Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 547/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Beiðni um endurupptöku máls nr. 547/2023

Miðvikudaginn 21. ágúst 2024

A

gegn

Sjúkratryggingum Íslands

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með tölvupósti sem barst úrskurðarnefndinni 10. júní 2024 óskaði A, eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála endurskoðaði mál hennar vegna synjunar Sjúkratrygginga Íslands frá 5. október 2023 á umsókn hennar um endurgreiðslu erlends sjúkrakostnaðar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. nóvember 2023. Með bréfi, dags. 31. janúar 2024, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst með bréfi, dags. 8. febrúar 2024, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, 14. febrúar 2023. Engar athugasemdir bárust.

Með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 20. mars 2024, var ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands staðfest. Þann 10. júní 2024 barst tölvupóstur frá kæranda þar sem hún óskar eftir endurupptöku á máli sínu hjá nefndinni.

II.  Sjónarmið kæranda

Í tölvupósti kæranda tekur hún fram að hún hafi fundið fleiri gögn sem styðji mál hennar miðað við þann úrskurð sem hún hafi fengið frá nefndinni og biður nefndina um að skoða þau. Sérstaklega þar sem Sjúkratryggingar Íslands segjast ekki hafa fengið umsókn fyrir fram og að aðgerðin hafi ekki verið bráðaaðgerð. Þetta hafi vissulega ekki verið hjartaáfall eða slíkt bráðatilvik en nógu aðkallandi til að kærandi hafi orðið að fresta því um viku að fara í aðgerð miðað við hvað læknirinn hafi viljað, svo aðkallandi hafi honum þótt tilvikið vera.

III. Niðurstaða

Óskað er eftir endurupptöku á úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 20. mars 2024. Með úrskurðinum var synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn kæranda um endurgreiðslu erlends sjúkrakostnaðar staðfest. Kærandi óskar þess að úrskurðarnefnd velferðarmála taki kæruna til efnislegrar meðferðar á ný.

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef:

  1. ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða
  2. íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Aðili máls getur einnig átt rétt á endurupptöku máls á grundvelli annarra ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar, til að mynda ef ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á röngu mati stjórnvalds.

Gögnin sem kærandi lagði fram með beiðni um endurupptöku lágu þegar fyrir í málinu að undanskilinni ódagsettri umsókn útfylltri af kæranda sjálfri.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála verður ekki ráðið af gögnum málsins að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að atvik hafi breyst verulega frá uppkvaðningu úrskurðarins, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 37/1993, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 37/1993. Þá verður ekki séð að kærandi eigi rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar. Ítarleg læknisfræðileg gögn lágu fyrir við upphaflega meðferð málsins og þær upplýsingar sem koma fram í beiðni kæranda um endurupptöku og fylgigögnum gefa ekki til kynna að niðurstaða úrskurðarnefndarinnar hafi byggst á röngu mati.

Með hliðsjón af framangreindu er beiðni kæranda um endurupptöku máls úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 547/2023 synjað.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Beiðni A, um endurupptöku máls nr. 547/2023 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, er synjað.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum