði sorpeyðingargjald og sorphirðugjald sem lagt er á sérstaklega vegna hirðingarinnar. Álagt sorpeyðingargjald skv. gjaldskrá 2006 er kr. 7.200- og er það lagt á alla eigendur fasteigna í sveitarfélaginu. Ekki er gerður greinarmunur á því hvort eigendur fasteigna nýta þjónustuna mikið eða lítið. Umrædd þjónusta stendur kæranda til boða líkt og öðrum fasteignaeigendum í sveitarfélaginu.
Fram kemur að kærði hafi á liðnum árum lagt í umtalsverðan kostnað til að koma sorphirðu og sorpeyðingarmálum í það horf sem lög og reglugerðir kveða á um. Í ljósi þess sé ómögulegt fyrir kærða að taka tillit til beiðna um niðufellingu eða lækkun sorpgjalda þar sem skipulag er í föstum skorðum og kostnaður fastur og fellur því ekki niður þótt einstaklingar eða fyrirtæki nýti ekki sorpþjónustuna að fullu einhvern hluta ársins. Ekki sé heldur unnt að verða við beiðni kæranda um að sorpgjöld í dreifbýli séu innheimt eftir vigt þar sem eigendum fasteigna er ætlað að koma heimilissorpi í söfnunargáma. Þá sé ekki hægt að verða við þeirri beiðni kæranda að við innheimtu sorpeyðingargjalds verði tekið tillit til þess að ekki sé um fasta búsetu að ræða. Fasteignatengd gjöld sveitarfélaga hafi verið álögð og innheimt óháð því hvort fasteignir séu nýttar til atvinnustarfsemi eða til íbúðar, eingöngu hafi verið horft til þess hvort viðkomandi eign hafi verið skráð í fasteignamat eða ekki og þar af leiðandi hafi þau gjöld ekki verið felld niður hafi viðkomandi fasteignir ekki verið nýttar allt árið. Kærði telur að það sama hljóti að gilda varðandi álagningu gjalda vegna sorpeyðingar og ekki sé hægt að sjá hvernig annað fyrirkomulag geti gengið upp án verulegs kostnaðarauka fyrir þá sem þjónustuna nota.
Í greinargerðinni kemur fram rekstrargjöld vegna sorphirðu og sorpeyðingar í sveitarfélaginu séu langt umfram rekstrartekjur Af því megi vera ljóst að innheimtu sorpgjalda hefur verið mjög í hóf stillt.
Í lögum nr. 45/1998 segir að sveitarstjórnir hafi ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna sveitarfélagsins og um framkvæmd þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast að svo miklu leyti sem ekki eru um það settar reglur í löggjöf. Í lögum um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 og reglugerð um meðhöndlun úrgangs nr. 737/2003 segir að sveitarstjórn sé ábyrg fyrir reglubundinni tæmingu og flutningi sorps frá öllum húsum á viðkomandi svæði. Í 11. gr. laga nr. 55/2003 segir m.a. að sveitarfélögum sé heimilt að innheimta gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs en gjöld megi ekki vera hærri en nemur kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum og hafa þessi ákvæði ásamt öðrum er tengjast álagningu og innheimtu sorpgjalda í sveitarfélaginu ávallt verið höfð að leiðarljósi.
Á grundvelli þessa telur kærði að álagning og innheimta sorpgjalda í sveitarfélaginu sé fyllilega eðlileg og réttmæt og standist ákvæði gildandi laga og reglugerða er málið varða.
Kærði innheimti á árinu 2006 hreinsunargjald rotþróa af íbúðar, atvinnu og frístundahúsum í sveitarfélaginu sem ekki tengjast fráveitukerfum innan þéttbýlissvæða sveitarfélagsins. Umrædd innheimta er í samræmi við samþykkta gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra á árinu 2006 nr. 911/2006 en hún er sett á grundvelli samþykktar sveitarfélagsins um rotþrær og siturlagnir nr. 910/2004. Samþykkt sveitarfélagsins hefur hlotið staðfestingu Umhverfisráðuneytisins sbr. ákvæði 25. gr. laga nr. 7/1998.
Í 14. gr. reglugerðar nr. 799/1999 um meðhöndlun seyru er sú skylda lögð á sveitarstjórnir að þær sjái til þess að kerfisbundinni tæmingu sé komið á seyru úr rotþróm og það kveðst kærði hafa gert með sérstakri samþykkt um rotþrær og siturlagnir og gjaldskrá. Kærði kveðst hafa komið upp kerfisbundinni hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu þar sem samið hefur verið við þjónustuaðila sem uppfyllir ákvæði reglugerðar nr. 785/1999. Skipulögð hafa verið þrjú hreinsunarsvæði í sveitarfélaginu og eru rotþrær á hverju þeirra hreinsaðar á þriggja ára fresti og er sú losunartíðni í samræmi við meðmæli Umhverfisstofnunar þar að lútandi og samþykkt sveitarfélagsins. Hvað varðar skyldur sveitarfélaga í þessu efni vísar kærði til laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 og reglugerðar um meðhöndlun úrgangs nr. 737/2003
Fram kemur að við ákvarðanatöku um innheimtu hreinsunargjaldsins hafi verið ákveðið að það skyldi innheimt árlega þó hreinsun færi fram á þriggja ára fresti. Gjaldtaka er byggð á rauntölum sl. ára að sögn kærða.
Á grundvelli þeirra atriða sem fjallað hefur verið um hér að framan álítur kærði að álagning og innheimta hreinsunargjalds rotþróa í sveitarfélaginu sé fyllilega eðlileg og réttmæt og standist ákvæði gildandi laga og reglugerða er málið varða.
IV.
Ágreiningur máls þessa lýtur annarsvegar að álagningu sorpeyðingargjalds og hins vegar að álagningu hreinsunargjalds rotþróa.
Í 14. gr. rgl. nr. 799/1999 kemur fram að sveitarstjórnir skuli sjá til þess að komið sé á kerfisbundinni tæmingu á seyru úr rotþróm. Með tilvísan til þess og með tilvísun til 25. gr. l. nr. 7/1998 er sveitarstjórnum heimilt að setja samþykktir og gjaldskrá um meðferð úrgangs og sorps. Eru því heimildir kærða í samræmi við gildandi lög og reglugerðir og álagning gjalda vegna seyrulosunar einnig. Ekki er unnt að fallast á þá málsástæðu kæranda að við gjaldtöku beri að taka mið af magni, losun og þjónustustigi. Álögð gjöld eru að mati nefndarinnar í samræmi við þá þjónustu sem kæranda stendur til boða. Ekki er tekin afstaða til réttmætis þess að gjald er innheimt árlega en seyrulosun fer fram 3ja hvert ár enda lýtur kæruefnið ekki að því álitaefni. Ekki er fallist á kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun kærða um álagningu og innheimtu sorpeyðingargjalds og álagningu hreinsunargjalds rotþróa.
ÚRSKURÐARORÐ:
Ekki er fallist á kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun kærða um álagningu og innheimtu sorpeyðingargjalds og álagningu hreinsunargjalds rotþróa.
___________________________________
Steinunn Guðbjartsdóttir
__________________________ ___________________________
Gunnar Eydal Guðrún Helga Brynleifsdóttir