Mál nr. 515/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 515/2024
Miðvikudaginn 4. desember 2024
A
gegn
Sjúkratryggingum Íslands
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Guðríður Anna Kristjánsdóttir lögfræðingur og tannlæknir.
Með kæru, sem barst 8. október 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Sjúkratrygginga Íslands frá 12. september 2024 um þátttöku í kostnaði við tannlækningar.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 8. júlí 2024, sótti kærandi um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í tannlækningum. Með bréfi Sjúkratrygginga Íslands, dags. 12. september 2024, var umsókninni synjað á þeirri forsendu að ekki yrði ráðið að tannvandi kæranda væri alvarlegur í skilningi 20. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. október 2024. Með bréfi, dags. 17. október 2024, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Greinargerð Sjúkratrygginga Íslands barst með bréfi, dags. 1. nóvember 2024, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi, dags.5. nóvember 2024. Engar athugasemdir bárust.
II. Sjónarmið kæranda
Ráða má af kæru að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, dags. 12. september 2024.
Í kæru kemur fram að kærandi sé með staðfest bakflæði frá meltingarsérfræðingi og hafi það áhrif á glerung tanna kæranda. Þriðjungur af glerungi tanna hennar hafi tapast vegna bakflæðis. Bakflæði sé meðfæddur galli og skv. 1. gr., 10. gr., 11. gr. og 12. gr. reglugerðar frá Sjúkratryggingum Íslands þá eigi einstaklingar rétt á greiðsluþátttöku frá þeim.
II. Sjónarmið Sjúkratrygginga Íslands
Í greinargerð Sjúkratrygginga Íslands segir að stofnunin hafi þann 9. júlí 2024 móttekið umsókn kæranda um þátttöku í kostnaði við gerð facetta á fram- og augntennur neðri góms (33-43) og krónu á jaxl (26) í efri góm. Umsóknin hafi verið afgreidd 12. september 2024 og greiðsluþátttöku synjað á þeim forsendum að tannvandi kærandi væri ekki alvarlegur í skilningi 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og sannanlega afleiðing sjúkdóms.
Í lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar sé fjallað um heimildir Sjúkratrygginga Íslands til kostnaðarþátttöku vegna tannlækninga. Í 1. málsl. 1. mgr. 20. gr. laganna sé heimild til greiðsluþátttöku vegna barna og unglinga svo og elli- og örorkulífeyrisþega. Í 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. komi meðal annars fram að sjúkratryggingar taki einnig til nauðsynlegra tannlækninga vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Jafnframt sé fjallað um endurgreiðslu vegna tannlækninga í reglugerð nr. 766/2024 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar og tannréttingar. Í III. kafla reglugerðarinnar séu ákvæði um greiðsluþátttöku stofnunarinnar vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla eða sjúkdóma svo sem alvarlegrar sýrueyðingar glerungs og tannbeins fullorðinstanna framan við endajaxla.
Kærandi tilheyri ekki neinum þeirra hópa sem tilgreindir séu í 1. málsl. 1. mgr. 20. gr. laganna. Til álita komi þá hvort réttur sé fyrir hendi samkvæmt 2. málsl. greinarinnar. Þar sem ákvæði 2. málsl. sé undantekning frá þeirri meginreglu að aðeins börn og lífeyrisþegar eigi rétt á kostnaðarþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna tannlækninga, beri að túlka ákvæðið þröngt.
Við afgreiðslu málsins hafi verið lagt mat á tannvanda kæranda, byggt á innsendum gögnum með umsókn, móttekinni 9. júlí 2024 og viðbótargögnum sem kallað hafi verið eftir þann 4. september 2024, þ.e. yfirlitsröntgenmynd af tönnum og kjálkum kæranda, fjölda ljósmynda og röntgenmynda af tönnum og læknabréf. Í læknabréfi meltingalæknis, dags. 16. maí 2024, komi fram að kærandi sé með magasár. Af yfirlitsröntgenmynd af tönnum kæranda megi sjá að hún sé með allar tennur í efri og neðri gómi að undanskildum endajöxlum. Á ljósmyndum megi sjá merki um djúpt bit og slit á bitflötum fram- og augntanna í neðri gómi. Ómeðhöndlað bakflæði geti leitt til þess að glerungur tanna og tannbein leysist upp. Þær hliðar tanna, sem sýran nái að leika um, þynnist því. Eins og sjá megi á ljósmyndum séu merki um glerungseyðingu sýnileg í munni kæranda en ekki alvarleg. Leiða megi líkum að því að orsök sýnilegs slits á bitflötum fram- og augntanna í neðri gómi megi að mestu leyti rekja til djúps bits kæranda. Ekki verði ráðið af framlögðum gögnum að tannvandi kæranda sé alvarlegur í skilningi laganna eða sannanlega afleiðing bakflæðis.
Málsgögn sýni stóra viðgerð í jaxli 26 og því sé þörf fyrir krónu fyrst og fremst vegna stórrar viðgerðar vegna tannátu en ekki sýrueyðingar, en mikill vafi sé talinn leika á því í fræðunum að bakflæði valdi tannskemmdum.
Að mati Sjúkratrygginga Íslands sé því ljóst að tannvandi kæranda teljist ekki vera alvarlegur né sannanlega afleiðing bakflæðis og skilyrði 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laganna því ekki uppfyllt í tilviki kæranda.
Með vísan í framangreint beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn kæranda um greiðsluþátttöku í tannlækningum.
Samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar taka sjúkratryggingar til nauðsynlegra tannlækninga aldraðra, öryrkja og barna yngri en 18 ára, annarra en tannréttinga, sem samið hefur verið um samkvæmt IV. kafla laganna. Þá taka sjúkratryggingar samkvæmt 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. til tannlækninga vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Samkvæmt 2. mgr. 20. gr. setur ráðherra reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar. Núgildandi reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar og tannréttingar er nr. 766/2024.
Samkvæmt gögnum málsins tilheyrir kærandi ekki þeim hópum sem tilgreindir eru í 1. málsl. 1. mgr. 20. gr. laga um sjúkratryggingar og kemur því til álita hvort hún kunni að eiga rétt á greiðsluþátttöku samkvæmt 2. málsl. sömu málsgreinar.
Í III. kafla reglugerðar nr. 766/2024 er fjallað um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar og tannréttingar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.
Í 11. gr. reglugerðarinnar eru tiltekin eftirfarandi tilvik þar sem greiðsluþátttaka er fyrir hendi vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla eða sjúkdóma:
„1. Meðfæddrar vöntunar einnar eða fleiri fullorðinstanna framan við 12 ára jaxla, sbr. þó 12. gr.
2. Vansköpunar fullorðinstanna framan við 12 ára jaxla sem leiðir til alvarlegra útlitsgalla eða starfrænna truflana tyggingarfæra.
3. Rangstæðra tanna, þ.m.t. endajaxla, sem tengdar eru meini (cystu eða æxli), kjálkabeindrepi, eða vegna kjálkafærsluaðgerðar.
4. Tanna, annarra en endajaxla, sem líklegar eru til þess að valda skaða á nærliggjandi fullorðinstönnum eða stoðvefjum þeirra eða hindra uppkomu þeirra.
5. Alvarlegra einkenna frá kjálkaliðum eða tyggivöðvum.
6. Alvarlegrar sýrueyðingar glerungs og tannbeins fullorðinstanna framan við 12 ára jaxla.
7. Alvarlegs niðurbrots á stoðvefjum tanna framan við 12 ára jaxla.
8. Alvarlegra tannskemmda, framan við 12 ára jaxla sem leiða af varanlega alvarlega skertri munnvatnsframleiðslu af völdum geislameðferðar, Sjögrenssjúkdóms eða lyfja. Mæling á magni og samsetningu munnvatns skal fylgja umsókn.
9. Annarra sambærilegra alvarlegra tilvika.“
Við úrlausn þessa máls kemur til skoðunar hvort tilvik kæranda falli undir framangreinda 11. gr. reglugerðar nr. 766/2024. Í umsókn B tannlæknis um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar, dags. 8. júlí 2024, er greiningu, sjúkrasögu og meðferð lýst svo:
„Sótt er um greiðsluþátttöku í nk facettur fyrir #33-43 og krónusmíði fyrir tönn #26 vegna Glerungseyðingar og slits, sjá læknabréf.“
Í gögnum málsins er einnig að finna afrit af yfirlitsröntgenmynd af tönnum kæranda og kjálkum, ljósmyndir af tönnum og læknabréf, þar sem fram kemur að kærandi sé með magasár.
Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð tannlækni, hefur yfirfarið fyrirliggjandi gögn málsins. Úrskurðarnefndin telur að ekki verði ráðið af þeim, þar á meðal myndum af tönnum kæranda, að vandi vegna tanna kæranda falli undir einhvern af töluliðum 1–8 í 11. gr. reglugerðar nr. 766/2024. Greina má slit á bitflötum fram- og augntanna í neðri gómi en ljóst er að kærandi er með djúpt bit. Úrskurðarnefndin fær ekki ráðið af gögnum málsins að glerungseyðing í tilviki kæranda sé alvarleg. Því telur nefndin að ekki verði séð að svo alvarleg vandamál hafi verið til staðar eða yfirvofandi í eða við tennur kæranda, sem bregðast þurfti við, að þau gætu talist sambærileg við þau vandamál sem tilgreind eru í 1.–8. tölulið. Því á 9. töluliður ekki heldur við um kæranda. Ljóst er því, að mati úrskurðarnefndarinnar, að greiðsluþátttaka getur ekki fallið undir 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laga um sjúkratryggingar þar sem ákvæðið á eingöngu við þegar um er að ræða alvarlegar afleiðingar meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.
Með vísan til þess, sem rakið er hér að framan, er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé fyrir hendi heimild til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði vegna tannlækninga kæranda. Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn kæranda um greiðsluþátttöku í tannlækningum er staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn A, um greiðsluþátttöku í tannlækningum, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson