Mál nr. 397/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 397/2024
Miðvikudaginn 6. nóvember 2024
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 28. ágúst 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 17. júlí 2024 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 2. maí 2024.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með rafrænni umsókn, móttekinni 4. júlí 2024, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með syni þeirra frá 1. maí 2024. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 17. júlí 2024, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 2. maí 2024.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. ágúst 2024. Með bréfi, dags. 3. september 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins barst 24. september 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. febrúar 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi greitt meðlag beint til barnsmóður sinnar frá upphafi til dagsins í dag, sbr. skjáskot úr heimabanka. Kærandi geti einnig fundið skrifleg samskipti milli hans og barnsmóður hans þessu til staðfestingar. Frá og með 1. september 2024 muni meðlagsgreiðslur fara í gegnum Tryggingastofnun ríkisins. Tryggingastofnun hafi aftur á móti sent kæranda tilhæfulausa reikninga vegna meðlagsgreiðslna fyrir tímabilið 1. maí 2024 til 31. ágúst 2024 sem honum beri ekki að greiða. Kærandi krefst þess að Tryggingastofnun afturkalli þessa reikninga.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með syni þeirra frá 2. maí 2024.
Í 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.
Í 4. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 40. gr. ekki við.
Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns um meðlag eða samningi foreldra um meðlag staðfestum af sýslumanni, þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemi einföldu meðlagi.
Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 17. júlí 2024, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður hans frá 2. maí 2024 með syni þeirra. Tryggingastofnun hafi borist umsókn barnsmóður kæranda um meðlag 4. júlí 2024 um meðlagsgreiðslur frá 1. maí 2024 ásamt úrskurði Sýslumannsins á Suðurnesjum, dags. 26. júní 2024, þar sem fram komi að hann skuli greiða meðlag með syni sínum frá 2. maí 2024 til 18 ára aldurs.
Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 42. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags allt að 12 mánuði aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.
Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. úrskurður Sýslumannsins á Suðurnesjum, dags. 26. júní 2024, sem kveði á um meðlagsgreiðslur kæranda til barnsmóður hans. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag.
Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu um meðlag til barnsmóður kæranda frá 2. maí 2024, eins og óskað hafi verið eftir og meðlagsákvörðun hafi kveðið á um, og hafi ekki heimild til að taka það til greina sem kærandi hafi tekið fram í kæru sinni.
Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna. Í því samhengi skipti ekki máli hvort barn hafi jafna búsetu hjá báðum foreldrum sínum eða hvort greiðsla meðlags hafi farið fram fyrir það tímabil sem Tryggingastofnun hafi samþykkt milligöngu meðlags. Þá hafi nefndin sagt að ekki sé heimilt að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarki lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá stofnuninni, eins og til dæmis að gefa greiðanda kost á að sýna fram á að meðlag hafi verið greitt fyrir sama tímabil. Meðal úrskurða nefndarinnar varðandi þessi atriði megi nefna úrskurði nr. 312/2017, 333/2018, 17/2019, 215/2019, 407/2019, 408/2019, 59/2020 og 76/2021.
Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn þá sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og úrskurði úrskurðarnefndar.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 17. júlí 2024 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 2. maí 2024.
Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla laganna, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.
Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með syni þeirra frá 1. maí 2024 með rafrænni umsókn þann 4. júlí 2024. Stofnunin samþykkti umsóknina frá 2. maí 2024 á grundvelli úrskurðar Sýslumannsins á Suðurnesjum, dags. 26. júní 2024. Samkvæmt honum ber kæranda að greiða barnsmóður sinni meðlag með syni þeirra frá 2. maí 2024 til 18 ára aldurs barnsins.
Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni falið að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, sé þess farið á leit við stofnunina, í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir.
Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi greitt meðlagið beint til barnmóður sinnar frá 1. maí til 31. ágúst 2024. Með vísan til 1. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna á grundvelli framangreindrar málsástæðu þar sem fyrir liggur löggild meðlagsákvörðun sem kveður á um greiðsluskyldu kæranda.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 17. júlí 2024 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 2. maí 2024.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá 2. maí 2024, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir